Morgunblaðið - 18.05.1995, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
LEIKHÚSSAFNIÐ í Konunglega leikhúsinu í
Kaupmannahöfn opnaði nýlega sýningu um feril
leikarans Ebbe Rode. Sýndar verða myndir og
teikningar, búningar ofl. þar sem rakinn er leik-
ferill Rodes frá árinu 1931 er han sté' fyrst á
svið. Þá eru sýnd verk eftir Rode en hann hefur
fengist við ritstörf og myndlist. Sýningin er í til-
efni 85 ára afmælis Ebbe Rode þann 10. maí.
„SAMEINUÐ dönsum vér“ er nýhafin alþjóðleg
danshátíð sem hófst í San Fransiskó í síðustu viku.
Hún er haldin í tilefni þess að fimmtíu ár eru
liðin frá stofnun Sameinuðu þjóðanna. Rambert-
danshópurinn sýnir nýtt verk eftir Christopher
Bruce við saxófónkonsert Michaels Nyman en auk
þess koma fram Bolshoi-ballettinn, Astralski bal-
lettinn, Konunglegi danski ballettinn og San
Fransiskó-ballettinn.
POMPIDOU-safnið í París opnaði nýverið sýningu
á verkum rúmenska myndhöggvarans Constantin
Branusci (1876-1957). Branusci þótti feta veginn
á milli abstraktlistar og figúratívar í listsköpun
sinni. Hann starfaði í París og ánafnaði franska
ríkinu verk sín að honum látnum. Sýningin stend-
ur fram á haust og flyst í október í Philadelphia
Museum of Art.
BRESKI leikarinn Derek Jacobi hefur fengið ein-
valalið til að koma fram á leiklistarhátíðinni í
Chichester. Sjálfur fer Jacobi með hlutverk Hadr-
ians VII í samnefndu leikriti Peter Luke en auk
hans má nefna Ian Richardson sem stígur á svið
í fyrsta sinn í 20 ár, Lauren Bacall, Harold Pint-
er, sem einnig leikstýrir tveimur leikritum, Pene-
lope Keith, Ian Carmichael og Daniel Massey.
ÞAÐ nýja leikrit sem fengið hefur bestar móttök-
ur breskra gagnrýnenda á þessu ári, „Dealer’s
Choice“ (Val gjafarans) eftir Patrick Marber,
hefur verið tekið til sýninga í Vaudeville-leikhús-
inu á West End en það var frumsýnt I þjóðleikhús-
inu breska. Fjallar það, eins og nafnið gefur til
kynna, um heim pókerspilara sem allir eru karl-
kyns, nema hvað!
SOKUM bágs efnahagsástands í Rússlandi, gefast
áhugafólki um tónlist æ fleiri tækifæri á að sjá
og heyra í rússneskum tónlistarmönnum á Vestur-
löndum. Það á ekki síst við um Parísarbúa en
Théatre des Champs-Elysées er orðið að nokkurs
konar höfuðstöðvum Rússa. Fyrr á leikárinu sýndi
ópera Marinskíj-leikhússins í Pétursborg og ný-
lega heimsótti Fílharmónía Pétursborgar, þekkt-
asta sinfóníuhljómsveitin á sovéttímanum, París.
KONUNGLEGA leikhúsið í Kaupmannahöfn hef-
ur nú komið sér upp nýju miðasölukerfi, sem á
að auðvelda fólki að verða sér út um miða og
koma í veg fyrir að fáir útvaldir komist yfir miða
á vinsælustu sýningarnar. Frá og með 21. júní
getur fólk hringt í miðasöluna og pantað miða
með því að slá inn númer, svipað og í ýmsum
þjónustusímum hér á landi.
• ÚT eru komnar þriðja og fjórða
bók um spæjaramunkinn bróður
Cadfael, Líkþrái maðurinn og
Athvarf öreigans. Fyrstu tvær
bækurnar komu út í janúar, Líki
ofaukið og Bláhjálmur.
Bækumar um bróður Cadfael
eru sérstakur bókaflokkur þar
sem aðalhetjan er munkurinn
Cadfael, spæjari í sérflokki. Hver
bók er sjálfstæð saga og gerist á
12. öld í og við Benedikts munkak-
laustrið í Shrewsbury á Englandi.
Nýjar bækur
Höfundur bókanna er Edith
Pargeter, en skrifar þær undir
höfundarnafninu Ellis Peters.
í fyrra voru gerðar sjónvarps-
kvikmyndir eftir fjórum bókanna,
með Sir Derek Jacobi í hutverki
Cadfaels. Þessar myndir fengu
svo góðar móttökur að ákveðið
var að gera myndir eftir sex bók-
um í viðbót. Islenska sjónvarpið
tryggði sér sýningarréttinn á fjór-
um fyrstu myndunum og hefur
þegar sýnt þær.
Útgefandi er Ftjáls ijölmiðlun.
Verð hverrar bókar er hið sama
ogá Úrvalsbókum, 895 kr. bókin.
Líkþrái maðurinn ogAthvarf ör-
eigans verða auk þess, eins og
tværfyrri bækurnar, íboði báðar
saman ípakka á sérstöku kynn-
ingarverði, 1.340 kr. pakkinn.
