Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Síðasta sýn-
ingarhelgi
á Erró-
gjöfinni
VERK eftir Erró er að finna
víðsvegar í þekktum listastöfn-
um, jafnframt þvi sem greinar
um hann birtast reglulega í
bókum og tímaritum.
Laugardaginn 5. nóvember
sl. var opnuð á Kjarvalsstöðum
yfirlitssýning á verkum Errós
undir yfírskriftinni: Gjöfin.
Haustið 1989 færði Erró
Reykjavíkurborg að gjöf safn
eigin listaverka, við þessa lista-
verkagjöf hefur hann síðan
stöðugt verið að bæta og eru
verkin nú alls um 2.700 talsins.
Á þessari sýningu er stór hluti
gjafarinnar sýndur í fyrsta
skipti á íslandi og gefst þar
tækifæri til að virða fyrir sér
feril þessa listamanns.
I kynningu segir: „Alls hafa
nú rúmlega 20.000 manns séð
sýninguna Erró-gjöfin. Þar af
urp 5.000 skólaböm, félög,
vinnuhópar og hópar eldri borg-
ara sem hafa pantað leiðsögn
um sýninguna."
Gjafavöru- og bókaverslun
Kjarvalsstaða og kaffistofa
verða opin alla daga fram til
23. desember frá kl. 10-18.
Gospel-
tónleikar
KFUM og K
GOSPELKÓRINN og Gospel-
kvartettinn halda tónleika í
húsi KFUM og KFUK við
Holtaveg^ í dag, föstudag, kl.
20.30. Á efnisskránni verða
margir gospel-slagarar í bland
við nýrri tónlist að ógleymdum
jólalögunum.
Gospelkórinn er nú á þriðja
starfsári og meðlimum hans fer
stöðugt ijölgandi og eru nú um
60 talsins. Gospelkvartettinn er
nokkurs konar afsprengi kórs-
ins en hann skipa Inger Jó-
hanna Daníelsdóttir, Rannvá
Olsen, Sigurður Ingimarsson og
Ester Daníelsdóttir sem er kór-
stjóri.
Aðgangseyrir á tónleikana
er 300 krónur og allir eru vel-
komhir á meðan húsrúm leyfir.
Útgáfusýn-
ingin Góð bók
framlengd
ÚTGÁFUSÝNING Bókasam-
bands íslands stendur nú yfir í
Geysishúsinu. Þar geta gestir
flett nýjum íslenskum bókum
og séð fágæta gripi sem tengj-
ast prentun, bókbandi og bóka-
útgáfu.
Sýningin hefur fengið góðar
undirtektir og verið vel sótt
bæði af ungum og öldnum og
af þeirri ástæðu hefur verið
ákveðið að framlengja hana til
jóla, segir í kynningu.
Utgáfusýningin er opin
hvern rúmhelgan dag frá kl.
10-17 og er aðgangur ókeypis.
Sýningunni
Handverk
framlengt
SÝNING sú sem Handverk -
reynsluverkefni hefur staðið
fyrir í Listasafni Kópavogs -
Gerðarsafni verður framlengd
til sunnudagsins 18. desember.
Safnið er opið frá kl. 12-18.
Á sýningunni eru sýndar 82
tillögur sem bárust í samkeppni
um hönnun á minjagripum og
minni nytjahlutum, þar á meðal
19 verðlaunaðar tillögur.
Eftir áramótin verða kannað-
ir möguleikar á að senda sýn-
inguna að hluta út á land.
Léttklass-
ískur
hljómdiskur
HÖFUNDUR, ritstjóri og ritnefnd Iðnsögunnar: Svanur Jóhannesson, Sæmundur Árnason, Þórarinn
Gunnarsson, Ingi Rúnar Eðvarðsson, Jón Böðvarsson og Sverrir Kristjánsson.
Saga bókagerðar komin út
HIÐ ÍSLENSKA bókmenntafélag
hefur gefið út bókina „Prent eftir
mennt,“ sögu bókagerðar frá upp-
hafi tii síðari hluta 20. aldar. Höf-
undur bókarinnar er Ingi Rúnar
Eðvarðsson og er hún í ritröðinni
„Safn til Iðnsögu íslendinga". Rit-
sjóri er Jón Böðvarsson.
