Morgunblaðið - 16.12.1994, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AKUREYRI
Flugafgreiðslan hf. á Keflavíkurflugvelli
Hvarf á varn-
ingi í rannsokn
hjá lögreglu
ÞREMUR starfsmönnum Flugaf-
greiðslunnar hf. í Keflavík var sagt
upp störfum á miðvikudag en óskað
hefur verið eftir lögreglurannsókn
vegna varnings sem tapast hefur
úr sendingum hingað til lands að
undanförnu. Til dæmis hafa dýr úr
horfið, að sögn lögreglu á Keflavík-
urflugvelli.
Að sögn lögreglu eru starfs-
mennirnir sem sagt var upp ekki
grunaðir umfram aðra starfsmenn
og hafi vinnuveitandinn sagt þeim
upp á eigin forsendum. Starfsmenn
Flugfraktar hf. voru yfirheyrðir í
gær en rannsókn er á frumstigi.
Þær upplýsingar fengust á mið-
vikudagskvöld að kæra hefði borist
Rannsóknarlögreglu ríkisins í haust
frá verslun í Reykjavík vegna þjófn-
aðar á úrum. Sú kæra var ekki lögð
fram fyrr en mjög dýr úr, sömu
gerðar og þau sem vantað hafi í
sendinguna, hafi verið boðin versl-
uninni til kaups.
í framhaldi af kæru verslunar-
innar bárust böndin, að sögn lög-
reglu, að Fiugfrakt á Keflavíkur-
flugvelli en samkvæmt upplýsing-
um láta fyrirtæki oft og tíðum ekki
vita þegar varningur hverfur úr
sendingum og einnig sé erfitt að
gera sér grein fyrir hvort siíkt eigi
sér stað hér á landi eða á erlendum
flugvöllum. Tilkynnt sé um hvarf á
vörum til Flugleiða og séu fyrirtæk-
in jafnframt tryggð fyrir því þegar
varningur tapast.
Að sögn lögreglu er verið að fara
yfir skýrslur um rýmun fyrir allt
síðasta ár og er hvarf á margs
konar varningi auk úranna til rann-
sóknar sem ekki fékkst tilgreindur
nánar.
Óskar Þórmundsson, yfirlög-
regluþjónn í rannsóknarlögreglu
lögregluembættisins á Keflavíkur-
flugvelli, vildi ekki tjá sig um rann-
sóknina í samtali við Morgunblaðið.
Islensk náttúra á
vel við heimstískuna
Flórída. Morgunblaðið.
ÍSLENSK náttúra og heims-
tískan í vetrarfatnaði eiga vel
saman. Það sannast m.a. á átta
myndblaðsíðum í desember-
hefti hins heimsfræga tímarits
Mademoiselle. Blaðið sendi
ljósmyndara ásamt tískusýn-
ingarstúlkum og miklu af
skrautlegum og fallegum vetr-
arfatnaði frá ýmsum löndum
til að mynda hann í fögru og
nýstárlegu umhverfi á íslandi.
Bláa lónið ogjöklar
Myndirnar eru teknar í urð
á fjallstoppi, í Bláa lóninu, á
jöklum uppi, þar sem jökulspr-
ungurnar gapa fáa metra frá
sýningarstúlkunum, við hvít-
fyssandi brimströnd og í
dimmgrænu umhverfi þar sem
stúlkurnar smala kindum í
stórgrýttri hlíð eða gæla við
hesta við bænahús með torf-
þaki.
Tímaritið Mademoiselle er
gefið út í 1,2 milljónum eintaka
og auglýsingasíðan í því kostar
15 þúsund dollara eða rúmlega
eina milljón króna.
Svipaða kynningu á haust-
tískunni í skjólfatnaði mátti sjá
á 6 blaðsíðum í septemberhefti
Elle. Upplag þess er ein milljón
eintök og auglýsingasíðan er
mun dýrari en í Mademoiselle.
Þarna gefa grænar hlíðar ís-
lenskra fjalla og gamlar bygg-
ingar tískunni góðan og sterk-
an bakgrunn.
Það er kynningardeild
Ferðamálaráðs New York sem
á frumkvæðið að því að kynna
þessum heimsfrægu blöðum
möguleikana sem finna má á
íslandi. Skrifstofa Ferðamála-
ráðs í New York er sífellt að
kynna Island og verður mun
betur ágengt en kynningar-
skrifstofum annarra Norður-
landa sem vinna að sama
markmiði.
