Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ veitingahús - restaurant Nýbýlavegi 20, Kópavogi, sími 45022 5 rétta máltíð kr. 1.250 Gerum tilboð fyrir 10 manns eða fleiri ef maturinn er tekinn heim. Borðið á staðnum eða takið með heim. IQVALAN® Posta (Ivermeclin) 6,42 g i skammtadælu. Eyðir helslu þráðorm- um og lirfum þeirra með venjulegum ráð- lögðum skömmlun. Með hverri pakkningu lyfsins eru Islenskar leiðbeiningar um skömmtun, aðvaranir og mikilvæaar varúðarregíur. Lesið leiðbeiningar vandlega fynrir notkun. Lyfið er selt án lyfseðils. Eqvalan, vet. MSD; 843374 PASTA til inntoku; Q P 02 C F 01 U 0 * . 1 g inniheldur: Ivermectinum INN 18,7 mg. Eiginleikar: Ívermectín, sem er avermektín, er fjölvirkt sníklalyf, m.a. virkt gegn þráðorm- um og lirfum fjeirra í meltingarvegi húsdýra. Hámarksblóðþéttni í hrossum næsf u.þ.b. ein- um sólarhring eftir gjöf lyfsins. Lyfið verkar á þann hátt að hemja boðsendingu í tauga- vöðvatengi með því að örva losun GABA frá presynaptískum taugaendum og auka bind- '"ABA við postsynaptíska móttakendur þannig, ao sníklamir lamast og arepast. LyfiS SaS mestu í óbreyttu formi meS saur. ingar: ÞráSormar í meltingarvegi hrossa og þráSormalirfur á ýmsum þroskastigum. Frábendingar: Ekki þekktar. Aukaverkanir: KláSi og bólgur geta komiS fram skömmu eftir Ivfjagjöf. Skammtastærðir: 0,2mg ivermectin/kg, þ.e. 1,07 af pasta/lOOkg aefið um munn. Gæta skal þess, oS hesturinn sé ekki með fóðurleifar uppi í sér og lyfið skallagt aftarlega á tunau. Hver pakkning lyfsins skal merkt: wEigi má nýta sláturafuroir fyrr en 30 sólarhringum ettir Palckningan Skammtadæla 6,42g x 1 O MSD agvet FARMASÍA h.f. Úr ritdófflj lUðjóns Friðrikssonar sagníræðings iwíjí. mmmn ib. no«. Sannast sagna er hér um gersemi að ræða, bæði að efni til, myndakosti og j útliti og munu fáar bækur í ár slá henni I við að þessu leyti. Utkoma árbókart Ferðafélagsins 1994 er viðburður, ekki' aðeins vegna þess hve góður prentgripur hún er heldur ekki síst vegna þess hve i óvenju vel hefur til tekist í stil og mynd. j IHún ætti að eiga heima í bókaskáp allra j rsem unna góðri bók, landi og sögu. Blab allra landsmanna! fttorgimMðMb - k jarni málsins! I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Tapað/fundið Börnin lögðu sitt af mörkum VEGNA greinar sem birt- ist í Bréfí til blaðsins 9. desember sl. um mara- þondans unglinga í Kola- portinu vegna söfnunar- innar „Alnæmi og fjöl- skyldan - umræða án for- dóma“ vill ein amman taka fram að hún fór ásamt afa í Kolaportið umrædda nótt. Og hvað sáu þau? Jú, bömin geislandi af gleði. Ömmubarnið var í hvíld ásamt sínum bekk, þar var bás sem þau gátu hvílt sig, hallað sér útaf og rab- bað saman. Ömmubarnið kom heim til sín kl. 6.30 f.h. og svaf til kl. 18, útsofín en ákveð- in í að hafa það gott fyrir framan sjónvarpið um kvöldið. Anægð yfír að gafa gert gagn á svona skemmlilegan hátt. Eftir- köstin voru að vísu harð- sperrur [ fótum sem hefði mátt komast hjá ef íþróttakennarar skólanna hefðu komið og látið þau gera teygjuæfíngar. Þarna var eitthvað gert sem unglingarnir