Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 61
BRÉF TIL BLAÐSINS
A aðventu
Frá Gísla Baldvinssyni:
Tími eftirvæntingar
AÐVENTAN er latneskt heiti á
tíma eftirvæntingar og biðlundar.
Þá hefst nýtt kirkjuár og litur að-
ventunnar er íjólublár. Nú er einn-
ig annar biðtími. Ekki kenndur við
kirkjuna, heldur Jóhönnu. Og
menn spyrja ekki einu sinni: Hvaða
Jóhönnu? Ekki verður fullyrt hér
að litur Jóhönnu sé líkt og hjá
kirkjunni, fjólublár. Kennimerki
Þjóðvaka er sóleyjan og þar með
guli liturinn. En þjóðin bíður í eftir-
væntingu eftir því að sóleyjan
springi út og fullmótuð stefna sjá-
ist ásamt þeim sáðmönnum er
settu niður fyrstu fræin.
En ekkert liggur á. Þeir sem
fyrirfram eru ákveðnir að vera á
móti Þjóðvaka bíða eftir að stefnan
birtist í skotlínu. Þá bíða aðrir,
þeir óákveðnu, eftir hvort .stefnan
samhljómi við lífsskoðun þeirra og
einnig þeir er skynjuðu fljótt að
hér er á ferð nýjung í íslenskum
stjórnmálum. Andstæðingarnir eru
strax byrjaðir að skjóta út í loftið
og tala um að fjallið hafi tekið
joðsótt og fætt mús. Við skulum
kalla þá hér eftir, þá sem aðhyll-
ast músarholusjónarmið, eða flat-
hyggjusinna eins og Kristján
Kristjánsson kallar þá.
Verkin sýna merkin
En hver er þá munurinn á stefnu
Þjóðvaka og annarra stjórnmála-
flokka? Enn sem komið er þá er
tónninn vinsamlegastur frá Sjálf-
stæðismönnum. Ef til vill finnst
þeim Þjóðvakamenn ekki ógna at-
kvæðakvóta Sjálfstæðisflokksins
heldur að hér sé enn ein „íjólan á
fjóshaug vinstrimanna“. Gömlu
vinstri flokkarnir svokölluðu senda
hins vegar harðari tón og sjá eng-
an mun. Alþýðuflokksmenn tala
um ljósritun á stefnu Alþýðu-
flokksins og Halldór Ásgrímsson
talar um Þjóðvaka sem flótta-
mannabúðir framapotara í fýlu.
Hann skynjar ekki breytta tíma
og breyttar áherslur. Hann glottir
út í annað og segir drýgindalega
að Jóhanna Sigurðardóttir hafi nú
verið ráðherra þessarar ríkisstjórn-
ar og beri ábyrgð. Jú, mikið rétt.
En Halldór hefur verið í stjórnmál-
um fimmtung úr öld en virðist
ekki skilja skyldur þingmanna við
eigin sannfæringu. Reyndar er
hann eins og margir stjórnmála-
menn sem ekki skilja eða vilja
ekki skilja muninn á milli fram-
kvæmdar og löggjafarvalds. Það
sýna verkin merkin.
Það er jú þannig að þegar þing-
maður sem jafnframt er ráðherra
gerir sér grein fyrir því að skoð-
anaskilin milli hans og fram-
kvæmdar ríkisstjórnar eru orðin
að úthafi þá er meiri manndómur
að taka pokann sinn frekar en að
sitja með hendur í skauti.
Alþýðubandalagsmenn eru enn
orðlausir enda mannfall þar á bæ
vaxandi.
I stuttu máli er munurinn sá að
Þjóðvaki ætlar sér að standa við
stefnuna. Stofnræturnar þijár sem
nú þegar hafa komið fram undir
þeim sprota er nú þegar hefur
spírað eru: Reisum við efnahag
heimilanna og launþega í landinu,
gefum æskunni tækifæri og hefj-
um raunverulega siðbót í stjórn-
kerfi og stjórnmálum. Allt verður
þetta gert undir merkjum mannúð-
ar, félagshyggju og jöfnuðar.
