Morgunblaðið - 16.02.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1995 43
FRÉTTIR
Framboðslisti A-
listans í Reykjavík
A FULLTRÚAÐRÁÐSFUNDI al-
þýðuflokksfélaganna í Reykjavík
um helgina var framboðslisti Al-
þýðuflokksins - Jafnaðarmanna-
flokks íslands, fyrir alþingiskosn-
ingamar 8. apríl 1995, samþykktur.
Listinn er þannig skipaður:
1. Jón Baldvin Hannibalsson, ráð-
herra. 2. Össur Skarphéðinsson,
ráðherra, 3. Ásta B. Þorsteinsdóttir,
hjúkmnarframkvæmdastjóri, 4.
Magnús Ámi Magnússon, blaða-
maður, 5. Hrönn Hrafnsdóttir, við-
skiptafræðingur, 6. Þómnn Svein-
bjömsdóttir, formaður Sóknar, 7.
Vilhjálmur Þorsteinsson, kerfís-
fræðingur, 8. Hildur Kjartansdóttir,
varaformaður Iðju, 9. Sigrún Bene-
diktsdóttir, framkvæmdastjóri, 10.
Magnús Norðdahl, lögfræðingur,
11. Viggó Sigurðsson, þjálfari, 12.
Margrét S. Bjömsdóttir, aðstoðar-
maður ráðherra, 13. Kristjana
Geirsdóttir, veitingamaður, 14.
Bryndís Kristjánsdóttir, blaðamað-
ur, 15. Eiríkur Bergmann Einars-
son, stjómmálafræðingur, 16.
Bryndís Bjarnadóttir, heimspeki-
nemi, 17. Trausti Hermannsson,
deildarstjóri, 18. Hrefna Haralds-
dóttir, formaður Félags þroska-
þjálfa, 19. Jónas Þór Jónasson, kjöt-
verkandi, 20. Fanney Kim Du, inn-
kaupastjóri, 21. Guðríður Þorsteins-
dóttir, lögfræðingur, 22. Snorri
Guðmundsson, vélstjóri, 23. Eydís
Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðing-
ur, 24. Magnús Jónsson, veðurstofu-
stjóri, 25. Guðmundur Haraldsson,
formaður FÍ, 26. Helgi Daníelsson,
rannsóknarlögreglumaður, 27. Val-
gerður Gunnarsdóttir, sjúkraþjálf-
ari, 28. Hallgrímur Heígason, skáld,
29. Signý Sæmundsdóttir, ópera-
söngkona, 30. Pétur Jónsson,
borgarfulltrúi, 31. Sigurður E. Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri, 32.
Einar S. Einarsson, forstjóri, 33.
Herdís Þorvaldsdóttir, leikari, 34.
Atli Heimir Sveinsson, tónskáld, 35.
Ragna Bergmann, formaður Verka-
kvennafélagsins Framsókn, 36.
Gylfí Þ. Gíslason, fyrrverandi ráð-
herra.
Eiga sveitarfé-
lögin að taka
yfir málefni
fatlaðra?
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni heldur op-
inn fund laugardaginn 18. febrúar
kl. 14 í sal félagsins í Hátúni 12
um málefnið: Eiga sveitarfélögin
að taka yfír málefni fatlaðra? Flutt
verða erindi um málið.
Þeir sem erindi flytja eru: Mar-
grét Margeirsdóttir, deildarstjóri,
félagsmálaráðuneyti; Lára Björns-
dóttir, félagsmálastjóri, Reykjavík-
urborg; Soffía Sæmunsdóttir, for-
maður félagsmáladeildar, Bessa-
staðahrepps; Ásta Eggertsdóttir,
framkvæmdastjóri Sv.sk. Rvk.,
svæðisskrifstofu. Að loknum erind-
unum geta fundarmenn lagt fram
fyrirspurnir.
Skrifstofa og stjórn félagsins
hefur orðið vör við að félagsmenn
era uggandi um hag sinn vegna
þessara breytinga og vita ekki
hvar þeir standa ef af þessum
breytingum verður og er það von
Sjálfsbjargar að þessi fundur geti
varpað einhveiju ljósi á það.
Tískusýning á
Kaffi Reykjavík
TÍSKUSÝNING
verður haldin á
Kaffi Reykjávík í
kvöld, fimmtu-
daginn 16. febr-
úar, kl. 21. Módel
’79 sýnir tísku-
fatnað frá versl-
ununum Gala,
Laugavegi 101,
og Herrunum,
Austurstræti 3.
