Morgunblaðið - 28.12.1994, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
+'
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 33
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BATINN OG
UMFRAMEYÐSLAN
BATINN í þjóðarbúskapnum hefur sagt til sín með
ýmsum hætti. Talið er að útflutningur vöru og
þjónustu aukist um 6,6% að magni á líðandi ári — mið-
að við 2% í þjóðhagsáætlun. Batinn stafar af meiri fram-
leiðslu en búizt var við, betri viðskiptakjörum og minnk-
un birgða. Afgangur á viðskiptajöfnuði við umheiminn
verður um sex milljarðar króna — í stað þriggja millj-
arða í þjóðhagsáætlun. Aukin velta hefur og sagt til sín
í vaxandi tekjum ríkissjóðs.
Tekjuhlið fjárlaga fyrir komandi ár, sem nýlega voru
samþykkt á Alþingi, speglar þennan bata í þjóðarbú-
skapnum. Áætlaðar heildartekjur ríkissjóðs árið 1995
eru 112 milljarðar króna, samanborið við 107 milljarða
á líðandi ári. Þessi tekjuauki rekur rætur til aukinnar
framleiðslu og umsvifa en heildarskattbyrði vex ekki,
að sögn fjármálaráðherra. „Hlutfall tekna af landsfram-
leiðslu árið 1995 er áætlað 24,9%, samanborið við 25,4%
árið 1994. Hlutfall skatttekna lækkar einnig, úr 23,6%
1994 í 23,2% 1995. Þetta er lægsta skatthlutfall sem
mælst hefur frá árinu 1987,“ segir í tilkynningu fjár-
málaráðuneytisins.
Tekjuauki ríkissjóðs, sem efnahagsbatinn skilar, gaf
þingi og stjórn einstakt tækifæri til að ná niður hallan-
um á ríkisbúskapnum, án þess að hækka skatta. Þetta
tækifæri sýnist ekki hafa verið nýtt sem skyldi. Að vísu
lækkar halli ríkissjóðs, samkvæmt fjárlögum 1995, um
tvo milljarða króna, verður 7,4 milljarðar samanborið
við 9,6 milljarða á fjárlögum 1994. Fram hjá hinu verð-
ur ekki horft, að Alþingi gat staðið betur á útgjalda-
bremsunum. Utgjöld fjárlaga eru fjórum og hálfum
milljarði hærri en fjárlagafrumvarpsins, eins og það var
lagt fram. Tekjuaukinn fer að of stórum hluta í aukin
útgjöld — en að of litlum hluta í að ná niður ríkissjóðs-
hallanum, sem verið hefur meginorsök hárra vaxta
undanfarin ár. Halli ríkissjóðs á fjögurra ára tímabili,
1992-1995, verður trúlega um 34 milljarðar króna.
Skylt er geta þess, samhliða gagnrýni á ónógt
úgjaldaaðhald, að miðað hefur til réttrar áttar. í frétta-
tilkynningu fjármálaráðuneytisins um fjárlög 1995 seg-
ir m.a.: „Samkvæmt fjárlögum lækka útgjöld ríkissjóðs
úr 27,3% árið 1994 í 26,5% af landsframleiðslu árið
1995. Frá árinu 1991 hefur útgjaldahlutfallið lækkað
um 2%, eða úr 28,4% af landsframleiðslu. Þetta er lægsta
útgjaldahlutfall frá árinu 1987.“ Þessi árangur breytir
því hins vegar ekki að nýta mátti betur þann tekju-
auka, sem batinn gefur, til að ná niður ríkissjóðshallan-
um.
Fjárlög ársins 1995 eru háð ýmsum óvissuþáttum sem
fjárlög fyrri ára. Það er ekki á vísan að róa, sjávarafl-
ann, sem þyngst vegur í þjóðarbúskapnum. Við erum
og ríkulega háð efnahags- og verðþróun í umheiminum,
sem við höfum lítil sem engin áhrif á. Setja verður einn-
ig spurningarmerki við ýmsar fjárlagaforsendur á
heimaslóðum, eins og launa- og verðlagsþróun, en samn-
ingar eru lausir og lyktir á þeim vettvangi ófyrirséðar.