I nóvember/desember hefti
Eco Traveler er t.d. átta blað-
síðna grein með fallegum
myndum um gönguferð um
öræfi íslands undir íslenskri
leiðsögn; skemmtileg grein
með mikið auglýsingagildi.
Formaður fjárlaganefndar
Verkefni spítalanna
að raða á kaupalista
FORMAÐUR fjárlaganefndar segir
að það hljóti að vera verkefni stjórn-
enda Ríkisspítalanna að ákveða for-
gangsröð á tækjakaupalista.
Krabbameinsdeild Landspítalans
hefur óskað eftir því að keyptur
verði línuhraðall í stað kóbalt-
geislameðferðartækis, sem orðið er
26 ára gamalt og á að taka úr
notkun á miðju næsta ári þar sem
framleiðandinn telur sig ekki geta
ábyrgst það næstu 5 ár. Svavar
Gestsson þingmaður Alþýðubanda-
iags gagnrýndi meirihluta fjáriaga-
nefndar á Alþingi í vikunni fyrir
að samþykkja ekki fjárveitingu til
kaupa á nýju tæki.
Sigbjörn Gunnarsson formaður
fjárlaganefndar sagði, að þegar
stjórnendur Ríkisspítalanna komu á
fund nefndarinnar við undirbúning
fjárlagagerðar hefði komið fram að
um væri að ræða vandamál varð-
andi kóbalttækið.
„Síðan hefur það gerst að heil-
brigðisráðherra og fjármálaráðhera
hafa samið við stjómendur stofnun-
arinnar um það með hvaða hætti
fjárveitingar verði næstu árin. Það
hlýtur að vera verkefni stjórnenda
stofnunar með 6.500 milljóna króna
veltu að raða á verkefnalista. Þar
er stjórnarnefnd, þar eru stjórnend-
ur og það er þeirra aðila að taka
siíkar ákvörðanir. Það er ekki hægt
að ýta þeim yfir á stjórnmála-
menn,“ sagði Sigbjörn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skófram-
leiðsla haf-
in áný
KRISTINN Bergsson hefur hafið
skóframleiðslu á Akureyri, en
hann starfaði um tveggja ára-
tuga skeið sem skóhönnuður og
verksljóri hjá Skógerð „Iðunnar“
á Akureyri og seinna hjá Strik-
inu. Þá aðstoðaði hann skóverk-
smiðjuna Skrefið á Skagaströnd
þegar skóframleiðsla hófst þar.
Fyrirtæki Kristins mun fram-
leiða léttan skófatnað, svo sem
hina vinsælu heilsuskó undir
nanfinu „K.B. Skósmiðja" og eru
fyrstu skórnir komnir í Skóversl-
un M.H. Lyngdal á Akureyri.
Kristinn keypti skóvinnuvélar
frá Danmörku og mun hann
starfa einn að framleiðslunni
fyrst um sinn en hann væntir
þess að skórnir hljóti góðar við-
tökur landsmanna.
Tillaga um að færa hlutafé Dagsprents niður í 5% nafnvirðis
KEA og Kaffibrennslan
með 10 millj. framlag
SAMÞYKKT var á stjórnarfundi
Kaupfélags Eyfirðinga sem haldin
var í fyrradag tillaga um að færa
hlutafé Dagsprents hf. niður í 5%
af nafnverði. Hlutafé er nú um 68
milljónir króna. Óformlegar við-
ræður eru í gangi við hugsanlega
nýja hiuthafa.
KEA með 10 milljónir
Sigurður Jóhannesson formaður
stjórnar Dagsprents sagði að stjórn
Kaupfélags Eyfirðinga sem ætti
meirihluta í félagsinu eða um 60%
hlutaijár hefði verið samþykkt að
heimila fulltrúum KEA í stjórn
Dagsprents að samþykkja tillögu
á hluthafafundi sem væntanlega
verður haldinn milli jóla og nýjárs
þess efnis að hlutafé Dagsprents
verði fært niður í 5% af nafnverði.
