Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 40
40 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
Opið bréf til menntamálaráðherra
Ég fór ekki í meistara-
skóla, segir Margrét
MEÐ þessu bréfi vil ég vekja
hæstvirtan menntamálaráðherra
til aðgerðar á betri meistaraskóla
fyrir iðnaðarmenn heldur en þann,
sem starfar í dag.
Ég er útlærður matreiðslumað-
ur og útskrifaðist sem slíkur vorið
1989. Um áramótin 1988 og 1989
var sett reglugerð þess efnis, að
allir iðnaðarmenn skuli ganga í
meistaraskóla, að undangenginni
2 ára vinnu með sveinsréttindi, til
að öðlast meistararéttindi eða lög-
gildingu. Ég hef allvel sætt mig
við það, að fara í meistaraskóla,
sérstaklega vegna lítils undirbún-
ings úr Hótel- og veitingaskóla
íslands með tilliti til reksturs fyrir-
tækja. - Stuttu eftir að ég útskrif-
ast úr Hótel- og veitingaskóla ís-
lands kemst ég að raun um það,
að nokkrum úr sama útskriftarár-
gangi hafi verið veitt meistararétt-
indi. Þetta varð til þess, að ég
sótti um réttindin, en fékk neitun.
Þetta fannst mér súrt í brotið.
Hvílíkt óréttlæti gagnvart okkur
hinum, sem ekki fá réttindin öðru-
vísi en að ganga í gegnum meista-
raskólann. Því spyr ég (þessa
spurningu hafið þið fengið áður
hjá menntamálaráðuneytinu): „Því
í ósköpunum endurkölluðuð þið
ekki meistarabréf þessara aðila til
Sendu jólapakkana og
jólapóstinn með DHL
Jólapóstw'
Við erum ódýrarí en Pósturínn
Það er ódýrara að senda jólakortin til útlanda
með sendibréfaþjónustu DHL en með
hefðbundnum flugþósti.
Ef þú ert með 20 jólakort eða fleiri sækjum
við þau heim til þín endurgjaldslaust.
ATH Skilið bréfunum ófrímerktum.
MIKIL VÆCAR DACSETNiNCAR
Síðasti dagur til að senda jólakort til
einstakra landa er:
► 16. des. Til Norðurlandanna.
► 15. des. Til Evrópu.
► 12. des. Til USA, Kanada og
annarra landa.
Jólapakkar
Við gefum þér 2 auka vil
Það er engin ástæða
til að láta jólaþakkana
og jólamatinn velkjast
um I þósti í nokkrar vií
DHL kemur jólapökkunum hratt og
örugglega heim til viðtakenda.
Síðasti skiladagur er 19. des
EINFALT ÞÆCILECT ODYRT
Jólatilboð ódýrara en þig grunarl
WORLDWIDE EXPRESS ®J
DHL HRAÐFLUTNINGAR HF, Faxafen 9 108 Reykjavík
Sími 568 9822
DHL - fljótarí en jólasveinninn
baka, þegar upp komst
hvers kyns var?“ Ég
veit með vissu, að það
hafið þið gert áður.
I dag er ég í meist-
aranámi í Iðnskólanum
í Reykjavík. Iðnskólinn
er góður að mínum
dómi og hefur upp á
að bjóða marga góða
kennara. Ég vil að hér
komi skýrt fram, að
út í kennara skólans
er ekkert að sakast.
Þeir kenna bara það,
er svokölluð meistara-
nefnd úr þínu ráðu-
neyti leggur fyrir þá.
Það vakti furðu
mína sl. haust, er ég hóf nám í
skólanum, hvaða námsfög mér var
gert skylt að sækja. Nú spyr ég
þig, hr. menntamálaráðherra:
„Hvað hef ég að gera við eðlis-
fræði?“ Ekki veit ég til þess, að
ég þurfi að mata þessar formúlur,
sem ég læri, yfir pottunum. Og
„til hvers er ég að læra íslensku,
að læra bókmenntir og draga í
orðflokka. Því er ég að læra jöfn-
ur, fleigboga og hina sívinsælu
algebru, sem þið hafið svo mikið
dálæti á?“
Ég veit það vel, að þessar náms-
greinar skaða mig ekki og alltaf
er gott að læra meira.
