Morgunblaðið - 18.05.1995, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sól hyggst
framleiða
mjólkur-
afurðir
PÁLL KR. Pálsson forstjóri Sólar
hf. sagði á fundi Sambands ungra
sjálfstæðismanna í gærkvöldi um
úreldingu Mjólkursamlags Borgar-
ness að fyrirtæki sitt mundi innan
skamms hefja viðræður við Osta-
og smjörsöluna sf. og Mjólkursam-
söluna um kaup á hráefni til að
hefja framleiðslu, á viðbiti og öðr-
um mjólkurafurðum, í höfuðstöðv-
um fyrirtækisins í Þverholti.
Páll segir að gott tækifæri til
að byggja upp öflugt fyrirtæki um
framleiðslu mjólkurafurða hafi
glatast þegar landbúnaðarráðherra
ákvað að úrelda mjólkursamlagið.
Nú hafí Sól hf. aftur á móti ákveð-
ið að leita samninga við samkepnn-
isaðila sína og einu hráefnisfram-
leiðendur mjólkurafurða í landinu.
Viðbit og
kókómjólk
Ávarp Ólafs G. Einarssonar nýkjörins forseta Alþingis eftir forsetakjör
Álitamál að þingmenn
séu jafnframt ráðherrar
ÓLAFUR G. Einarsson, nýkjörinn
forseti Alþingis, sagði á Álþingi í
gær að styrkja þyrfti stöðu Álþing-
is í stjórnkerfinu og sú skoðun
mætti ekki festast í sessi að þingið
sé ekki annað en afgreiðslustofnun
fyrir ríkisstjórn á hveijum tíma.
„Raunar eru skilin milli löggjaf-
arvalds og framkvæmdavalds, milli
Alþingis og ríkisstjómar, milli Al-
þingis og ýmissa stjórna og ráða
utan þingsins, ekki skörp. Þess
vegna leggja nú ýmsir áherslu á
að alþingismenn sitji ekki í stjórnum
og ráðum utan þingsins, telja það
ekki samræmast góðum stjómar-
háttum og aðgreiningu löggjafar-
valds og framkvæmdavalds. Þó
þykir sumum eðlilegt að alþingis-
menn séu jafnframt ráðherrar,
æðstu menn framkvæmdavaldsins.
Það hlýtur þó að vera álitamál,"
sagði Olafur.
Meiri háttvísi
Ólafur G. Einarsson var einn í
kjöri til embættis forseta Alþingis
í gær og fékk hann 45 atkvæði en
15 atkvæðaseðlar voru auðir. í
ávarpi eftir kjörið fjallaði hann
meðal annars um þau mál sem
hugur hans stæði til að vinna að.
Þar nefndi hann að draga þyrfti
upp aðra mynd af þingstörfunum
en nú birtist almenningi gegnum
fjölmiðla. Þingmenn gætu sýnt
meiri háttvísi í orðavali og fram-
göngu hver gagnvart öðram enda
væru það þingmenn sjálfir sem
hefðu mest áhrif á hver ímynd
þingsins væri í augum þjóðarinnar.
Olafur sagðist ekki geta leynt
þeirri skoðun sinni að þingstörfin
hefðu ekki tekið mið af þeim miklu
breytingum sem orðið hefðu á
mörgum sviðum þjóðlífsins í fjöl-
miðlun, boðskiptum og margvíslegri
tæknivæðingu. Umræðuhefðin á
Alþingi ætti með öðra þátt í veikri
stöðu þess gagnvart framkvæmda-
valdinu og áliti almennings.
„Það er mjög mikilvægt að Al-
þingi rífi sig upp úr því fari sem
það hefur lent í á undanförnum
áram. Almenningur, sem nú fylgist
með störfum okkar daglega, gerir
ríkar kröfur um vitrænan málflutn-
ing, snarpar umræður og tilþrif hér
á Alþingi. Þess vegna verðum við
að setja strangar reglur um umræð-
ur og gera meiri kröfur til sjálfra
okkar en verið hefur um sinn,“
sagði Ólafur.