Einnig var samþykkt á stjórnar-
fundi KEA að félagið og Kaffi-
brennsla Akureyrar sem er í eigu
KEA og á um 8% hlutabréfa í
Dagsprenti muni leggja fram nýtt
Viðræður í gangi
við hugsanlega
nýja hluthafa
hlutafé í Dagprent hf. að upphæð
allt að 10 milljónir króna að því
tilskildu að jafn há upphæð komi
á móti frá nýjum hluthöfum.
„Þetta gjörbreytir stöðunni
gagnvart nýjum hluthöfum og gef-
ur þeim mun meira vægi,“ sagði
Sigurður. Hann sagði óformlegar
viðræður í gangi við nokkra aðila
um að leggja fram nýtt hlutafé í
fyrirtækið. „Þessi mál fara form-
lega á hreyfingu núna eftir að fyr-
ir liggur samþykkt stærsta hlut-
afjáreigands um að færa niður
hlutafé sitt. Við það skapast for-
sendur til mun ákveðnari viðræðna
við hugsanlega nýja hluthafa."
Farsælt ár
Dagsprent hefur átt í langvar-
andi erfiðleikum í rekstri og stend-
ur greiðslustöðvun fyrirtækisins
yfir til 24. janúar næstkomandi.
Áður hefur verið gripið til upp-
sagna starfsfólks og þá var ný-
bygging þess seld Byggðastofnun
fyrir nokkrum misserum. „Rekstr-
arlega hefur staðan gjörbreyst. Þó
við höfum átti í erfiðleikum þá
horfum við ekki lengur fram á gíf-
urlegt vandamál eins og var. Þetta
ár hefur verið okkur farsælt í
rekstri miðað við fyrri ár. Þær
ráðstafanir sem við höfum gripið
til eru farnar að skila sér,“ sagði
Sigurður.
Hann sagði menn horfa tiltölu-
lega bjartsýna til nýs árs, „en auð-
vitað sjá menn að blaðaútgáfa út
um landið er engin veisla. Flestir
eru þó á því að það yrði mikill sjón-
arsviptir af því ef blaðið hætti að
koma út þannig að menn vilja
mikið á sig leggja til að halda
rekstrinum gangandi.“
Jólasöngvar
Kórs Akur-
eyrarkirkju
JÓLASÖNGVAR Kórs Akureyrar-
kirkju verða í Akureyrarkirkju
sunnudagskvöldið 18. desember kl.
20.00. Á efnisskránni eru aðventu-
og jólalög frá ýmsum tímum.
Stjórnandi krósins er Björn Steinar
Sólbergsson.
Gestum gefst auk þess að hlýða
á kórinn færi á að æfajólasálmana
þvi almennur safnaðarsöngur er
einnig á dagskránni. Á síðustu jóla-
föstu var gerð tilraun með að sam-
eina jólasöngva fjölskyldunnar og
jólatónleika Kórs Akureyrarkirkju
undir yfirskriftinni „Syngjum jólinn
inn“ og heppnaðist hún vel.
Söngsamkoma
SÖNGSAMKOMA verður í Hvíta-
sunnukirkjunni sunnudagskvöldið
18. despmber og hefst hún kl.
20.00. Á samkomunni verða jóla-
sálmar sungnir af kór safnaðarins.
Júlíana Þórólfsdóttir og Erdna
Varðardóttir syngja einsöng. Þá
verður einnig tersett og kvartett.
Anna Elísa Hreiðarsdóttir flytur
jólahugleiðingu í lok samkomunn-
ar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Alhliða trésmíði og líkkistur
FEÐGARNIR og trésmiðirnir
Einar Valmundsson og Valmund-
ur Einarsson hófu nýlega rekstur
trésmiðjunnar Einvals í rúmgóðu
húsnæði á Óseyri 4 á Akureyri.
Auk þess að bjóða alhliða tré-
smíðaþjónustu hafa þeir einnig
hafið smiði og framleiðslu á lík-
kistum ásamt tilheyrandi búnaði,
en Elsa Pálmey Pálmadóttir, eig-
inkona Valmundar, sér um alla
saumavinnu. Einar er öllum
hnútum kunnugur því eldra fyr-
irtæki, sem var í hans eigu, sá
um slíka þjónutu um langt, árabil.
Þeir feðgar segja Islendinga
troða hefðbundnar slóðir og vera
formfasta í þessum efnum en
sáralitlar breytingar hafi orðið í
líkkistusmíðum um langt skeið.