Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 20

Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR TÓNLIST án hljóðs. Þannig er heimur skoska slagverksleikarans Evelyn Glennie, sem leika mun einleik með Sinfóníuhljómsveit íslands í kvöld. Hún er heyrnarlaus en hefur engu að síður brotist til mikils frama í heimi tónlistarinnar og þykir í dag einn snjallasti einleikarinn úr röðum slagverksleikara í heiminum. Heyrn- arleysið háir henni ekki, enda segir hún að líkaminn sé samstillt heild. Hin skynfærin hafi einfaldlega skerpst þegar heyrnin hvarf. Evelyn heyrir ekki tónana en getur lesið nótur. „Eg hef góða tónskynjun og get því heyrt tóna í höfðinu og sett þá í samhengi við aðra tóna. Ég verð hins vegar að læra tónverkin í heild því þó ég sé að spila ein- leik með hljómsveitum verð ég að vita hvað er að gerast í kringum mig.“ En skyldi þá ekkert mega út af bera; hvað ef hljómsveit- in spilar of hratt eða of hægt? „Það er ekki mitt vandamál,“ segir Evelyn sposk á svip, „heldur hljómsveitarstjórans. Mitt hlutverk er bara að spila. Ég bregð mér þó oft úr skónum svo ég geti numið titringinn frá hljómsveitinni." Sópaði að sér verðlaunum Þegar Evelyn var átta ára fór hún að glata heyrn. Læknar voru ráðþrota og frá tólf ára aldri hefur hún verið nánast heyrn- arlaus. Fötlunin hefur þó síð'.'.r en svo staðið tónlistargáfum hennar fyrir þrifum. Ung að árum lærði Evelyn á píanó og klarinett en um líkt leyti og hún missti heymina hóf hún nám á pákur og slagverk. Hæfileikamir voru ótvíræðir og á námsárunum sópaði hún að sér verðlaunum. Frá 1986 hefur Evelyn ferðast sem ein- leikari víða um heim og komið fram með heimskunnum hljómsveitum og listamönn- um. Hún var meðal annars fyrsti slagverks- leikarinn til að leika einleik í Royal Albert Hall í Loiidon. Evelyn hefur sent frá sér fjölda geislaplatna, verið valin kona áratug- arins í Skotlandi og tekið við bresku heims- veldisorðunni. Þá komu æviminningar henn- ar, „Good Vibrations", út fyrir nokkrum árum. Þessi 29 ára gamla kona er með öðr- um orðum á góðri leið með að sigra heiminn. Evelyn er óvenjulegur listamaður þótt hún geri ekki mikið úr því sjálf. „Ég hef alltaf viljað vera eðlileg manneskja. Mig langaði til að beita röddinni þótt ég yrði að læra að stýra henni upp á nýtt.“ Hún les fyrirhafn- arlaust af vörum og talar gjörsamlega lýta- laust. Skoski hreimurinn er meira að segja á sínum stað. Það er því erfitt að sjá að um heyrnarlausan einstakling sé að ræða þegar maður hittir Evelyn Glennie að máli. Kynnir ný verk Slagverktónlist ruddi sér ekki til rúms í heimi hinnar klassísku tónlistar fyrr en um miðbik þessarar aldar. Verkin hvíla því ekki á fornum grunni. Evelyn leggur sig í líma til að koma nýjum verkum á framfæri, enda vill hún auka hróður slagverksins. Hún hef- ur unnið náið með mörgum tónskáldum og verið þeim innan handar með því að veita Morgunblaðið/Kristinn EVELYN Glennie er í hópi snjöllustu slagverksleikara heims. Sinfóníuhljóm- sveit Islands mun njóta krafta hennar á tónleikum í kvöld. Tónlist án hljóðs Skoski slagverksleikarinn Evelyn Glennie, sem meðal annars hefur starfað með Björk Guðmundsdóttur, mun ■ - --------------------------------------------—----- leika einleik á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í kvöld. Orri Páll Ormarsson hitti hana að máli en mörg- um þykir frami hennar tíðindum sæta þar sem lista- konan hefur verið heymarlaus frá 12 ára aldri. tæknilega ráðgjöf. í þakklætisskyni hafa mörg þeirra samið verk sem eru sérstaklega ætluð henni. Evelyn kveðst eiga liðlega 300 slagverkskonserta í fórum sínum en hefur ekki flutt nema 53 þeirra opinberlega. Enn er því af nógu að taka. Évelyn hefur í mörg hom að líta. Hún þeytist heimshorna á milli og heldur um 110 tónleika á ári hveiju. Þá fer dtjúgur tími í upptökur, kennslu, viðtöl og aðra fylgifiska frægðarinnar. „Þetta er stíf dagskrá og ég hef verið mjög upptekin undanfarin ár. Ég eyði yfirleitt sjö mánuðum á ári erlendis þannig að ég er lítið heima. Engu að síður er þetta þess virði.