vildu sjálfir taka þátt í _og nutu þess augljóslega.Eg efast ekki um að söfnunin komi að góðum notum og verði til góðs. Hvað var þá að? Hundaskítur í Þingholtum LESANDI hringdi og sagð- ist búa við horn Bragagötu og Bergstaðastrætis. I ná- grenninu býr hundaeigandi sem viðrar hundinn sinn yfírleitt á kvöldin. Það bregst varla að hundurinn geri stykki sín á umrætt hom og af þessu er óskap- legur sóðaskapur. Les- andinn hefur hringt til hverfisstöðvar borgarinnar við Njarðargötu og þeir hafa komið og hreinsað upp óhroðann, en að sjálf- sögðu er það eigandi hundsins sem ætti að hreinsa upp eftir dýrið. Um þetta horn fer fjöldi fólks á degi hveijum, mæður með barnavagna og lítil börn. Ef eigandi hundsins les þessar línur er hann beðinn að taka málið til vinsam- legrar athugunar. Yantar mannlega þáttinn ERU ÞAÐ samantekin ráð hjá öllum útvarpsstöðvun- um að bola út öllum skemmtilegum og mann- legum þátt úr kvölddag- skránni. Nefni ég sem dæmi þátt Jónu Rúnu Kvaran sem var alveg ein- stakur þáttur. Sigurbjörg Hjól fannst MJÖG gott unglingareið- hjól fannst á göngustíg í holtinu fyrir neðan bensín- stöðina í Breiðholti, á milli neðra og efra Breiðholts, sl. miðvikudagsmorgun. Hjólið er núna á lögreglu- stöðinni í Breiðholti. Hringur tapaðist HRINGUR með steini tap- aðist í október sl. Góðum fundarlaunum er heitið því hringurinn hefur mikið til- finningalegt gildi. Upplýs- ingar í síma 11806. Armband tapaðist TAPAST hefur gullarm- band með múrsteins- mynstri 5. þ.m. á leiðinni frá Borgarspítalanum og út á planið þar fyrir utan eða fyrir utan Þórufell 20. Finnandi vinsamlega hringi í síma 72657. Sesar er týndur ÞEIR sem geta gefíð upplýsingar um köttinn Sesar eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 653562 eða 672909 (Kattholt). Sesar er eymamerktur með bláa leðuról (með tunnumerki) Hann sást síðast við Lækj- arhvamm í Hafnarfírði í nóvemberlok. íbúar þar í grenndinni era beðnir að athuga hvort hann gæti hafa lokast einhvers staðar inni. COSPER Pennavinir Ungan Þjóðveija langar að eignast pennavini á Islandi. Áhugamál hans eru erlend tungumál og þjóðlönd. Vin- samlegast skrifið til: Lothar Schmirnoff Lindenstr. 5 72519 Veringenstadt Þýskaland Tuttugu og þriggja ára göm- ul stúlka frá Þýskalandi er að leita að pennavinum á íslandi. Vinsamlegast skrifið til: Katja Adler H-Lotter-str. 4 09573 Augustburg Þýskalandi LEIÐRÉTT Nöfn foreldra vantaði í FRÉTT sem birtist á bls. 6 í blaðinu í gær um að Þórir Dan Björnsson hefði verið valinn í hóp bestu lækna í Bandaríkjunum féllu nöfn foreldra hans nið- ur. Þórir er ættaður úr Vestur-Húnavatnssýslu, sonur hjónanna Björns heit- ins Daníelssonar, fyrrver- andi skólastjóra Barnaskól- ans á Sauðárkróki, og Mar- grétar Ólafsdóttur, sem búsett er í Reykjavík. Beð- ist er velvirðingar á þessum mistökum. Víkverji skrifar... SKRIFARI átti erindi í Háskóla íslands á dögunum og lenti í erfiðleikum með að finna bílastæði - eins og reyndar margir sem þangað leggja leið sína. Hann greip því til þess ráðs að leggja á stæði merktu Norræna húsinu. Vissi að sjálfsögðu að það gat