Morgunblaðið - 12.09.1995, Side 42

Morgunblaðið - 12.09.1995, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ARNI ÖGMUNDSSON + Árni Ögmunds- son skipasmið- ur fæddist á Eyrar- bakka 12. júní 1911 og lést á Dvalar- heimilinu Felli Reykjavík 1. sept- ember 1995. For- eldrar hans voru Ögmundur Þor- kelsson, kaupmað- ur á Eyrarbakka og síðar innheimtu- maður hjá Reykja- víkurhöfn, og Jón- ína M. Þórðardótt- ir. Bróðir hans var Þormóður Ögmundsson lög- fræðingur en, hálfsystkini, Gíslabörn, þau Matthías skip- stjóri í Vestmannaeyjum, Karel rakarameistari í Reykjavík, Ingibergur skipstjóri í Vest- mannaeyjum, Þórður netagerð- armeistari í Vestmannaeyjum, Sigurður verkamaður í Reykja- vík, Júlía húsfrú í Reykjavík og Ágústa húsfrú í Reykjavík, sem ein _ lifir eftir. _ Uppeldis- bræður Árna voru Óli Sverrir Þorvaldsson blaðasali í Reykja- vík og Þórður Víg- konsson kaupmað- ur í Reykjavík sem báðir eru látnir. Árni kvæntist árið 1936 Hlíf Hjálmars- dóttur, f. 11. októ- ber 1915, d. 3. febr- úar 1989, húsmóð- ur og afgreiðslu- konu hjá Mjólk- ursamsölunni, dótt- ur Hjálmars Þor- steinssonar bónda og skálds að Hofi á Kjalarnesi og konu hans, Önnu Guð- mundsdóttur. Börn Árna og Hlífar eru tvö. Dóttirin Lilja Árnadóttir, f. 22.7. 1936, er starfsmaður í Islandsbanka í Reykjavík, gift Erling Krisfj- ánssyni járnsmið og eiga þau þijár dætur, Hlíf kennara á Eyrarbakka sem gift er Tómasi Rasmus kennara á sama stað (þau eiga tvo syni, Erling og Hendrik), Sigríði hjúkrunar- fræðing á kvennadeild Land- spítalans sem gift er Magnúsi Þór Jónssyni verkfræðingi t Ástkær móðir okkar, KRISTJANA GUÐMUNDSDÓTTIR, Lindargötu 61, Reykjavik, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 13. september kl. 13.30. Guðlaugur Már Sigmundsson, Ellert Jón Jónsson. t Bróðir okkar, BJÖRN SIGMARSSON, lést sunnudaginn 10. september. Guðlaug Sigmarsdóttir, Hörður V. Sigmarsson, Vilhjálmur Jónsson. t Móðir okkar, PÁLÍNA HALLDÓRSDÓTTIR, Sigtúni 33, Patreksfirði, andaðist laugardaginn 9. september. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Guðmundsdóttir, Guðrún H. Guðmundsdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN BRYNJÓLFSSON, Hagamel 48, Reykjavik, lést í Landspítalanum 9. september síðastliðinn. Þuríður Þorsteinsdóttir, Guðmundur Kr. Þórðarson, Lára Sigurlaug Þorsteinsdóttir, Grétar Kristjánsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Ólafur Sigurmundsson, Bryndís Þorsteinsdóttir, Ragnar Jón Skúlason, Brynjólfur Már Þorsteinsson, Ragnheiður Garðarsdóttir, Dagbjört Þorsteinsdóttir, Mogens Löve Markússon, Guðmundur Helgi Þorsteinsson, Birna Einarsdóttir, Geir Þorsteinsson, Rúna Björg Þorsteinsdóttir, Elías Reynisson, Sigrún Þorsteinsdóttir, Tumi Hafþór Helgason, barnabörn og barnabarnabarn. (þeirra börn eru Jón Arnar og Lilja) og Guðrúnu Önnu sjúkra- liða á Grensásdeild Borgarspít- alans sem býr með Hákoni Elv- ari Guðmundssyni sjómanni (þau eiga einn son, Fannar Örn). Son- ur Árna og Hlífar, Ögmundur Arnason, f. 5.8. 1947, er leigubíl- sljóri í Reykjavík en sambýlis- kona hans er Ásta Ögmundsdótt- ir skrifstofumaður. Ögmundur var áður giftur þýskri hjúkrun- arkonu að nafni Jutta Gebauer og áttu þau eina dóttur, Lilju Andreu skrifstofumann (mæðg- urnar eru búsettar í Hamborg). Afkomendur Arna og Hlífar eru nú ellefu. Árni lærði skipasmíði hjá Magnúsi Guðmundssyni í skipasmíðastöð Reykjavíkur, lauk sveinsprófi 1932 og öðlaðist meistararéttindi í skipasmíði 1934. Hann vann lengst af hjá Slippfélagi Reykjavíkur eða frá 1932 og fram á sjöunda áratug- inn en síðan sjálfstætt. Um skeið sat hann í sfjórn Sveinafélags skipasmiða. Útför Árna fer fram í dag frá kapellu Fossvogskirkju og hefst athöfnin kl. 15.00. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. SJÁLFSTÆÐISBARÁTTA þjóðar getur verið stórbrotin. En einstakl- ingur heyr einnig sjálfstæðisbar- áttu, m.a. á því æviskeiði sem lýst er í máltækinu „Allir ellina kjósa en fáir fenginni hrósa.“ Var lær- dómsríkt að fylgjast með baráttu föðurbróður míns, Árna Ögmunds- sonar, fyrir andlegu og líkamlegu sjálfstæði sínu á þessum tímabili í lífi hans. Uppréttur stóð hann allt til loka er hann féll á kné sem Egill forðum og máttur þvarr fyrr en varði. Rómverski ræðusnillingurinn Cicero sagði í riti sínu um ellina að jafneðlilegt væri að gamalt fólk dæi og þroskaður ávöxtur félli af tré. Oftast vilja menn þó geta notið samvista lengur. Svo var og nú. Ýmislegt var ósagt við skipasmiðinn snjalla sem taldi sjómenn eiga betra skilið en sigla á skipsfjöl hraðvirkni og hroðvirkni, smiðinn vandvirka og vinnusama, manninn orðheppna og uppörvandi. Megi ísland eignast sem flesta slíka. Jón Ögmundur Þormóðsson. Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar ísíma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR HÓTEL LOFTLEIHIR & y FOSSVOGI _ j^egar an nonaum Úifararstofa KirltjugarÖanna Fossvogi Sfnti 551 1266 GUÐRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR + Guðríður Steinþóra Magn- úsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 11. júlí 1937. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja 2. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Keflavík- urkirkju 9. september. KÆR starfsystir og vinkona, Guð- ríður Magnúsdóttir (Gurrý), hefur nú kvatt okkur eftir erfið veikindi. Gurrý starfaði á leikskólanum Garðaseli í tíu ár. Hún hafði alla þá kosti sem góður starfskraftur þarf að hafa. Það sem einkenndi Gurrý öðru fremur var hlýtt við- mót, samviskusemi og það að hún hugsaði alltaf fyrst um aðra. Orð- vör var hún og gott að koma með áhyggjur sínar til hennar. Þær voru margar starfsstúlkurnar sem hafa starfað með Gurrý í þessi tíu ár. Allar hugsa þær hlýtt til hennar með þakklæti í huga, þakklæti fyr- ir að hafa fengið að kynnast slíkri konu. Á leikskóla eru margir skemmti- legir dagar og er öskudagurinn einn þeirra. Gurrý fannst þessi dagur sérlega skemmtilegur, ekki síst á meðan hún og samstarfskona henn- ar, Jóna Hjálmtýsdóttir, gátu notið hans saman. Þá fékk barnið í þeim að koma fram og þær klæddu sig svo skemmtilega að allir höfðu gaman af, ekki síst þær sjálfar. Þær vinkonur, Guný og Jóna, börðust við sama sjúkdóm en Jóna lést 26. janúar 1992. Þeirra verður lengi minnst með söknuði. Elsku Gurrý, fyrir hönd allra þeirra barna, sem þú tókst í hlýjan faðm þinn, þakka ég þér. Sam- starfsfélagarnir minnast þín með virðingu og persónulega þakka ég þér allt sem þú gerðir fyrir mig. Síðasta stundin með þér mun verða mér minnisstæð um ókomin ár. Eiginmann, börn, tengdasyni og barnabörn biðjum við guð að styrkja. Gráttu ekki af því að ég er dáin, ég er innra með þér alltaf. Þú hefur rðddina, hún er í þér, hana getur þú heyrt þegar þú vilt. Þú hefur andlitið, líkamann, ég er í þér. Þú getur séð mig fyrir þér þegar þú vilt. Allt sem er eftir af mér er innra með þér. Þannig erum við alltaf saman. (Barbo Lindgren) Svala Svavarsdóttir og starfssýstur Garðaseli. SVAVAR BJARNASON + Svanur Bjarna- son, fæddist 12. desember 1915 að Brekku í Fljótsdal, sonur Margrétar Pétursdóttur og Bjarna Gíslasonar, sem ekki voru í sambúð. Árs gamall fluttist hann með móður sinni að Arn- heiðarstöðum í Fljótsdal. Árið 1945 kvæntist hann eft- irlifandi eiginkonu sinni, Lilju Hall- grímsdóttur, eign- uðust þau sex börn auk þess sem þau tóku eitt barnabarn sitt í fóstur. Börn þeirra eru: Sigríður, f. 6. janúar 1945, á hún fimm börn, hún býr í Reykjavík. Sigmar, f. 14. nóv- ember 1946, á hann eina dóttur auk tveggja fóstursona, hann býr á Seyðis- firði. Kári, f. 5. október 1950, á hann tvö börn, hann býr á Egilsstöðum. Margrét, f. 31. jan- úar 1952, á hún einn son auk einnar fóst- urdóttur, hún býr á ísafirði. Rósa, f. 22. júlí 1953, á hún fjögur böriv hún býr í Noregi. Björk, f. 7. október 1957, hún á tvö börn, hún býr í Kópa- vogi. Grétar Berg, f. 12. júlí 1965, hann býr í Reykjavík. Svavar var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 17. ágúst síðast- liðinn. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Með þessum orðum vil ég minn- ast afa míns, sem nú hefur kvatt þennan heim. Barátta hans við erf- ið veikindi er nú á enda, og ég hugga mig við það að nú líður hon- um betur. Afi var vanur að gantast með það hvort það færi ekki allur tími hjá mér í að moka frá húsinu, þar sem það var sagt í fréttum að það væri allt á kafi í snjó fyrir vestan. Afi hafði mikið dálæti á söng, starf- aði hann mikið með kirkjukór Seyð- isfjarðar þegar hann og amma áttu heima þar. Einnig vann hann við að keyra leigu- og vörubíl. Árið 1975 fluttust amma og afi til Kópa- vogs, þar sem afi fór að vinna hjá Skeljungi, en amma fór í sjúkraliða- nám. Afi hélt áfram að syngja, fór hann að starfa með kór trésmíðafé- lagsins. Nú eru blómin að fölna og trén að fella lauf og sál þín komin til sólarlandsins, landsins sem við öll hverfum til. Blessuð sé minning þín, elsku afi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég og fjölskylda mín sendum ömmu og frændsystkinum mínum dýpstu samúðarkveðjur. Svavar Þór Einarsson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.