Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 13
LANDIÐ
Breytingar í flugstöðinni á Egilsstöðiim
Gjörbreytt inn-
ritunaraðstaða
Egilsstöðum - Ný innritunaraðstaða
fyrir flugfarþega hefur verið tekin í
notkun í flugstöðinni á Egilsstöðum.
Miklar breytingar verða fram-
kvæmdar í flugstöðinni í kjölfar nýrr-
ar flugbrautar, sem liggur vestan
megin við flugstöðina, en gamla
brautin austan megin. „Því þarf nán-
ast að hafa endaskipti á öllum hlut-
um“, segir Einar Halldórsson um-
dæmisstjóri Flugleiða. Einnig hafa
verið settar upp girðingar á flug-
hlaði, svo gæta megi fyllsta öryggis
gagnvart farþegum.
Að sögn Einars, hafa Flugleiðir
2/3 hluta innritunaraðstöðunnar fyr-
ir sína afgreiðslu, þ.e. fyrir F'ugleið-
ir, Flugfélag Austurlands og Flugfé-
lag Norðurlands. Þriðja hluta aðstöð-
unnar hafa aðrir aðilar, íslandsflug
og aðrir sem vilja nýta aðstöðuna,.
Flugleiðir hafa ennfremur tekið í
notkun nýja skrifstofu og segir Einar
að félagið hafi mjög góða aðstöðu í
dag, enda sé það loksins komið réttu
megin í húsið. Birkitré á Egilsstöðum
vann innréttingasmíðina, sem fær lof
flugfarþega fyrir fallegt yfirbragð.
Morgunblaðið/Sig.Að.
VEGVÍSIR við vegamótin upp á Efra-Jökuldal.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Eyjahreppur og Miklaholtshreppur
Búnaðarfélög
sameinuð
Eyja- og Miklaholtshreppi -
Nýlega var haldinn sameiginleg-
ur fundur búnaðarfélaganna
sem voru í Eyjahreppi og Mikla-
holtshreppi. Nú er búið að sam-
eina þessi félög í eitt.
Árið 1868 var stofnað búnað-
arfélag fyrir Eyja- og Mikla-
holtshrepp og hélst sú skipan til
ársins 1891 að þar var stofnað
búnaðarfélag Miklaholtshrepps.
Nú eitthundrað og þremur árum
síðar eru félögin sameinuð aft-
ur-.
I stjórn þessa sameinaða fé-
lags eru nú: Bjarni Alexanders-
son, Stakkhamri, formaður,
Helgi Ó. Guðjónsson, Hrútsholti,
gjaldkeri og Halldór Kr. Jónsson,
Þverá, ritari.
Jarðvinnu að
ljúka við
Loðnuvinnslu
JARÐVINNU að byggingu
Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðs-
firði lýkur senn og er búið ryðja
fyrir stórum grunni. Verkið
hefur unnist hægar en gert var
ráð fyrir í upphafi.
Verktaki er Vökvavélar hf. á
Egilsstöðum. Búið er að bjóða
út uppsteypu á sökklum og
steypuvinnu undir húsið og
ganga frá samningum við verk-
taka. Það eru þrír verktakar
sem sameinast um verkið og eru
tveir frá Fáskrúðsfirði og einn
frá Djúpavogi.
Piparkökur bakaðar
fyrirjólin
Vegvísir
að Efra-
Jökuldal
Vaðbrekku - Vegagerð ríkisins
hefur að frumkvæði hreppsnefnd-
ar Jökuldalshrepps sett upp veg-
vísi við vegamótin hjá Gilsá á Jök-
uldal með upplýsingum um veginn
upp á Efra-Jökuldal.
Á skiltinu eru hagnýtar upplýs-
ingar fyrir vegfarendur um byggð
og vegi á Efra-Jökuldal, í Hrafn-
kelsdal og í Jökuldalsheiði.
Til hagsbóta
Ekki koma fram upplýsingar
um vegalengdir á bæina, nema
tvo, það er Aðalból og á annan
stað sem er um það bil miðja vegu
á Efra-Jökuldal.
Framtak þetta verður þó til
hagsbóta fyrir vegfarendur og
fólkið sem býr á svæðinu.
Vestmannaeyjum - Krakkarnir
á leikskólanum Kirkjugerði í
Vestmannaeyjum bökuðu pip-
arkökur fyrir jólin fyrir
skömmu. Mikið var að gera í
Kirkjugerði þennan dag og litlu
bakararnir, sem voru mjög
áliugasamir um baksturinn,
skáru út og bökuðu piparkökur
af ýmsum gerðum.
Krakkarnir mættu með
kökukefli og kökumót að heim-
an og síðan aðstoðuðu leik-
skólakennararnir þá við bakst-
urinn. Krakkarnir voru greini-
lega með uppskriftina af pipar-
kökudeiginu á hreinu og sungu
piparkökusönginn úr Dýrunum
í Hálsaskógi til að kenna starfs-
fólkinu í Kirkjugerði hvernig
blanda ætti deigið. Sumir voru
nokkuð duglegir við að fletja
út þó deigið vildi stundum velt-
ast upp á keflið, en það gerði
lítið til því þá var bara hnoðað
saman aftur og síðan byijað að
flelja út að nýju.
Það kom því nær eingöngu í
hlut starfsfólksins að sjá um að
fletja út en krakkarnir sáu um
að skera ýmiss konar myndir
úr útflöttu deiginu. Jólatré,
stjörnur, fuglar, jólasveinar og
ýmislegt fleira var skorið út í
deigið sem síðan var sett í ofn-
inn enda angaði bökunarilmur-
inn um allan leikskólann.
Foreldrum var siðan boðið í
kaffiveislu í Kirkjugerði þar
sem boðnar voru nýbakaðar
piparkökur, en síðan tóku
krakkarnir afganginn af kök-
unum með heim til að hafa með
kaffinu um jólin.
Moi'gunblaðið/Sigurgeir Jónasson
LITLIR bakarar í leikskólanum Kirkjugerði í jólabakstrinum.
Það er sko þess virði að líta inn til okkar!
Dömu- og herrafatnaður á frábæru verði.
Regatta sportvörur o.m.fl.
Opið föstud. kl. 9-18
Laugardag ki. 10-22
Sunnudag kl. 13-17
Nýbýlavegi 4 (Dalbrekkumegin)
Kópavogi, sími 45800.
NYBYLAVEGUR
Toyota
dalbreKka