Morgunblaðið - 03.01.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995 29
borð við hina íslensku, getur aldrei
sett stórveldi stólinn fyrir dyrnar,
en sú staðreynd þarf ekki að dæma
okkur úr leik. Hin íslenska rödd
þarf að heyrast og Íslendingar
mega ekki hliðra sér hjá að leggja
þeim lið, sem búa við kúgun og
undirokun. Það lýðfrelsi, sem við
búum við, leggur okkur skyldur á
herðar, sem við víkjumst ekki und-
an.
Góðir íslendingar. Við hefjum
senn för okkar á vit nýs árs. Þótt
árið 1995 sé enn að mestu hulið
mistri hins óþekkta, vekur koma
þess hvorki ugg né ótta. Okkar
veganesti inn í framtíðina, er ekk-
ert síðra en þeirra, sem á undan
okkur voru og ruddu brautir og
byggðu ból, börðust fyrir sjálfstæði
og stofnuðu lýðveldi. Við höfum
þeirra fordæmi að fylgja. Við lítum
landið sömu augum og það fólk sem
á undan fór. Við gerum ekki upp á
milli þess hvort við lítum þetta land
fannbarið um vetur eða í sólríkum
sumarskrúða. Okkur fínnst það fag-
urt hvenær og hvar sem á það er
litið. Ef ekki er hægt að hafa bæri-
lega tilveru á íslandi í framtíðinni,
er ekki við landið að sakast. Þá
höfum við brugðist ættjörðinni og
þar með okkur sjálfum. Það látum
við aldrei gerast. „Þetta land var
sál vorri fengið til fylgdar“. Með
þetta veganesti eftir forskrift for-
eldranna og forfeðranna, tökum við
vonglöð og hress á móti nýju ári,
staðráðin í því, að láta ekki berast
af leið og bjartsýn á að vel muni
úr rætast. Ég óska löndum mínum,
nær og fjær, gjöfuls og gleðilegs
árs.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
671800
Gleðilegt nýtt ár
Vantar góða biía á skrá
og á staðinn.
Ekkert innigjald.
Nissan Sunny SLX Sedan '93, steingrár,
sjálfsk., ek. 32 þ. km., rafm. í rúðum, hiti
í sœtum o.fl. V. 1.080 þús.
MMC Pajero Mondeo V-6 (U.S.A. týpa
’89), svartur, sjálfsk., ek. 160 þ. km. Fall-
egur jeppi. V. 1.490 þ.
Suzuki Geo Metro '92, hvítur, 5 dyra, 5
g., ek. 50 þ.km. V. 620 þús.
Renault Cllo RN '92, 5 g., ek. 100 þ. km.
Gott ástand. V. 590 þús.
Subaru Legacy 2.0 station '92, steingrár,
sjálfsk., ek. 52 þ. km. V. 1.800 þús.
Volvo 460 GLE '94, sjálfsk., ek. aðeins
5 þ. km. V. 1.600 þús.
MMC Colt GLX ’89, sjálfsk., ek 65 þ. km.
V. 690 þús.
Nissan Sunny LX '94, blár, 5 g., ek. að-
eins 1 þ. km. V. 990 þús.
MMC Colt GL '91, 5 g., ek. 58 þ. km.
V. 730 þús. Einnig MMC Colt GLX ’90,
sjálfsk., ek. 45 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 780 þús.
Subaru Justy J-2 '91, rauður, 5 g., ek. 60
þ. km. V. 680 þús.
Nissan Terrano V-6 '93, grænn, sjálfsk.,
ek. 46 þ. km., sóllúga, rafm. í rúðum o.fl.
V. 2,9 millj. Sk. ód.
Toyota Corolla Twin Cam 16v, GTi '88,
5 g., ek. 90 þ. km. V. 620 þús.
Mazda 323 1600 GLX st. 4 x 4 '91, grár,
5 g., ek. aðeins 35 þ. km., álfelgur o.fl.
