Morgunblaðið - 12.09.1995, Page 20

Morgunblaðið - 12.09.1995, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ r ÁRSTÍÐASKIPTI GAMAN hjá flugunum á góðum sumardegi. SUMARIÐ er liðið og eins og venjulega voru þær sviptingar í veðurfari að sums staðar urðu menn þess vart varir að úti væri sumar. Eitt af því sem fylgir sumarlokum er að náttúran hljóðnar mjög. Út um mýrar, móa og haga, við víkur og voga, allt verður svo undarlega hljótt. Það skyldi engan undra, því milljónir radda þagna. Farfugl- arnir vita hvað klukkan slær, flýja land, og senn verður landið hulið snjó og ís á nýjan leik. Eft- ir situr mannskepnan með skepn- ur sínar. Fáeinar fuglategundir sitja einnig sem fastast eftir, en lífsbaráttan harðnar sem aldrei fyrr er vetur konungur tekur völdin og eftirlegukindurnar megna ekki að viðhalda hinum margradda kór sumarsins. Það er ekki tekið út með sæld- inni að búa við umhleypinga og dynti íslenskrar náttúru. Fyrir norðan máttu farfuglarnir tylla I minn- ingu ný- liðins sumars tám sínum á hjarn og skafla og vart var varpið hafið er vorleys- ingar brustu á, mun seinna á ferð en venjulegt gat talist. Mikið varp misfórst og raskaði takti sumars- ins. Fyrir sunnan setti kuldi mark sitt á sumarbúskapinn. Svo ætlaði aldrei að stytta upp. En hvernig svo sem veðúrguð- irnir haga sér og þeir eru ekki alltaf til fyrirmyndar, þá fær ekk- ert því breytt að sumarbúskapur fuglanna gengur sinn vanagang. Þeir para sig, verpa, klekja eggj- um og svo er að sjá til. Hættur leynast víða. Það er ekki aðeins vatn og veður sem grandar ung- viðinu, minkar, refir, kjóar, má- var, skúmar, hrafnar hundar, kett- ir, já, listinn er langur og hætturn- ar leynast við hvert fótmál. En þótt margir falli í valinn lifa ævinlega nógu margir af til að viðhalda hinni eilífu hringrás. Fyrir vikið geta menn lokað aug- unum og rifjað upp fuglasöng sumarsins í þeirri vissu að þeir heyra hann aftur að ári, cf guð og hollir vættir lofa. Og með þeim orðum og meðfylgjandi myndsjá frá sumarbúskapnum, úr smiðju Sigurgeirs Jónassonar Ijósmyndara í Vestmannaeyjum, kveðjum við sumarið 1995 og bíðum næsta sumars. MARÍUERLAN speglar sig í polli,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.