Ólafur sagði einnig mikilvægt að
bæta úr húsnæðismálum Alþingis
og starfsaðstöðu þingmanna og
hvatti til þess að launamál og
starfskjör þingmanna yrðu tekin til
endurskoðunar. Hann sagði að
margir þeirra, sem kjömir væru til
setu á Alþingi, lækkuðu við það í
launum og hann hefði áhyggjur af
Alþingi sem stofnun, ef launakjör
og starfsaðstaða fældu hæfa menn
frá þátttöku 1 stjórnmálastörfum.
Til viðbótar við forseta kaus Al-
þingi sér í gær fjóra varaforseta.
Þeir era Ragnar Arnalds Alþýðu-
bandalagi sem verður 1. varafor-
seti, Sturla Böðvarsson Sjálfstæðis-
flokki, 2. varaforseti, Guðni Ágústs-
son Framsóknarflokki, 3. varafor-
seti og Guðmundur Árni Stefánsson
4. varaforseti.
Morgunblaðið/Þorkell
„Ef Osta- og smjörsalan og
Mjólkursamsalan era tilbúnar til
að selja okkur mjólkurafurðir á
verði sem er samkeppnishæft mun-
um við hefja framleiðslu á viðbiti
úr smjöri, ekki ósvipað Smjörva,
og kókómjólk,“ sagði Páll í-sam-
tali við Morgunblaðið. „Það á þó
alveg eftir að koma í ljós hvort
þeir gera okkur tilboð sem tryggir
samkeppnishæfni okkar. Þeir ráða
miklu með tilboði sínu, hvort við
eigum möguleika að komast inn á
markaðinn,“ sagði Páll.
Lögreglan
slökkti á
sjónvarpinu
LÖGREGLAN í Reykjavík var
síðdegis í fyrradag kölluð í
hús í austurbænum vegna
heimilisófriðar. Ágreiningur
var meðal fjölskyldufólks um
hvaða sjónvarpsstöð ætti að
horfa á.
Deilt var um hvort horfa
ætti á beina útsendingu frá
leik í heimsmeistarakeppninni
í handbolta í Ríkissjónvarp-
inu, eða horfa á framhalds-
þáttinn Nágranna, sem sýnd-
ur var á sama tíma á Stöð 2.
Niðurstaða fékkst í málið
með aðstoð lögreglu með sam-
komulagi um að slökkt yrði á
sjónvarpinu og á hvoruga
stöðina horft.
UNDANFARIÐ hefur verið
unnið að framkvæmdum við
minjar tengdar heitu laugunum
í Laugardal, til að stuðla að
varðveizlu þeirra og greiðum
aðgangi almennings. Að sögn
Jóhanns Pálssonar, garðyrkju-
stjóra Reykjavíkur, er annars
vegar um að ræða þvottalaug-
arnar, sem eru mikilvægar
minjar um atvinnusögu kvenna
í Reykjavík, en þangað fóru
Minjar
í Laugardal
varðveittar
konur oft um langan veg til
þvotta. Hins vegar hefur dælu-
hús fyrstu hitaveitu Reykvík-
inga verið gert upp. Hitaveitan,
sem tekin var í notkun snemma
á fjórða áratugnum, hitaði með-
al annars Austurbæjarskólann
og Sundhöllina. Hitaveita
Reykjavíkur kostar fram-
kvæmdirnar, garðyrkjudeild
borgarinnar hefur séð um að
lagfæra umhverfið og Árbæj-
arsafn sett upp skilti með upp-
lýsingum um minjarnar. Svæðið
verður opnað með viðhöfn í
byijun júní.
Fallið frá samræmingn
staðaruppbótar að sinni
Heilbrigðisráðherra vísar deilu við hjúkrun-
arfræðinga til stjórna sjúkrahúsa
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra hefur sent stjórnum
sjúkrahúsanna á landsbyggðinni
bréf þar sem þær era hvattar til
að leysa deilu við hjúkrunarfræð-
inga. Um 200 hjúkranarfræðingar
ætla að hætta störfum um næstu
mánaðamót ef ákvörðun um upp-
sögn á staðaruppbót verður ekki
endurskoðuð.
