Morgunblaðið - 18.05.1995, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENPAR GREINAR
Helgi Hálfdanarson
Konur og
karlar
Einhvers staðar hef ég séð því
haldið fram, að fimm af hveijum
hundrað karlmönnum gætu haft
gaman af að klæðast kvenmanns-
fötum. Þetta sel ég ekki dýrar
en ég keypti. Hitt er alkunna, að
eitthvert ámóta hlutfall karl-
manna býr yfir einhveiju af því
sem löngum hefur verið kallað
kveneðli. Flestir munu bæla það
með sér, ýmist af ástæðulausri
blygðun eða áf vonleysi að geta
notið þess.
Þó eru þeir til, sem viðurkenna
þessa náttúru sína opinskátt, ef
ekki af réttmætri hreinskilni, þá
ósjálfrátt. Þeir sækjast eftir ýms-
um störfum, sem fremur hafa
þótt hæfa konum, og tileinka sér
að meira eða minna leyti þá háttu,
sem hefðin hefur kallað kvenlega.
Víst er þessi hneigð misjafnlega
rík, allt frá því að gera lítillega
vart við sig á einhveiju tilteknu
sviði yfir í áleitna þörf örfárra
manna á algerum kynskiptum.
Um kvenfólk gegnir líku máli.
Viðlíka hundraðstala allrar kven-
þjóðar er haldin misríkum votti
af karleðli, og fer þeim konum
fækkandi eftir því sem þeirrar
náttúru gætir meir, svo að ein-
ungis mjög fáum líður beinlínis
illa af því að vera ekki karlmenn.
Nú er það ljóst, að konur eiga
mun óhægara um vik að sinna
karleðli sínu en karlar að njóta
sín á kjörnum vettvangi kvenna.
Þar strandar á barnsburðar- og
móðurhlutverki konunnar, sem
með engum ráðum verður af
henni létt. Sú tilhögun náttúrunn-
ar hefur frá upphafi vega valdið
því, að nauðsynjastörf í fjölskyldu
og þjóðfélagi hafa skipazt milli
kynjanna með þeim hætti sem
orðið hefur hefðbundinn. Konunni
hefur fallið í skaut að annast
börn og heimili og e.t.v. einhver
störf utan heimilis, sem eftir að-
stæðum geta sámrýmzt þeim
verkahring. Hins vegar hefur það
komið í hlut karla að annast frem-
ur þau störf, sem sízt mega trufþ-
ast af meðgöngu, barnsburði,
mylkingu og umhirðu ungbarna.
Sjálfkrafa koma þar til flest þau
viðfangsefni, sem fremur eru
bundin samfélagi en heimili. Síð-
an hefur það farið eftir aðstæð-
um, hversu mjög starfssvið karla
og kvenna hafa skarazt.
Þessari megin-verkaskiptingu
virðast bæði kyn löngum hafa
unað vel sem eðlilegri ráðstöfun
sjálfrar náttúrunnar. Enda vand-
séð, að undan þyrfti að kvarta,
ef ekki kæmi til sá ófögnuður, að
í krafti aflsmunar hefur karlkynið
löngum leitazt við að raska, sér
í hag, því jafnvægi sem þar er
undirstaða góðrar farsældar. Sá
yfirgangur hefur, sem kunnugt
er, birzt með ýmsu móti öld eftir
öld um alla veröld, og lítt látið
undan síga fyrr en baráttan fyrir
jafnrétti tók æ víðar að reynast
sigursæl.
En í kjölfar jafnréttisbaráttu
hefur leitað stefna, sem naumast
verður við annað kennd en öfgar.
Hún er fólgin í þeirri kröfu, að
eigi aðeins skuli sem flestar
starfsgreinar auðsóttar konum
jafnt sem körlum, heldur skuli
fjölda einstaklinga í starfsgrein
deilt sem næst að jöfnu milli kynj-
anna. Á íslandi hefur þessa sjón-
armiðs gætt þó nokkuð að undan-
förnu. Hin sérpólitísku kvenna-
samtök, Kvennalistinn, hafa lýst
það stefnu sína, að á Alþingi sitji
helzt ekki færri konur en karlar,
og það umfram allt í krafti þess
eins, að þær séu konur. Og í öðr-
um stjórnmálaflokkum eru einnig
uppi kröfur kvenna um sem mest-
an kvóta til allra embætta og
starfa konum til handa.