Einnig verða á
sýningunni sýnd
gleraugu frá
versluninni Linsunni, Aðalstræti
og snyrtivörukynning frá Heild-
verslun Halldórs Jónssonar. Boðið
verður upp á franskar veitingar frá
vínhéruðum Frakklands og salur-
inn verður skreyttur af Blómálfin-
um, Vesturgötu 4. Allir velkomnir.
Áhrif milliríkja-
samninga á full-
veldi og lífskjör
ORATOR, félag laganema, mun
standa fyrir morgunfundi fimmtu-
daginn 16. febrúar í bíósal Hótels
Loftleiða. Að þessu sinni verður
Q'allað um áhrif milliríkjasamninga
á fullveldi og lífskjör. Fundurinn
hefst kl. 10.15.
Þýðing milliríkjasamninga fyrir
lög og lagaframkvæmd innan vé-
banda þjóðríkja hefur líklega aldrei
verið meiri. Nú og á næstu árum
mun stjórnvöldum verða sniðinn
stakkur í samræmi við ítarlegar
skuldbindingar ríkis gagnvart öðr-
um ríkjum og alþjóðastofnunum.
Við höfum þegar séð þann stakk
sem EES sníður okkar, en hvað
með GATT, ES og NAFTA?
Eftirtaldir munu flytja fram-
sögu: Guðmundur K. Magnússon
hagfræðiprófessor, Árni Snævarr
fréttamaður og Sigurður Líndal
lagaprófessor.
Vitni vantar
LÝST er eftir vitnum að árekstri
sem varð á gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar sl.
þriðjudag, 14. febrúar, um klukkan
16.
Seat Ibiza fólksbíl, G-4244, var
ekið vestur Miklubraut með fyrir-
hugaða akstursstefnu yfír gatna-
mótin. Toyota Corolla fólksbíl,
MI-897, var ekið austur Miklu-
braut með fyrirhugaða aksturs-
stefnu í beygju til vinstri norður
Kringlumýrarbraut. Ökumennina
greinir á um stöðu umferðarljósa.
Þeir sem kynnu að hafa orðið
vitni að þessum árekstri eru vin-
samlegast beðnir um að gefa sig
fram við rannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík.
G-listinn á Vest-
fjörðum
Á AUKAFUNDI kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins á Vestíjörð-
um, sem haldinn var á ísafirði 10.
febrúar sl., var eftirfarandi tillaga
uppstilllingamefndar að skipan
framboðslista við komandi alþing-
iskosningar samþykkt.
1. Kristinn H. Gunnarsson, al-
þingismaður, Bolungarvík, 2. Lilja
Rafney Magnúsdóttir, formaður
Verklaýðs- og sjómannafélagsins
Súganda, Suðureyri, 3. Bryndís
Friðgeirsdóttir, kennari, ísafirði,
4. Einar Pálsson, rekstrarfræðing-
ur, Patreksfirði, 5. Hallveig Ingi-
marsdóttir, leikskólastjóri, Bíldu-
dal, 6. Rósmundur Númason, sjó-
maður, Hólmavík, 7. Valdimar
Jónsson, verkstjóri, Reykhólum,
8. Ingigerður Stefánsdóttir, leik-
skólastjóri, ísafirði, 9. Sæmundur
Kristján Þorvaldsson, æðarbóndi,
Dýrafirði, 10. Ásdís Ólafsdóttir,
leikskólakennari, Tálknafirði.
ÞESSAR ungu stúlkur hjálpuðu við úrdráttinn en þær eru f.v.
Kolbrún Lilja Torfadóttir og Hrefna Guðjónsdóttir. Með þeim á
myndinni er Hjörtur Gunnarsson, eldvarnareftirliti.
Vinningshafar í Bruna-
vamarátaki LSS 1994
LANDSSAMBAND slökkviliðs-
manna efndi til svokallaðs Eld-
varnardags fyrsta mánudag í
desember sl. sem var að þessu
sinni 5. desember.
Slökkviliðsmenn heimsóttu
nær alla grunnskóla landsins
hver á sínu starfssvæði og ræddu
um eldvarnir við nemendur. í
landinu eru u.þ.b. 147 grunnskól-
ar, þ.a. 45 á Reykjavíkursvæðinu,
með samtals tæplega 50.000
grunnskólabörn og unglinga.
