Morgunblaðið - 07.02.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1995 19
ERLENT
Reuter
ASKAR Akajev, forseti Kirgistans, brosir til fréttamanna eftir
að hafa greitt atkvæði í fyrstu þingkosningum landsins.
Fyrstu þingkosn-
ingar Kirgistans
Bishkek. Reuter.
KOSIÐ í KIRGISTAN
FYRRI umferð fyrstu þingkosning-
anna í Kirgistan frá því landið hlaut
sjálfstæði árið 1991 fór fram á
sunnudag og síðari umferðin verður
eftir tvær vikur.
Aðeins 13 frambjóðendur náðu
kjöri í fyrri umferðinni og í öðrum
kjördæmum verður kosið á milli
tveggja fylgismestu frambjóðend-
anna 19. febrúar. Þinginu er skipt í
tvær deildir, önnur er skipuð 35 þing-
mönnum og hin 70.
Tæplega 1.000 manns voru í fram-
boði, kjörsóknin var 72,8%. Á meðal
þeirra sem náðu kjöri voru tveir af
fyrrverandi leiðtogum kommúnista -
Túrdiakun Usubalijev, aðalritari
kommúnistaflokks Kirgistans
1961-85, og eftirmaður hans, Absa-
mat Masalíjev.
Um tólf flokkar voru með fram-
bjóðendur í kosningunum, en flokks-
bundnu frambjóðendurnir voru þó
aðeins um fimmtungur þeirra sem
voru í framboði.
Kirgisar samþykktu í þjóðarat-
kvæði í fyrra að stofna nýtt þing í
stað þess gamla frá sovéttímanum.
Askar Akajev forseti leysti upp
gamla þingið eftir að það hafði reynt
að hindra efnahagsumbætur.
FYRSTU þingkosningarnar í Kirgistan
frá því landiö öölaöist sjáifstæði
eftir hrun Sovétríkjanna fóru
fram á sunnudag
LANDAFRÆÐI
íbúar: 4,291,000 (1989)
52,4% Kirgisar, íslamskir mongólar,
tala tyrkne§kt mál. 21,5% Rússar
og 12,9% Usbekar.
Stærð: 198,500 ferkílómetrar
Höluðborg: Bishkek, hét áöur Frunze
Trúarbrögð: Súnnítar, en halda í ýmsar
fomar andatrúarhefðír.
EFNAHAGUR
I tjöllunum er kvikljárrækt aðalatvinnuvegur en
í dölum er helst ræktað hveiti og grænmeti.
Allmikið af verðmætum jarðefnum, svo sem kvika-
silfri, kolum, olíu, gasi og gulli. Helstu greinar
iðnaðar eru vefnaðar- og matvælaiðnaður
SAGA
Kirgisar eru af mongólskum og austur-tyrkneskum uppruna.
1855 Fyrst innlimaö í Rússland
1921 Hluti af Túrkistan í Sovétríkjunum
1924 Stjómin í Moskvu endurskipuleggur Miö-Asíusvæöiö eftir þjóöernum,
Kirgistan veröur hérað innan Rússlands
1936 Veröur sérstakt lýöveldi innan Sovétríkjanna
1991 Sjálfslasöi frá Sovétríkjunum
1994 Askar Akajev forseti fær umboö í þjóöar- atkvæðagreiöslu til aö stofna nýtt tveggja
REUTER deilda þing í staö þingsins Irá sovéttímanum
Bandaríkjamenn hóta Kínverjum 100% refsitollum
Viðræður hefjast
aftur fljótlega
Washington. The Daily Telegraph. Reuter.
KINVERSK og bandarísk stjórnvöld staðfestu í gær að þau ættu í
viðræðum um hvenær og hvar ætti að hefja nýjar samningaviðræður
til að binda endi á deilur ríkjanna um brot á höfundarrétti gagnvart
bandarískum fyrirtækjum. Hefur dagsetningin 13. febrúar verið nefnd
en takist ekki samningar fyrir 26. febrúar, munu Bandaríkjamenn
leggja á 100% refsitolla á kínverskar vörur og Kínveijar svara í sömu
mynt.
Ákvörðun Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta um að beita Kínveija
refsiaðgerðum, bæti þeir ekki út
höfundarréttarmálum, hefur mælst
ágætlega fyrir í Bandaríkjunum.
Hægrisinnar sem vilja bæta stöðu
Tævans á alþjóðavettvangi, vinstri-
sinnar sem barist hafa fyrir auknum
mannréttindum og þeir sem vilja
vernda bandaríska framleiðslu hafa
fagnað ákvörðuninni. Þó gætir
nokkurs ótta meðal stjórnarerind-
reka vegna tímasetningarinnar.
Telja þeir að vegna óvissunnar um
heilsu Dengs Xiaopings leiðtoga
Kína kunni tímasetningin að verða
vatn á myllu and-vestrænna afla í
æðstu stjórn landsins.
Mickey Kantor, viðskiptafulltrúi
Bandaríkjastjórnar, tilkynnti á
laugardag að 100% tollar yrðu lagð-
ar á 35 kínverskar vörutegundir frá
og með 26. febrúar gættu Kínveijar
þess ekki að vernda bandarískan
tölvu-, lyfja- og sjónvarpstækjaiðn-
að, auk bóka, tímarita og vöru-
merkja. Sagði Kantor að um væri
að ræða umfangsmestu refsiað-
gerðir sem Bandaríkjastjórn hefði
tekið ákvörðun um. Þær nema sem
svarar til 72 milljarða kr.