Nú mætti e.t.v. ætla, að sá
helmingur mannfólksins á ís-
landi, sem er kvenkyns, flykktist
fagnandi til fylgis við þessa bar-
áttu, enda í lófa lagið að hafa
þar flest ráð karla í hendi sér.
En viti menn! Þegar til kemur
virðist langmestur hluti kvenþjóð-
ar andvígur þvílíkum hagsbótum,
eða a.m.k. áhugalaus um þær
með öllu.
Hvað veldur? Svarið liggur í
augum uppi: Krafan gengur í
berhögg við sjálft eðli langflestra
kvenna. Hún er með talsverðu
fasi borin uppi af þeim litla
hundraðshluta kvenþjóðar sem
hlotið hefur í vöggugjöf ögn af
karleðli í bland við sína kvenlegu
náttúru.
Fylgi Kvennalistans virðist fara
þverrandi að sama skapi sem for-
ustan færir sig upp á skaftið í
kvótakröfunum. Konur þær í
Sjálfstæðisflokknum, sem þar láta
einna mest að sér kveða, lýsa sig
fokreiðar yfir því, að ríkisstjórn
undir forustu sjálfstæðismanna
skuli úr þeim flokki skipuð körlum
einum. Þó er ekki svo að sjá sem
konur almennt kjósi að hafa á
þeim málum aðra skipan. Sam-
kvæmt skoðanakönnun virðist
fýlgi kvenna að einhveiju leyti
hafa flutzt frá sjálfum Kvennalist-
anum yfir til Sjálfstæðisflokksins
eftir hina „ranglátu“ stjórnar-
myndun. Þess er og að minnast,
að karlar þeir, sem ferðinni ráða
í þeim flokki, eru til þess kjörnir
af flokksbundnu kvenfólki.
Það er sjálfsögð jafnrétti-
skrafa, að þær konur, sem tii
þess eru náttúraðar, fái að gegna
þingmennsku og ráðherradómi
og hveijum þeim störfum sem
löngum hafa talizt karlastörf, ef
þær eru til þess hæfar, og fórni
þá í staðinn að meira eða minna
leyti því hlutskipti konunnar, sem
kallað hefur verið allra starfa
virðulegast á jörðu hér.
Sé það ekki mjög fjarri lagi,
sem hér var vikið að í upphafi
um hlutföll karleðlis og kveneðlis
með konum og körlum, mætti
kannski vænta einnar konu eða
tveggja í tíu manna ríkisstjórn.
Þó að lítils háttar karleðli, sem
birtist í hneigð til starfa fjarri
börnum og búi, sé heilbrigt og
engri konu til vansa, svo ekki sé
minnzt á þá illu nauðsyn fjöl-
margra húsmæðra nú um sinn
að leggja á sig erfíði utan heimil-
is, hvernig sem á stendur, verður
krafan um jafnan fjöldakvóta
vart kölluð annað en óeðlileg
firra, öndverð líffræðilegum stað-
reyndum.
Því miður hefur óþarflega
karlnáttúrað og vígreift kvenfólk
leitazt við að niðra hefðbundnum
heimilis- og fjölskyldustörfum
kvenna, sem þó eru í hinu orðinu
réttilega kölluð hornsteinar
menningarþjóðfélags.
Það ætti að vera brýnasta
áhugamál kvenna, að hlúð sé að
þeim gróðurreit farsællar samfé-
lagsheildar, sem fjölskylda og
heimili geta verið og eiga að vera.
Þar þarf að koma til traust og
þjóðholl stjórn atvinnu- og félags-
mála, og sem bezt og fjölbreytt-
ust menntun kvenna. Og þess ber
að minnast, að þjóðfélagið er að
langmestum hluta skipað konum,
sem umfram allt eru konur, og
körlum, sem ekki eru annað en
karlmenn.