En málið er það, að
ég fór ekki í meistara-
skóla til að læra hröð-
un, núning, tregðu-
lögmálið eða jöfnur,
sem er undirstaða
fyrir smiði í burðar-
þoli. Þaðan af síður
bókmenntir eða að
draga í orðflokka,
sem ég er búin að
læra. „Af hveiju var
tölvunámið tekið út
og eðlisfræði sett inn
í staðinn?" Það sem
ég hef áhuga á að
læra í meistaraskó-
lanum fyrir mat-
reiðslumenn, er það, sem viðkemur
mínu fagi og rekstur fyrirtækja.
Svo er um alla þá nemendur, sem
sækja þennan skóla. Þegar mér
var sagt, að fagfögin væru ekki
tilbúin fyrir matreiðslumenn, varð
ég virkilega vonsvikin yfir þessu
öllu saman. Hversu lengi á að
draga okkur á asnaeyrunum? Um
næstu áramót, ’94-’95, eru sex
ár liðin frá því reglugerðin var
sett á laggirnar og enn er skólinn
ekki tilbúin að útskrifa fullnema
meistara. „Því í öllum bænum er
ekki reynt að hafa námið þannig,
að það nýtist manni? A faglega
Ossurardóttir, til
að læra hröðun,
núning, tregðulög-
málið og jöfnur.
sviðinu á ég við.“ Ég veit mörg
dæmi þess, að fólk hafi byijað í
skólanum, borgað sín skólagjöld,
sem eru ekki ódýr, komist síðan
að raun um það, að námið, að hluta
til, er gjörsamlega út í hött, og
hætt þess vegna.
í október sl. fengum við heim-
sókn í lögfræðitíma okkar tvo
starfsmenn úr ráðuneyti yðar.
Annar þeirra var Óskar Guð-
mundsson. Er hann var spurður
af einum nemandanum, hvað hægt
væri að gera til þess að fá skólan-
um breytt, var svar hans: „Fara í
fjölmiðlana." Ég varð undrandi,
að opinber starfsmaður léti slíkt
frá sér fara.
Mér sýnist, að hinir svokölluðu
sérfræðingar í meistaranefnd hafí
ekki reiknað dæmið til enda við
setningu reglugerðar fyrir meist-
araskólann. Þó hafa þeir haft sex
ár til þess. - Ég legg til, að nem-
endum úr hverri grein verði boðið
að vera með í uppbyggingunni, á
meðan á námi þeirra stendur. Það
eru fáir matreiðslumenn í meista-
raskólanum í dag. Astæður eru
margar. M.a. að við vinnum flest
vaktavinnu, þannig að mæting í
skólann getur aldrei verið meiri
en 50%. Því þurfum við að leggja
á okkur töluvert sjálfsnám. „Væri
ekki hægt að hagræða náminu
betur?“ Eins og áður segir erum
við fá í skólanum í dag. Aðeins
tveir matreiðslumenn, sem er mjög
óeðlileg tala. Ég er ekki með ná-
kvæmar tölur yfir hversu margir
útskrifast árlega frá Hótel- og
veitingaskóla Islands, en þeir
munu vera nálægt eitt hundrað.
Ég vona einlæglega, kæri
menntamálaráðherra, að þér gerið
eitthvað tafarlaust í málefnum
skólans. Ekki setja málið í ein-
hveija nefnd, eins og gjarnan er
gert, sem tekur ár og daga að
taka ákvarðanir. Við nemendur
skólans viljum sjá eitthvað gerast
fijótlega.
Höfundur er matreiðslumaður og
nemandi í meistaranámi við
Iðnskólann í Reykjavík.
3ja sæta sófi + 2 stólar í leðri stgr. 198.834,-
3ja sæta sófi stgr. 91.884,-
2ja sæta sófi stgr. 75.330,-
Stóll stgr. 53.475,-
Hár stóll stgr. 61.845,-
Síðumúla 20, símar 688799.
Margrét
Ossurardóttir
Ókeypis
myndataka
vegna Debetkorta og
Vaxtalmukorta
íKringlunni
föstudaginn 16. des. kl. 13-18
miðvikudaginn 21.des. kl. 13-18
fimmtudaginn 22. des. kl. 13-18
Við minnum viðskiptavini okkar á að öll bankakort falla úr gildi um næstu áramót
BÚNAÐARBANKINN
- Traustur banki
i
(
i
i
(
(
<
(
í
<
(
(
<
(
(
<
(
(
(
(
(
(
<
i
<
i