Morgunblaðið - 24.02.1995, Side 19

Morgunblaðið - 24.02.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995 19 ERLENT Ottastum Stephen Fry 100-200 manns sagðir hafa fallið í fangauppreisn í Alsír Tveir íslamskir leið- togar meðal látinna Túnis. Reuter. TALIÐ er, að tveir leiðtogar bók- stafstrúarmanna í Alsír hafi látið lífið þegar öryggissveitir hersins bældu niður fangauppreisn í fyrra- dag. Erlendir stjórnarerindrekar og dagblöð í Alsír segja, að 100 fang- ar hafi fallið en útlægur frammá- maður í flokki bókstafstrúarmanna sagði í Frakklandi í gær, að þeir hefðu verið 200. Sagt er, að annars vegar sé um að ræða Yalef Cherati, sem átti áður sæti í ráðgjafarráði íslömsku frelsisfylkingarinnar, FIS, og hins vegar einn af stofnendum skæru- liðahreyfingar bókstafstrúar- manna, GIA. Er hann kunnur undir nafninu E1 Wed og einnig kallaður „Pakistaninn". Hugsanlegt er einnig, að því er sagði í alsírska dagblaðinu Tribune, að Lambarek Boumaarfí, sem myrti forseta Alsírs, Mohamed Boudiaf, 1982, hafí týnt lífí í uppreisninni en hann átti að koma fyrir rétt á næstunni. Fjölmiðlar í Alsír furða sig á, að Boumaarfí skuli ekki hafa verið hafður í öruggara fangelsi en Sekadji-fangelsið í Mið-Alsír þótti vera. Yfirvöldin sagnafá Yfírvöld í Álsír hafa ekkert sagt um mannfallið í fangelsinu annað en það, að fjórir fangaverðir hafí verið skornir á háls þegar fangarn- ir reyndu að bijótast út. Anwar Haddam, útlægur leiðtogi FIS, sagði hins vegar í Frakklandi í gær, að allt að 200 fangar hefðu fallið. í Alsír geisar borgarastyijöld milli bókstafstrúarmanna og stjóm- valda og áætlað er, að um 30.000 manns hafí fallið á þremur árum. London. Reuter. BRESKI gamanleik- arinn Step- hen Fry hefur hlotið afleita dóma fyrir hlutverk sitt í leikrit- inu „Klefa- félagar“ sem fjallar um njósnarann Ge- orge Blake. Er óttast um líf hans en ekki hefur spurst til Fry síðan á laugardag. Höfundur leikritsins, Simon Gray, fékk bréf frá Fry þar sem hann sagðist vera miður sín / vegna þess að hann væri léleg- ur leikari. Fry, sem er 37 ára gamall, er þekktastur fyrir að leika þjóninn Jeeves í samnefndum sjónvarpsþáttum. Stephen Fry Italska mafían bregst við uppljóstrunum fyrrum félaga Kossarnir afiagðir og vígslu- Róm. The Daily TeleCTaph. athöfn nýliðanna breytt MAFÍAN á Sikiley hefur lagt bann við að háttsettir félagar í glæpa- samtökunum heilsist eða kveðjist með kossj, líkt og löngum hefur tíðkast. Ástæðan er ótti við að menn verði staðnir að verki en full- yrt hefur verið að mafíuforinginn Salavatore „Toto“ Riina, sem nú situr bak við lás og slá, hafi heilsað Giulio Andreotti, sem var sjö sinn- um forsætisráðherra Ítalíu, með kossi á leynifundi þeirra í Palermo árið 1987. Það var einkabílstjóri „Toto“ Ri- ina sem skýrði frá því við yfírheyrsl- ur að hann hefði séð vinnuveitanda sinn fagna Andreotti með þessum hætti. Addreotti, sem er 76 ára, hefur neitað öll- um tengslum við mafíuna en dóm- arar munu taka afstöðu til þess í dag hvort leiða beri forsætisráð- herrann fyrrver- andi fyrir rétt. Úrskurður „Cupola“ Ráð „framkvæmdastjóra" maf- íunnar, sem nefnist á ítölsku „cup- ola“, hefur nú komist að þeirri nið- urstöðu að leggja beri kossana af vegna uppljóstrana einkabílstjórans málglaða. Kossinn er hins