Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 10

Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stnórnarandstaða gagnrýnir harðlega tillögur ríkisstjórnar í skattamálum STJÓRNARANDSTAÐAN gagnrýndi tillögur ríkis- stjórnarinnar um breyting- ar á skattalögum harðlega við fyrstu umræðu um breytingar á lögum um tekju- og eignaskatt í gær. Var hún sammála um að tillög- urnar fælu ekki í sér kjarajöfnun heldur fengju þeir sem betur væru settir meira út úr breytingunum. Fjármálaráðherra sagði að tekjujöfn- un væri mjög mikil í íslenska skatta- kerfinu. Þannig væri einungis 2,7- faldur munur á þeim 20% fólks sem væri tekjuhæst og þeim fimmtungi fólks sem væri tekjulægst þegar búið væri að taka tillit til skatta. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir að flokkurinn væri ekki tilbúinn til að taka þátt í nefndarstarfi um undir- búning upptöku flármagnstekju- skatts á þeim grundvelli sem ríkis- stjórnin legði. Hins vegar væri flokk- urinn tilbúinn til samstarfs á breið- ara grundvelli, þar sem allir sem að málinu kæmu gætu haft áhrif á for- sendurnar. Friðrik Sophusson, Qármálaráð- herra, mælti fyrir tekjuskattsfrum- varpinu og fór yfir einstök atriði, í því sambandi. Hann sagði varðandi tvísköttun á lífeyri og aðgerðir til að koma í veg fyrir það að ástæðan fyrir því að sú leið hefði verið valin að 15% af tekjum úr lífeyrissjóði væru undanþegin skatti væri til að koma til móts við eldra fólk sem fengi tekjur úr sjóðunum. Hátekju- skattur væri framlengdur í eitt ár, en tekjumörkin hækkuð úr 200 í 225 þúsund fyrir einstakling og úr 400 í 450 þúsund fyrir hjón. Sagði hann að athuganir hefðu sýnt að það væri að stórum hluta ungt fólk og sjómenn sem lentu í að greiða þennan skatt og sagði að það yrði að hafa í huga að jaðarskatt- ur á þessu fólki væri orðinn rnjög hár, þar sem vaxtabætur og bama- bótaauki væri tekjutengt. Sagði hann tekjujöfnun íslenska skattakerfísins mjög mikla, þar sem persónuafslátt- ur væri mikill og skatthlutfall mjög hátt. Alltof sjaldan væri minnst á þetta. Hann sagði að það gleymdist að skoða málin í samhengi þegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar væru gagnrýndar af Alþýðusambandinu á þeim forsendum að þær fælu ekki í sér kjarajöfnun. Enginn framsóknar- maður starfi í nefnd um fjármagnstekjuskatt í umræðum á skattalagabreytingar á alþingi í gær sagði fjármálaráðherra tekjujöfnun hérlendis mjög mikla og einungis sé 2,7 - faldur munur á tekjum þess fimmtungs sem hefur hæst og lægst laun að teknu tilliti til skatta. Rifjaði hann upp að ríkisstjórnin hefði lækkað virðisaukskatt á mat- væli og það hefði til dæmis komið þeim til góða sem væru undir skatt- leysismörkum og ekki væri hægt að ná til í gegnum tekjuskattskerfið. Hann benti einnig á að ríkisstjómin hefði beitt sér fyrir setningu laga um húsaleigubætur á síðasta ári. Breikkun eignaskattsstofns Jóhannes Sigurgeirsson, Fram- sóknarflokki, boðaði að Framsókn- arflokkurinn myndi flytja tillögur um breikkun eignaskattsstofnins, þannig að fjármagnseignir yrðu teknar þar undir og að mörk hátekjuskatts yrðu óbreytt. Tekjur vegna þessara breyt- inga yrðu 1,5 til 2 milljarðar og yrðu jafnframt fluttar tillögur um að nota þetta fjármagn til að leiðrétta verstu gallana á vaxtabótum, bamabótum og á bifreiðagjöldum. Jafnframt yrði eftir fjármagn til að beija í verstu brestina varðandi jöfnun húshitun- arkostnaðar og Ijárveitingar til menntamála. Steingrímur Sigfússon, Alþýðu- bandalagi, gerði meðal annars að umtalsefni þær tillögur stjórnvalda að tekjuskatt þui’fí ekki að greiða af 15% af tekjum úr lífeyrissjóði. Furðaði hann sig á því að ekki hefði verið farin sú leið til að koma í veg fyrir tvísköttun að inngreiðsla laun- þega væri undanþegin skatti. Hann benti á að inngreiðslur mjög margra þeirra sem væm á lífeyri nú hefðu verið undanþegnir tekjuskatti þegar þær vom greiddar þar sem skattur hefði ekki lagst á greiðslur launþega í lífeyrissjóð fyrr en með staðgreiðslu skatta. Þessi regla þýddi mjög mikil skattfríðindi þeirra sem fengju háar greiðslur úr lífeyrissjóðum sem hlyti að vera mikið álitamál. Varpaði hann fram þeirri spurningu af hveiju hefði ekki verið fremur farin sú leið að búa til frítekjumark. Hann gagnrýndi afnám sérstaks eignaskattsþreps, svonefnds ekkna- skatts, og sagði að hann væri lítils- háttar álag á stóreignir hátekjufólks, þær reglur sem um hann giltu tryggðu það. Skatturinn væri tékju- tengdur og færi stiglækkandi hjá þeim sem væm með tekjur undir 2 milljónum og féllu niður við eina milljón króna árstekjur. 