Morgunblaðið - 12.09.1995, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
í réttunum
Blönduósi. Morgunblaðið.
Réttað var í Auðkúlurétt í Austur-
Húnavatnssýslu á laugardaginn.
Töluverður fjöldi fjár og mikill
fjöldi fólks var í réttum í einmuna
veðurblíðu. Féð, sem réttað er í
Auðkúlurétt, gengur á Auðkúlu-
heiði og er að mestu í eigu bænda
í Svínavatns- og Torfalækjar-
hreppum. Gangnamenn fengu
mjög gott veður í göngunum og
allt gekk áfallalaust fyrir sig. Með
gangnamönnum voru sjónvarps-
menn frá Wales og nokkur hópur
erlendra ferðamanna og létu þeir
vel af sér í göngunum. Göngum
og réttum var frestað bæði á
Eyvindarstaðaheiði og Gríms-
tunguheiði um eina viku þannig
að Stafns- og Undirfellsréttir
verða um næstu helgi.
Fijáls verslun
Björk orðin rík
AÐ MATI tímaritsins
Frjálsrar verslunar hefur
Björk Guðmundsdóttir
söngkona hagnast um yfir
einn milljarð króna á sölu
hljómplatna sinna, Debut
og Post. Tímaritið telur
að haldist frægðarsól
hennar áfram að skína,
eins og allt bendi til að
hún geri, skiþi hún sér
brátt á fremsta bekk á
meða! ríkra íslendinga.
Að mati .Frjálsrar versl-
unnar er veltan í kringum
plöturnar tvær um 4,8
milljarðar íslenskra króna. Blaðið
segir að Björk sjálf fái 15% af veltu
{ sinn hlut eða um 720
milljónir. Til viðbótar fái
hún um 288 milljónir í
höfundarlaun. Þá hafi hún
tekjur af spilun tónlistar
sinnar í útvarpi og sjón-
varpi, hún hafi selt öðrum
tónlistarmönnum lög eftir
sig, lög eftir hana hafi
verið notuð í kvikmyndir,
hljómleikaferðir hafi skilað
henni tekjum og hún hafí
haft tekjur af sölu á ýmiss
konar öðrum varningi.
Hagnaður Bjarkar sé því
ekki undir einum milljarði
króna. Frá þeirri upphæð dragist síð-
an dágóð útgjöld til ýmissa þjónustu-
Björk
Guðmundsdóttir
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Karlanefnd
Jafnréttisráðs
Átak gegn
ofbeldi
karla
KARLANEFND Jafnréttisráðs
gengst fyrir átaki undir kjörorðinu
Karlar gegn ofbeldi dagana 13. til
20. september næstkomandi. Meðal
annars hefur nefndin boðið Göran
Wimmerström frá Svíþjóð til lands-
ins, en harin hefur náð góðum ár-
angri í að fá karla til að hætta að
beita ofbeldi.
Að sögn Ingólfs Gíslasonar hjá
Jafnréttisráði hefst átakið með form-
legri opnun í Ráðhúsinu miðvikudag-
inn 13. september kl. 17. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri mun
ávarpa samkomuna og sýndur verður
afrakstur samkeppni íslenskra teikn-
ara um gerð veggspjalda með kjör-
orði átaksins. Ingólfur sagði að
karlanefnd Jafnréttisráðs hafi haft
forgöngu um að taka saman
kennslubækling, sem kynntur verður
í Ráðhúsinu. Bæklingurinn heitir
Ofbeldi og hefur félags- og sálfræði-
kennurum í framhaldsskólum verið
boðið að fá hann til að nýta í kennslu.
Fræðsla um
föðurhlutverk
í Ráðhúsinu mun Göran Wim-
merström ávarpa gesti en hann mun
dvelja hér þá daga sem átakið stend-
ur og koma á fundi þar sem ljallað
verður um ofbeldi auk þess sem hann
veitir fræðslu um föðurhlutverkið.
Hann mun halda fundi með Jafnrétt-
isnefnd Reykjavíkur, formönnum
nefnda og forstöðumönnum stofnana
borgarinnar, og ræða um feður sem
starfsmenn. Hann mun einnig halda
fund með starfsmönnum mennta-
málaráðuneytisins um hvemig skóla-
kerfið geti sinnt fræðslu um hlutverk
feðra og stuðlað að fyrirbyggjandi
starfí gegn ofbeldi. Auk þess mun
hann koma við á Borgarspítalanum
og ræða við starfsfólk slysadeildar
og neyðarmóttöku um ofbeldiskarla.