V. 980 þús. Sk. ód. eða nýjum station bíl.
VW Transporter diesel '92, hvítur, 5 g.,
ek. 120 þ. km. V. 1.090 þús.
Bílar á tilboðsverði
Peugeot 309 '87, 4ra dyra, hvítur, 5 g.,
ek. 44 þ. km. á vél. V. 280 þús. stgr.
Citroen AX 11 TRS '88, 5 dyra, 5 g., ek.
88 þ. km. V. 250 þús.
Citroen BX 16 TRS ’85, 5 g., ek. 130 þ.
km. V. 195 þús.
Nissan Sunny '85, 5 dyra, 5 g., ek. 107
þ. km. V. 170 þús. stgr.
Honda Accord '82, 4ra dyra, blár, 5 g.,
ek. 190 þ. km. Gott eintak. V. 70 þús.
Mazda 323 '83, 4ra dyra, 5 g., ek. 155
þ. km. V. 130 þús. stgr.
FRÉTTIR
Almannatryggingar
í nýjum búningi
ALMANNATRYGGINGAR, tímarit
Tryggingastofnunar ríkisins um vel-
ferðarmál, er komið út í fyrsta sinn
í nýjum búningi og nýrri ritstjórn.
I þessu tölublaði er fjallað um
sparnað í almannatryggingakerfinu
og nýja fjárlagafrumvarpið skoðað.
Pétur Blöndal tryggingastærðfræð-
ingur skrifar grein um samspil al-
mannatrygginga og lífeyrissjóða,
sem hann telur of flókið.
Ingibjörg Stefánsdóttir skrifar um
hugmyndir um lengingu á fæðingar'-
orlofí og áhrif þess á starfsframa
kvenna. I greininni kemur fram að
íslenskir feður taka mun sjaldnar
fæðingarorlof en kynbræður þeirra
annars staðar á Norðurlöndum.
Ábyrgðarmaður Almannatrygg-
inga er Karl Steinar Guðnason en
ritstjóri er Svala Jónsdóttir. Tímarit-
ið Almannatryggingar hefur komið
út frá árinu 1986 en árið 1990 var
blaðið sameinað talnariti Trygginga-
stofnunar, sem bar heitið Félags-
mál. Nú hafa blöðin verið aðskilin
aftur og efnistökum Almannatrygg-
inga breytt talsvert. Almannatrygg-
ingum er dreift ókeypis í 2.000 ein-
tökum til einstaklinga og fyrirtækja
sem starfa að heilbrigðis- og félags-
málum.
Agætu vinir!
Hjartans þakkir fcerum viÖ öllum þeim, sem
glöddu okkur meÖ heimsóknum og gjöfum á
afmœlisdegi okkar 29. desember sl.
Sérstakar þakkir til kórfélaga i Hvalsnes- og
Útskálasókn.
GuÖ gefi ykkur öllum gleÖilegt nýtt ár.
Einar Júlíusson og Björgvin Pálsson.
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsins!
Komdu og vertu meö á þessu frábæra námskeiði.
Arangurinn á fyrri námskeiöum hefur veriö frábær.
Flestar ná aö missa 5-10 aukakíló og læra aö halda
þeim árangri varanlega!
frtáík&i lojH
aðseguS
Nýtt og enn fullkomnara 7-vikna
fitubrennslunámskeið Hefst 9. jan úar.
Þjálfun 3-5x í viku
Fitumælingar og viktun
Matardagbók
Uppskriftabæklingur aö fitulitlu fæöi
Mappa m. fróðleik og upplýsingum
Mjög mikiö aðhald
Vinningar dregnir út í hverri viku
Frítt 3ja mán. kort fyrir þær 5
samviskusömustu!
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868
Framhaldshópur
- fyrir allar þær sem hafa veriö
áöur á námskeiöunum okkar.
Nýtt fræösiuefni.
Mikiö aöhald.
Morgunhópur
► Daghópur
- ► Kvöldhópar
Barnagæsla
Skráning í síma
68-98-68