Morgunblaðið - 24.02.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1995 23
Islenska óperan
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands spilar
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT Norður-
lands mun í fyrsta sinn spila fyrir
höfuðborgarbúa í íslensku óperunni
laugardaginn 25. febrúar kl. 16. Á
efnisskránni eru verk eftir íslensk
tónskáld, bæði ný og frá fyrri tíð.
Tónleikarnir voru fyrirhugaðir síð-
astliðinn sunnudag á Myrkum mús-
íkdögum, en þeim var frestað, þar
sem ekki var hægt að fljúga með
hljómsveitina suður.
Tónleikarnir eru liður í 50 ára
afmælishaldi Tónskáldafélags ís-
lands og þeir hefjast á „Hátíðar-
rnarsi" eftir Pál ísólfsson, en Páll
varð einmitt fyrsti formaður félags-
ins við stofnun þess árið 1945. Hann
skrifaði verkið og tileinkaði Háskóla
íslands á 50 ára afmæli hans árið
1961.
í kynningu segir: „Flutt verða tvö
söngverk, þar sem Michael Jón
Clarke kemur fram með hljómsveit-
inni. Hið eldra er lagaflokkurinn „Of
Love and Death“, fyrir baritón og
hljómsveit eftir Jón Þórarinsson, en
verkið var frumflutt 30. apríl 1950
á fyrstu íslensku tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, sem þá var
aðeins nokkurra vikna gömul. Hitt
söngverkið, „Næturregn", eftir
Hróðmar I. Sigurbjörnsson við sam-
nefnt ljóð Davíðs Stefánssonar, var
sérstaklega pantað af Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands í tilefni af
100 ára afmæli skáldsins og var
frumflutt á tónleikum hljómsveitar-
innar á Akureyri síðastliðinn laugar-
dag.
Loks verða á efnisskránni tvö
verk, sem byggja að einhverju leyti
á efnivið úr íslenskum og norrænum
þjóðlögum. Þetta eru verkin „Fornir
dansar“ frá 1968 eftir Jón Ásgeirs-
son, sem tónskáldið samdi upp úr
tónlist sem hann vann fyrir Þjóð-
dansafélag Reykjavíkur; og „Hljóm-
sveitartröll", lítill forleikur eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, sem hann skrif-
aði fyrir norrænu æskulýðshljóm-
sveitina Orkester Norden árið 1993.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
var formlega stofnuð haustið 1993
og hélt sína fyrstu tónleika 24. októ-
ber. Hljómsveitin er arftaki Kam-
merhljómsveitar Akureyrar sem
hafði starfað frá haustinu 1986.
í haust hófst nýtt starfsár með
því að flutt voru verk 20. aldar tón-
skáldanna Berio, Milhaud og Ibert
en á öðrum tónleikum voru verk
eftir Vivaldi, Mozart og Britten. í
janúar var leikin tónlist eftir Moz-
art, Ravel og Falla og nú er íslensk-
um tónskáldum gerð skil. Framund-
an eru síðan óperutónleikar með
Kristjáni Jóhannssyni og Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur í apríl.“
Stjómandi á tónleikunum og jafn-
framt aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands er Guðmundur
Óli Gunnarsson.
Hlini kóngs-
son í Furðu-
leikhúsinu
NÚ ERU sýningar Furðuleikhússins
á „Hlina kóngssyni" að hefjast á ný.
Leikritið var frumsýnt í haust og
hefur farið víða í leikskóla. Leikritið
heldur nú áfram ferð sinni á leikskól-
ana en hefur einnig verið boðið til
sýningar í fyrstu bekkjum grunn-
skóla.
í kynningu segir: „Leikritið er
byggt á þjóðsögu ævintýrinu um
Hlina kóngsson sem týnist í þok-
unni. Signý bóndadóttirin ráðagóða
fer að leita hans og finnur hann í
tröllahelli. Leikhópurinn hefur
spunnið þessa sýningu upp úr nokkr-
um útgáfum af sömu þjóðsögunni.
Söguþráðurinn er því örlítið frá-
brugðinn þeirri sögu sem mörg okk-
ar heyrðum í æsku.
Furðuleikhúsið er um þessar
mundir að hefjja æfingar á leikriti
fyrir aðeins eldri böm. Leikritið ber
vinnuheitið „Ekki lernja" og fjallar
um ofbeldi á meðal barna og ung-
linga.
I næstu viku hyggst Furðuleik-
húsið bjóða uppá leiklistar- og leikja-
námskeið í Tónabæ. Námskeiðið er
ætlað börnum 6-10 ára og er kl.
EGGERT Kaaber, Margrét
Pétursdóttir, Ólöf Sverrisdótt-
ir og Gunnar Gunnsteinsson.
13-17 alla virka daga. Áherslan er
lögð á leiklistina og eru börnin í leik-
rænni tjáningu á hveijum degi og
æfa jafnframt upp leikþátt sem flutt-
ur verður á fjölskylduskemmtun síð-
asta daginn. Börnin fá að sjá leikrit-
ið um Hlina kóngsson og fara m.a.
í ferð á listasafn og í skoðunarferð
í leikhús.“
í Furðuleikhúsinu eru Eggert
Kaaber, Gunnar Gunnseinsson, Mar-
grét Pétursdóttir og Ólöf Sverris-
dóttir en þau hafa öll mikla reynslu
af því að vinna með börnum og ungl-
ingum.
Skráning á námskeiðið fer fram
laugardaginn 25. febrúar og sunnu-
daginn 26. febrúar kl. 13-17 báða
dagana.
Norræn höggmyndasyning
Frá prímitívisma
til póstmódernisma
HOGGMYNDASYNINGIN Frá
prímitívisma til póstmódernisma
verður opnuð í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar, laugardaginn 25. febrúar kl. 15.
Sýningin er samstarfsverkefni
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og
Hafnarborgar og liður í Norrænu
menningarhátíðinni, Sólstafir, sem
haldin er í tengslum við þing
Norðurlandaráðs í Reykjavík.
Listamennirnir sem sýna eru;
Sænski myndhöggvarinn og málar-
inn Bror Hjorth (1894-1968), ís-
lenski myndhöggvarinn Siguijón
Ólafsson (1908-82), Finnski mynd-
höggvarinn Mauno Hartman, fædd-
ur 1931, Daninn Bjorn Norgaard,
fæddur 1947, og Norðmaðurinn
Gunnar Torvund, fæddur 1948.
í kynningu segir: „Með Sýning-
unni er ætlunin að draga fram
helstu strauma og einkenni í högg-
myndalist aldarinnar eins og þau
birtast í verkum þessara fim nor-
rænu myndhöggvara. Stiklað er á
stóru og áhersla lögð á að kynna
höggmyndalistina sem listgrein,
sérstaklega fyrir uppvaxandi kyn-
slóð.“
Listamennirnir Mauno Hartman
og Gunnar Torvund verða viðstadd-
ir opnunina. Sýningin stendur til 20.
mars og er opin í báðum söfnunum
alla daga frá kl. 12-18. Lokað á
þriðjudögum.
Í GLÆSIBÆ • LAUGALÆK • BORGARKRINGLU • ENGIHJALLA • MIÐBÆ Hafnarfirði
o