Morgunblaðið - 03.01.1995, Síða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995
MORGU NBLAÐIÐ
UIMGLINGAR
Hvar eru þau og hvað eru þau að gera
Takmarkið
að komast á
Olympíuleikana
Sigurður Grétar Guðmundsson
er 13 ára og æfir skíði með
Skíðaráði Akureyrar. Hann er nú
staddur í Noregi ásamt 30 öðrum
skíðakrökkum á aldrinum 13 til 17
ára, við skíðaæfingar. Við tókum
hús á honum á milli jóla og nýjárs,
kvöldið áður en hann lagði af stað
utan.
Við erum að fara til Noregs til
að æfa okkur, en það verður líka
einhver skemmtun. Það ríkir keppni
í skíðunum og með því að fara
núna þá byijum við æfingarnar í
vetur á undan hinum. Það er búið
að vera lengi inni í myndinni að
fara eitthvað út og æfa. En það var
ekki fyrr en í byrjun vertíðar núna
f haust að við ákváðum að fara til
Noregs. Við förum á lítinn stað sem
heitir Geilo og er einhverstaðar fyr-
ir utan Ósló. Við verðum í tæpar
tvær vikur, förum með rútu suður
og fljúgum þaðan. Við gistum fimm
saman í húsum og sjáum um okkur
sjálf. Það verða engir foreldrar með
en bæði fararstjórar og þjálfarar.
Ég held að það skipti máli að fara
í svona æfingaferðir, en þær eru
ekki bráðnauðsynlegar.
Þetta er dýrt fyrir okkur svo við
höfum verið að safna dósum og
leitað eftir styrkjum héðan og það-
an, og svo höfum við gert þetta
klassíska, selt jólakort og rækjur.
Ég er búinn að æfa skíði í svona
tvö og hálft ár og fínnst þetta mjög
skemmtileg íþrótt og einstaklings-
íþrótt eins og skíði hentar mér mjög
vel. Takmarkið hjá mér er að kom-
ast á Ólympíuleikana árið 2002,
sagði þessi hressi skíðakappi að
lokum, og við vonum að hann nái
því.
Meira við að vera
í Ósló en á ísafirði
MARGIR íslend-
ingar búa í út-
löndum en koma
gjaman heim í jóla-
og sumarfrí. Einn af
þeim sem hefur flust
erlendis með fjöl-
skyldu sinni er Erling-
ur Örn Óðinsson 14
ára, en hann hefur
búið í Ósló um tveggja
ára skeið. Hann er á
íslandi í jólafríi og
ætlar að láta ferma sig
á milli jóla og nýárs.
„Ég bý í hverfi sem
er hátt yfir Óslóar-
borg, ég bjó á ísafírði í sex ár áður
en ég flutti út, ég var reyndar í
hálft ár á Akureyri áður. Munurinn
á ísafirði og Ósló er mjög mikill.
Ósló er auðvitað miklu stærri og
miklu meira fyrir mig að gera þar
en hér. Það eru margir unglinga-
klúbbar í hverfinu mínu og ég fer
alltaf á þriðjudags- og föstudags-
kvöldum. Það er hægt að fara í
allskyns klúbba, ljósmyndaklúbb og
matreiðsluklúbb, en ég er ekki í
neinu svoleiðis. Skólabyggingarnar
í Noregi eru eldri og ljótari en mér
gengur ágætlega í náminu, ég var
ekkert lengi að ná málinu, ég var
farinn að tala norsku eftir nokkrar
vikur. Ég er hérna í fríi með fjöl-
skyldunni en síðasta sumar ákváð-
um við að fresta fermingunni til
jóla, safna peningum og hafa þetta
allt veglegra. Mér leiðist ekki að
fermast einn, enda verður Tinna
litla systir mín skírð um leið.“
' hÁR id
klÁR
sÁR
PÁRar
tÁRið
ÞrÁR
^ Svikin
áramótaheit
Vondi
tvíburinn
Þogga
Vondi tvíburinn
Hugmyndir að
áramótaheitum
fyrir unglinga
(Þó kominn sé
3. janúar)
1. Ekki byija að reykja.
2. Ekki byrja að drekka
áfengi.
3 Verða betri í Guns- and
Roses-kúluspilinu.
4. Vera jafn góð við mömmu
og pabba og þau eru við mig.
5. Reyna að mæta í skólann
á réttum tíma.
6. Epli á dag kemur línunum
í lag.
7. Hætta að reykja ... (Eftir
aðeins tíu reyklaus ár er ég
komin með væna útborgun í
íbúð eða borga draumabílinn
út í hönd).
8. Nammidagar (sleikjó er
líka nammi).
9. Vera kurteis við strætóbíl-
stjóra og stöðumælaverði, því
það er aldrei að vita nema að
einn daginn verði maður einn
af þeim.
10. Nota alltaf endurunninn
pappír.
11. Þetta ár verður gott og
það er ÉG sem sé til þess.
Hvernig eru strákar/stelpur?
Arna,
15 ára
Mér finnst þeir alveg frábærir,
a.m.k. einn, hann er svo skemmti-
legur. Hann er svo hress og skil-
ur mig og gaman að vera með
honum.
Hannes,
14 ára
Þær eru injög misjafnar. Þær
geta verið mjög skemmtilegar
og líka mjög leiðinlegar, bara
eins og strákar. En það er auðvit-
að ein sem stendur upp úr.
Það er spurning?
Streng’dir
þú einhver
áramóta-
heit?
Erla, 13 ára.
Já ... en ég vil ekki segja hvaða.
Berglind, 13 ára.
Nei.
Ernir, 14 ára.
Nei.
Gísli, 13 ára.
Nei.