3.200 manns hefðu borgað skattinn. Þar af væru ellilífeyrisþegar 160 og langflestir sem greiddu hann væri fólk á aldrin- um 45-60 ára, sem væri stórefnað fólk með háar tekjur. Fyrst og fremst fyrir hátekjufólk Kristín Ástgeirsdóttir, Kvenna- lista, sagðist ekki skilja vinnubrögð ríkisstjórnarinnar varðandi það hvað þessi frumvörp litu seint dagsins ljós. Húns sagði að boðaðar breytingar á Steingrímur J. Sigfússon Friðrik Sophusson Kristín Ástgeirsdóttir Halldór Ásgrímsson Jóhanna Sigurðardóttir skattkerfinu kæmu fyrst og fremst hátekjufólki til góða. Hún fagnaði hins vegar þeirri ákvörðun að við- halda hátekjuskattinum og sagði að það væri með ólíkindum hvað hann skilaði litlum tekjum. Hún sagði að skattbyrði væri orðin mjög mikil og lægi mjög þungt á heimilunum í land- inu. Það væri mikil þörf á að létta hana, en því miður væri ekki farin sú leið í þessum ráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar. Sá hængurinn væri á þeim að það væri verið að ausa pen- ingum í þá sem nóg ættu fyrir. Þá fannst henni tölur flármálaráð- herra um tekjumun eftir skatta mjög ótrúlegar. Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóðvaka, sagði að kjarajöfnun aðgerða ríkis- stjómarinnar væri óveruleg og þeir sem væm undir skattleysismörkum fengju ekki neitt. Hún sagði að hækk- un persónuafsláttar kostaði 1.500- 1.600 milljónir og lagði til að öllu því fé yrði varið til þess að bæta kjör tekjulægstu hópanna. Það væri flókn- ari leið en vel fær ef einhver meining væri á bak við tal um kjarajöfnun. Varðandi breytingar á tvísköttun líf- eyris sagði hún að sú leið sem valin hefði verið kæmi best út fyrir þá sem mest hefðu fyrir. Sagði hún það dap- urlega niðurstöðu fyrir Alþýðuflokk- inn sem hefði krafíst flármagnstekju- skatts á flokksþingi sínu í sumar, sem taka ætti gildi í haust, að sjá fram á stofnun enn einnar nefndarinnar til að fara yfír málið. Halldór Ásgrímsson, Framsókn- arflokki, sagði að Framsóknarflokk- urinn væri ekki tilbúinn til þess að taka þátt í nefndarstarfi til undirbún- ings upptöku flármagnstekjuskatts á þeim forsendum sem ríkisstjórnin legði til, þar sem það væri tengt nið- urfellingu hátekjuskatts. Það væri hins vegar opið að taka þátt í slíku samstarfi ef það væri á forsendum allra sem að því kæmu. Framsóknar- flokkurinn væri tilbúinn til þess að taka þátt í samstarfi um kjarajöfnún á breiðum grundvelli, en hann væri ekki tilbúin til að taka þátt í nefnd- arstörfum ef þetta væri eingöngu bundið við eitt atriði sem núverandi stjómarflokkar gætu ekki komið sér saman um. Fjármálaráðherra svaraði því til að ríkisstjórnin væri að bjóða upp á samstarf um þetta vegna þess að hún teldi óeðlilegt að hún beitti sér fyrir setningu laga á vorþingi sem tækju gildi um þarnæstu áramót þegar ný ríkisstjórn hefði sest að völdum. Því hefði verið talið eðlilegt að bjóða stjórnarandstöðuflokkunum upp á samstarf um að móta reglur um fjármagnstekjuskattinn. Forathugun bendir tii að 125 þúsund tonna sinkverksmiðja væri hagkvæm Starfsemi gæti hafist eftir 4 ár Miðað við núverandi framleiðslugetu á sinki og áætlaðan vöxt í sinknotkun er þörf á fleiri sinkverksmiðjum. Bandaríska fyrir- tækið Zink Corporation of America hefur kannað hagkvæmni þess að reisa slíka verksmiðju hér á landi. SINK-verksmiðju yrði ætlaður staður á Grundartanga, við hlið Járnblendiverksmiðjunnar, en forvinnsla yrði i Gufunesi. SAMKVÆMT forathugun Zink Corporation of Amer- ica er hagkvæmasti kost- urinn við byggingu sink- verksmiðju hér á landi sá að reisa 100 þúsund tonna rafhitunarverk- smiðju og um 25 þúsund tonna sinkoxíðverksmiðju, auk þess að reisa verksmiðju sem sæi að mestu um forvinnslu á hráefni. Gert er ráð fyrir að starfsemi heljist árið 1998 og ef af verður er rafhitunarverk- smiðjunni og sinkoxíðverksmiðjunni ætlaður staður á Grundartanga, við hlið Jámblendiverksmiðjunnar, en forvinnsla yrði á lóð Áburðarverk- smiðjunnar í Gufunesi. Heildarkostn- aður er áætlaður um 150 milljónir Bandaríkjadala, eða 10,3 milljarðar króna, og reiknað er með 3-400 manna starfsliði. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu, sem Áburðarverksmiðjan sendi frá sér í gær, en hér á landi eru nú staddir fulltrúar Zink Corporation of America (ZCA). Þeir funduðu í gær með þeim aðilum hér á landi, sem koma að undirbúningi hugsan- legrar sinkverksmiðju, og ræddu við m.a. við fulltrúa Landsvirkjunar og Islenska jámblendifélagsins. Þörf á nýrri verksmiðju I tilkynningunni kemur fram, að ZCA hóf í ágúst sl. forathugun á því að reisa og reka sinkverksmiðju hér á landi, samkvæmt samkomulagi Áburðarverksmiðjunnar, Markaðs- skrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar, Allied Resource Corporation og Horsehead Industr- ies. Enn fremur hafi ZCA verið falið að kanna hvort hagkvæmt væri að nýta eignir og aðstöðu á lóð Áburðar- verksmiðjunnar í Gufunesi í tengsl- um við sinkverksmiðju. Niðurstöður ZCA voru afhentar íslenskum sam- starfsaðilum fyrirtækisins í gær. Þar kemur fram, að sinknotkun heimsins vex um 2-3% á ári. Verslun með ýmsa málma hafi lent í kreppu þegar saman fór venjubundinn öldudalur í heimsversluninni og hrun Sovétríkj- anna. Kreppan hafi lýst sér í ójafn- vægi á milli framboðs og eftirspurn- ar og lágu verði. Rafhitunaraðferð hagkvæmust Verð á sinki (verðlag 1994) hafi engu að síður verið 1.300 Banda- ríkjadalir á tonn að meðaltali und- anfarin 23 ár og sé það verð lagt til grundvallar í athuguninni. Því sé spáð að framleiðslugeta á sinki verði of lítil næstu tvö til þijú árin, enda hafi engar nýjar sinkverksmiðjurtek- ið til starfa undanfarin ár. Áætlaður vöxtur í sinknotkun krefjist þess þegar fram líða stundir að ný verk- smiðja taki til starfa á eins og hálfs til tveggja ára fresti. Fimm framleiðsluaðferðir á sinki, sem notaðar eru á Vesturlöndum, voru athugaðar með tilliti til verk- smiðju hér. „Niðurstaðan er sú að rafhitunaraðferð, sem Zink Corpor- ation of America notar í verksmiðju sinni í Pittsburgh í Pennsylvaníu, henti best við íslenskar aðstæður. Framleiðsluaðferðin er hreinleg og mætir öllum kröfum umhverfísyfir- valda í Bandaríkjunum. Auk fram- leiðslu á sinki í hleifum yrði-framleit sinkoxíðduft í verksmiðjunni," segir í frétt Áburðarverksmiðjunnar. Þá kemur fram, að Rafhitunar- verksmiðjan og sinkoxíðverksmiðjan yrðu reistar á Grundartanga við hlið- ina á Járnblendiverksmiðjunni. Bæði sé aðstaða þar mjög góð, nægilegt landrými og höfn og eins sé hugsan- legt að samnýta þjónustu með Járn- blendifélaginu. Forvinnsluverksmiðj- an yrði hins vegar á lóð Áburðarverk- smiðjunnar í Gufunesi. „Heildar- kostnaður vegna tækja og mann- virkja er áætlaður um 150 milljónir dala. Hér er um að ræða niðurstöður úr forkönnun, þannig að taka verður kostnaðartölum með fyrirvara. Arð- semi er mun meiri hjá rafhitunar- verksmiðju en rafgreiningarverk- smiðju og þar að auki þarf að hætta mun minna fjármagni til að reisa arðbæra verksmiðju. Rafhitunar- verksmiðja þolir mun lægra söluverð á sinki en hefðbundin verksmiðja. Forathugunin1 gerir ráð fyrir að ís- lenska verksmiðjan hefji framleiðslu árið 1998. Niðurstaðan er sú að ís- lenska verksmiðjan virðist sam- keppnishæf. Við verksmiðjuna myndu vinna 300-400 manns, þar af um 100 í Gufunesi. Áætlað er að raforkukaup gætu numið um 440 GW-stundum þegar vinnsla væri komin á fullt. Rætt um raforkuverð Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði að fulltrúar ZCA hefðu fundað með Landsvirkj- unarmönnum í gær. „Það liggja eng- ar endanlegar tölur fyrir og viðræð- um lýkur ekki í þessari heimsókn Bandaríkjamannanna," sagði Hall- dór í samtali við Morgunblaðið síð- degis í gær. „Við skiptumst á skoð- unum um hugsanlegt orkuverð og skilmála, en ég vil ekki gefa upp hveijar hugmyndir manna þar að lútandi eru.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.