Morgunblaðið - 16.12.1994, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
H
ERLEIMT
í
Friðartillöffum Karadzic fá-
lega tekið á Vesturlöndum
Belgrad, París. Reuter.
RADOVAN Karadzic, leiðtogi
Bosníu-Serba, hefur lagt fram
nýjar friðartillögur í sex liðum en
viðbrögð vestrænna embættis-
manna og stjórnarerindreka ein-
kennast af tortryggni.
Karadzic kynnti tillögur sínar í
viðtali við CAW-sjónvarpið í fyrra-
kvöld. Hann sagði að Bosníu-Ser-
bar væru meðal annars reiðubúnir
að láta einhver landsvæði af hendi
og sleppa friðargæsluliðum Sam-
einuðu þjóðanna úr gíslingu. Hann
lagði til að samið yrði um vopna-
hlé í grennd við Sarajevo og að
flugfSllurinn þar yrði opnaður að
nýju. Hann kvaðst einnig vilja að
Jimmy Carter, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, gerðist milli-
göngumaður í Bosníudeilunni til
að binda enda á stríðið sem hefur
staðið í 32 mánuði.
Alain Juppé, utanríkisráðherra
Frakklands, hafnaði tillögunum og
sagði að Bosníu-Serbar yrðu að
fallast á friðaráætlun fimmveld-
anna svokölluðu, Bandaríkjanna,
Rússlands, Þýskalands, Bretlands
og Frakklands. „Tillögurnar eru
með ögrandi yfirbragð og það
sættum við okkur ekki við,“ sagði
Juppé.
Þungarokkarar
íSarajevo
BRUCE Dickinson og Alex
Elena úr þúngarokkssveit-
inni Iron Maiden héldu tón-
leika í Sarajevo í fyrrakvöld.
I gær heimsótti hljómsveitin
m.a. þetta munaðarleys-
ingjahæli í borginni.
»Uppgerð“
Embættismenn í Hvíta húsinu
í Washington sögðust hafa efa-
semdir um tillögurnar en bættu
við að ef þær lýstu raunverulegum
friðarvilja gætu þær orðið til þess
að draga úr spennunni í Bosníu.
„Ég sé engin merki um friðará-
ætlun,“ sagði Willy Claes, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins. „Þetta eru aðeins útlistun
á nokkrum atriðum.“
„Flest af því sem Karadzic virð-
ist leggja til núna er á hans valdi
að framkvæma nú þegar, þetta
virðist ekki vera neitt annað en
uppgerð," sagði evrópskur stjórn-
arerindreki sem vildi ekki láta
nafns síns getið. „Hann gefur sig
út fyrir að vilja koma á friði án
þess að bjóða neitt sem hald er í.“
Stjórnarerindrekar bentu á að
Karadzic nefndi ekki hvaða land-
svæði Bosníu-Serbar vildu láta af
hendi og ekkert benti til þess að
hann væri reiðubúinn að fallast á
friðaráætlun fimmveldanna.
Þarf að sýna friðarvilja
„Karadzic er augljóslega að
vona að þjóðir heims séu orðnar
svo þreyttar á stríðinu að þær séu
reiðubúnar að ræða hvað sem er
til að binda enda á það,“ sagði
einn stjórnarerindrekanna. „Hann
er enn einu sinni að reyna að vinna
tíma, skapa óvissu og glundroða,“
sagði embættismaður í Belgrad,
sem taldi tillögunum ætlað að
skapa óeiningu á Vesturlöndum
um friðaráætlun fimmveldanna og
einnig að sefa Slobodan Milosevic,
forseta Serbíu, sem hefur lagt fast
Reuter
að Bosníu-Serbum að fallast á frið-
aráætlunina.
Embættismaðurinn sagði að
þrýstingurinn frá Milosevic hafi
dregið úr eldmóði Bosníu-Serba,
sem hafi velt fyrir sér ummælum
serbneska forsetans um að gagns-
laust væri að beijast áfram þar
sem Serbar hefðu náð fram helstu
markmiðum sínum. „Við slíkar
aðstæður verður Karadzic að sýna
þjóð sinni að hann sé að vinna að
friði.“
Evrópskur embættismaður
sagði að Karadzic byndi augljós-
lega vonir við að Bandaríkin væru
„veiki hlekkurinn í keðjunni", eftir
að hafa fylgst með friðarumleitun-
um Carters á Haítí og í Norður-
Kóreu.
Carter kvaðst ekki hafa milli-
göngu í Bosníudeilunni sem full-
trúi Bandatíkjastjórnar og sagði
Bill Clinton Bandaríkjaforseta hóf-
lega bjartsýnan á að Bosníu-Ser-
bar vildu semja um frið. „Hann
var ánægður en ég tel að hann
sé eins og fleiri frekar efins um
að staðið verði við tilboðið,“ sagði
Carter.
