Morgunblaðið - 09.04.1995, Page 40

Morgunblaðið - 09.04.1995, Page 40
40 SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Ferdinand Smáfólk Herrar mínir, ég hef ákveðið að Viltu gjöra svo vel og senda Og ieiðbeiningabók. verða fjárhirðir. mér eina tylft kinda. BRÉF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Starfsmat - gæðastjórnun Frá Kristjáni Péturssyni: NAUÐSYNLEGT er að íslendingar afli sér enn frekari þekkingar á gerð og úrvinnslu starfsmats og gæðastjórnunar hjá þeim þjóðum sem mesta reynslu hafa í þeim efn- um s.s. Bandaríkjunum og Þýska- landi. Enda þótt starfsmat sé í megin atriðum byggt upp á sama hátt í helstu iðnríkjum heims, er notkun þess og úrvinnsla mjög breytileg, enda eru atvinnuhættir, lífskjör og stjómhættir mismun- aridi. Á síðari árum hefur starfs- og gæðamat stofnana og fyrirtækja verið að mestu sameinað undir heit- inu gæðastjómun. Megin aðferðar- fræði gæðastjórnunar byggist eins og kunnugt er á árangri, afköstum og markmiðum og koma á mælan- legu kerfi sem sýni ótvírætt árang- ur hinna ýmsu rekstrarþátta sem starfsemin grundvallast á. Lögð er mikil áhersla á að allur stofn- og tilkostnaður fyrirtækja og stofnana sé í fullu samræmi við markmið, þjónustu og framleiðslu. Til að kanna skilvirkni gæða- stjórnunar er nú lögð rík áhersla á að nota spurningalista (skoðana- könnun), sem lagðir eru fýrir við- skiptavini til að fá marktækar nið- urstöður um þjónustuhætti fýrir- tækja og stofnana. Þá eru einnig gerðar ópersónubundnar kannanir innan fyrirtækja og stofnana, sem lagðar eru fýrir undir- og yfirmenn til að gera mælanlega jákvæða og neikvæða rekstrar- og þjónustu- þætti. Starfsmat gegnir ekki aðeins mikilvægu hlutverki í launa- og jafnréttismálum kynjanna, það stuðlar einnig að endurmati á rekstrar- og skipulagsmálum og hefur þannig afgerandi áhrif á nýt- ingu vinnuafls og fjárhagslega af- komu fyrirtækja og stofnana. Það er löngu tímabært að gera heildarendurskoðun á núgildandi vinnulöggjöf, sem hefur reynst bæði launþegum og atvinnurekend- um þung í skauti er tekur til rétt- mætra grunntaxta og launajöfnun- ar hliðstæðra starfa. Hér er annars vegar átt við það launakerfi sem samið er um í almennum kjara- samningum, sem láglaunafólk þigg- ur laun sín eftir að stærstum hluta og hins vegar lokað launakerfi, sem byggist á einstaklingsbundnum samningum launþega við vinnuveit- endur, oft í formi yfírborgana og hvers kyns hlunnindagreiðslna, sem fæstir geta hent reiður á. Slíkt tvöfalt launakerfí bíður heim miklu misrétti og gerir allan samanburð á launakjörum í þjóðfé- Iaginu óraunhæfan. Einnig skapa þessi lokuðu launakerfi mikla hættu á undanskoti launa við skattafram- töl. Þjóðvaki leggur til að allir launa- taxtar verði grundvallaðir á starfs- lýsingum eftir viðurkenndum regl- um starfsmats innan viðkomandi stofnana og fýrirtækja (vinnustaða- samningar). Með þeim hætti verða öll laun sýnileg og komið í veg fýr- ir launamisrétti, enda séu sett ströng viðurlög á aðila vinnumark- aðarins við samningsbrotum. Reynsla þeirra þjóða sem lengst hafa notað og þróað skilvirt starfs- mat og gæðastjórnun hefur sýnt á ótvíræðan hátt að þar hefur skap- ast grundvöllur til að greiða hærri meðallaun og starfsandi á vinnu- stöðum verið betri. Starfsmannafé- lög á slíkum vinnustöðum eru mjög virk og nýtast'vel fyrir sín stétt- arfélög, bæði er tekur til endur- skoðunar á launaliðum starfsmats- ins, starfsskilyrðum og hollustu- háttum. Með starfsmati og gæða- stjórnun er einnig raunhæft að afnema mismun á launum, réttind- um og skyldum á opinberum og almennum vinnumarkaði. Sömu stéttar- eða verkalýðsfélög gætu því annast alla samninga fyrir launþega í landinu. KRISTJÁN PÉTURSSON, fv. deildarstjóri, Löngumýri 57, Garðabæ. Trúfrelsi í Ráðhúsinu Frá Sigurði Óla Pálmasyni: SVAR við bréfí Þórdísar Péturs- dóttur sem birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 1. apríl 1995. Hvað er þetta eiginlega hjá of- stækistrúarhópum, að vilja alltaf neyða trúnni uppá fólk og leggja fram frasa á borð við: „Innst inni viljum við öll vera kristin þó það sé ekki á yfirborðinu." Ég ætlast til þess, Þórdís, að þú látir það ógert að segja mér hvað ég vil vera. Þórdís talar um að borg- araleg ferming sé trúleysi. Ég und- irritaður varð himinlifandi þegar ég heyrði af þessum fermingarmáta. Nú þurfa krakkar sem sagt hvorki að sleppa tölvunni né græjunum ef þau eru ekki tilbúin til að taka kristni, bara sí svona. Kirkjan hefur aldrei almennilega getað svarað af hverju börn eru fermd svona ung og ómótuð og með þessari veislu- og gjafahefð sem komin er í kring um ferminguna er ansi erfítt fyrir krakka á þessum aldri að segja nei! Það er núna fyrst, „guði sé lof“, að valmöguleiki hefur litið dagsins ljós. Það er nokkuð ljóst að mann- eskja eins og þú, Þórdís, hefur ekki mikinn áhuga á vinstri stjórn frekar en þú hefur áhuga á mannréttind- um. Vinstri flokkarnir hafa það fram yfir þá hægri að hugsa um fólkið í landinu og kannski ekki síst um hvað því finnst. Þó að á íslandi sé þjóðkirkja þá höfum við blessunarlega þau mann- réttindi að hafa valfrelsi! SIGURÐUR ÓLIPÁLMASON, Pjólugötu 13, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að iútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.