Á komandi ári ræðst samt sem áður, hvort þjóðin glutr-
ar niður efnahagsbatanum og stöðugleikanum, sem er
forsenda hans, eða nær að festa batann í sessi til fram-
búðar.
Það hefur sitt hvað áunnizt síðustu árin. Meiri stöðug-
leiki ríkir í efnahagslífinu en verið hefur um áratuga
skeið, þrátt fyrir mikinn samdrátt í fiskveiðum. I fyrsta
sinn í sögu lýðveldisins verður verðbólga undir 5% fjög-
ur ár í röð, 1992-1995. Viðskiptajöfnuður við umheim-
inn er jákvæður. Erlend skuldasöfnun hefur verið stöðv-
uð. Vextir hafa lækkað umtalsvert. Rekstrargrundvöllur
fyrirtækja hefur styrkzt. Hagvöxtur, sem er forsenda
bættra lífskjara, eykst smám saman. Og útgjöld ríkis-
sjóðs hafa lækkað um 2% frá 1991 sem hlutfall af lands-
framleiðslu. En betur átti og mátti nýta efnahagsbatann
til að lækka ríkissjóðshallann. Þá þurfa áhrifaöfl í samfé-
laginu að festa batann og stöðugleikann í sessi með
kjarasátt, sem tekur mið af þeim efnahagsveruleika er
við blasir — og harðnandi samkeppni á helztu markaðs-
svæðum umheimsins.
HEITTRÚARMEINIIM í ALSÍR
Átökín í
Alsír ógna
Frökkum
Tugír þúsunda hafa fallið í Alsír frá því að
herinn tók þar voldin fyrir þremur árum til
að koma í veg fyrir að íslamskir heittrúar-
---------------------------------------------
menn yrðu við stjórnvölinn. Ottast Frakkar
mjög þau áhrif sem átökin við heittrúarmenn
í Alsír kunna að hafa í Frakklandi og hafa
stutt alsírsk stjómvöld í baráttunni við þá*
ÞEGAR alsírskir heittrúar-
menns rændu Airbusþotu
franska flugfélagsins Air
France gerðist það loks
sem frönsk stjómvöld hafa óttast um
nokkurt skeið. Hin blóðuga borg-
arstyrjöld í Alsír hefur borist til Evr-
ópu og þá fyrst og fremst Frakk-
lands.
Þrjú ár eru liðin frá því að fyrstu
fijálsu þingkosningarnar, frá því að
landið öðlaðist sjálfstæði árið 1962,
voru haldnar í Alsír. íslamska frelsis-
hreyfingin (FIS), sem eru samtök
heittrúarmanna, sigraði í fyrri um-
ferð kosninganna með nokkrum yfir-
burðum, en áður en leiðtogar FIS
gátu tekið við völdum tók herinn í
taumana. Chadli Benjedid forseti var
knúinn til afsagnar og síðari umferð
kosninganna aflýst.
Samstundis hófu heittrúarmenn
vopnaða baráttu sína gegn stjórn-
völdum. Ráðist var á lögreglustöðvar
og stuðningsmenn stjórnvalda myrt-
ir. Ráðist var á konur, er neituðu að
ganga um með slæðu fyrir andlitið,
og margar þeirra skornar á háls á
götum úti.
30 þúsund fallnir?
Samkvæmt opinberum tölum hafa
að minnsta kosti tuttugu þúsund
manns fallið í valinn frá því að
hryðjuverkaherferð heittrúarmanna
hófst fyrir þremur árum. Margir telja
þó að þær tölur séu stórlega van-
metnar og að minnsta kosti þrjátíu
þúsund hafi látið lífið.
Mörg ódæðisverkanna -------------
hafa ekki farið hátt. Spjót
heittrúarmanna hafa ekki
síst beinst að fréttamönn-
um og margir af þekktustu
blaðamönnum Alsír hafa
verið myrtir. Fréttir af því sem er
að gerast í landinu eru því nánast
hættar að berast.
Þora ekki út fyrir dyr
Efnaðir Alsírbúar og þeir sem ekki
hafa tekið afstöðu í átökunum eru
að heita má fangar á heimilum sín-
um. Umsátursástand ríkir nánast á
stórum svæðum landsins og aðferðir
jafnt stjórnarinnar sem hryðjuverka-
hópa heittrúarmanna verða sífellt
vægðarlausari.