“ Évelyn hefur unnið hug og hjörtu fóiks í flestum heimshlutum. Stjarna hennar skín skært í Evrópu og Bandaríkjunum en hún hefur jafnframt átt mikilli velgengni að fagna í austurlöndum fjær - einkum í Jap- an. Þá sótti Evelyn Indland heim í fyrra með góðum árangri og nú vill hún kveða sér hljóðs í Austur-Evrópu. „Ég á einnig eftir að fara til Afríku sem skýtur nokkuð skökku við þar sem ég er slagverksleikari." Safnar hljóðfærum Evelyn kynnir sér jafnan slagverksmenn- inguna þegar hún fer um framandi slóðir. Hún kveðst ávalit vera opin fyrir nýjum tón- verkum og ekki síður hljóðfærum. Þeim safn- ar hún og prýða nú um 700 stykki heimiii hennar á Bretlandi. „Á ísland einhveija sér- staka trommu sem er hvergi til annars stað- ar?“ Á efnisskránni í kvöld eru verkin Marea eftir Magnus Lindberg, Marimbakonsert eft- ir Áskel Másson og Le Mer eftir Claude Debussy. Hljómsveitarstjóri er Osmo Vánská. „Ég er mjög þakklát fyrir að fá tækifæri til að koma fram með Sinfóníu- hljómsveit íslands, sem er góð hljómsveit," segir Evelyn. „íslensk tónskáld hafa líka verið að semja mikið af góðri tónlist og ég veit fyrir víst að fjöldi breskra tónlistar- manna hefur hug á að fræðast betur um íslenska tónlist." Evelyn hefur margsinnis starfað með Áskeli Mássyni og meðal annars flutt verk hans víða um heim. Nú síðast lék hún verk hans, Konsertþátt fyrir litla trommu og hljómsveit, á tónleikaferðalagi um Kanada í febrúar síðastliðnum. Hún hefur hins vegar ekki flutt Marimbakonsertinn í annan tíma, en hann var saminn árið 1987 að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar fyrir slag- verksleikarann Roger Carlsson. Með Björk á MTV Evelyn þekkir ekki fleiri ísiensk tónskáld frá fyrstu hendi en hefur haft kynni af nokkr- um tónlistarmönnum. Þeirra á meðal Björk Guðmundsdóttur. Var hún meðal annars í hópi hljóðfæraleikara sem studdu við bakið á söngkonunni í þætti úr straumlausu sjón- varpsþáttasyrpunni MTV-Unplugged. Eveiyn hefur getið sér gott orð sem laga- smiður, en hún semur einkum fyrir heimild- armyndir, útvarp og sjónvarp. Hún hefur komið sér upp hljóðveri í híbýlum sínum og nýverið bauð hún Björk að sækja sig heim. Brugðu stöllurnar á leik og útkoman var sex vísar að lögum. Einn þeirra hefur tekið á sig heilsteypta mynd og mun að líkindum verða á næstu plötu Bjarkar. „Ég vil gera meira af því að vinna með öðrum tónlistarmönnum í framtíðinni og það er mjög áhugavert að vinna með Björk,“ segir Evelyn. „Hún er með mjög „instrumen- tal“ rödd sem mér líkar mjög vel. Björk er líka harðdugleg og nákvæm og veit hvað hún viil. Ég vona því að við eigum eftir að starfa meira sarnan." Evelyn Glennie hefur komið tónlistarheim- inum í opna skjöldu. Með jákvæðu hugarf- ari, mikilli vinnu og heilmiklum hæfileikum hefur henni tekist að skipa sér á bekk með efnilegustu tónlistarmönnum heimsins. Ef til vill á henni eftir að takast að helja slag- verkið upp í hæðir sem hefðbundnari hljóð- færi hafa einokað til þessa. Vettvangur fyrir vaxtarbrodda Listaklúbbur Leikhúskjallarans hefur staðið fyrir fjöl- breyttri dagskrá í vetur og efndi í fyrsta sinn til klassískra tónleika fyrr í vikunni. Orri Páll Ormarsson upplifði stemninguna á staðnum. AÐ ER mánudagskvöld í Listaklúbbi Leikhúskjallarans. Ljósin dofna í saln- um og kastljósið beinist að sviðinu. Tveir ungir gítarleikarar stilla saman strengi sína og hefja leik. Á efnisskránni eru verk eftir Machado, Morel, Ponce og fleiri suðræn tónskáld. Samleikurinn varir um hríð en síð- an víkja listamennirnir úr öndvegi undir dynj- andi lofataki áheyrenda. Þeir