Morgunblaðið - 18.08.1995, Síða 52

Morgunblaðið - 18.08.1995, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBl@CENTRVM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK , 1 tVJ Morgunblaðið/Golli , Kýlaveiki í fiskeldi kallar strax á förgun GÍSLI Jónsson fisksjúkdómalæknir segir að leggja verði alla áherslu á að einangra Elliðaárnar og koma í veg fyrir að kýlaveikin, sem nýlega fannst í laxi í ánum, berist í aðrar ár og fiskeldi. „Eg hef mestar áhyggjur af því að kýlaveikin berist í háfbeitar- stöðvar. Við fylgjumst mjög vel með öllu sem gerist í stöðvunum. Eftir- lit hefur verið hert í stærstu hafbeit- ^arstöðinni í Hraunsfirði. Við rækt- um sýni úr öllum grunsamlegum laxi og við höfum ekkert fundið enn. Stöðin uppi í Kollafirði er á nánast sama vatnasvæði og Elliða- árnar og þar fylgjumst við vel með öllu. Þar var á miðvikudag slátrað fleiri hundruð löxum, en ekkert grunsamlegt fannst.“ Mætti líkja við svarta dauða Gísli sagði að lögð væri mikil áhersla á að fólk sem starfaði við slátrun fiska í hafbeitarstöðvunum færi ekki inn í seiðaeldishús. Sömu starfsmenn mættu ekki starfa við slátrun fiska og fóðrun seiða. Einn- ig þyrfti að fylgjast vel með klaki í seiðaeldisstöðvunum í haust. Hann sagði mikilvægt að menn héldu rósemi þrátt fyrir þessar slæmu fréttir úr Elliðaánum. Það væri slæmt að sjúkdómurinn væri kominn í ána, en miklu verra væri þó ef hann kæmi upp í hafbeitar- stöð eða fiskeldisstöð. „Að fá kýlaveiki í fiskeldi má líkja við svarta dauða. Ef við fengjum þennan alvarlega sjúkdóm í ein- hverja eina stöð núna á ég von á að yfirvöld myndu fyrirskipa alls- heijar förgun." ■ Fisksjúkdómalæknir óttast/27 Morgunblaðið/Árni Sæberg SIGURÐUR Björnsson veiddi vel í Elliðaánum í gær, en tveir fremstu fiskarnir reynd- ust sýktir af kýlaveiki. Títupijónn tekinn úr maga smá- bams með segulstáli SEGULSTÁL var notað til að ná títuprjóni upp úr 10 mánaða gam- alli telpu, Guðnýju Ljósbrá Hreinsdóttur, á speglunardeild Borgarspítalans nýlega. Aðgerðin tók aðeins fimmtán mínútur. Kyngdi títuprjóninum Amma telpunnar, Guðný Hálf- danardóttir, var að gæta hennar er óhappið varð. Hún segir að Guðný litla hafi verið að leika sér í leikgrindinni sinni. „ Aldrei þessu vant var ég að horfa á hana. Eg sé svo allt í einu að hún er að japla á einhverju og er með títu- prjón þversum í munninum. Mér brá auðvitað og reyndi að ná hon- um út úr henni. Hún vildi hins vegar ekki gefa eftir og kyngdi títuprjóninum áður en mér tókst að ná honum,“ segir Guðný. Hún segir að maðurinn sinn hafi verið heima og þau hjónin hefðu strax þust með Guðnýju litlu á slysavarðstofuna. Á Borgarspítalanum tókst Ás- geiri Theodórs, sérfræðingi í meltingarsjúkdómum, að ná títu- prjóninum úr maga telpunnar. Hann þræddi segulstál í gegnum speglunartæki niður í maga barnsins. Eftir að segulstálið hafði gripið títupijónshausinn var prjónninn dreginn út í gegnum speglunartækið. A myndinni eru frá vinstri nöfnurnar Guðný Hálfdanardóttir og Guðný Ljósbrá Hreinsdóttir sonardóttir hennar, Linda Þóris- dóttir hjúkrunarfræðingur, Ás- geir Theodórs sérfræðingur og Ingunn Stefánsdóttir