I síðustu viku greindi kona er býr
fyrir utan borgina Oran systur sinni,
sem býr á Vesturlöndum, frá ástand-
inu í landinu: „Við lifum innilokuð í
húsum okkar. Við þorum ekki lengur
að ganga um garðana eða upp í
hæðirnar af ótta við það sem gæti
gerst eða einhver kunni að koma á
meðan við erum úti.“
Konan sagði óstaðfestar sögu-
sagnir ganga húsa á milli. Sú nýj-
asta væri sú að félagar í GIA (Vopn-
aðar sveitir íslam) lægju í fyrirsátri
Annarhver
íbúi atvinnu-
laus
Árhringir ákvarða uppruna og nákvæman aldur á rekaviði
MÚSLIMSKAR konur mótmæla því í Frakklandi að fá ekki að bera
hefðbundnar slæður heittrúarmanna í frönskum skólum.
er leigubílar og rútur kæmu með
unga menn úr suðurhlutanum til að
gegna herskyldu eða lögreglustörfum
í borgum norðurhlutans. „Við höfum
heyrt að tíu eða fleiri hafi verið skotn-
ir í einu,“ segir konan.
Hættulegustu öfgasamtökin
GIA-samtökin, sem stóðu fyrir
ráninu á frönsku farþegaþotunni, eru
líklega róttækustu og hættulegustu
samtök alsírskra heittrúarmanna og
jafnframt þau sem mest er í nöp við
útlendinga. Alls hafa 70 erlendir rík-
isborgarar látið lífið í átökunum í
Alsír, þar af 22 Frakkar, frá því að
samtökin gáfu útlendingum mánað-
arfrest til að yfirgefa landið á síð-
asta ári. Ella yrðu þeir drepnir.
í nýlegri grein í alsírska blaðinu
Essalam var haft eftir ónefndum leið-
toga GIA að útlendingar væru „slag-
æð“ áætlunar um „nýlendustefnu"
er hefði það að markmiði að fylla
Alsír af trúleysingjum. „Það að berj-
ast gegn þeim og drepa þá er góð
leið til að veikja trúleysingjana sem
eru við völd í landinu,“ sagði hann
við blaðið.
I sumum áróðursbæklingum GIA
er því haldið fram að samtökin eigi
uppruna sinn að rekja til fyrstu
íslömsku skæruliðanna í landinu. Sú
hreyfing var talin hafa verið upprætt
er stofnandi hennar, Mustapha Bouy-
ali, var skotinn til bana árið 1986
af öryggissveitum. Stuðningsmen
Bouyalis voru handteknir og dæmdir
til dauða. Þeir voru hins vegar náðað-
-------- ir fyrri hluta árs 1990
vegna þrýstings frá FIS,
sem þá var vaxandi afl í
alsírskum stjórnmálum.
Frumkvöðlar GIA söfn-
uðu í kjölfarið saman
vopnum og mannafla og reyndu styrk
sinn er þeir réðust á herstöð í borg-
inni Gueamar í suðausturhluta lands-
ins árið 1991, að sögn hins ónafn-
greinda heimildamanns Essalam.
Þrír hermenn féllu í árásinni.
Forystumennirnir
myrða sjálfir
Sú krafa er gerð til forystumanna
GIA að þeir taki sjálfir þátt í ofbeldis-
aðgerðum og þeir verða að geta sýnt
fram á að þeir hafi persónulega fellt
nægilega marga af „andstæðingum
Guðs“.
Leiðtogi GIA til skamms tíma var
hinn 26 ára gamli Cherif Gousmi,
en hann lét lífið í skotbardaga við
öryggissveitir í grennd við Alsír í
september. Þriðji æðsti leiðtogi sam-
takanna, Abdessalam Djemaoune,
féll einnig í þeim bardaga. ■
Að sögn APS, hinnar opinberu
fréttastofu Alsír, var Djemaoune,
sérfræðingur GIA í því að skera fólk
á háls. Er hann sagður hafa myrt
tólf Króata með þeirri aðferð í búðum
erlendra verkamanna í desember í
fyrra.
