Morgunblaðið - 20.06.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1995 5
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
JOHANNES bóndi á Torfalæk II heilsar upp á hrafnsungana í hreiðrinu á fjósgaflinum á Torfalæk.
Brutust inn á
tveimur stöðum
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
BROTIST var inn í sútunarverk-
smiðju Loðskinns á Sauðárkróki að-
faranótt sl. sunnudags. Innbrotsþjóf-
arnir höfðu áður farið inn í sjúkra-
húsið og stolið þaðan matvælum og
stolið bíl frá Króksverki hf.
Lögregla fór að verksmiðjunni
aðfaranótt sunnudags eftir að grun-
samlegra mannaferða hafði orðið þar
vart. Þar var fyrir par sem hafði
nánast lokið við að hlaða þýfi í stol-
inn bíl.
Þaðan virðist leiðin hafa legið til
verksmiðju Loðskinns en þar brutust
þau inn og tóku peningaskáp fyrir-
tækisins sem þau fluttu með lyftara
á verkstæði verksmiðjunnar og skáru
þar úr honum bakhliðina og létu
greipar sópa um skjöl fyrirtækisins.
Þá var komin í bílinn tölva ásamt
fylgihlutum og einnig mikið magn
af sútuðu roði og skinnum ásamt
mokkaflíkum og ýmsu fleiru.
Ljóst er að hér var á ferð vant
ifólk og fundust í fórum þess hlutir
sem benda til að hér hafi ekki verið
fyrsta ferð farin. Innbrotin teljast
upplýst og hefur fólkinu verið sleppt.
Hrafnshreið-
ur á fjósgafli
Blönduósi. Morgunblaðid.
VENJULEGAST velur hrafninn
sér hreiðurstæði á stöðum sem
lítt eru aðgengilegir mönnum,
en bæjarhrafnarnir á Torfalæk
í Húnaþingi brugðu þó út af
þeirri venju og gerðu sér laup á
suðurgafli gamla fjóssins á
Torfalæk. I laupnum voru tveir
ungar sem eru að verða fleygir.
Jóhannes bóndi Torfason sagði
tvo hrafna ávallt hafa helgað sér
Torfalæk í gegnum tíðina en
aldrei hefðu þeir orpið nálægt
húsum áður.
Gj'aldeyrir afgreiddur alla daga hj*á
Upplýsingamiðstöð ferðamála
Bankar telja þjón-
ustuna ekki
svara kostnaði
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ ferða-
mála hefur opnað gjaldeyrisskipti-
stöð í Bankastræti 2 í samvinnu
við breska fyrirtækið Change Group
International, þar sem viðskipti með
gjaldeyri fara fram til kl. 20 alla
daga vikunnar.
Morguftblaðið innti Brynjólf
Helgason, aðstoðarbankastjóra í
Landsbankanum, eftir því hvort það
hefði komið til tals í bankanum að
veita gjaldeyrisþjónustu utan venju-
legs afgreiðslutíma. „Fyrir nokkr-
um árum opnuðum við afgreiðslu á
Hótel Loftleiðum þar sem gjaldeyr-
ir var afgreiddur után venjulegs
opnunartima, en það reyndist ekki
vera eins mikil eftirspurn eftir þess-
ari þjónustu og við höfðum búist
við,“ segir Brynjólfur.
Hann segir að fyrir þremur árum
hafi bankinn haft gjaldeyrisaf-
greiðslu í Geysishúsinu í eitt sumar
og það hafi einfaldlega ekki verið
nóg að gera.
„Við erum auk þess með af-
greiðslu í Leifsstöð sem hefur verið
opin í samræmi við komu- og brottf-
arartíma flugvéla og jafnvel höfum
við sinnt gjaldeyrisþjónustu við
skemmtiferðarskip. Tilraunir sem
við höfum gert í þessa veru hafa
ekki sýnt fram á að eftirspurnin
væri næg til að réttlæta kostnaðinn
sem aukin gjaldeyrisþjónusta hefði
í för með sér,“ segir Brynjólfur.
Samkeppnin af hinu góða
Sigurveig Jónsdóttir upplýsinga-
fulltrúi íslandsbanka segir að það
hafi vitaskuld verið rætt í bankanum
að veita gjaldeyrisþjónustu utan
venjulegs afgreiðslutíma. Það hafi
hins vegar ekki þótt hagkvæmt, því
það hefði í för með sér gífurlegar
skipulagsbreytingar og í raun væri
aðeins þörf á aukinni þjónustu hluta
úr ári. „Okkur fínnst samkeppnin
aðeins af hinu góða og við veitum
þessu nýja fyrirtæki alla þá þjón-
ustu sem það þarf.“
Gjaldeyrisskiptistöðin tekur 2,7%
þóknun fyrir sölu gjaldeyris virka
daga, en um helgar bætast við 2%
vegna launakostnaðar. Til saman-
burðar má geta þess að í Lands-
bankanum kostar 100 kr að kaupa
gjaldeyri í seðlum, fimm ferðatékkar
kosta 140 kr og hver ferðatékki
umfram fyrstu fimm kostar 33 kr.
í íslandsbanka kostar 200 kr að
kaupa gjaldeyri í seðlum, fyrir
ferðatékka er tekin 0,5% þóknun
auk 350 kr. í útlagðan kostnað. í
báðum bönkunum er auk þess reikn-
að sérstakt gengi fyrir seðla, en það
kemur til af því að dýrt er að liggja
með birgðir af seðlum i geymslu.
lugavegi !70-V^,sfmi 569 5500
VOLfcCSWAGEN GOLF
EG OMOTSTÆÐILEGU