Morgunblaðið - 18.05.1995, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 47
Fundað um
græna ferða-
mennsku
NÁMSSTEFNA undir heitinu: Fram-
tíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu -
græn ferðamennska verður haldin í
Odda stofu 101, Háskóla íslands á
morgun, föstudag. Námsstefnan er
haldin í samvinnu við Goethe - Instit-
ut á íslandi og Endurmenntunar-
stofnun HÍ.
Meginviðfangsefni námsstefnunn-
ar er að kynnast hugmyndafræði
grænnar ferðamennsku og skoða
fyrirmyndir að framkvæmd hennar.
Erlendir gestafyrirlesarar eru
Herbert Hamele frá Ecotrans Assoc-
iation í Miinchen og Patricia Barnett
frá Tourism Concern í Bretlandi.
Námsstefnan er öilum opin og stend-
ur frá kl. 10-17. Upplýsingar og
skráning fer fram hjá Endurmennt-
unarstofnun.
-----♦ ♦ ♦-----
Boðið í Borgar-
kringluna
BOÐSKVÖLD fyrir viðskiptavini
Borgarkringlunnar verður í kvöld.
Allar verslanir hússins verða opnar
og ýmis sértilboð í gangi.
KK og Ellen flytja tónlist, boðið
verður upp á tískusýningu og ýmsir
listamenn koma í heimsókn. Betra líf
verður með skyggnilýsingu, Dem-
antahúsið með skartgripasýningu og
Whittard of London stofnar kaffi-
klúbb. 300 fyrstu gestimir fá rós og
50 fyrstu með hatt eða húfu fá gjafak-
örfu frá verslunum Borgarkringlunn-
ar. Húsið verður opnað kl. 20.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing:
Stjórn Útvegsmannafélags
Reykjavíkur kom í dag, 17. maí 1995,
á framfæri við þingmenn Reykjavík-
ur og sjávarútvegsráðherra, eftirfar-
andi athugasemdum vegna fyrirhug-
aðrar endurskoðunar á lögum um
stjórn fiskveiða samkvæmt svokall-
aðri „Verkefnaskrá sjávarútvegs-
ráðuneytisins", frá 20. apríl 1995:
I. Aflamark
Með lögum nr. 38/1990 var afla-
markskerfi komið á, eftir að val hafði
verið um sóknarmark og aflamark á
árunum 1984-1990. Óll fiskiskip
stærri en 10 rúmlestir fengu með
þessum lögum fasta aflahlutdeild í
úthlutuðum bolfiskkvóta. Allir bátar
6-10 rúmlestir voru einnig settir á
aflamark en bátar undir 6 rúmlestum
voru bundnir veiðileyfi (krókaleyfi),
en heiidaraflahlutdeild þeirra átti
ekki að verða hærri en hún var 1.
janúar 1991.
Fram til 1990 hafði minnkandi
kvóti, meðal annars vegna umfram-
afla sóknarmarksskipa, valdið því að
skipum yfír 10 rúmlestum voru sett-
ar sífellt meiri skorður í athafna-
frelsi sínu. Því ákváðu samtök út-
vegsmanna að styðja setningu þess-
ara laga ef það yrði til þess að
fryggja að afli yrði ekki meiri en
úthlutaður heildarkvóti og afla smá-
báta yrðu settar skorður.
Stjórnvöld sannfærðu útgerðar-
menn um að með þessum lögum yrði
aflamarkskerfið fest í sessi og fram-
vegis yrði veiðin í samræmi við út-
hlutun stjórnvalda, hvert skip fengi
ákveðna aflahlutdeild og þannig
gæti útgerðin með nokkurri vissu
skipulagt framtíð sína. Með tiltölu-
lega frjálsu framsali veiðiheimilda
var mögulegt fyrir útgerðir að sér-
hæfa sig, skipta á veiðiheimildum
eða kaupa og selja kvóta, allt eftir
því á hvern hátt einstaka útgerðir
sæju hag sínum best borgið. Með
þessu móti kæmi greinin sjálf á þeirri
hagkvæmni sem æskileg væri og án
afskipta stjórnvalda.