Gousmi hafði verið leiðtogi sam-
takanna frá í febrúar en þá var fyrr-
um leiðtogi GIA, Mourad Sid Ahmen,
sem einnig notaði nafnið Djaafar al-
Afghani, skotinn til bana ásamt níu
félögum sínum í skotbardaga í út-
hverfi Alsír.
Segjast stjórnvöld hafa fundið bréf
í fórum Gousmis frá Ali Belhadj,
næðstæðsta manns FIS, þar sem
hann hvetur múslimska skæruliða til
að herða baráttuna gegn stjórninni.
Enginn veit hins vegar hvort einhver
formleg tengsl eru milli FIS og GIA
og þá hversu náin þau eru. FIS starf-
rækir sínar eigin vopnuðu sveitir -
SIA.
Stjórnarherinn er helsti andstæð-
ingur heittrúarmanna. Hann telur
um 150 þúsund menn auk varaliðs
er kallað hefur verið út til sérstakra
öryggisstarfa. Hefur herinn lengi
haft það orð á sér að vera sá best
agaði og þjálfaði í Afríku.
Er talið að jafnt stjórnin sem heit-
trúarmenn hafí tekist að koma flugu-
mönnum inn í raðir andstæðinga
sinna.
íranir á bak viö
Andlegan innblástur sækja jafnt
FIS, SIA og GIA til klerkastjórnar-
innar í íran. Þó svo að hinir alsírsku
heittrúarmenn súnni-múslimar en
íranar shítar er Ijógt að það eru íran-
ir sem unnið hafa að því að leggja
drög að klerkastjórn FIS í ------------------
Alsír. Átök verða
Skæruliðar heittrúar- sífellt blóð-
manna fá birgðir sínar,
vopn og jafnvel liðsmenn
frá
ugri
íjölmörgum ríkjum.
Sumir þeirra börðust á sínum tíma
með Mujaheddin-skæruliðum í Afg-
anistan - þeirra á meðal fyrrnefndur
Djaafar al-Afghani. Vopn frá Súdan
hafa fundist og í minna mæli frá
nágrannaríkjunum Túnis og Mar-
okkó.
Er talið að FIS hafi komið sér upp
útibúum í Evrópu og Bandaríkjunum,
sem sjái samtökunum fyrir fjármagni
og áróðri auk griðarstaða fyrir leið-
toga FIS, er vilja hvíla sig á átökun-
um í Alsír.
Þá hafa borist vísbendingar um
að alsírskir og jafnvel túnískir og
súdanskir heittrúarmenn í tengslum
við FIS hafi barist með múslimum í
Bosníu.
Hagsmunir Frakka
Það ríki í Evrópu sem stafar mest
ógn af þróuninni í Evrópu er Frakk-
land. Alsír var hluti Frakklands allt
til ársins 1962 og helmingur þeirra
tveggja milljón Alsírbúa er búsettir
eru erlendis búa í Frakklandi. Hafa
margir þeirra gerst heittrúaðir að
undanförnu. Efnahagsleg tengsl
Frakklands og Alsír eru að sama
skapi umtalsverð. Marxistastjórn
FLN, sem fór með völd í landinu
lengst af eftir að það hlaut sjálf-
stæði, mistókst hrapallega við efna-
hagsstjórnina. Er nú svo komið að
Alsír verður að flytja inn 90% af
matvælaþörf sinni og kemur megnið
af þeim innflutningi_ frá Frakklandi.
Þá eru Frakkar og ítalir mjög háðir
olíu og gasi frá Alsír, en það er helsta
útflutningsvara landsins.
Deilurnar í Alsír nú má rekja til
klofnings í röðum þeirra sem börðust
gegn nýlenduveldi Frakka á árunum
1954-1962. Rúmlega milljón manna
lét lífið í því stríði.
Hin marxíska hreyfing FLN hafði
betur og það er ekki fyrr en fyrir
átta árum, er Alsír var nær gjald-
þrota vegna efnahagsmistaka FLN,
að FIS fór að vaxa fiskur um hrygg.
Jarðvegurinn er kjörinn fyrir öfga-
hreyfingar. Um helmingur Alsírbúa
er án atvinnu. Tveir þriðju þjóðarinn-
ar eru undir 25 ára aldri og flestir
ungir Alsírbúa eygja litla von á að
geta fengið vinnu í framtíðinni. Ótt-
ast menn nú ailsherjar borgarastríð
í Alsír er gæti orðið gífurlega
mannskætt.
