Morgunblaðið - 18.08.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995 25
I
I
I
>
I
>
>
>
>
>
>
>
>
>
I
>
>
>
helgina að unglingarnir okkar hafi
enn einu sinni sýnt sína góðu eigin-
leika. Upp til hópa eru krakkarnir
myndarlegir, vel innrættir, opnir,
heiðarlegir og skemmtilegir. Til
lasts viljum við þó segja að þau eru
löt að ganga og þau ætlast til að
fá ókeypis heilbrigðisþjónustu! Þeir
gallar eru uppeldislegir og ætti að
vera auðvelt að laga. Kynslóðin er
alin upp á cheerios og örbylgju-
poppi og þau eru vön að láta aka
sér um eins og greifum til ýmiss
konar tómstundaiðkana. Við viljum
gjarnan sjá þá hugarfarsbreytingu
hjá unga fólkinu að jafnsjálfsagt
sé að greiða fyrir heilbrigðisþjón-
ustu, rétt eins og menn greiða fyr-
ir pylsu, gos og teygjuhopp. Það
er óneitanlega sérkennilegt að fólk
skuli vera tilbúið að borga 4.500
krónur fyrir að hoppa úr tuttugu
metra hæð með teygju bundna við
fótleggina, en vilja ekki greiða 15
krónur fyrir verkjatöfiu við höfuð-
verknum sem hlýst af stökkinu.
Útihátíð eða ekki?
Við höfum endurtekið heyrt það
viðhorf að skipulagðar útihátíðir
af þessu tagi eigi ekki rétt á sér.
Þar sé unglingum safnað saman
til margra sólarhringa drykkju með
öllum þeim vandamálum sem slíkt
hefur í för með sér. Hins vegar
má benda á, að ef engar útihátíðir
væru skipulagðar, myndu ungling-
arnir samt sem áður safnast saman
og sukka. Þá væru þau án þess
eftirlits, aðhlynningar og öryggis
sem þau búa við á vel skipulagðri
hátíð.
Niðurlag
Eftir reynslu okkar þessa helgi
þykir okkur miður að eiturlyfjasal-
ar skuli komast upp með að reyna
að fá unga fólkið til að ánetjast
eiturlyfjum. Slíka skemmdarverka-
starfsemi ber að stöðva með öllum
tiltækum ráðum. Fólkið sem á að
erfa landið er glæsilegur hópur sem
hefur alla burði til að bægja þeirri
óværu frá sér, sem eiturlyijasalar
eru. Fjársjóður íslands er æsku-
fólkið og um þann fjársjóð þarf að
standa vörð. Þá mun þjóðinni vel
farnast.
Haukur er heilsugæslulæknir á
Kirkjubæjarklaustri, Matthildur
er bjúkrunarforstjóri heilsugæslu-
stöðvarinnar & Kirkjubæjar-
klaustri.
komi okkur ekki við en samviska
okkar og ábyrgðartilfinning segir
okkur annað og auðvitað er ýmis-
legt hægt að gera. Mörg frjáls fé-
lagasamtök hér á landi, þar á með-
al Barnaheill, eru tengd alþjóða-
samtökum sem nefnast á ensku
Save the Children International.
Opin lýðræðisleg umræða, stuðn-
ingur yfirvalda og hins almenna
borgara við samtök sem láta sig
mannréttindi barna varða skilar sér
og verður, í samfélagi þjóðanna,
hluti af alþjóðlegri umræðu um
velferð og mannréttindi barna. Þar
höfum við íslendingar margt fram
að færa til jafns við aðrar þjóðir.
Því skulum við heldur ekki gleyma,
þótt okkur finnist margt mega bet-
ur fara hér heima, að við erum hluti
af hinum vestræna heimi sem er
ríkur miðað við flesta aðra heims-
hluta. Víst erum við íslendingar
smáþjóð en höfum hugfast að: Eng-
inn getur hjálpað öllum en allir
geta hjálpað einhveijum.
Of mikil fólksfjölgun í heiminum
er vandamál okkar allra. Einbirnis-
stefna kínverskra yfirvalda er við-
urkenning á þeirri bláköldu stað-
reynd að kínverska þjóðin getur
ekki brauðfætt börn sín í framtíð-
inni nema með takmörkun fæðinga.
Það er hins vegar framkvæmd ein-
birnisstefnunnar og neikvæðar af-
leiðingar hennar sem er gagnrýnis-
verð og brýtur gegn mannréttindum
mæðra og barna, sérstaklega
stúlkubarna. Vonandi sjáum við
fljótt breytingar á högum þeirra í
Kína.
Siðleysi eða van-
hæfni borgarstjóra
ÁSTÆÐAN fyrir
þessum skrifum er sú,
að Reykjavíkurborg
lagði nýju fyrirtæki í
Rvk. til húsnæði í gömlu
loðnubræðslunni að
Kletti, í júní 1993. Fyr-
irtækið (Vikur h/f) ætl-
aði að gera tilraun í
umræddu húsnæði til
að þurrka vikur til út-
flutnings, og í Ijósi þess,
þá fékk Vikur h/f fyrsu
6 mánuðina án leigu-
gjalds, næstu 6 mánuði
á háfri leigu, en síðan
skyldi borga fulla leigu.
