Morgunblaðið - 11.10.1995, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BRÚIN yfir Kringlumýrarbraut verður tilbúin i lok næsta mánaðar. Á teikningunni er horft í norðaustur.
Fyrsta göngu-
brúin byggð
FRAMKVÆMDIR eru hafnar
við göngubrú yfir Kringlumýr-
arbraut, en hún tengir göngu-
og hjólreiðastíg sem liggja á frá
bæjarmörkum SeKjarnarness og
Reykjavíkur og upp í Heiðmörk.
Brúin verður tilbúin í lok næsta
mánaðar og áætlaður kostnaður
við hana er 45 milljónir króna.
Sigurður Skarphéðinsson
gatnamálastjóri sagði í samtali
við Morgunblaðið að brúin væri
liður í stígagerð um höfuðborg-
ina. „Nú liggur samfelldur stíg-
ur frá suðurenda Hofsvallagötu
upp í EUiðaárdal, en þegar
framkvæmdum lýkur nær hann
frá Seltjarnarnesi upp í Heið-
mörk. Á þessari leið eru tvær
stórar umferðargötur, Kringlu-
mýrarbrautin, sem nú verður
byggð brú yfir, og Reylqanes-
brautin, en þar eru undirgöng."
Úr stáli og tré
Sigurður segir að brúin sé sú
fyrsta í Reykjavík sem eingöngu
sé ætluð gangandi vegfarend-
um. „Kostnaður við brúna er
áætlaður 45 milljónir króna og
hann greiðist úr ríkissjóði, en
Reykjavíkurborg ber kostnað af
stígagerðinni."
Burðarvirki brúarinnar verð-
ur úr stáli og á henni trégólf.
Brúin verður sett saman úr ein-
BYRJAÐ er að steypa undirstöður brúarinnar.
ingum á verkstað, og í framtíð- Hönnun brúarinnar var í
inni má taka einingar úr brúnni höndum arkitektastofunnar
ef þörf verður á vegna flutninga Studio Granda og verkfræði-
á sérstaklega háum farmi. stofunnar Línuhönnunar.
Þeim fjölgar sem fá fjárhagsaðstoð hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
170 mílljóna króna auka-
fjárveiting vegna aðstoðar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt 170 milljón
króna aukafjárveitingu til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar vegna fjárhagsaðstoðar. í
ágúst síðastliðnum fjölgaði þeim um 20,9% sem
fengu fjárhagsaðstoð miðað við sama mánuð í
fyrra. í ágúst 1994 var heildarfjöldi mála 2.604
en 3.148 í ágúst 1995. Þá hefur atvinnulausum
fjölgað um 32% miðað við ágúst í fyrra.
Fyrirvari um aukafjárveitingu
í erindi félagsmálastjóra til borgarráðs kemur
fram að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið
1995 hafi verið gert ráð fyrir samtals 543,7
millj. í fjárhagsaðstoð og húsaleigubætur. Miðað
hafí verið við árið 1994 þó að ljóst hafi verið
að það ár var veitt 110 millj. aukafjárveiting.
Gengið hafí verið út frá óbreyttri upphæð með
fyrirvara um að til aukafjárveitingar kynni að
koma.
Fjárveiting uppurin
Milli áranna 1993 og 1994 varð 25% aukning
útgjalda vegna fjárhagsaðstoðar en rúmlega 31%
milli áranna 1994 og 1995.
Heildarfjárhagsaðstoð frá janúar til ágúst var
428 millj. og aðstoð sem veitt hefur verið í sept-
ember nemur um 51 millj.
Eftirstöðvar fjárveitingar ársins þegar gert
hefur verið ráð fyrir húsleigubótum, voru 50
millj. í lok ágúst.
Þá segir að með greiðslu fjárhagsaðstoðar í
september yrði fjárveiting ársins, uppurin. Ef
gengið yrði út frá sömu upphæð mánuðina októ-
ber til desember, það er 50 millj. á mánuði, yrði
fjárhagsaðstoðin 648,7 millj. að meðtöldum 20
millj. millifærslum vegna framleigu.
Flóðhæð verður með
mesta mótí í vetur
Lést í um-
ferðarslysi
Maðurinn sem lést í umferð-
arslysinu á Skeiðavegi á mánu-
dag hét Sigvarður Haraldsson
til heimilis að Borgarsandi 4 á
Hellu. Sigvarður var fertugur
að aldri og lætur eftir sig sam-
býliskonu og fjögur börn.
FLÓÐHÆÐ verður með mesta
móti við ísland í vetur samkvæmt
upplýsingum frá sjómælingum
Landhelgisgæslunnar.