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, sagði að af-
staða heilbrigðisráðherra væri að
ágreiningiir um staðaruppbætur til
hjúkrunarfræðinga yrði aðeins
leystur heima í héraði. Hann sagði
að þessi afstaða þýddi að fallið hefði
verið frá, a.m.k. að sinni, ákvörðun
fyrrverandi heilbrigðisráðherra að
samræma greiðslur á staðaruppbót
til hjúkrunarfræðinga.
Þórir sagði að heilbrigðisráðu-
neytið ætlaðist til þess að sjúkra-
húsin leystu þetta mál innan ramma
fjárlaga. Það væri hins vegar ljóst
að flest ættu þau erfitt með að
gera það án þess að til kæmi auka-
fjárveiting úr ríkissjóði. Hann sagði
að í bréfinu væra settar fram tiilög-
ur um aukaljárveitingar.
í bréfí ráðherra segir að gera
megi ráð fyrir að viðbótarfjárveit-
ingin leiði til samsvarandi lækkunar
á fjárveitingu næsta árs. ítrekuð
er fyrri afstaða ráðuneytisins um
að launagreiðslur og umbun um-
fram kjarasamninga sé alfarið á
ábyrgð stjómenda.
Framkvæmdastjórar óánægðir
Strax eftir að framkvæmdastjór-
ar sjúkrahúsanna fengu bréf ráð-
herra í hendur óskuðu þeir eftir
fundi með embættismönnum heil-
brigðisráðuneytisins og fjármála-
ráðuneytisins. Óánægja kom fram
á fundinum með afgreiðslu ráðu-
neytisns. Niðurstaða fundarins
varð að hópur framkvæmdastjóra
óskaði eftir fundi með heilbrigðis-
ráðherra.
Jóhann Einvarðsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss ' Suður-
nesja, sagði að mjög erfitt yrði fyr-
ir sjúkrahúsin að leysa þetta mál
innan þess ramma sem heilbrigðis-
ráðherra setti. Hann sagðlað tíminn
væri skammur og því ættu stjóm-
irnar ekki annan kost en að snúa
sér strax að því að leysa þetta.
Rætt við
bændur um
stækkun lóns
STJÓRNARMENN Landsvirkjunar
áttu í gærkvöldi viðræður við sam-
ráðsnefnd sveitarfélaga og oddvita
á Blöndusvæðinu, og var þar meðal
annars farið yfír það hvernig stað-
ið yrði að samningum um stækkun
uppistöðulónsins við Blönduvirkjun
vegna álversframkvæmda.
„Það eru væntanlegra nýir
samningar um stækkun álversins,
og þá þarf að stækka þarna lón
og fleira, og það á eftir að fara
yfir þau mál,“ sagði Alfreð Þor-
steinsson, stjórnarmaður í Lands-
virkjun í samtali við Morgunblaðið
fyrir fundinn.
------» » ♦----
Ódýrari tómat-
ar og gúrkur
HEILDSÖLUVERÐ á tómötum og
agúrkum lækkaði um 100 kr. kíló-
ið í gær og segir Kolbeinn Ágústs-
son, innkaupastjóri hjá Sölufélagi
garðyrkjumanna, að framleiðslan
hafí gengið vel í blíðunni að undan-
förnu.
Segir Kolbeinn að heildsöluverð
á tómötum hafi lækkað í 399 krón-
ur og í 199 krónur á agúrkum í
gær. Heildsöluverð á papriku sé
óbreytt, í kringum 700 krónur kíló-
ið, þar sem hún sé nýkomin á
markað.
------» ♦ ♦----
Aukinn hlutur
krókabáta
dregur úr hag-
ræðingu
ÆILI stjórnvöld eina ferðina enn
að auka hlutdeild krókabáta í þorsk-
afla á kostnað annarra í sömu at-
vinnugrein, mun slík mismunun
auka óvissu í sjávarútvegi og draga
úr allri hagræðingu, stjórnvöld munu
missa stuðning annarra útgerða við
kvótakerfið og með því grafa undan
eigin markmiðum í fiskveiðistjórn-
uninni.
Svo segir í yfirlýsingu Útvegs-
mannafélags Reykjavíkur, sem kom-
ið var á framfæri við þingmenn
Reykjavíkur og sjávarútvegsráð-
herra í gær.
• Yfirlýsing/47
í
>
\