Morgunblaðið - 09.04.1995, Side 1

Morgunblaðið - 09.04.1995, Side 1
96 SÍÐUR B/C 84. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS __________________________;____________ Reuter Tyrkir kalla 3.000 manna herfylki heim Segja herför í írak ekkí lokíð Diyabakir. Reuter. Ráðherra grættur IJMRÆÐA um fjárlög á svissneska þing- inu gekk svo nærri fjármálaráðherra landsins, Otto Stich, fyrir skömmu að hann grét í ræðustól. Höfðu póiitískir andstæðingar Stich verið sérstaklega illskeyttir og skilningssljóir að hans mati. „Mér fannst skyndilega að ekkert meira væri hægt að gera með venjuleg- um aðferðum," sagði hann. Stich kvaðst vera tilfinninganæmur maður en að hann væri ekki vanur að bera tilfinning- ar sínar á torg. Þegar andstæðingar hans hefðu þverskallast við að sam- þykkja niðurskurð á fjárlögum hafi hann ekki lengur getað haldið aftur af sér. Svissnesk dagblöð spá því að Stich verði ekki langlífur í embætti en ráð- herrann er sjálfur á öðru máli enda hafa vinsældir hans aukist í kjölfar uppákomunnar í þinginu. Smíðaðu lík- kístuna sjálfur SÆNSKUR prestur á eftirlaunum hefur nú hafið framleiðslu sem ætlað er að breyta viðhorfi Svía til dauðans og að spara þeim í leiðinni talsverð fjárútlát. Presturinn, Margaretha Hagbert, 67 ára, hefur hannað likkistu sem fólk á að setja saman sjálft. Selur Hagbert svokallaðan „kistu-pakka“ með tréfjöl- um, nöglum, skrúfum og leiðbeiningum til að samsetningin gangi snurðulaust fyrir sig. Kistu-pakkinn kostar um 11.000 kr. og geta þeir sem vilja ganga frá sínum málum í tíma dundað sér við að setja gripinn saman. Met í draumi DAVID Powell, starfsmann Boeing- verksmiðjanna, hefur sjálfsagt ekki dreymt um að hann ætti nokkurn tíma eftir að komast í Guinnes-heimsmeta- bókina. Hann setti hins vegar fyrir skömmu heimsmet, sem skráð verður í bókina, í draumi. Powell dreymdi í 3 stundir og 8 mínútur en fyrra metið er 2 stundir og 23 mínútur. Þetta er skráð með því að mæla bliksvefn, eða REM, augnhreyfingar sofandi manns á draum- stigi. Powell þjáðist af kæfisvefni, sem gerir það að verkum að hann hættir að anda í svefni. Það olli því að Powell hafði ekki náð draumsvefni í rúman áratug. Hann leitaði sér aðstoðar sér- fræðinga hjá Puget svefntruflanastöð- inni í Seattle, sem gripu til þess ráðs að blása súrefni inn í öndunarveg Pow- ells til að koma í veg fyrir að hann hætti að anda. Uppsöfnuð þörf Powells fyrir djúpan draumsvefn varð til þess að hann dreymdi stanslaust í rúma þrjá tíma en alla jafna dreymir fólk í um 10-15 mínútur í senn. Og hvað dreymdi starfsmann Boeing svo um? Að hann flygi stórri þotu. TYRKIR kölluðu í gær um 3.000 manna herfylki heim frá Norður-írak. Enn er um 30.000 manna tyrkneskt herlið í írak og tók talsmaður hersins fram að þetta væri ekki merki um það að Tyrkir væru við það að ljúka herför sinni gegn skæruliðum Kúrda í írak. Vesturlönd hafa krafist þess að Tyrk- ir hverfi á brott með herlið sitt frá svæðinu en þeir hafa ekki viljað gefa loforð um brott- för fyrir ákveðna dagsetningu. Innrás Tyrkja í N-Irak hófst 20. mars sl. og hefur því staðið í tæpar 3 vikur. Nokkir dagar liðu áður en ríki á Vesturlöndum mótmæltu innrásinni en þrýstingur á Tyrki hefur aukist jafnt og þétt. Hefur þeim m.a. verið hótað því að samningar um tollamál náist ekki við Evrópusambandið, kalli þeir ekki herlið sitt heim. írakar mótmæltu ár- ásinni hins vegar ekki fyrr en sl. fimmtudag er þeir kröfðust krafarlauss brottflutnings hers Tyrkja af írösku landi. Talsmenn tyrkneska hersins sögðu í gær að Tyrkir hefðu heitið því að kalla hermenn heim um leið og þeir hefðu lokið verkefnum sínum. Þeir upplýstu hins vegar ekki hvort hermenn yrðu sendir í stað þeirra sem nú hafa verið kallaðir heim. Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna í Norður-írak staðfestu að 2.-3.000 hermenn hefðu haldið norður á bóginn í átt að tyrkn- esku landamærunum. Vopnahlé hjá Kúrdum Ein stríðandi fylkinga Kúrda í Norður- írak, Lýðræðisflokkur Kúrdistans (KDP), lýsti í gær yfir tveggja vikna vopnahléi í átökunum við Föðurlandssamband Kúrdist- ans (PUK) sem staðið hafa með hléum í tvo áratugi. Vonast talsmenn KDP til þess að andstæðingar þeirra muni gera slíkt hið sama, svo að hægt sé að ganga að samninga- borði. * Ottast árásir á kjörstaði YFIRVÖLD í Perú hertu á öryggisráð- stöfunum í gær vegna forseta- og þing- kosninga sem verða í landinu í dag. Ottast er að skæruliðasamtök maóista, Skínandi stígur, kunni að gera árásir á kjörstaði og munu um 100.000 lögreglu- menn gæta þeirra. Mest er gæslan í Andes-fjöllum, Huallaga-dal þar sem mikil kókarækt er og við landamærin að Ekvador. Þá komst upp um kosningasvindl í norðurhluta landsins á föstudag er lög- regla handtók fólk sem hafði skrifað á 3.500 miða sem merkja á bunka af at- kvæðaseðlum með. 500 atkvæði eiga að vera í hveijum bunka og hafði fólkið því falsað hátt í tvær milljónir atkvæða. Þá voru tveir menn sem sæti áttu í kjör- stjórn, sakaðir um að eiga hlut að mál- inu. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Alberto Fujimori, forseti Perú, allnokk- uð forskot á aðalkeppinaut sinn, Javier Perez de Cuellar, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hins vegar er flokki Fujimoris ekki spáð sigri í þingkosningum. Á myndinni gæta hermenn þess að atkvæðaseðlar fyrir kosningarnar á morgun lendi ekki í höndum rangra aðila. SYSTKINI Á SIGLINGU LÓNIfi OG 24 LÆKNINGAMÁTTURINN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.