Morgunblaðið - 24.02.1995, Page 13

Morgunblaðið - 24.02.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995 13 ____________________________LAIMDIÐ Svæðisskípulag miðhálendis íslands Fyrstu tillögnr til- búnar haustið 1996 Sauðárkróki - Gert er ráð fyrir að fyrstu tillögur varðandi skipu- lag miðhálendisins verði tilbúnar haustið 1996 og lokatillögur ári síðar. Þetta kom fram á fundi samvinnunefndar um svæðisskipu- lag miðhálendis íslands, sem haldinn var á Sauðárkróki á miðviku- dag, en skipulagsvinnuna annast Landmótun hf. Siglufjörður Kröfu Rík- isábyrgða- sjóðs var hafnað Siglufirði - Nú á dögunum fékk Siglufjarðarbær kröfu frá Ríkisábyrgðarsjóði upp á 23'/2 milljón kr. vegna ábyrgðar sem bærinn hafði gengið í vegna Dýpkunarfé- lagsins hf. Þessari kröfu hafnaði bærinn á þeim for- sendum að umræddar ábyrgðarkröfur væru fyrnd- ar. Fyrir rúmu ári síðan var Dýpkunarfélagið hf. tekið til gjaldþrotaskipta. Siglu- fjarðarbær hafði gengið í talsverðar ábyrgðir fyrir fé- lagið og voru heildarkröfur á bæinn um 41 milljón._ Samn- ingar náðust við íslands- banka um að bærinn greiddi 9'/2 milljón kr. og þar með féllu aðrar kröfur bankans niður en heildarkröfur ís- landsbanka voru 18 milljónir kr. Að Landmótun hf. standa lands- lagsarkitektamir Gísli Gíslason, Yngvi Þór Loftsson og Einar E. Sæmundsen. Gísli sagði á fundi samvinnunefndarinnar að mikil- vægt væri að á skipulagstímanum væri náið samstarf nefndarinnar og viðkomandi sveitarstjórna, þannig að þegar hálendisskipulag- ið liggi fyrir verði það rökrétt fram- hald af svðis- og/eða aðalskipulagi í byggð. Meginmarkmið höfð að leiðarljósi Á fundinum kom fram að þau meginmarkmið verði höfð að leið- arljósi að mörkuð verði heildar- stefna í leyfisveitingum fyrir mannvirkjagerð á hálendinu og áhrif hennar á umhverfið jafnan metin; landslag og ásýnd svæðisins verði varðveitt sem best, þar með talið lífríki og gróður, náttúru- og menningarminjar; vegakerfíð verði skilgreint og lagfært og reynt að koma í veg fýrir akstur utan vega; sýnd verði virkjanasvæði og land ætlað undir uppistöðulón og línu- lagnir framtíðar; ferðamál á há- lendinu verði skilgreind, hálendi- smiðstöðvum og þyrpingum fjalla- skála valin svæði og aðstaða ferða- manna bætt; skipulagi verði komið á sorp- og frárennslismál og nátt- úruverndarsvæði verði skilgreind og landgræðslusvæði sýnd. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, sagði á fundinum að auð- vitað væri gert ráð fyrir vegum um hálendið, en varðandi hug- myndir um miðhálendisveg, sem tengdi saman landshluta og kæmi á einhvern hátt í stað hringvegar- ins, taldi hann það vera síðari tíma mál. Sagðist hann ekki hafa trú á því að uppbygging á heilsársvegi sem tengdi einstaka landshluta við suðvesturhomið yrði sett í forgang og vegagerð í byggð afturfyrir slík- ar framkvæmdir. Stefán sagði að öll umferð og allar framkvæmdir hveiju nafni sem þær nefndust breyttu um- hverfinu, og því væri nauðsynlegt að um þær væri fjallað á sama hátt og sömu kröfur gerðar og varðandi framkvæmdir á láglendi. Mestu skipti að nýting væri á þann veg að jafnvægi héldist og mann- gert umhverfi styrkti náttúmlegt umhverfi frekar en eyðilegði það. ----------- Reykhóla- hreppur kaupir snjóbíl Miðhúsum - Pantaður hefur verið snjóbíll frá Gísla Jónssyni, Reykja- vík, en bíllinn er kanadískur og er fyrsti snjóbíll sinnar tegundar hér á landi. Snjóbfllinn er með snjótönn og sæti fyrir 9 manns. Bíllinn kostar án tækja 5 milljónir króna en kost- ar fullbúinn um 6 milljónir. Ætlun- in er að nota bílinn sem neyðarbíl fýrir þá sem þurfa og svo mun Orkubú Vestfjarða fá not af bílnum því að raflínur í Reykhólahreppi liggja um fjöll og fírnindi. Morgunblaðið/Sig. Jóns. TRYGGVABÚÐ, hin nýja björgunarstöð á Selfossi. Ný björgunarstöð vígð á Selfossi Selfossi - Ný og glæsileg björg- unarstöð á Selfossi, Tryggvabúð, var formlega tekin í notkun og vígð á laugardag 18. febrúar við hátíðlega athöfn að viðstöddu fjölmenni. Hið nýja húsnæði bæt- ir alla aðstöðu björgunarsveitar- innar til mikilla muna bæði hvað snertir geymslu á tækjabúnaði og allt fræðslu- og félagsstarf. Við vígsluna voru sveitinni færðar ýmsar góðar gjafir og kveðjur frá fjölmörgum aðilum. Slysavarnafélag íslands heiðraði Svandísi Guðmundsdóttur, hús- móður á Selfossi, fyrir björgun- arafrek er hún með snarræði bjargaði tveggja ára barni frá drukknun. Vígsluhátíðin var hin hátíðleg- asta, séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup blessaði húsið og starfsemi björgunarsveitar- manna og Samkór Selfoss söng nokkur lög ásamt því að fluttar voru ræður og heillaóskir til eig- enda hússins. Húsið stendur við Austurveg, í austurhluta bæjarins. Undir- búningur að byggingunni hófst fyrir fjórum árum er björgunar- sveitarmenn hófu að svipast um eftir lóð undir björgunarstöð. Að henni fenginni seldu þeir FORMAÐUR björgunar- sveitarinnar Tryggva, Trausti Traustason, og Gunnar Einarsson, formaður byggingarnefndar hússins. bæjarfélaginu eldra húsnæði sitt. Bygging nýja hússins hófst fyrir ári og gekk vel. Verktaki að byggingunni var Steinar Árna- son byggingameistari. Mikil sjálfboðavinna var lögð fram af félögum við frágang hússins. Mjög öflugt starf er unnið hjá björgunarsveitinni Tryggva á Selfossi og stór hópur manna virkur í starfí og tilbúinn til út- kalls þegar með þarf. Fyrir þá sem ekki geta beðið eftir frumsýningunni á RENAULT LAGUNA um helgina: - og svo getur þú auðvitað séð hann með eigin augum í sýningarsal okkar að Ármúla 13 um helgina. Bifreiðar &Landbúnaðarxélar hf. ármúla 13 RENAULT RENNUR ÚT! SÍMI 553 1236

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.