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 27
©IGoldStor
!!!
Þessi vandaba hljómtækjasamstæba, Goldstar 606
er meb Full Logic, Ultra Bass Booster o.m.fl.
Þnggja ljósráka geislaspilari me5 32 laga minni
130 W magnari me5 innb. forstilltum tónjafnara
Ultra Bass Booster, sem gefur enn meiri bassa
Tengi fyrir sjónvarp eöa myndbandstæki
Allar aögeröir birtast á fljótandi kristalsskjá
Kdukka og tímarofi
Útvarp meö FM, MW og LW-bylgjum
30 stööva minni
Tvöfalt Dolby kassettutæki meö snertitökkum
Sjálfvirkri spilun beggja hliöa og hraöupptöku
Fullkomin ^arstýring
Tveir vandaöir hátalarar meö loftun f/ bassa
Stærö: Br.: 27 cm, hæö: 40 cm, dýpt: 30 cm
Verðáðuru59í900,-kr.stgr.Ver6nÚ: " W —^ ^ sTgT
Þessi fullkomna hljómtækjasamstæba, Goldstar FFH-333
er hlabin tæknibúnabi - á góbu verbi!
• briggja ljósráka geislaspilari meb 32 laga minni
• 64 W magnari meö innb. forstilltum tónjafnara
• Ultra Bass Booster, sem gefur enn meiri bassa
• Fjarstýröur styrkstillir
■ • Tengi fyrir sjónvarp eða myndbandstæki
• Allar aðgerðir birtast á fljótandi kristalsskjá
• Klukka og tímarofi
• Útvarp meö FM, MW og LW-bylgjum 30
stööva minni
• Tvöfalt Dolby kassettutæki m.a. meö:
• Sjálfvirkri spilun beggja hliða og hraöupptöku
• Fullkomin fjarstýring
• Tveir vandaöir hátalarar meb loftun f/ bassa
• Stærö: Br.: 27 cm, hæö: 33,3 cm, dýpt: 43,7 cm
Verð áður:-49í900,- kr.stgr. Verð nú:
Þessi fróbæra hljómtækjasamstæba, Goldstar F-272L 3CD
er nú ú sérstöku tilbobi, ú meban birgbir endast!
stgr.
Verð áður:-44^00,- kr.stgr. Verð nú:
Þriggja diska geislaspilari meb 20 laga minni
32 W magnari meö innb. forstilltum tónjafnara
Tengi fyrir hljóbnema (Karaoke)
Tengi fyrir sjónvarp eöa myndbandstæki
Allar aðgerðir birtast á fljótandi kristalsskjá
Útvarp meö FM, MW og LW-bylgjum
20 stöðva minni
Tvöfalt kassettutæki m.a. meö:
Síspilun og hraöupptöku
Fuilkomin fjarstýring
Tveir vandaðir hátalarar með loftun f/ bassa
Stærö: Br.: 27 cm, hæö: 31 cm, dýpt: 33 cm
stgr.
Þessi skemmtilega hljómtækjasamstæba, Goldstar F-222L
er meb Karaoke-möguleika fyrir þú sem vilja syngja meb.
• Þriggja ljósráka geislaspilari með 20 laga minni
• 20 W magnari með innb. forstilltum tónjafnara
• Allar aðgeröir birtast á fljótandi kristalsskjá
• Útv'arp meö FM, MW og LW-bylgjum 20
stöðvaminni
• Tvöfalt kassettutæki með hraðupptöku
• Tengi fyrir hljóönema
• Fullkomin flarstýring
• Tveir vandaðir hátalarar með loftun f/ bassa
• Stærö: Br.: 28,5 cm, hæð: 31,5 cm, dýpt: 23,5 cm
Verð áður:36í900,- kr.stgr. Verð nú:
raðgreiðslur
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
ViSA
gaaaii
RAÐGREIÐSLUR
SeJ^
laJ'
TIL ALLT AÐ 24 MANAOA
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800