vegar ekki eini siðurinn sem lagður hefur verið á hilluna. Þannig hefur mafíu- foringjum verið fyrirskipað að hætta að ávarpa hvern annan með því að segja „allt er með sama hætti" er þeir hittast. Svik' og eldur Að auki hafa verið gerðar breyt- ingar á athöfn þeirri sem nýliðar í mafíunni gangast undir. Fram til þessa hefur sá sem sækist eftir inn- göngu yfírleitt þurft að vekja at- hygli mafíunnar á sér með því að sýna fram á að hann sé þess um- kominn að fremja morð. . Að sögn fyrrum mafíufélaga, Tommaso Buscetta, er vaninn sá að „höfuð ættarinnar" (ít. „capo- famiglia") stjómi sérstakri athöfn þar sem nýliðinn heitir því m.a. að stela ekki (frá öðrum mafíufélög- um) og að gimast ekki eiginkonu nágranna síns. Því næst er stungið á fíngur nýliðans og blóð hans látið vætla á pappaspjald á hveiju gefur að líta mynd af Maríu mey. Myndin er lögð í lófa vígsluþegans og kveikt í henni. Um leið segir nýliðinn: „Megi ég brenna líkt og spjald þetta, gerist ég sekur um svik.“ Frumleikinn allsráðandi í frumvarpasmíð á bandarískum ríkisþingum Geimverur, hýð- ingar og aftaka við þriðja brot Boston. Morgunblaðiíl. *r ATHAFNASEMI virðist dagskip- unin á Bandankjaþingi um þessar mundir, en þegar litið er á það, sem er að gerast í bandarískum ríkis- þingum virðist meira lagt upp úr frumleika. Það á einkum við um refsingar: á nokkrum stöðum vilja menn taka upp hýðingar og í Okla- homa liggur fyrir frumvarp um dauðarefsingu eftir þijú brot. En einnig hefur verið lagt til að sleppa lausum úlfum í Central Park í New York og setja frambjóðendur í Tex- as í lyfjapróf. Bill Graves, þingmanni í Okla- homa, er fúlasta alvara: „Fólk hef- ur fengið sig fullsatt af glæpum og vill að eitthvað sé gert í málinu. Frumvarp hans mætti kalla „þijú brot, bani“ og er hugmyndin eflaust fengin frá Kalifomíu þar sem þriðji glæpur varðar sjálfkrafa lífstíðar- fangelsi. Það kveður á um að hver sá, sem þrisvar hlýtur dóm fyrir alvarlegt afbrot á borð við íkveikju eða vopnað rán hljóti dauðarefs- ingu. Fordæmi frá Singapore Svipað hugarfar bjó að baki frumvarpi, sem lagt var fram í Arkansas, um að auka fælingar- mátt dauðarefsingarinnar með því að taka upp opinberar hengingar. Vera kann að það frumvarp verði samþykkt. Bandaríska ungmennið Michael Fay, sem hýtt var í Singapore á dögunum, hlaut víða samúð, en ýmsum þóttu aðferðir yfírvalda í Singapore til að knýja menn til löghlýðni all forvitnilegar og jafn- vel verðugar til eftirbreytni. I Miss- issippi hefur verið lagt fram frum- varp um að hýða menn með spaða í stað þess að senda þá í fangelsi. Kalifornískt frumvarp kveður á um að afnema bann, sem lagt var við líkamlegum refsingum í skólum árið 1986. í New York og Kalifom- íu eru uppi raddir á þingi um að hýða menn fyrir veggjakrot og í Tennessee er frumvarp um að láta innbrotsþjófa finna fyrir spansk- reyrnum. Þrengt að dónunum? Refsigleði þingmanna virðist einnig vera farin að beinast gegn tannlæknum: í Louisiana gæti far- ið svo að tannlæknar ættu yfir höfði sér fangelsisvist setji þeir fyllingu, gulltönn eða krónu í tenn- ur unglinga undir átján ára aldri án samþykkis foreldra. í Texas hefur verið lagt fram ÞÓTT bandarískir þingmenn vilji herða refsingar hefur ekki verið lagt til að gapastokkurinn verði aftur tekinn