Ágreiningur ráðamanna
Frakkar hafa stutt núverandi
stjórn landsins þó svo að Alain Juppé
utanríkisráðherra hafi ítrekað hvatt
til viðræðna stjórnarinnar við FIS til
-------- að reyna að koma á lýð-
ræði í stað styrjaldar.
Charles Pasqua innanrík-
isráðherra hefur hins veg-
ar staðið fyrir herferð
gegn heittrúarmönnum í
Frakklandi. í nóvember voru 95
meintir félagar í GIA handteknir í
París og hald lagt á rnikið af vopnum.
Pasqua hefur einnig gagnrýnt önn-
ur ríki fyrir að sýna linkind í garð
íslamskra öfgamanna. Þó að Edouard
Balladur forsætisráðherra hafi beðið
Pasqua um að hafa hægar um sig í
þessu máli er ljóst að afstaða hans
endurspeglar ótta flestra Frakka. Ef
upp úr sýður í Alsír má búast við
straumi flóttamanna yfir Miðjarðar-
hafið og jafnvel að átökin berist í
auknum mæli til Frakklands.
Frakkar hafa því leynt og ljóst
reynt að beijast gegn heittrúarmönn-
um og m.a. útvegað alsírska hernum
nrikið af vopnum. Stendur nú til að
flytja um 30 Ecureuil-þyrlur til Alsír
en þær verður hægt að nota í barátt-
unni gegn heittrúarmönnum.
Ali Belhadj, annar leiðtoga FIS,
hefur hótað því að frá og með ára-
mótum verði gerðar sjálfsmorðsárás-
ir á frönsk fyrirtæki og stofnanir í
arabaríkjum.
Rekaleiðir
í Norður-
Atlantshafi
*
Dr. Olafur Eggertsson hefur í doktorsritgerð
í Lundi leitt líkur að því að breytingar hafi
orðið á styrk Norður-Atlantshafsstraumsins á
þessi öld. í símtali við Elínu Pálmadóttur
kom m.a. fram að straumurinn hefði verið
styrkari fyrri hluta aldarinnar og hlýr Atlants-
hafssjór náð langt norður fyrir Svalbarða á
árunum 1920-1950.
REKAVIÐUR í Munaðarnesi á Ströndum.
Morgunblaðið/Rax
O
LAFUR Eggertsson varði
25. nóvember sl. doktors-
ritgerð við Háskólann í
Lundi. Ritgerðin fjallar í
stuttu máli um uppruna og leiðir reka-
viðs, sem rekur upp að ströndum
Kanada, Grænlands, Islands og Sval-
barða og er byggð á fjórum sjálfstæð-
um greinum sem birst hafa og munu
birtast í alþjóðlegum tímaritum.
Rannsóknaraðferð sú, sem hann hef-
ur notað, er aldursgreining eftir ár-
hringjum, sem grundvallast á því að
breidd árhringja í trjám er breytileg frá
ári til árs og ræður þar mestu veðurfar
og frjósemi jarðvegs. Tré af sömu teg-
und og frá sama svæði mynda svipað
árhringjamynstur_ fyrir sama vaxtar-
tímabil, útskýrði Ólafur. Aðferðin bygg-
ist á að bera árhringjagildi sýnis, t.d.
rekaviðs, saman við árhringjagrunngildi
frá skógarsvæðum, sem umlykja t.d.
Norður-Ishaf. Þegar grunngildin passa
saman er vitað hvaðan viðurinn kemur
og hvenær hann féll í ána.
Straumabreyting á þessari öld
Það vekur athygli í rannsóknum
Ólafs Eggertssonar að rekaviður af
norður-amerískum uppruna hefur
greinst í reka frá Grænlandi, en ekki
á íslandi þrátt fyrir að margfalt fleiri
sýni voru könnuð þaðan. Þetta leiðir
líkum að því að ísinn sem berst suður
með Austur-Grænlandsstraumi frá
Framsundi og inn í Norður-Atlants-
haf, sé að einhverju leyti af ólíkum
uppruna, segir hann.