Bækurnar eru hvor um sig 222
bls. að lengd. Þýðendur eru Elín
Margrét Hjelm ogRósa Anna
Björgvinsdóttir.
mundu!
a j_i
....f.stafa
símanúmer
Símanúmera-
breytingarnar
taka gildi laugar-
daginn 3. júní
Númer breytast sem hér segir:
55 bætist framan við fimm stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu
5 bætist framan við sex stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu
42 bætist framan við öfl símanúmer á Suðurnesjum
43 bætist framan við öll símanúmer á Vesturlandi
456 bætist framan við öll símanúmer á Vestfjörðum
45 bætist framan við öll símanúmer á Norðurlandi vestra
46 bætist framan við öll símanúmer á Norðurlandi eystra
47 bætist framan við öll símanúmer á Austurlandi
48 bætist framan við öll símanúmer á Suðurlandi
Eftir breytingarnar þarf ekki lengur að velja svæðisnúmer.
Farsíma- og boðtækjanúmer.
Talan 9 fellur burt þannig að farsímanúmer byrja á 85, GSM númer
á 89 og boðtækjanúmer á 84. Dæmi: 985 489 89 verður 854 8989.
PÓSTUR OG SIMI
Guðrún E. Ólafsdóttir við verk sín.
Sundurlaus
stíldæmi
MYNPLIST
L i s t h ú s i ð
í Laugardal
MÁLVERK
GUÐRÚN E.
ÓLAFSDÓTTIR
Opið mánud. - laugard. kl. 13-18
og sunnud. kl. 14-18 til 20. maí.
Aðgangur ókeypis
ÞAÐ hefur verið fremur hljótt
um sýningarhald í Listhúsinu í
Laugardal það sem af er árinu,
þó þar hafi verið stöðug starfsemi
í gangi. Flestir sýnenda undanfar-
in tímabil hafa verið úr hópi listá-
hugafólks, sem sinnt hefur listinni
í hjáverkum, en af áhuga og oft
smekkvísi, án þess að hafa notið
formlegrar menntunar eða mikill-
ar leiðsagnar á því sviði. Slíkir
listamenn eru jafn misjafnir og
þeir eru margir, og í sjálfu sér
ekki ástæða til að fjalla um verk
þeirra á sama grunni og hinna
lærðu, sem gera má meiri kröfur
til. Oft ber áhugafólk í listinni þó
með sér ferskan blæ og ný við-
horf, og er rétt að minna á að
meðal íslenskra listamanna er að
fínna einstaklinga, sem aldrei hafa
sótt listaskóla, en samt náð í
fremstu röð; nægir þar að nefna
Gunnar Om Gunnarsson og Krist-
ján Guðmundsson sem ólik dæmi
um slíka menn.
Guðrún E. Ólafsdóttir hefur
hins vegar hefðbundna listmennt-
un að baki, en hún útskrifaðist frá
grafíkdeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1986 og hefur tekið
þátt í nokkrum samsýningum frá
þeim tíma, en þetta mun vera
önnur einkasýning hennar. Hún
hefur áður m.a. sýnt grafíkverk
og pastelmyndir, en á sýningunni
hér er eingöngu að finna olíumál-
verk.
Fyrir nokkrum árum hélt Guð-
rún sýningu með bræðrum sínum
í Gallerí Borg, þar sem undirritað-
ur minnist einkum samsettra
mynda hennar, þar sem margar
litlar myndir komu saman í einum
stórum fleti, sem varð afar fjöl-
breyttur fyrir vikið. Þetta voru
bestu verkin á annars ómyndugri
sýningu.
Að þessu sinni er ekki að finna
neinar slíkar samsetningar í verk-
um listakonunnar, heldur sýnir
hún hér málverk af öllum stærðum
og gerðum, allt frá hinu örsmáa
upp í nokkuð stórar myndir. Þessi
óreglusemi stærðanna endurspegl-
ar með vissum hætti það sem
nefna verður sundurleysi málverk-
anna sjálfra. Hér er ekki að finna
neinn heildarsvip í meðhöndlun
efnisins, heldur byggja hinar ýmsu
myndir á misjöfnum stíl, ólíkum
vinnubrögðum og tilvísunum til
erlendra listamanna, þar sem erf-
itt er að finna nokkra persónulega
stefnu eða viðmiðun. Glæstir
rammar gefa sumum verkanna
síðan virðuleikablæ, sem myndirn-
ar sjálfar standa engan veginn
undir.
Hér má þannig finna verk með
ættarsvip listamanna eins og
Fernando Botero (nr. 20 og 21),
Edvard Munch (nr. 4 og 12) og
Fridu Khalo (nr. 18 og 19), svo
nokkur dæmi af fleiri séu mögu-
legum séu nefnd. Slík fjölþreifni
getur í sjálfu sér verið ágæt, en
eigin persónuleg tjáning hlýtur þó
ávallt að vera markmið hvers lista-
manns, því sundurlaust safn stíl-
dæma kemur aldrei í stað mark-
vissrar heildar.
Best tekst listakonunni upp í
nokkrum litlum myndum eins og
„Bóndinn (nr. 25) og „Mæðgur
nr. 26), þar sem ij'arrænn innileiki
ræður ríkjum í meitluðu rýminu,
og ekkert truflar sýnina. Hér fer
saman ágæt myndbygging og hóf-
leg notkun lita, sem saman gera
að verkum að heild myndefnisins
gengur ágætlega upp.
Fleiri verk á svo persónulegum
grunni hefðu án efa veitt þessari
sýningu þann styrk, sem upp á
vantar.
Eiríkur Þorláksson
*
I
í
>
>
>
I
)
>
)
\
)
)
)
)
)
)
)
)
>
)
)
>