í
m
í
€
í
I
N
í
|eggfóðursborði meðfram lofti,
á miðjum vegg, niðri við gólf eða
hvar sem þér þykir fallegast að hafa hann.
Þetta er ódýr og
fljótleg aöferð til að
gjörbreyta herbergi
með lítilli fyrirhöfn.
krautlistar,
og rósettur
geta gert herbergi
fallegri, hlýlegri,
OP'®___
virðulegri eða
einfaldlega öðruvísi! Kostnaðurinn við að
breyta einu herbergi er minni en þú heldur.
VERSLUN MEÐ GÓLF- OG VEGGEFNI
VEGGFÖDRARINN
EINAR ÞORVARÐARSON & CO HF
FAXAFEN 10 • SÍMI: 568 7171
S O L U S T A
Veggfóðrarinn, Faxafeni 10, Reykjavík
Málarinn, Skeifunni
BYKO, Vestur i bæ
Byggt & Búið, Kringlunni, Reykjavfk
BYKO, Kópavogi
Húsasmiðjan, Súðavogi
BYKO, Hafnarfirði
Dropinn, Keflavík
V.G. Búðin, Selfossi
K.R. Hvolsvelli
Reynisstaðir, Vestmannaeyjum
Klakkur, Vík í Mýrdal
KASK, Höfn Hornafirði
KASK, Djúpavogi
Hermann Níelsson, Egilsstöðum
Verslunin Vik, Neskaupstað
Ingólfur Arason, Vopnafirði
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík
KEA, Akureyri
Kaupland, Akureyri
L A N D
KEA Byggingavörur, Siglufirði
Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki
Kaupf. Húnvetninga, Blönduósi
Metró, ísafirði
GE Sæmundsson, ísafirði
Eggert Sigurðsson, Stykkishólmi
Litabúðin, Ólafsvík
Hamrar, Grundarfirði
Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi
Trésmiðjan Akur, Akranesi
, LEGGÐU
LINURNAR UM
HELGINA
Lottóvinningur-
inn óbíprilegur
London. Reuter.
HÆSTIRETTUR Bretlands gaf
fjölmiðlum á miðvikudag leyfi
til að gefa upp nafn mannsins
sem urtnið hefur stærsta lottó-
vinninginn þar í landi frá því
að lottóið hóf starfsemi í haust.
Eftir að úrskurðurinn lá fyrir,
ákváðu dagblöðin hins vegar að
gefa nafn hans ekki upp, þar
sem maðurinn er múslimi og
kynni að lenda í mestu vandræð-
um, þar íslam fordæmir fjár-
hættuspil.
Músliminn, innflytjandi frá
Indlandi, er giftur og þriggja
barna faðir. Er talið að hann
kunni að gefa fjárhæðina, sem
svarar 1,8 milljörðum kr., til
líknarfélaga eða annarra. Segja
ættingjar mannsins að vinning-
urinn sé það versta sem gæti
hafa komið fyrir hann en þeir
eru einnig til sem telja að vinn-
ingurinn sé prófsteinn Guðs.
Vinningshafinn, sem starfar
í verksmiðju, tilkynnti að hann
væri veikur og hélt ásamt fjöl-
skyldu sinni af landi brott er
hann frétti af vinningnum. Þar
mun fjölskyldan ráða ráðum sín-
um en eiginkonan, sem er heit-
trúuð, er ákaflega ósátt við
vinninginn og vill ekki sjá krónu
af honum.
Misjöfn geta til að
lesa úr svipbrigðum
London. Reuter.
BANDARÍSKIR
læknar telja sig
hafa fundið hvar
hæfileikinn til að
átta sig á svip-
brigðum er stað-
settur í heilanum.
Er uppgötvun
þeirra talin geta
gefið vísbendingar
um orsök ein-
hverfu. Þetta kem-
ur fram í nýjasta hefti Nature.
Læknarnir segja að próf sem
gerð voru á konu, sem var með
sjaldgæfa heilaskemmd, hafí leitt
í ljós að amygdala, möndlulaga
svæði í miðju heilans, gegni sér-
stöku hlutverki í að greina svip-
brigði.
Umrædd kona
átti mun erfiðara
en aðrir sem próf-
aðir voru með að
greina hvaða til-
finningar andlits-
drættir sýna, svo
sem reiði og undr-
un. Henni gekk
hins vegar ágæt-
lega að þekkja and-
lit í sundur.
Telja læknarnir að þessi upp-
götvun styðji þá kenningu að
amygdala gegni lykilhlutverki í fé-
lagslegum samskiptum manna og
kunni að verða til þess að menn
komist að orsökum einhverfu, sem
lýsir sér m.a. í vanhæfni til að
bregðast eðlilega við umhverfmu.
HVAÐ má lesa úr svipnum?
I
c
I
i
I
<í
i
i
i
(
(
(
(