Þá leiða rannsóknir á samsetningu
og uppruna rekaviðs frá Svalbarða lík-
um að því að breytingar hafi orðið á
styrk Norður-Atlantshafstraumsins á
þessari öld, en grein hans streymir
norður með vesturströnd 'Svalbarða.
Styrkur þessa straums var meiri á
fyrri hluta þessarar aldar en hann er
i dag, þannig að hlýr Atlantshafssjór
náði langt norður fyrir Svalbarða á
árunum 1920-1950. Á Svalbarða
kannaði Ólafur rekaviðinn á tveimur
stöðum, ísafjorden vestan megin og í
Wijdefjorden norðan á eyjunum. Við-
urinn á fyrrnefnda staðnum kom að
mestu úr Hvítahafinu og hafði megnið
af honum strandað þarna á árunum
1950-79. Mun minna -------------—
hafði rekið á árunum
1910-1950. í Wijde-
fjorden rekur viður frá
bæði Síberíu og Hvíta-
hafí og á árununr
1910-50 er yfirgnæfandi af viði frá
Hvítahafinu, þar sem mest er af Síber-
íuviði á árunum 1950-79. Hlýi Atl-
antshafsstraumurinn norður með
Svalbarða sem flutti Hvítahafsviðinn
var þvi sterkari fyrir 1950 en síðan.
Þá fór Síberíuviðurinn að verða tiltölu-
lega algengari. Þetta endurspeglast
líka í veðurfræðiskýrslum sern fylgja
og sýna að veðurfar var mildara á
þessum eyjum á fyrri helmingi aldar-
innar.
Reki við ísland
Við frá fjarlægum löndum rekur
sífellt að ströndum íslands. Útbreiðsl-
an er breytileg en segja má að finna
megi rekavið meðfram allri strand-
lengju landsins, segir Ólafur. Viðurinn
á uppruna að rekja til skógasvæða
Rússlands og Síberíu og berst hingað
til lands með norðlægum straumum.
Árnar, sem renna frá skógarsvæðum
Rússlands, Síberíu, Kanada og Alaska;
bera með sér mikið magn viðar út í
myndað meðalárhringjalínurit, sem
aldursgreint var með hjálp grunngilda
frá Jenisej í Síberíu, en hún er skammt
frá einu stærsta skógarhöggssvæði
Rússa. I dag er mestur hluti furu og
grenis í reka semsagt sagað timbur
frá skógarhöggssvæðum Rússlands og
Síberíu, sem tapast hefur út í Norður-
íshaf við fleytingar, en stór hluti lerk-
is í rekanum er upprunninn af náttúru-
legum orsökum, við rof úr bökkum
fljótanna í Austur-Síberíu. En sem
fyrr segir virðist norður- ameríski
Ólafur
Eggertsson
TEIKNING úr dokt-
orsritgerð Ólafs Egg-
ertssonar sem sýnir
breytingar á styrk-
leika strauma við Sval-
barða á öldinni.
A) Fyrirum 1950.
B) Eftir um 1950.
$tór hluti lerkisins
er upprunninn í
Austur-Síberíu
Norður-íshafið. Fljótin rjúfa bakka
sína þannig að viðurinn fellur í fljótin
og einnig tapast mikið magn timburs
við fleytingar. Fleytingar eiga sér að-
eins stað í Rússlandi og Síberíu. Þegar
viðurinn nær hafinu frýs hann í hafís
og berst með ísnum til fjarlægra
stranda. Stór hluti alls hafíss í Norður-
------------ Ishafi berst með haf-
straumum inn í Norður-
Atlantshaf gegnum
Framsund milli Græn-
lands og Svalbarða.
Samtals voru rann-
sökuð 343 sýni af rekavið, sem safnað
var á þremur mismunandi stöðum á
íslandi: á Ströndum, Langanesi og
Reykjanesi. Einnig voru 25 sýni frá
Scoresbysundi á Grænlandi könnuð.
