Morgunblaðið - 16.12.1994, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 59
FRÉTTIR
Pottasleikir
Pottasleikir
kemur í dag
FIMMTI jólasveininn, Pottasleikir,
kom til byggða í dag. Börn úr
Smáraskóla ætla m.a. að taka á
móti honum á Ingólfstorgi í dag
kl. 14 ásamt Sigurði Rúnari, hljóm-
listarmanni og starfsfólki Þjóð-
minjasafns.
Nýtt félag* innan
hjúkrunargeirans
NÝLEGA var haldinn stofnfundur
deildarhjúkrunarforstjóra og hjúkr-
unarframkvæmdastjóra sjúkrahúsa
innan Félags ísienskra hjúkrunar-
fræðinga. Stofnfélagar eru 60-70
talsins alls staðar að af landinu.
Helstu markmið deildarinnar eru
að hafa áhrif á stefnumótum í heil-
brigðismálum, að vera stefnumótandi
um þróun hjúkrunar á sjúkrastofnun-
um, að stuðla að því að sífellt sé
unnið að umbótum í hjúkrun þar sem
þekking, mannúð og hagkvæmni er
höfð að leiðarljósi og að styrkja stöðu
stjómenda í hjúkrun.
Fyrstu stjórn deildarinnar í Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga skipa:
Sigríður Snæbjörnsdóttir, hjúkrun-
arforstjóri Borgarspítala, formaður,
Birna Svavarsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri á Hjúkrunarheimilinu Eir,
gjaldkeri, Steinunn Sigurðardóttir,
hjúkrunarforstjóri Sjúkrahúss Akra-
ness, ritari. Í varastjórn sitja Aðal-
björg Finnbogadóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri Landakotsspitala,
og Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri Landspítala.
Þjóðhá-
tíðarkort
gefin út
ÚT ERU komin þjóðhátíðarkort. Það
var á þjóðhátíðinni á Þingvöllum
þann 17. júní sl. sem lokahönd var
lögð á hönnun kortanna en það var
á þjóðhátíðinni 1974 er hugmynd að
kortunum vaknaði.
Kortin eru tvenns konar. Annars
vegar stór kort með gamalli svart
hvítri mynd af Almannagjá og þjóð-
hátíðarmerkjum 1974 ásamt forseta-
frímerkjunum og póststimplum. Hins
vegar minni kort með nýrri litmynd
frá Þingvöllum og forsetafrímerkjum
ásamt póststimplum.
Kortin hafa nú verið prentuð með
jóla- og nýárskveðjutexta á íslensku
og ensku. Höfundur kortanna er
Gunnar Friðjónsson en kortin er
hægt að nálgast í flest öllum bóka-
verslunum og minjagripaverslunum.
Löng helgi á Laugavegi
LÖNG helgi á Laugavegi og ná-
grenni verður þessa helgi þar sem
opið verður laugardaginn 17. des-
ember frá kl. 10-22 og sunnudag-
inn 18. desember kl. 13-17.
Þessa helgi er mikið um uppá-
komur og má þar m.a. nefna að
föstudaginn 16. desember munu
jólasveinar koma í hestakerru og
bregða á leik um allan Laugaveg
og nágrenni. Laugardaginn 17.
desember frá kl. 13-20.30 munu
jólasveinarnir gefa börnum mand-
arínur. Kl. 16 mun jólakvintett
skemmta vegfarendum, kl. 17 leika
félagar úr Harmonikufélagi
Reykjavíkur jólalög, kl. 19.30 og
kl. 20 taka Lúðrasveit Verkalýðsins
og Blásturssveit Lúðrasveitar
Reykjavíkur létta sveiflu um
Laugaveg og Bankastræti. Kl. 21
mætir Hreindýrakór Söngskólans í
Reykjavíkur og syngur falleg jóla-
lög.
Sunnudaginn 18. desember
verða jólasveinarnir á Laugavegi
og Bankastræti milli kl. 14-16 og
skemmta vegfarendum með glensi
og gamni. Frá kl. 15 syngur
Stúlknakór Grensáskirkju ljúf lög.
Veitinga- og kaffihús bjóða fólk
velkomið í jólaglögg og heitt kakó.
Krabbameinsfélagið
HÉR sést Maggý Hrönn Hermannsdóttir frá Ólafsvík taka við
lykli að Hyundai Elantra bifreið sem var meðal vinninga í sumar-
happdrætti Krabbameinsfélagsins 1994.
Happdrættið
mikilvæg tekjulind
t JÓLAHAPPDRÆTTI Krabba-
meinsfélagsins eru að þessu
sinni 142 vinningar: Tveir bílar,
Volvo 440 l,8i að verðmæti
1.450.000 kr. og Toyota Corolla
Sedan XLi að verðmæti
1.290.000 kr., auk 140 vinninga
sem hver um sig heimilar úttekt
fyrir 100.000 kr. í verslun eða
ferðaskrifstofu. Að venju verð-
ur dregið í happdrættinu á að-
gangadag.
Kostar fræðslustarfsemi
Miðar voru nú sendir konum
á aldrinum 23-75 ára en aðrir
sem vilja taka þátt í happdrætt-
inu eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband við skrifstofu
happrættisins í Skógarhlíð 8,
sími 621414. Þeir sem þess óska
geta borgað miðana með
greiðslukorti. Jafnan er reynt
að hafa samband við alla vinn-
ingshafana sem fyrst að loknum
drætti til að tryggja að þeir
verði ekki af vinningnum.
Þótt dregið hafi úr miðasölu
undanfarin ár er happdrættið
enn mikilvæg tekjulind fyrir
krabbameinssamtökin í landinu
og stendur t.d. að mestu leyti
undir fræðslu- og útgáfustarfi
samtakanna, þar á meðal tób-
aksvarnarstarfi krabbameinsfé-
laganna í skólum landsins sem
sjaldan hefur verið brýnna en
nú.
,NECEssrrv>
í jólabúning
kr. 2.990
fra kr. 2.690
kr. 6.990
kr. 4.990
Jessee buxur, teinóttar
kr. 4.690
Cha*Cha blússur
Cha*Cha bolir
kr. 990
Frábært úrval af húfum,
höttum, grifflum, sokkum
o.fl. o.fl.
I jólapakkann færðu góða
gjöf hjá okkur
frá 690 krónum.
JNECESSITY>
A (SLANDI
Borgarkringlunni.