Bátar undir 10 rúmlestum
Með lögunum var fjölgun báta
Undir 10 rúmlestum stöðvuð, en þeim
hafði þá fjölgað um 900 á þessu
árabili í frjálsri sókn og án aflatak-
rnarkana. Hlutdeild þeirra í þorsk-
veiði átti ekki að verða hærri en hún
var í árslok 1989, enda hafði hún
FRÉTTIR
LÚÐRASVEITIN frá Skotlandi, Clydebank Citadel. Band, leikur á
hátíðarhöldum vegna 100 ára afmælis Hjálpræðishersins. Herráðs-
formaður Hjálpræðishersins, kommandör Earle Maxwell og eigin-
kona hans frú Wilma Maxwell kom einnig í heimsókn hingað til lands.
Hjálpræðisherinn á Islandi 100 ára
Næstæðsti yfirmaður
í heimsókn hér
HJÁLPRÆÐISHERINN á íslandi er
nú 100 ára en hann hóf starf sitt
hér á landi með útisamkomu á Lækj-
artorgi þann 12. maí 1895. í tilefni
af þessum áfanga efnir Hjálpræðis-
herinn til hátíðarhalda dagana
19.-21. maí. Gestir koma víða að,
meðal annars 36 manna lúðrasveit
frá Skotlandi, Clydebank Citadel
Band, og margir fyrrverandi deildar-
stjórar og aðrir foringjar og her-
menn.
Herráðsformaður (Chief of Staff)
Hjálpræðishersins, kommandör
Earle Maxwell og frú Wilma Max-
well verða aðalræðumenn hátíða-
aukist úr því að vera 5% 1984 í 13%
1989 af heildarþorskveiði vegna
fijálsræðisins á sama tíma og önnur
fiskiskip sættu takmörkunum. Við
úthlutun í byijun árs 1991, þegar
lögin tóku gildi, var samkvæmt yfir-
liti sjávarútvegsráðuneytisins hlut-
deild skipa stærri en 10 rúml. 85,92%
í þorski en báta undir 10 rúml.
14,08%.
Bátar undir 6 rúmlestum
í lögunum frá 1990 var skýrt
kveðið á um það að hver bátur undir
6 rúml. fengi kost á því að velja á
árunum 1991, 1992 og 1993 leyfi
til veiða með línu og handfæri
(krókaleyfi) með dagatakmörkunum
í stað aflahlutdeildar. Yrði hlutdeild
þeirra í heildarbotnfiskaflanum meiri
en 25% skyldu þeir fá aflahlutdeild
frá og með 1. sept. 1994. Bátar
undir 6 rúml. höfðu í árslok 1989
2,2% af heildarþorskaflanum og sam-
kvæmt lögunum átti að úthluta þeim
2,75% aflahlutdeild 1. sept. 1994 ef
þeir ykju meðalhlutdeild sína í þorski
um 25% á þessum árum.
Eftirfarandi tölur sýna þróun í
afla og hlutdeild báta undir 6 rúm-
lestum í úthlutuðum þorskkvóta und-
anfarin ár:
Þrátt fyrir þessa gífurlegu afla-
aukningu krókaleyfisbáta, sem öll
hefur komið sem skerðing á úthlut-
uðum kvóta til annarra skipa, var á
vorþingi 1994 lögunum nr. 38/1990
hins vegar breytt á þann veg að fall-
ið var frá því að setja báta minni en
6 rúml. undir aflamark 1. september
haldanna en einnig mun umdæmis-
stjóri fyrir ísland, kömmandor Edw-
ard Hannevik og frú Margaret
Hannevik koma hingað til lands.
Herráðsformaðurinn er frá Ástralíu
en hefur aðsetur í Lundúnarborg.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu Hjálp-
ræðishersins hér, að Herráðsformað-
ur kemur í heimsókn en hann er
næstæðsti leiðtogi Hjálpræðishersins
sem starfar í 100 löndum.
Lúðrasveitin frá Skotlandi, Clyde-
bank Citadel Band heldur tónleika á
Akureyri dagana 17. og 18. maí. Hún
tekur þátt hátíðarhöldum í Fíladelfíu
auk þess sem hún tekur þátt í tónleik-
1994 eins og lögin gerðu ráð fyrir.
I þess stað ákvað Alþingi að há-
marksafli báta undir 6 rúml. yrði
meðalafli þeirra fiskveiðiárin
1991/92 og 1992/93, eða 21.500
tonn eða 12,9% af úthlutuðum kvóta
1. september 1994. Með undanláts-
semi Alþingis við þessa grein útgerð-
arinnar hafa alþingismenn skert
hlutdeild annarra útgerða í þorskaf-
lanum um 10%.