Reyndin hefur orðið sú
að Vikur h/f hefur nán-
ast enga leigu borgað, líklega um
500.000 kr. eða sem nemur eins
mánaðar leigu. Húsaleiguskuldin er
því núna Kr. 7.875.000 mínus þessar
500.000 kr. sem greiddar voru, eða
Kr. 7.375.000. Til við-
bótar þessu lagði Afl-
vaki Reykjavíkur Vikri
h/f til Kr. 4.000.000 til
verkefnisins. Samtals
hefur því Reykjavíkur-
borg lagt til Kr.
11.375.000. Hefði hins-
vegar verið greidd full
húsaleiga allan tímann,
væri skuldin í dag Kr.
15.312.500.
Þar sem tilraunin bar
ekki árangur fór Vikur
h/f fljótlega út í fram-
leiðslu á samkeppnis-
vöru á innanlandsmark-
aði, eða nánar tiltekið,
sandblásturssandi, sem
Fínpússning s/f hefur framleitt í 25
ár, ásamt fleiri smærri aðilum, sem
yfirleitt framleiða aðeins til eigin
nota.
Eftir að Fínpússning s/f hafði ít-
Baldur Hannesson.
Þarf imdirritaður for-
stjóri kannski að fara í
kynskiptiaðgerð, spyr
Baldur Hannesson,
til að fá réttlætinu
fullnægt.
rekað kvartað við Borgarráð Reykja-
víkur um að þarna væri um gróft
brot á samkeppnislögum að ræða,
þá samþykkti Borgarráð að segja upp
leigusamningnum við Vikur h/f,
þann 22. nóvember 1994.
Borgarstjóri tók hinsvegar fram
fyrir hendur Borgarráðs og fram-
lengdi samninginn um 4 mánuði, eða
ca. fram til marsloka 1995, en Vikur
h/f er enn í umræddu húsnæði rúm-
um 4 mánuðum eftir að framlenging-
arsamningnum lauk.
Fínpússning s/f hefur á sama tíma
tapað miklum viðskiptum til Vikurs
h/f, því ekki er hægt að keppa við
fyrirtæki, sem fá stóran hluta af sín-
um rekstrarkostnaði greiddan af op-
inberum aðila, og orðið þannig fyrir
miklu fjárhagslegu tjóni.
Nú spyr ég undirritaður borgar-
stjóra, hvenær lauk samningnum,
eða var hann kannski framlengdur
enn frekar, og ef ekki, hvers vegna
er þá ekki búið að rýma húsnæðið?'
Eg spyr einnig borgarstjóra hvort
einhver annarleg sjónarmið ráði ferð-
inni í þessu máli, til dæmis, að það
ráði úrslitum að það er kona, sem
er framkvæmdastjóri Vikurs h/f, eða
er bara um að kenna vanhæfni og
algjörum þekkingarskorti borgar-
stjóra á atvinnulífinu, sem mér virð-
ist betri kosturinn að fela sig bak
við, í því algjöra siðleysi, sem borgar-
stjóri hefur sýnt í þessu máli?
Og enn spyr ég: Er borgarstjóri
tilbúinn til að bæta Fínpússningu s/f
þann fjárhagslegan skaða sem fyrir-
tækið hefur orðið fyrir, til dæmis
með því að borga húsaleigu fyrir
Fínpússningu s/f umrætt tímabil,
eins og samkeppnisaðilinn hefur
fengið, eða þarf ég undirritaður
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
kannski að fara í kynskiptiaðgerð til
að fá réttlætinu fullnægt, og verða
þannig samkeppnisfær við Vikur h/f?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Fínpússningar sf.
18. agust
afmæli ^
Reykjavíkurborgar
Yelkomin
í miðborgina!
Vitatorg, bflahús með innkeyrslu frá Vitastíg og Skúlagötu.
Njótið lífsins
- notið húsin
• Vegna hátíðarhalda á afmælisdegi Reykjavíkur föstudaginn 18. ágúst, verður lokað
fyrir bflaumferð urn Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og neðsta hluta Skólavörðustígs
frákl. 13:00 - 18:00.
• Fjölbreytt skemmtidagskrá mun setja svip sinn á miðborgina og ennfremur verða
útimarkaðir ef veður leyfir. Kjörið tækifæri fyrir fjölskylduna að njóta lífsins í lifandi borg.
• Á meðan þið röltið um miðborgina er tilvalið að geyma bflinn í einhverju af hinum
sex glæsilegu bílahúsum borgarinnar. Þar þarf aldrei að hafa áhyggjur af því
að tíminn renni út, þú borgar aðeins lyrir notaðan tíma.
• Upphfið mannhf og menningu í miðborginni og kynnið ykkur kosti bílahúsanna í leiðinni.
BILASTÆÐASJOÐUR
Bílastœöi fyrir alla
Höfundur er framkvæmdastjóri
Barnaheilla.