í notkun. Teikningin sýnir múg í Englandi grýta þjóðvegaræningja til bana árið 1732. frumvarp um að frambjóðendur verði að standast lyfjapróf til þess að geta boðið sig fram og talsverð- ar líkur eru á að þingið ý^Maine samþykki sérstakan síma, sem hringja megi í án endurgjalds til þess að kvarta undan ósvífnum rík- isstarfsmönnum, einnig tillögu um reglulega úttekt á mannasiðum í ríkisgeiranum. Þingmaður einn í Nevada vill veita 100 mílna spotta á þjóðvegi 50 öllu litríkara nafn. Fjöldi fólks kveðst hafa séð fljúgandi furðu- hluti á þessum vegarkafla og vill þingmaðurinn að spottinn verði nefndur „Geimveruhraðbrautin". Hann rökstyður þetta með því að nafnið muni draga að fleiri ferða- menn, en ekki fylgir sögunni hvort þeir verði frá öðrum plánetum. Höfuðborgin úlfagryfja? Þingmenn í Montana eru æva- reiðir yfír því að stjórnvöld í Was- hington ætli að setja úlfa í Yellow- stone-þjóðgarðinn, sem nær þaðan til Idaho. Þar var samþykkt ályktun með lagagildi þar sem þess er kraf- ist að Bandaríkjaþing láti jafnt yfír alla ganga og úlfum verði komið fyrir í öðrum hveijum þjóð- og al- menningsgarði í landinu, þar á meðal í Central Park í New York, Presidio í San Francisco og síðast en ekki síst í Washington. Herrahártoppar Herrahárkollur Sérlega sterkur og fallegur práður. Danskur sérfræðingur leiðbeinir í dag, laugardag og mánudag. (fpiyði V / Sérverslun ^✓^Borgnrkringlunni sími 32347, fax 888834 Bílamarkaburinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraur Kopavogi, simi 567-1800 Verið velkomin Við vinnum fyrir þig. Opið iaugard. kl. 10-17 sunnudag kl. 13-18 Toyota Corolla GL Special Series ’92, 5 dyra, rauður, 5 g., ek. 60 þ. km., rafm. í rúðum, samlæsingar o.fl. V. 790 þús. Fjöldi bifreiða á skrá og á staðnum. Verð og greiðsluskil- málar við allra hæfi. Mazda 323 1.6 GLXi 4x4 station '91, rauður, 5 g., ek. 35 þ. km„ tveir dekkja- gangar o.fl. V. 980 þús. MMC Lancer GLX hlaðbakur '91, vín- rauður, sjálfsk., ek. 82 þ. km„ álfelgur O.fl. V. 880 þús. BMW 3181 A '92, 4ra dyra, sjálfsk., ek. aðeins 38 þ. km. Toppeintak. V. 1.890 þús. Subaru Justy J-12 '91, 5 dyra, ek. aðeins 47 þ. km. Tilboösverð kr. 630 bús. stgr. Daihatsu Rocky EL langur '89, 5 gíra, ek. 95 þ.km. álfelgur, sóllúga, 31" dekk o.fl. V, 1.050 þús. Toyota Corolla GL Sedan Sp. Serles '91, steingrár, 5 g„ ek. 48 þ. km„ rafm. i rúð-. um o.fl. V. 830 þús. (sk. möguleg á nýrri Corollu). Nissan Sunny SLX Sedan '91, steingrár, 5 g„ ek. 60 þ. km„ rafm. i rúðum, saml. o.fl. V. 840 þús. Subaru Legasy 1800 '90, station, sjálfsk., ek. 67 þ.km. Rafmagn i rúðum. V, 1.180 þús. Volvo 860 GLE '93, steingrár, sjálfsk., ek. 23 þ.km. m/öllu. v. 2,3 millj. Sk. ód. Toyota Corolla XL 3 dyra '91, hvitur, 5 g„ ek. 70 þ.km. V. 680 þús. Toyota Double Cap diesil '91, blár, 5 g„ ek. 83 þ. km„ 38" dekk, 5:71 hlutföll o.fl. Toyota Corolla 1600 XL, Liftback '92, 5 g„ ek. 40 þ.km. Fallegur bíll. V. 980 þús. MMC Colt GLX '90, blár, sjáifsk., ek. 45 þ.km. V. 780 þús. Daihatsu Feroza EL II '90, grásans. og svartur, 5 g„ ek. 60 þ. km„ sóllúga, drátt- arkúla, álfelgur o.fl. V. 990 þús. Daihatsu Appiause Zi 4x4 '91, 5 g„ ek. aðeins 13 þ. km. Einn eigandi, toppein- tak. V. 1.050 bús. - kjami málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.