Þá ræðir Göran við starfsfólk Trygg-
ingastofnunar um feður og fæðingar-
orlof og loks mun hann halda lokað-
an fund með starfsmönnum Stíga-
móta, Kvennaathvarfsins, neyðarm-
óttöku, lögreglu og félagsmálastjór-
um.
Vaktþjónusta barnalækna
Agreiningnum
vísað til Lækna-
félagsins og TR
V AKTÞJ ÓNU STA. barnalækna, sem
fyrirhugað er að hefji starfsemi sína
í byijun október, er { samráði við
Tryggingastofnun ríkisins og sam-
kvæmt samningunum milli sérfræð-
inga og ríkisins, að sögn Ólafs Gísla
Jónssonar en hann er einn þeirra sjö
til átta barnalækna sem ætla að
skiptast á að manna vaktirnar.
Bætum þjónustuna
„Við teljum okkur vera að bjóða
fólki upp á bætta þjónustu," segir
Ólafur Gísli. Að hans sögn tekur
ríkið engan þátt í stofnkostnaði eða
öðrum kosnaði við starfsemina fyrir
utan venjubundna þátttöku þess í
lækniskostnaði sjúklinga og taxti
þjónustunnar verður sá sami og á
daginn. Hann segir að þarna verði
eingöngu stundaðar barnalækning-
ar og ekki farið inn á starfssvið
heimiiislækna á nokkra lund. Ein-
göngu sé verið að lengja þann tíma
sem fólk eigi kost á þjónustu barna-
lækna.
Kristján Guðmundsson, sem sæti
á í stjórn Sérfræðingafélagsins, seg-
ir að barnalæknamir hafí haft sam-
band við Tryggingastofnun strax í
vor og engar athugasemdir verið
gerðar við fyrirætlanir þeirra þar á
bæ. Þar á ofan sé í rauninni verið
að færa til þessa þjónustu þar sem
henni hafi áður verið sinnt á barna-
deild Landakotsspítala. Nú sé búið
að flytja bamadeildina yfir á Borgar-
spítalann og þar sé ekki gert ráð
fyrir henni.
Sigurbjöm Sveinsson, formaður
Félags íslenskra heimilislækna, vill
ekki tjá sig um málið að öðru leyti
en að ágreiningi heimilislækna og
barnalæknanna hafi verið vísað til
Læknafélags íslands og Trygginga-
stofnunar.
Samkvæmt upplýsingum frá Þóri
Haraldssyni, aðstoðarmanni Ingi-
bjargar Pálmadóttur heilbrigðisráð-
herra, hefur erindi stjórnar Lækna-
vaktarinnar sf., þar sem vaktþjón-
ustu barnalæknanna er harðlega
mótmælt, ekki borist ráðherra enn
sem komið er.
Saga Jesú prentuð í Rússlandi
í GAMALLI prentsmiðju í Minsk
í Rússlandi þar sem áður voru
prentuð áróðursrit rússneska
kommúnistafiokksins ásamt and-
kristilegum áróðri voru í sumar
prentuð 79 þúsund eintök af Bók
lífsins, sögu Jesú Krists, á ís-
lensku. Bandaríkjamenn eiga
prentsmiðjuna í dag.
Þessa bók fá íslensk skólaböm
gefins og verður henni dreift í
skólana á næstu vikum. Um sjötíu
bandarískir sjálfboðaliðar koma
til íslands gagngerttil að dreifa
bókinni ásamt fjölmörgum ís-
ienskum aðilum en öll kristileg
félög á landinu standa að dreif-
ingu bókarinnar. Mike Fitzgerald,
kristniboði hjá Fíladelfíusöfnuðin-
um og framkvæmdastjóri Lindar-
innar, sagði að bókin hefði verið
gefin út í 500 milljón eintökum í
32 löndum og að Island væri fyrsta
landið þar sem lokið verður við
að dreifa henni til allra skóla-
barna. Fyrstu bækurnar verða
afhentar i Vestmannaeyjum á mið-
vikudag. I Reylg'avík hefst dreif-
ing um 27. september. Bandariska
fyrirtækið, Life Publishers í De-
erfield í Flórída, greiðir allan
kostnað við þýðingu, vinnslu,
prentun og flutning bókarinnar
til landsins. Heildarkostnaður við
verkefnið er áætlaður um 300
milljón dollarar.