Morgunblaðið - 16.12.1994, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
DESEMBERTILBOÐ
ídesember býður hárgreiðslustofan Evita, Starmýri 2,
sími 31900, viðskiptavinum sínum
25% AFSLÁTT
gegnframvísunþessarar auglýsingar.
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni málsins!
Gjalddögum fjölgar úr 4 í 12
Leið til að jafna greiðslubyrðina
Húsnæðismálastjórn hefur samþykkt neðangreindar
breytingar á gjalddögum húsnæðislána og húsbréfalána frá
Húsnæðisstofnun ríkisins:
■ Gjalddagar á nýjum fasteignaveðbréfum húsbréfadeildar
verða 15. dag hvers mánaðar frá og með 1. janúar 1995.
■ Frá og með gjalddaganum 1. febrúar 1995 verður
greiðendum lána, sem útborguð hafa verið úr
Byggingarsjóði ríkisins frá og með 1. september 1986,
gefinn kostur á mánaðarlegum afborgunum.
Fyrsti gjalddagi eftir breytingu verður 1. mars 1995.
■ Hið sama gildir um verðtryggð lán, sem útborguð
hafa verið úr Byggingarsjóði verkamanna frá og með
1. júlí 1980.
■ Frá og með gjalddaganum 15. mars 1995 verður öllum
_____MINIMIIMGAR_
ELÍN S.
TRA USTADÓTTIR
+ Elín Sigríður
Traustadóttir
fæddist í Sandgerði
28. janúar 1938.
Hún lést í Land-
spítalanum 11. des-
ember síðastiðinn.
Foreldrar hennar
voru Trausti Jóns-
son, f. 27. júní 1907,
d. 17. maí 1994, og
Dagbjörg Jónsdótt-
ir, f. 14. desember
1906, d. 9. nóvem-
ber 1949. Systkini
Elínar eru Asgeir,
hálfbróðir, Alda,
Kristinn, Guðrún, Hafsteinn,
Sigríður, Dagbjörg, Benóný og
Móeiður. Hinn 14. desember
1956 giftist Elín Herði S. Jóns-
syni, f. 2. október 1933, d. 24.
apríl 1991. Börn þeirra eru: 1)
Jón Trausti, f. 1956, kvæntur
Fjólu Kristjánsdóttur, eiga þau
þijú börn. 2) Jóhanna, f. 1957,
gift Birgi Þór Jósafatssyni, eiga
þau þijú börn. 3) Dagbjartur,
f. 1959, sambýliskona hans er
Anna Bergsdóttir, eiga þau
eina dóttur og hann á einn son
fyrir. 4) Guðlaugur, f. 1961,
kvæntur Hafdísi Erlu Boga-
dóttur, eiga þau tvo syni. 5)
Erlingur, f. 1963, á tvær dætur
með Elsu E. Sigurfinnsdóttur.
6) Björk, f. 1967, trúlofuð Ren-
os Demetriou.
Útför Elinar fer fram frá
Víðistaðakirlqu í dag.
MAMMA mín, ekki kærðir þú þig
um „lofskrif" að þér látinni, sagðir
að þeir sem hefðu þekkt þig vissu
best hvem mann þú hefðir að
geyma og þyrfti ekki að tíunda það
neitt frekar. Þörfina að þakka þér,
mamma mín, enn einu sinni alla
umhyggjuna og ástúðina í gegnum
árin, fékk ég þó ekki staðist og
langar mig sérstaklega að þakka
þér allt það dýrmæta sem þú gafst
börnunum mínum. Heiðarleiki þinn,
réttsýnin, einlægnin og þá ekki síst
þitt daglega viðmót, svo hreint og
beint, er nokkuð sem mun reynast
þeim gott og ómetanlegt veganesti
á lífsleiðinni, Ellu ömmu munu þau
ekki gleyma, ekki frekar en honum
Herði afa sem þau em fullviss um
að hafi komið og leitt þig inn í ei-
lífðina, hver og hvar sem hún nú er.