Meiri kröfur krókabáta
Þóttekki sé liðið eitt ár frá þessum
breytingum og að enn haldi króka-
bátar áfram að auka hlut sinn hafa
stjórnvöld tekið undir frekari kröfur
þessara báta þar sem í „Verkefna-
skrá sjávarútvegsráðuneytisins" er
tekið fram að Lög um stjórn fisk-
veiða verði endurskoðuð. Meðal at-
riða í þeirri endurskoðun eru að:
„Til að tryggja stöðu þeirra sem
haft hafa lífsviðurvEéri af krókaveið-
um verður banndagakerfið tekið til
endurskoðunar og leitað annarra
ieiða við stjórnun en að fjölga bann-
dögum.“
Það má skilja af þessu orðalagi
að krókaveiðar upp á 34 þúsund tonn
í þorski á síðasta ári hjá krókabátum
hafi hingað til verið fyrst og fremst
stundaðar sem tómstundagaman, og
nú þurfi að tryggja þeim sem atvinnu
hafi af krókaveiðum rýmri sóknar-
möguleika þar sem þeir hafi orðið
undir í samkeppninni.
En málið er alvarlegra en það.
Ef stjórnvöld ætla enn eina ferðina
að auka hlutdeild þessara báta á
um á Ingólfstorgi og í Ráðhúsinu á
laugardaginn 20. maí síðdegis. Lúðra-
sveitin marsérar frá Herkastalanum
laugardaginn kl. 13.30 um miðbæinn
(Kirkjustræti, Lækjargata, Austur-
stræti að Ingólfstorgi) og útitónleik-
arnir heijást kl. 14.
Dagskrá hátíðarhaldanna er í stór-
um dráttum þessi: Föstudaginn 19.
maí kl. 20.30 söng- og hljómleika-
samkoma, Fíladelfíu, laugardag 20.
maí kl. 14 útitónleikar á Ingólfs-
torgi, kl. 16 tónleikar í Tjarnarsal
Ráðhússins, kl. 20.30 hátíðarsam-
koma í Fíladelfíu. Sunnudagur 21.
maí kl. 10.30 helgunarsamkoma í
Fíladelfíu, kl. 16 tónlistarsamkoma
fyrir alla fjölskylduna og kl. 20
Hjálpræðissamkoma í Fíladelfíu.
kostnað annarra í sömu atvinnu-
grein, mun slík mismunun auka
óvissu í sjávarútegi og draga úr allri
hagræðingu, stjórnvöld munu missa
stuðning annarra útgerða við kvóta-
kerfið og með því grafa undan eigin
markmiðum í fiskveiðistjórnuninni.
II. Endurnýjun fiskiskipa
Önnur atriði í „Verkefnaskrá sjáv-
arútvegsráðuneytisins" sem á að
endurskoða er meðal annars:
„Reglur um endurnýjun fiskiskipa
verði endurskoðaðar þannig að
tryggt verði að afkastageta fiski-
skipaflotans aukist ekki. Heimilað
verði að nýta skip sem úrelt hafa
verið til annarrar atvinnustarfsemi
en fiskveiða."
Stjórn _ Útvegsmannafélags
Reykjavíkur (ÚR) telur að núverandi
reglur um endurnýjun fiskiskipa séu
nægar, þ.e. að rúmlest komi á móti
rúmlest í endurnýjun sem almenn
regla en huga verði að því hvort
ekki megi hafa regluna rýmri í end-
urnýjun nótaskipa til möguleika á
sjókælingu aflans sem stóreykur
verðmæti hans hvort sem er til mann-
eldis eða mjölframleiðslu.
Stjórnin telur hins vegar að það
sé ekki hlutverk stjórnvalda að hafa
afskipti af rekstri eða fjárfestingum
útgerðarinnar í landinu, heldur setja
almennar reglur án mismununar um
úthlutun kvóta. Þannig geti hver
útgerð metið hvort eða hvernig hún
endurnýjar sín atvinnutæki. Núver-
andi reglur um fjármögnun fiskiskipa
hjá Fiskveiðasjóði Islands og það að
dagar pólitískrar fyrirgreiðslu við-
skiptabanka og Byggðastofnunar
ættu að vera liðnir, er að okkar
mati nægileg trygging fyrir því að
óeðlileg endurnýjun skipa eigi sér
stað.