Sýnin voru viðar- og árhringjaaldurs-
greind með það að markmiði að kanna
uppruna þeirra. I rekanum frá íslandi
voru aldursgreind með hjálp árhringja-
gilda samtals 25% af greni og 5% af
furu frá Hvítahafssvæðinu í Norður-
Rússlandi og 54% af furunni gat
rekaviðurinn ekki hafa strauma til að
fleyta honum til ísiands
Rannsóknir í árhringjafræði
Ólafur Eggertsson er nú við ísald-
arjarðfræðideild Lundarháskóla og
starfar við rannsóknir á sviði árhrin-
gjafræði. Hann komst á bragðið þeg-
ar hann var að ljúka ---------------
BS-prófi í jarðfræði við
Háskóla Islands árið
1988 og prófessor Þor-
leifur Einarsson kynnti
hann fyrir dr. Thomas
Bartholin, sem sýnt hafði fram á að
mögulegt væri að nota árhringi til
að aldursgreina rekavið, en hann er
sérfræðingur í þessari aðferð sem
mikið er notuð við fornleifarannsókn-
ir. Einnig má nota þessa aðferð við
að kortleggja breytingar á veðurfari
og hafstraumum, auk þess sem jarð-
fræðingar njóta góðs af aukinni þekk-
ingu á rekaviði, þar sem þannig má
aldurssetja setið sem með honum
berst, segir í fréttatilkynningu há-
skólans í Lundi um doktorvörn Ólafs
Eggertssonar.
Varð dr. Bartholin leiðbeinandi
Ólafs meðan á doktorsnáminu stóð
ásamt Christjan Hjort, en doktorsnám-
ið hóf Ólafur þá þegar við ísaldaijarð-
fræðideildina í Lundi. Á árinu 1989
var Ólafur starfandi rannsóknarmaður
við deildina og hlaut síðan námsstyrk
frá Háskólanum og í framhaldi „dokt-
orsstöðu" þar til sl. vors. Doktorsrit-
gerðin nefnist „Origin of the Arctie
driftwood adendrochronological
study“. Andmælandi var
dr. Weston Blake frá
Kanada og í prófnefnd
voru próf. Björn Berg-
lund jarðfræðingur frá
Lundi, dr. Niels Bonde
fornleifafræðingur frá
Kaupmannahöfn og Leif
Anderson dósent og haf-
fræðingur frá Gauta-
borg.
Því má skjóta hér inn
í að í frétt frá Háskólan-
um í Lundi segir að rann-
sóknir Ólafs Eggertsson-
ar séu enn ein staðfesting
á kenningu norska veður-
fræðingsins Henriks
Mohns eftir sjóslysið á
Wrangel út af austur-
strönd Síberíu 1879, þeg-
ar ameríska skipið Jean-
nette festist í -ísnum og
tók að reka með honum
þar til ísinn braut skipið
í sundur 21 mánuði síðar.
Þremur árum síðar fund-
ust hlutir úr Jeannette á
suðausturströnd Græn-
lands. Af þessu dró Hen-
rik Mohn þá ályktun að
í Norður-Ishafinu væri
vindrekinn pólstraumur.
Friðþjóf Nansen dró líka
af Jeannettu-slysinu, þegar
1893-96*
Ameríska rekavið-
inn vantar
strauma til íslands
lærdóm
hann í Fram-leiðangrinum
lét skipið fijósa fast við Nýju síberísku
eyjarnar og reka með ísnum í vestur.
Því bætt við að þessi pólstraumur fari
í sveig norður um höf og ein grein
lians þrengi sér svo milli Svalbarða
og Grænlands og fari meðfram Græn-
----------- landsströndu fram hjá
Islandi. Um þriðjungur
af magninu fari um
Framsundið og yfirleitt
taki það rekaviðinn þijú
ár að reka til íslands frá
Síberíu. Sá rekaviður sem ekki strandi
einhvers staðar geti kannski farið í
hringi í Norðuríshafinu í 15 ár.
Dr. Ólafur Eggertsson er Reykvík-
ingur, sonur Eggerts Þórhallssonar
múrarameistara í Reykjavík og konu
hans Ástu Ágústsdóttur. Hann er nú
búsettur í Svíþjóð ásamt konu sinni
'Heiði Vernharðsdóttur, sem er magist-
er i uppeldis- og sálarfræði frá háskól-
anum í Lundi, og börnum þeirra, Arn-
óri 7 ára og Ágústi 3ja ára.