Vonandi hefur þú nú mamma
mín, sannreynt drauminn þinn ljúfa.
Þú ert okkar að eilífu. Far þú í
friði.
Þín,
Jóhanna.
Mig langar að minnast elsku
tengdamóður minnar með nokkrum
orðum.
Hún Ella var einstök kona, hún
hafði svo mikið að gefa og var okk-
ur svo góð. Alltaf hugsaði hún fyrst
og fremst um börnin
og barnabömin. Það
er svo sárt til þess að
hugsa að við fáum ekki
lengur að njóta um-
hyggju hennar.
Betri tengda-
mömmu gat ég ekki
fengið. í henni átti ég
svo góðan og traustan
vin.
Ég mun alltaf sakna
hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Fjóla Kristjánsdóttir.
Hreinskilni, einlægni og raunsæi
er það sem fyrst kemur upp í hug-
ann er ég rifja upp kynni mín af
elskulegri tengdamóður minni sem
nú er öll.
Því miður urðu árin hennar hér
með okkur allt of fá, en það sem
hún gaf mér þau 12 ár sem ég
þekkti hana er ómetanlegt og mun
aldrei gleymast. Sú hlýja sem alltaf
fylgdi henni var ólýsanleg og þrátt
fyrir veikindi hennar gleymdi hún
aldrei að hugsa um aðra.
í raun á ég erfítt með að fínna
rétt orð til að lýsa tilfinningum
mínum til hennar, hér fór yndisleg
kona sem skammaði, kenndi og
elskaði mann og átti svo mikið að
gefa. Minning hennar mun alltaf
lifa hjá mér og fjölskyldu minni.
Þakklætið er mikið fyrir að hafa
fengið að njóta þeirrar gæfu að
kynnast elsku Ellu.
Guð blessi minningu hennar.
Hafdís Erla Bogadóttir.
Elsku fjölskyldur og aðrir ætt-
ingjar. Mig langar að minnast
elskulegrar mágkonu minnar, Ellu,
eins og hún var ávallt kölluð. Það
var sl. sunnudag að síminn hjá
mér hringdi og mér var tjáð að
Ella hefði látist þá um morguninn
á Landspítalanum. Slíkar fréttir
koma manni ævinlega að óvörum,
þótt maður vissi að hveiju stefndi
hjá henni því mikið var hún búin
að líða og þjást og því mætti segja
að hún væri hvíldinni fegin.
Ella var mjög traust og góð
kona, sem hafði sterkan persónu-
leika og sagði ætíð sína meiningu,
hvort sem það líkaði betur eða
verr. Oft leitaði ég til Ellu minnar
og alltaf var jafn gott að heim-
sækja þau hjónin. Aldrei var hald-
ið kaffiboð eða aðrar uppákomur
hjá mér eða mínum öðruvísi, en
Herði og Ellu væri boðið. Ávallt
spurðu börnin mín, hvort búið
væri að bjóða Ellu og Hödda
frænda, því þau voru ómissandi,
þó að segja megi að samveru-
greiðendum afborgana af fasteignaveðbréfum í eigu
Byggingarsjóðs ríkisins, húsbréfadeildar, gefinn kostur á
mánaðarlegum afborgunum. Fyrsti gjalddagi eftir
breytingu verður 15. apríl 1995.
Greiðendur eru um þessar mundir að fá tilkynningu
um fjölgun gjalddaga ásamt eyðublaði þar sem þeir geta farið fram
á fjölgun gjalddaga úr 4 á ári í 12.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
OPIÐ KL. 8-16 VIRKA DAGA
...............................I||
Kötturinn hefur 9 líf
Alsport líka
Allar sögur af andláti
okkar eru stórlega ýktar.
Erum í fullu fjöri
í Vegmúla 2.
ALSPORT
Ve g m úIa 2
sími 5688075