Morgunblaðið - 16.12.1994, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 21:
Jólagleði
í Alafoss-
kvosinni
UM helgina 17. og 18. desember
mun menningarmálanefnd Mos-
fellsbæjar ásamt listamönnum í
Mosfellsbæ efna til jólagleði í Ála-
fosskvosinni. Vinnustofur lista-
manna verða opnar báða dagana,
og uppákomur í hveiju skoti, s.s.
tónlist, upplestur, leiðbeiningar, í
bonsai-rækt og fleira.
Jólasveinn til skrafs og ráða-
gerða. Jólagleðin mun standa yfir
báða dagana frá 13-17.
Eftirtaldir aðilar sýna verk sín:
Haukur Dór, Tolli, Helga Jó-
hannesdóttir, Þóra Sigþórsdóttir,
Eydís Lúðvíksdóttir, Magnús
Kjartansson, Óli Már Guðmunds-
son, Ingibjörg Friðbjörnsdóttir,
Kristín Geirsdóttir, Inga Elín, Ólöf
Oddgerisdóttir, Edda Jónsdóttir,
Einar Þorsteinn Ásgeirsson.
-----» ♦ ♦----
„Fæðing frels-
arans í Hall-
grímskirkju44
ORGELTÓNLEIKAR verða haldn-
ir í Hallgrímskirkju á vegum Tón-
skóla Þjóðkirkjunnar laugardag-
inn 17. desember kl. 17. Orgel-
nemendur Harðar Áskelssonar
flytja verkið „Fæðing frelsarans"
(La Nativité du Seigneur) eftir
franska tónskáldið Olivier Messia-
en (1908-1992).
Verkið skiptist í níu þætti og
flytjendur eru: Bjarni Þ. Jónatans-
son, Douglas A. Brotchie, Guð-
mundur Sigurðssin, Gunnar Gunn-
arsson, Halldór Óskarsson, Helga
Þórdís Guðmundsdóttir, Hrönn
Helgadóttir og Jóhann Bjarnason.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
-----»—»-»----
Sýningu Söru
að ljúka
SÝNINGU Söru Jóhönnu Vil-
bergsdóttur á olíu- og pastelmynd-
um í Gallerí Fold, Laugavegi 118
lýkur sunnudaginn 18. desember.
Sýninguna nefnir Sara ílát meðal
annars.
Opið er í Gallerí Fold daglega
kl. 10-18 nema laugarfdaginn 17.
desember þá er opið frá kl. 10-22
og sunnudaginn 18. desember frá
kl. 14-18.
------»-■♦.♦-..—
Síðasta sýn-
ingarhelgi
Kristínar
ÍKONASÝNINGU Kristínar
Gunnlaugsdóttur í Hallgríms-
kirkju lýkur nk. sunnudag, 18.
desember.
Á sýningunni eru 34 íkonar,
unnir á sl. þremur árum. Þetta er
í fyrsta sinn sem haldin er sýning
á íkonum hér á landi eftir íslensk-
an listamann.
Sýningin er opið frá kl. 14-18.
------»■■♦■■♦---
Jólalög í
Listhúsinu
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju
syngur jólalög í Listhúsinu í Laug-
ardal, laugardaginn 17. desember
kl. 14.
Stjórnandi kórsins er Friðrik S.
Kristinsson.
LISTIR
SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskólans hefur nú sent frá sér bókina
Náttúrusýn, safn greina um siðfræði og náttúru. Efni bókarinnar
er að mestu byggt á þeim ríflega tuttugu erindum sem flutt voru
á samnefndri ráðstefnu Siðfræðistofnunar í september 1993.
Helstu efnisflokkar hennar eru fimm: náttúra og trú, náttúra og
siðfræði, náttúra og samfélag, náttúra og listir og náttúra og
vísindi. Ritstjórarnir Róbert H. Haraldsson og Þorvarður Árnason
afhentu frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta Islands, fyrsta eintak
bókarinnar í gær en frú Vigdís flutti á sínum tíma lokaorð Nátt-
úrusýnar-ráðstefnunnar og eru þau meðal efnis í bókinni.
Listaverkagj öf
Sæmundar
Valdimar ssonar
LISTAMAÐURINN Sæmundur
Valdimarsson færði Reykjavíkur-
borg að gjöf listaverkið „Sigríður“
24. nóvember síðastliðinn. For-
maður menningarmálanefndar,
Guðrún Jónsdóttir, tók formlega á
móti gjöfinni. Verkið verður til
sýnis í vesturandyri Ráðhússins
næstu 2-3 mánuði en að því loknu
verður því fundinn veglegur staður
í einhverri af stofnunum borgar-
innar.
Sæmundur fæddist árið 1918
að Krossi á Barðarströnd og var
búsetur þar til fullorðinsáranna.
Með sveitastörfunum stundaði
hann ýmis störf til sjós og lands.
Árið 1948 fluttist hann til Reykja-
víkur og vann vaktavinnu í Áburð-
arverksmiðjunni í Gufunesi, en síð-
ustu sex árin hefur hann eingöngu
sinnt listsköpun sinni.
Um árið 1970 fór hann að setja
saman myndir úr steinum og reka-
viði, sem fyrst voru sýndar á al-
þýðusýningu í Gallerí Súm árið
1974. Um það leyti hóf hann að
vinna stærri höggmyndir úr reka-
viði:
Fyrstu einkasýningu sína hélt
Sæmundur árið 1983, en síðan
hefur hann haldið fjölda einkasýn-
inga hér heima og erlendis. Áuk
þess hefur hann tekið þátt í nokkr-
um samsýningum. „Verk hans
hafa vakið athygli bæði innlendra
og erlendra listunnenda, og um
þau hefur verið skrifað í blöðum
og virtum tímaritum,“ segir í
kynningu.
ora
... að sjálfsögðu!