í eldvarnargetraun Bruna-
varnarátaksins sem efnt var til
jafnhliða heimsóknum í skólana
bárust um 30 þúsund svör til fé-
lagsins. Nöfn 15 barna hafa nú
verið dregin út úr innsendum
lausnum. Hvert þessara barna
hlýtur eftirfarandi verðlaun: Út-
varpstæki frá Panasonic stereo,
reykskynjara og sérstakt viður-
kenningarskjal félagsins.
Eftirtalin nöfn voru dregin:
Lindberg Már Scott, Akranesi,
Hjálmar Vatnar Hjartarson,
Djúpavogi, Pétur Pálsson, Hafn-
arfirði, Hermann Aðalgeirsson,
Húsavík, Aðalbjörg Sigurjóns-
dóttir, ísafirði, íris Maria Ey-
jólfsdóttir, Keflavík, Brynjar Leó
Kristinsson, Ólafsfirði, Bryndís
Ósk Pálsdóttir, Reykjavik, Hall-
dór Vilhjálmsson, Reykjavík, Jó-
hann Hreiðarsson, Reykjavík,
Nanna Árnadóttir, Reykjavík,
Haukur Bjarnason, Reykholti,
Jón Páll Hilmarsson, Selfossi,
Ragnar Þór Jóhannsson, Vest-
mannaeyjum, Jóhanna Sigur-
jónsdóttir, Þórshöfn.
■ SVÆÐISSKRIFSTOFA mál-
efna fatlaðra á Suðurlandi held-
ur fræðslufund um flogaveiki.
Fyrirlesarar era Guðlaug María
Bjarnadóttir, formaður LAUFs
(Landssamtaka áhugafólks um
flogaveiki), og Bergrún H. Gunn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri
LAUFs. Þær ætla að halda tvo
fræðslufundi í Tryggvaskála á
Selfossi 16. febrúar. Fyrri fundur-
inn hefst kl. 14 og sá seinni kl. 16.
■ SAMKOMUR verða haldnar
15. og 16. febrúar í Hvítasunnu-
kirkjunni Fíladelfíu, Reykjavík,
þar sem Barbro Wallin frá Svíþjóð
mun kenna og
biðja fyrir
fólki. Barbro
hefur oft áður
heimsótt söfn-
uðinn og m.a.
var hún aðal-
ræðukona á
kvennamóti
sem hvíta-
sunnukonur
héldu árið
1992. Lof-
gjörðarhópur Fíladelfíu tekur þátt
í samkomunum sem hefjast kl.
20.30 bæði kvöldin og era öllum
opnar.
■ NÆSTI fyrirlestur Líffræðifé-
lagsins verður haldinn í kvöld,
fímmtudaginn 16. febrúar, kl.
20.30 í stofu 101 í Odda, húsi
Háskóla íslands. Fyrirlesturinn
er öllum opinn og aðgangur ókeyp-
is. Fyrirlesari verður dr. Timo
Kairesalo. Fyrirlesturinn er flutt-
ur á ensku en nefnist í íslenskri
þýðingu: Tengsl milli vatnsgæða
og fiskveiða: Dæmi frá
Vestj&rvi-vatni í Suður-Finn-
landi.
Hæstiréttur íslands
á 75 ára afmæli í dag 16. febrúar.
Sjálfstæður og óhlutdrægur
æðsti dómstóll í málum íslendinga
er forsenda réttarríkis á Islandi.
r
I réttarríki eru allir menn
jafnir fyrir lögunum.
Vitneskja fólks um réttarstöðu sína
er skilyrði þess
að slíku jafnræði verði viðhaldið.
ÞEKKIRÐU RETT ÞINN?
í tilefni af afmæli Hæstaréttar
býður Orator almenningi
að nýta sér lögfræðiaðstoð
félagsins öll kvöld
í næstu viku milli
kl. 19.30 og 22.00.
Þjónustan er ókeypis.
Mánudag 20. febrúar
kl. 19.30-22.00.
Þriðjudag 21. febrúar
kl. 19.30 -22.00.
Miðvikudag 22. febrúar
kl. 19.30-22.00.
Fimmtudag 23. febrúar
kl.19.30-22.00.
Föstudag 24. febrúar
kl. 19.30-22.00.