hjúkrunar- fræðingur. Við fætur Guðnýjar yngri liggur speglunartækið. ■ Títupijónn tekinn/6 Morgunblaðið/Sverrir Ævintýraþrá „FERÐIN með Óðni í Smuguna leggst vel í mig og ég hef aldr- ei verið sjóveikur svo það ætti ekki að setja strik í reikning- inn,“ sagði Sigurpáll Scheving, læknir, sem í gær var að leggja lokahönd á undirbúning fyrir ferð varðskipsins í Smuguna. Sigurpáll segir að eiginkon- an, Hildur Jakobína Gísladótt- ir, hafi fullan skilning á þátt- töku hans í ferð varðskipsins, enda viti hún að bráðalækning- ar séu helsta áhugamál hans, auk þess sem hann sé haldinn dálítilli ævintýraþrá. Hins veg- ar sé hún kannski ekki hrifin af tiltækinu. Á myndinni eru Sigurpáll til hægri og Sigurður Ásgeir Kristjánsson læknir sem fór með Öðni í Smuguna í fyrra. ■ Sömu störf/16 Landbúnaðarráðuneyti úthlutar tollkvótum á ostum Aðeins tegundir sem ekki eru unnar hér LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ úthlutaði í gær ostatollkvótum sem auglýstir voru til umsóknar 28. júlí sl. Úmsóknir bárust frá 11 fyrir- tækjum um samtals 78.550 kíló, en til úthlutunar voru 18.000 kíló. Úthlutað var 19.000 kítóa tollkvóta á osti sem ekki er framleiddur hér á landi, en þau 1.000 kíló sem umfram eru koma af tollkvóta fyrir nóvember og desember. Af osti sem ekki er framleiddur hér á landi var sótt um 19.000 kíló, þar af 10.100 kíló til iðnaðar; og um 59.550 kíló af öðrum osti. Úthlutun tollkvótannna er gerð samkvæmt samningi íslands um lágmarksinnflutning á búvörum, en í fréttatilkynningu landbúnaðar- ráðuneytisins kemur fram að hún hafi að öllu leyti farið fram eftir tillögum ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara, sem er skipuð fulltrúum landbúnaðar-, fjármála- og viðskiptaráðuneytis- ins. Ekki fengust upplýsingar um það í gærkvöldi 'nvaða fyrirtækjum var úthlutað tollkvótum þar sem þeim hafði þá ekki verið tilkynnt um niðurstöðu ráðuneytisins. Meðal umsækjenda um innflutn- ingskvóta á ostum var Hagkaup, en með umsókn fyrirtækisins fylgdu lögfræðilegar athugasemdir við reglugerð Guðmundar Bjarnasonar landbúnaðarráðherra um innflutn- ing á ostum og fleiri vörum. Áskildi Hagkaup sér allan rétt til að fá málsmeðferð ráðuneytisins ógilta, yrði úrskurðað eftir 4. grein reglu- gerðarinnar, sem kveður á um að iðnaðarostar og ostategundir, sem ekki eru framleiddar á Islandi, skuli njóta forgangs við úthlutun toll- kvóta. Telur Hagkaup að þessar reglur eigi sér enga lagastoð. Reglugerðin stendur óbreytt Guðmundur Bjarnason landbún- aðarráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að túlkun Hagkaups væri ekki í samræmi við túlkun lögfræðinga sem unnið hefðu að málinu hjá ráðuneytinu. „Út af fyrir sig er ekkert annað um þetta að segja á þessu stigi. Þetta er bara samkvæmt tillögu þessarar nefndar sem hefur með undirbúning málanna að gera sam- kvæmt lögunum. í henni eiga sæti fulltrúar þessara þriggja ráðuneyta og þeir hafa farið yfír málið aftur eftir að þessi athugasemd barst, en niðurstaðan var sú að láta reglu- gerðina standa óbreytta og úthluta samkvæmt henni,“ sagði ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.