í frétt frá útefanda segir: Prent-
listin olli þáttaskilum í menningar-
sögunni. Hún er grunnur mennta,
en hún á einnig drjúgan þátt í vexti
fjölmiðlunar og viðskipta. Prent eft-
ir mennt fjallar um sögu prentlistar
á íslandi frá Hólaprentsmiðju um
1530 til síðari hluta 20. aldar. Getið
er um upphafsmann prentlistarinn-
ar, Jóhann Gutenberg, og rakin er
saga fjögurra iðngreina: setningar,
prentunar, prentmyndagerðar og
bókbands. Auk þess er fjallað stutt-
lega um dagblaðaprentun, prentum
umbúða, silkiprentun og fleira.
Bókin Prent eftir mennt er merk
í ritröðinni:
Safn til Iðnsögu
Islendinga
heimild um upphaf iðngreina í
prentiðnaði, vöxt þeirra og þroska-
feril. Gerð er grein fyrir breyttum
starfsaðferðum frá einföldum verk-
færum til fullkomnustu tölvutækni
nútímans. Höfundur rekur verkefni
prentfyrirtækja, fjallar um sívax-
andi afköst og rekur sögu nokkurra
fyrirtækja, svo sem Kassagerðar
Reykjavíkur, Morgunblaðsins,
Plastprents, Prentsmiðjunnar Odda
og Ríkisprentsmiðjunnar Guten-
bergs.
Gerð er grein fyrir menntunar-
málum og fjallað um þátt bókagerð-
armanna i bókmenntum og listum,
því að fjölmargir þeirra hafa skipað
sér á bekk með fremstu listamönn-
um þjóðarinnar, meðal annars Bald-
vin Halldórsson, Eiríkur Smith,
Guðmundur Frímann, Haukur
Morthens og Jón Trausti. Þá er
skýrt frá launakjörum og vinnutíma
bókagerðarmanna og getið um Hið
íslenska prentarafélag, Bókbindara-
félagið, Félag bókagerðarmanna,
Félag íslenska prentiðnaðarins og
fleiri hagsmunafélög í prentiðnaði.
Frásögnin byggir á margvísleg-
um skjölum og munnlegum heimild-
um auk prentaðra rita. Höfundur
kryddar bókina með ljóðum og
skemmtilegum frásögnum, segir
ennfremur.
Um 300 Ijósmyndir prýða bókina
og eru margar þeirra fágætar. í
bókarauka er að fmna fróðlegan
kafla eftir Þorstein Þorsteinsson, er
nefnist Þættir úr letursögu. Bókin
er 550 blaðsíður og kostar kr. 4.500.
ÚT ER kominn nýr hljómdiskur
með léttklassískri tónlist. Það eru
flautuleikararnir Guðrún Birgis-
dóttir og Martial Nardeau ásamt
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
píanóleikara, sem flytja verk eftir
Haydn, Beethoven, Kuhlau, Doppl-
er og Dvorák og þar að auki tvö
rússnesk sígaunalög. Upptökum,
sem fóru fram í Fella- og Hóla-
kirkju í júní sl. stjórnaði Bjarni
Rúnar Bjarnason.
Hér er á ferð tónlistarfólk sem
hefur verið mjög afkastamikið í
tónlistarlífi borgarinnar undanfarin
ár. Það eiga að baki margra ára
menntun hér heima og erlendis og
hefur víða komið fram bæði sem
einleikarar og með hljómsveitum.
Guðrún og Martial hófu að leika
saman, er þau kynntust í París
1981 og Anna Guðný og Guðrún
byijuðu að leika saman þegar á
skólaárum hér. Martial hefur verið
einleikari í heimalandi sínu frá ung-
um aldri.
Diskurinn er gefinn út í samvinnu
við Ríkisútvarpið og með styrk frá
Félagi íslenskra hljómlistarmanna.
Skífan annast dreifingu hljóm-
disksins sem nefnist Romance.
MARTIAL Nardeau, Anna
Guðný Guðmundsdóttir og
Guðrún Birgisdóttir.