ekki verið vel liðið, en lét sig samt hafa það. Þegar skrifari hafði lokið verkefni sínu í skólanum beið hans glaðningur undir rúðu- þurrkunni. A kveðju frá húsvörðum Norræna hússins sagði meðal ann- ars: „Kæri bíieigandi. Um leið og við óskum þér tii hamingju með valið á þessum bíl lýsum við jafnframt von- brigðum okkar á vali þínu á bíla- stæði. Eins og þú sérð er þetta greini- lega merkt bílastæði Norræna Húss- ins, aðeins fyrir gesti og starfsfólk. Það gerist nokkuð oft að fólk frá Háskólanum geymir bíla sína á okk- ar stæði, stundum allan daginn. Þetta gerir það að verkum að aðsókn að kaffistofu, bókasafni og sýningar- sölum hússins minnkar. Við höfum stundum orðið að grípa til þess ráðs að láta fjarlægja bíla af stæðinu en það viljum við helst ekki gera. Við vonum að þú sjáir þér fært að að- stoða okkur í þessari baráttu. Kær kveðja. Húsverðir Norræna hússins." Þarna er öllu komið til skila á kurteislegan og vinsamlegan hátt. Margir gætu lært af þessum vinnu- brögðum og Víkveiji dagsins er stað- ráðinn í að leggja ekki á bílastæði Norræna hússins eigi hann ekki bein- Iínis erindi á þann ágæta stað. XXX VERÐ á flugfari til Kaliforníu getur verið misjafnt frá degi til dags. Maður nokkur hafði hugsað sér að heimsækja ættingja eftir ára- mótin, sem búsettir eru í San Diego í Kaliforníu. Hann hringdi til sölu- skrifstofu Fiugleiða á Keflavík- urflugvelli og spurði um verð á farm- iðum. Það var 26. nóvember síðastlið- inn óg sölumaðurinn sagði að ferðin til San Diego fram og til baka mundi kosta kr. 71.200. Hinn 3. desember fór maðurinn svo í eigin persónu upp á áðurnefnda söluskrifstofu til að láta bóka sig, og fékk þá nýtt verð uppgefið sem að þessu sinni var kr. 72.800. Þegar hann svo fór á söluskrifstofuna 10. desember til að borga inn á farseðil- inn var verðið komið upp í kr. 82.060. Að vonum undi maðurinn þessu illa og kvartaði, en fékk þá skýringu að fyrri sölumenn hefðu ekki vitað bet- ur. Ef til vill verið nýbyijaðir. Maður- inn, sem vildi síður standa í þrasi við fólk, keypti svo farseðilinn á kr. 82.060, þótt honum þætti það miður. Dóttur hans hins vegar líkaði ekki þessi hringlandaháttur, fannst þjón- ustan léleg og hringdi á skrifstofu Samvinnuferða-Landsýnar og spurði hvað ferðin til San Diego myndi kosta hjá þeim. Þar kostaði hún kr. 65.765. Þetta var uppgefið verð en það var tekið fram að ekki væri víst að sæti væru laus alla flugleiðina. Þá hringdi hún á söluskrifstofu Flugleiða og spurði hver skýringin gæti verið á þessum mikla mun á verði. Þá var henni sagt að verðið á innanlandsflugi í Bandaríkjunum væri misjafnt. Það færi eftir því á hvaða tíma væri flogið og hvort sæti væru laus. Hefði maðurinn sem sagt farið viku seinna en hann áætl- aði hefði hann líklega fengið farmið- ann á kr. 71.200. Af þessu má sjá að vissara er að athuga sinn gang í tíma ætli menn að fljúga milli staða í Bandaríkjun- um. Einnig hlýtur að vera hægt að gera þær kröfur til sölumanna Flug- leiða að þeir gefi rieytendum ná- kvæmari upplýsingar um verð á farmiðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.