III. Fiskverð
Stjórn ÚR telur yfirlýsingu um
fyrirhuguð afskipti stjórnvalda á
verðmyndun sjávarafla samkvæmt
„Verkefnaskrá sjávarútvegsráðu-
neytisins" bera vott um óeðlileg af-
skipti af frjálsu fiskverði og sé um
leið aftui'hvarf til miðstýrðrar fis-
kverðsákvörðunar sem tilheyri fortíð-
inni. Laun sjómanna ráðast ekki ein-
göngu af fiskverði heldur af ráðstöf-
un aflans, og ekki síður þeim kvóta
sem hvert skip aflar. Útilokað er að
afskipti stjórnvalda af fiskverðinu
einu saman geti ráðið eða jafnað
laun sjómanna í landinu.
Samtök
ungra
Evrópu-
sinna
FRAMHALDSSTOFNFUND-
UR Ungra Evrópusinna verður
á Sólon íslandus á fimmtudags-
kvöld kl. 20.30.
í fréttatiikynningu segir að
Ungir Evrópusinnar séu samtök
ungs fólks úr öllum flokkum
og óflokksbundinna ungmenna.
Samtökin eru aðili að samevr-
ópskum samtökum - JEF (Yo-
ung European Federalists) sem
telja 15.000 meðlimi í 25 lönd-
um víðsvegar um Evrópu.
Markmið samtakanna á al-
þjóðavettvangi er að auka sam-
vinnu meðal Evrópuríkja með
frið, frelsi, lýðræði og valddreif-
ingu að leiðarljósi.
Helsta markmið_ Ungra Evr-
ópusinna - JEF ísland er að
koma á vitrænni umræðu um
stöðu íslands meðal lýðræðis-
þjóða í Evrópu. Meðal mark-
miða samtakanna er að ísland
sæki um aðild að ESB hið
fyrsta.
Að lokinni kynningu á_Ung-
um evrópusinnum - JEF ísland
flytur Vilhjálmur Egilsson,
þingmaður framsögu. Þá verður
stefna samtakanna kynnt, drög
að lögum rædd og þau borin
upp til samþykktar, kosning í
embætti, pallborðsumræður um
Evrópusambandið: Vilhjálmur
Egilsson og Eiríkur Bergmann
Einarsson ræða hvort og þá
hvers vegna tímabært sé að
ísland sæki um aðild að ESB.
Fundarstjóri verður Sigurður
Pétursson.
Hundrað
ferðir hjá
Útivist
RÉTT tæglega 100 ferðir eru á
dagskrá Útivistar í sumar frá
byijun júní til ágústloka.
Fimmtudagskvöldið 18. maí
kynnir félagið ferðir sumarsins
og verður ferðakynningin á
skrifstofu félagsins að Hallveig-
arstíg 1 og hefst kl. 20.
í fréttatilkynningu segir
m.a.: „Ferðir félagsins skipast
í aðalatriðum í þrennt; dags-
ferðir, helgarferðir og sumar-
leyfisferðir.
í dagsferðum Útivistar er
farið í stuttar ferðir um suður-
og suðvesturland. Oftast er far-
ið á laugardögum eða sunnu-
dögum eða á öðrum frídögum.
Stundum er boðið upp á kvöld-
ferðir og þá oft á virkum dög-
um. Sérstök_ athygli er vakin á
Kjörgöngu Útivistar sem eink-
um er fyrir þá sem eru að byrja
að ferðast og fjallasyrpu Úti-
vistar en farið er á fjöll annan
hvern laugardag fram á haust.
í helgarferðir er ýmist farið
á föstudagskvöldi eða laugar-
dagsmorgni. Mestrar hylli njóta
ferðir í Bása í Goðalandi við
Þórsmörk. Meðal nýrra ferða
má nefna ferðir á Snæfellsjökul
og undir Jökul, í Breiðafjarða-
reyjar, ferðir á Fimmvörðuháls,
en yfir hálsinn, frá Skógum í
Goðalandi er um 10 klst. gang-
ur en Útivistarmenn gista þó
oftast í Fimmvörðuskála.
Sumarleyfisferðir eru alltaf
frá fjórum dögum upp í tíu
daga. í boði eru bakpokaferðir,
bækistöðvaferðir, rútuferðir,
um því sem næst allt landið,
segir i frétt Útivistar.
Yfirlýsing frá
Utvegsmannafé-
lagi Reykjavíkur
Ár Afli Hlutdeild í
(ósl.) þús.tonn útlil. kvóta
1989 8 2,2% (Nefnd um mótun sjávarútv.stefnu)
1990 15 3,9% -
1991 17 6,4% -
1992 22 10,7% -
1993 24 15,5% (útvegur)
1994 34 21,9%