Gott
uppfy llingarefni
BOKMENNTIR
II a n d b ó k
DAGARÍSLANDS
Atburðir úr sögu og samtíð alla daga
ársins. Jónas Ragnarsson tók saman.
Vaka-Helgafell 1994.270 bls. Verð
1.980. kr.
í „DÖGUM íslands"
er ýmsum atburðum
úr sögu þjóðarinnar og
því sem kallast frétt-
næmt raðað niður eftir
dögum. Hér um að
ræða á þriðja þúsund
viðburði úr lífi þjóðar-
innar en mestur hlut-
inn er frá 19. og 20.
öld. Inn á milli eru
auðvitað viðburðir úr
blöðum síðustu ára og
minni háttar fréttir,
sem eiga vel við í svona
riti.
Það sem velst í
svona rit er alltaf til-
viljunum háð þó að
reynt sé að stíla upp á
sögulega merkilega atburði. Upp-
setningin hefur takmarkað sagn-
fræðilegt gildi þrátt fyrir að um sé
ræða mikilvæga viðburði úr íslands-
sögunni. Svona form býður upp á
það að'blanda saman, annars vegar
merkum sögulegum atburðum og
hins vegar ómerkari viðburðum,
sem þó eru fréttnæmir, en blöð og
tímarit eru náttúrulega uppspretta
Jónas Ragnarsson
þessa rits. En þó að formið hafi
mjög sérhæft og takmarkað upp-
flettigildi, þá opnar nafna- og atrið-
isorðaskráin fjölbreyttari mögu-
leika á notkun og er það vel. En
val atriðisorða orkar þó allaf tví-
mælis þó að reynt sé að nálgast
flébtar hliðar í þessari bók.
Mér sýnist að þessi uppsetning
bjóði fyrst og fremst upp á það að
vera skemmtilestur
enda segir mér svo
hugur um að þetta
verði hálfgert uppfyll-
ingarefni enda hafa
slíkir dálkar verið við
lýði í blöðum. Þess
vegna verður þetta
kærkomið efni fyrir
þessa dálka og ég efa
ekki að þetta sé fengur
fyrir ljósvakamiðlana
sem nú sífellt eru á
höttunum eftir uppfyll-
ingarefni enda menn
þar oft á þrotum með
efni. Þá er ekki verra
að rifla upp minnis-
stæða atburði úr lífi
og starfi þessarar þjóð-
ar enda gæti það kveikt í glæðum
fróðleiksfýsnarinnar hjá sumum
hverjum og knúið menn til áfram-
haldandi lesningar.
Allur frágangur og prentun er
vel og snyrtilega unnin og jafnframt
því sem hin snotra forsíðumynd
eftir Nikulás Sigfússon prýðir bók-
ina vel.
Einar E. Laxness.
PETER Verduyn Lunel og Elísabet Waage.
Flautu og hörpu-
tónleikar í Askirkju
PETER Verduyn Lunel flautuleik-
ari frá Hollandi og Elísavet Waage
hörpuleikari halda á sunnudaginn
tónleika í Áskirkju. Tónleikarnir
heíjast klukkan fimm og á efnis-
skránni eru m.a. verk af nýútkom-
inni geislaplötu þeirra.
Peter Verduyn Lunel er sóló-
flautuleikari hollensku ballett-
hljómsveitarinnar en hefur einnig
leikið einleik og kammertónlist í
flestum löndum Evrópu og í Norð-
ur-Ameríku. Elísabet Waage
stundaði framhaldsnám í hörpu-
leik í Hollandi. Hún hefur mest
lagt stund á kammertónlist en
leikur jafnframt einleik og í hljóm-
sveitum og hefur komið fram í
ýmsum löndum Evrópu.
Elísabet og Peter hafa leikið
saman um margra ára skeið og
er þetta í þriðja sinn sem þau
halda tónleika hér á landi.
Á meðal verka á efnisskránni
eru Intermezzo úr Dimmalimm
eftir Atla Heimi Sveinsson, ein-
leikssvíta fyrir hörpu eftir B. Britt-
en og Arpeggione-sónata Franx
Schuberts. Það síðastnefnda hefur
verið leikið á ýmis hljóðfæri, en
ekki áður heyrst á flautu og hörpu.