snúa aftur, eilít- ið hrærðir og flytja léttan tangó áður en þeir hverfa endanlega af vettvangi. Þetta er ekki lýsing á hefðbundnu kvöldi í Listaklúbbnum enda eru þau ekki til. Klúb- burinn kappkostar nefnilega að brydda upp á nýjungum en markmið hans er einfaldlega að standa fyrir fjölbreyttri og vandaðri menn- ingar- og skemmtidagskrá og vera vettvang- ur fyrir hverskonar listsköpun sem ekki krefst mikils ytri umbúnaðar en býr' yfir stærð einfaldleikans. Einu gildir hvort átt er við ljóðalestur, tónlist, leiklist, dans, um- ræður, gjörninga, fróðleik eða upplestur. Fyrstu klassísku tónleikarnir Listakiúbburinn hefur starfað í hálft annað ár í Leikhúskjallaranum en klassískir tónar hafa ekki oft ómað um salinn. Reyndar eru þetta fyrstu formlegu klassísku tónleikarnir sem þar eru haldnir. Það má því með sanni segja að gítarieikararnir ungu, Hinrik Bjarnason og Rúnar Þórisson, hafi rennt blint í sjóinn en þeir hafa ekki í annan tíma spilað duo á tónleikum hér á landi. Það hafa Guðrún Birgisdóttir flautuleikari og Sophie Schoonjans hörpuleikari ekki heid- ur gert, en þær stíga næstar á svið. Sameina þær krafta sína í verkum eftir Fauré, Jón Hlöðver Áskelsson, Atla Heimi Sveinsson, SOPHIE Schoonjans, Hinrik Bjarna- son, Rúnar Þórisson og Guðrún Birgis- dóttir léku á fyrstu klassísku tónleikun- um í Listaklúbbi Leikhúskjallarans. Debussy og fleiri og fellur framlag þeirra einnig í fijóa jörð. Verða stöllurnar að hneigja sig í bak og fyrir áður en áheyrendur sleppa þeim. Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, burðar- ásinn í starfi Listaklúbbsins, er í sjöunda himni eftir tónleikana. Ber hún lof á listafólk- ið og kveðst að auki vera þakklát fyrir að áheyrendur skuli láta sjá sig í blíðunni. Hef- ur hún í hyggju að gangast fyrir fleiri klass- ískum tóníeikum og nefnir sérstaklega unga listamenn í því samhengi. „Mig langar til að efna til tónleikaraðar með ungu tónlistarfólki sem stundar nám erlendis þegar það kemur heim í jólafrí." Áhugafólk um klassíska tón- list ætti því að fá eitthvað fyrir sinn snúð í Listaklúbbi Leikhúskjallarans á næsta starfs- ári. Að sögn Sigríðar er klúbburinn stöðugt á höttunum eftir nýju listafólki til að troða upp. „Við gerum vitanlega kröfur um gæði en að öðru leyti er rýmið það eina sem setur okkur skorður.“ Öllum er fijálst að ganga í Listaklúbbinn en hann hefur nú tæplega 200 manns innan sinna vébanda. Félagarnir greiða ársgjald og segir Sigríður að sá stuðningur sé ómetan- legur. Þá munu Landsbankinn, rekstraraðilar Leikhúskjallarans og Þjóðleikhúsið hafa lagt hönd á plóginn. Starfsárið senn á enda Sigríður segir að fastur kjarni klúbbfélaga láti ávallt sjá sig þegar eitthvað sé um að vera í kjallaranum. Aðrir séu ekki eins virk- ir. Listaklúbburinn bíður yfirleitt upp á fiýja dagskrá á hveiju mánudagskvöldi en þó hef- ur komið fyrir að dagskrá hafi verið endur- tekin vegna fjölda áskorana. Sigríður lítur yfir farinn veg með bros á vör. Hún kveðst í fyrstu hafa verið rög við að leggja mánudagskyöld undir dagskrá klúbbsins. Sá ótti reyndist vera ástæðulaus. „Þetta hefur gengið alveg ofsalega vel en listamennirnir sem komið hafa fram á vegum klúbbsins skipta orðið hundruðum. Þeir hafa undantekningarlaust iagt sig alla fram sem er stórkostlegt enda stendur klúbburinn og fellur með vilja þeirra til að koma fram á þessum vettvangi.“ Starf Listaklúbbsins er senn á enda á þessu starfsári en fyrirhugað er að taka upp þráð- inn í september. Sigríður gerir fastiega ráð fyrir að starfsemin verði með svipuðu sniði. „Ég er mjög sátt við þá þróun sem hefur átt sér stað og vonandi á þessi starfsemi eftir að hlaða utan á sig. Við viljum að Lista- klúbburinn verði vettvangur fyrir vaxtar- brodda í íslensku menningarlífi."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.