Þó ekki verði hér farið að útlista
stefnuna út í hörgul er megin
markmiðið að verkin sýni merkin.
Það er nefnilega þannig og af því
hef t.d. ég dapurlega reynslu að
þó að falleg orð séu sett á blað
og samþykkt á íjölmennum lands-
fundum gömlu flokkanna þá er
ekki 'farið eftir þeim samþykktum.
Það er vegna þess að sögulega eru
þingflokkar og í sumum tilvikum
formenn flokkanna það valdamiklir
að stefnunni er breytt eða hún
svæfð eftir hentugleikum á kjör-
tímabilinu. Einn vígmóður vinur
minn sem yfirgaf flokkinn sinn
sagði við brottförina að flokkurinn
væri með góða stefnu en með lé-
lega sölumenn. Hann komst að
kjarna málsins.
Flestir geta, hvar í flokki sem
þeir eru, skrifað upp á stóra hluta
stjórnmála og landsfundarályktan-
ir ijórflokkanna sem lesnar eru
venju samkvæmt í lok fundar.
Rósin og sóleyjan
En er enginn munur á stefnu
Þjóðvaka og Alþýðuflokksins sem
hefur þinglýst jafnaðarstefnunni í
heiti sitt?
Finnst launamönnum í lok þessa
kjörtímabils að jafnaðarmennskan
hafi ráðið ríkjum í Viðeyjarstjórn-
inni? Hefur jafnaðarstefnan ríkt á
meðan stórfelldasti tekjutilflutn-
ingur hefur átt sér stað frá tímum
svarta dauða? Hefur jafnaðarstefn-
an ríkt í heilbrigðis- og skólakerf-
inu. Er það í anda jafnaðarstefn-
unnar að setja á skólagjöld? '
Svona mætti lengi halda áfram.
En munið að við erum enn á að-
ventunni. Hinn raunverulegi mun-
ur á rós og sóleyju er sá að rósin
þrífst einungis í vermihúsi (kerfis-
ins?) en sóleyjan vex villt og er
sprottin úr íslenskum jarðvegi.
Hennar tími mun koma. Gular
breiður munu í vor þekja íslenskar
gi-undir.
GÍSLI BALDVINSSON,
Akureyri.
Heilræði
Geymið eldspýtur
þar sem börn ná
ekki til. Eldspýt-
ur eru ekki fyrir
óvita.
K I N G A
Vinningstölur
14.12.1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
EI 6afe 3 14.665.000
G] 5 af 6 LS+bónus 0 1.282.380
3 5af6 7 32.910
0 4af6 181 2.020
n 3 af 6 IjP+bónus 654 240
JjJj/inningur: fór til Noregs(3)
Aöaltölur:
(35) (42) (46
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphæð þessa viku:
46.030.330
a ísi.: 2.035.330
UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91 - 68 15 11
LUKKULINA 99 10 00 ■ TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
KULDASKÓRNIR VINSÆLU
KOMNIR AFTUR
Pantanir óskast
sóttar
Teg. 1068
st. 36-41 .
Loðfóðraðir.
Litir: Svartir,
dökkbrúnir, brúnir.
5.500 kr.
St. 41-46.
Litir: Svartir, brúnir,
5,900 kr.
Skóverslun Kópavogs
Hamraborg 3 SÍmi 41754
GULLSMIÐJAN
PYRIT-G 15
Ut er kominn geisladiskurinn „Kveðja heimanað“
með söng Skagfirsku söngsveitarinnar í Reykjavík.
Meðal laga sem eru á geisladiskinum má nefna:
Undir dalanna sól,
lslands-lag,
Máttur söngsins,
Smávinir fagrir,
Kveöja heimanaö, svo
Eg vil dansa,
Erla góða Erla,
Island er land þitt,
Maístjarnan og
nokkur séu nefnd.
Einsóngvarar sem komafram á geisladiskinum eru:
Sigrún lljáhntýsdóttir, Kristinu Sigmunds&on, Oskar Péturston,
Guántundur Siguriisson, Svanhildur Sveinbjömsdótlir,
Uatta S. Jánasdáttir og Guöbjöm Gubbjömsson.
< ~