Bandaríkjamenn krefjast þess að
Kínveijar setji lög sem verndi höf-
undarrétt og að stjórnvöld láti loka
fjölda verksmiðja skammt frá Pek-
ing, sem framleiða varning án til-
skilinna leyfa.
Verksmiðjur tengjast hernum
Kínverskir embættismenn ráða
vart við þessa framleiðslu. Talið er
að margar verksmiðjurnar tengist
háttsettum mönnum innan hersins
auk þess sem þær veita fjölmörgum
vinnu og veita dýrmætum gjaldeyri
inn í landið.
Þá hafa Bandaríkjamenn miklar
áhyggjur af halla í viðskiptum við
Kína. Innflutningur á kínverskum
vörum nemur nú um 2,5 billjónum
kr. en útflutningur á bandarískum
vörum til Kína nemur um 600 millj-
örðum kr.
Kínveijar hafa brugðist ókvæða
við ákvörðun Bandaríkjamanna.
Hafa þeir boðað 100% refsitoll á
bandarískar vörur til Kina, sama
dag og tollurinn tekur gildi á kín-
versku vörurnar.
Konan á bak
við stjórnmála-
áhuga Majors
London. The Daily Telegpraph.
RÚMLEGA sextug kennslu-
kona á eftirlaunum komst
í sviðsljósið svo um mun-
aði um helgina, er tímaritið Esqu-
ire upplýsti að hún hefði orðið til
þess að ýta John Major forsætis-
ráðherra út í stjómmál á
sjöunda áratugnum. Full-
yrðir blaðið að þau hafi
átt í ástarsambandi í
fimm ár, frá 1963-1968.
Kennslukonan, frú
Jean Kierans, var 33 ára
fráskilin tveggja barna
móðir er hún flutti í sömu
götu og Major-fjölskylda
í Brixton árið 1963. John
Major var þá tvítugur
skrifstofumaður og bjó
heima hjá foreldrum sín-
um.
Fullyrt er í tímaritinu að frú
Kierans hafi verið virk í flokks-
starfi íhaldsflokksins í Brixton
og að hún hafi hvatt Major til
að ganga til liðs við flokkinn og
leita eftir starfi i banka. Hvorki
Major né Kierans hafa viljað tjá
sig um fréttina.
„Einstaklega fáguð“
Greinarhöfundur, sjónvarps-
fréttamaðurinn Michael Crick,
kveðst hafa komist á sporið er
hann kannaði hveiju sætti ósam-
ræmi í frásögnum af upphafi
stjórnmálaferils Majors árið
1968. Crick ræddi m.a. við John
Rennie, bankamann á eftirlaun-
um sem kynntist Major í Nígeríu
árið 1967 en Major var þá starfs-
maður Standard Chartered bank-
ans. Er hann slasaðist illa í bíl-
slysi, var Rennie fenginn til að
fylgja honum til Bretlands.
Rennie segir að kona hafi tek-
ið á móti Major á flugvellinum
og að hún hafi verið „mun eldri
en John, dökkhærð, með ljósa húð
og einstaklega fáguð í fram-
komu“. Segir Rennie hana hafa
verið eina fallegustu
konu sem að hann hafi
séð.
Rennie var boðið til
kvöldverðar í íbúð Majors
og ræddi þar lengi kvölds
við konuna, sem reyndist
vera frú Kierans. Hún
gaf í skyn að þau Major
hefðu átt í mjög innlegu
ástarsambandi auk þess
sem börn hennar tvö virt-
ust líta á hann sem fóst-
urföður.
Crick segir móður
Majors hafa verið afar ósátta við
ástarsambandið, svo og systur
hans, Pat, sem taldi Kierans vera
slægvitra og á höttunum eftir
bróðurnum. Urðu mæðgurnar al-
veg æfar er þær komu eitt sinn
að frú Kierans í íbúð Major-fjöl-
skyldunnar þar sem hún leitaði
að óhreinum þvotti ástmanns
síns.
Er Kierans og Major hugðust
fara í frí til Spánar, krafðist frú
Major þess að fá að koma með.
Svo mikið uppistand varð að þau
misstu öll af flugvélinni og héldu
til Spánar, frú Major ein en unga
parið í annarri vél.
Að sögn tímaritsins slitnaði
upp úr ástarsambandinu árið
1968 en þá var Majbr á uppleið
í bankanum og hafði náð kjöri í
bæjarráð Lambeth. Skömmu síð-
ar kynntist hann Normu sem
hann kvæntist árið 1970.
John Major
r
LADA SAFIR
Frá 588.000 kr. \
148.000,-kr. út og,
14.799,- kr.
í 36 mánuði.
Tökum notaða bíla sem greiðslu
upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra
greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í
útreikningi á mánaðargreiðslum.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BHINN SÍMI: 553 12 36
BÍLASTÆÐASJÓÐUR
Bilastœði fyrir alla
Það er þægilegra að nota miðastæði og bílahús en þig grunar
___________________________________________________