Innbyrðis afstaða himintungl-
anna, einkum tungls og sólar, veldur
þessu en á 18 ára fresti er afstaða
þeirra með þeim hætti að flóðhæð
getur orðið allt að 5 metrar þegar
þannig stendur á. Næstu fjóra til
fimm mánuði verða áhrif innbyrðis
afstöðu himintunglanna á sjávarföll
hér við land með mesta móti.
Hilmar Helgason hjá sjómæling-
um Landhelgisgæslunnar segir að
stórstreymt verði í desember um
jólin. Nýtt tungl er 22. desember
og stærsti straumur 2-3 dögum
seinna. Klukkan 8 að morgni að-
fangadags jóla verður flóðhæð 4,5
metrar í Reykjavík. Þessi flóðhæð
miðast við að loftþrýstingur verði
í meðallagi, þ.e.a.s. 1.010-1.013
millibör. Hilmar segir að við hvert
millibar sem loftvog fellur aukist
flóðhæð um einn sentimetra.
„Ef við fengjum 950 millibara
lægð á þessum degi yrði flóðhæðin
5-5,2 metrar. Bryggjurnar eru hins
vegar á fimm metra kvótanum, eins
og við segjum,“ sagði Hilmar.
Hann segir að verði djúp lægð
yfír landinu þegar flóðhæðin er með
mesta móti geti skapast stórvanda-
mál í höfnum á Suðvesturlandinu.
Hugsanlegt er að flóð verði í miðbæ
Reykjavíkur.
24. nóvember nk. er flóðhæðin
4,4 metrar og því einnig ástæða
til að menn hafí vara á sér þann
dag. „Það er nánast ástæða fyrir
menn að vera á varðbergi í allan
vetur," segir Hilmar.
Hilmar segir að áhrifanna gæti
um allt land en flóðhæðamunurinn
er hins vegar mestur á suðvestur-
horninu og langmestur í Breiða-
firði. Þar háttar þannig til að hafn-
ir eru fáar og ekki eins opnar fyrir
óhagstæðustu vindáttunum, og í
Grindavík og Sandgerði þar sem
oft hafa skapast vandræði í mikilli
flóðhæð. Mestra áhrifa gætir á
tímabilinu janúar til mars og svo
aftur á sama tíma á næsta ári.
Síðast gætti þessara áhrifa hér við
land 1974.
Fæddi
bam
íbílá
Tjörnesi
FJÓRTÁN marka stúlkubam fædd-
ist í bíl á fleygiferð á Tjömesi í
Þingeyjarsýslu í fyrrinótt og gekk
fæðingin vel. Foreldrar stúlkunnar
eru Vigdís Sigvarðardóttir og Sig-
urður Tryggvason, sem búsett em
á Lyngási í í Kelduhverfí.
Sigurður sagði í samtali við
Morgunblaðið, að konan hefði vakn-
að um kl. hálf fjögur og viljað leggja
af stað á sjúkrahúsið. Þau hafí því
drifið sig af stað til Húsavíkur í
fólksbifreið sinni. Þau komu við á
Hóli, sem er næsti bær við Lyngás,
en þar býr móðir hans, Hrefna
María Magnúsdóttir, fyrram ljós-
móðir, og fór hún með Sigurði og
Vigdísi til Húsavíkur.
Sú litla gat ekki beðið þar til
komið var til Húsavíkur og kom í
heiminn á miðju Tjömesinu.
’ „Fæðingin átti sér stað í aftur-
sæti bílsins og aðstoðaði móðir mín
við fæðinguna, sem gekk bæði hratt
og vel. Ég fylgdist hins vegar með
fæðingunni í baksýnisspeglingum,
enda hélt ég ferð okkar til Húsavík-
ur ótrauður áfram,“ sagði Sigurð-
ur. Þangað kom fjölskyldan svo um
fímmleytið í gærmorgun.
Þetta var þriðja bam Sigurðar
og Vigdísar en fyrir eiga þau stúlku
og dreng. Litla stúlkan mældist 14
merkur og 50 sm. Móðir og barn
dvelja nú á sjúkrahúsinu á Húsavík
og heilsast mjög vel.
----» ♦ ♦
Júmbó-þota
Atlanta í
fyrsta sinn
á Islandi
AGNAR Kofoed Hansen, BOEING
747-100 þota fiugfélagsins Atlanta,
lenti í fyrsta sinn á Keflavíkurflug-
velli í gær, en vélin verður notuð í
tvö leiguflug Samvinnuferða-Land-
sýnar til Bahamaeyja og verður
fyrri ferðin farin á fímmtudags-
morgun.
Að sögn Amgríms Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra Atlanta, hefur
félagið notað þessa vél um nokkurt
skeið en þetta er í fyrsta sinn sem
hún kemur hingað til lands. Hann
segir að vélin hafi upphaflega verið
fengin á kaupleigusamningi og hafi
félagið gengið frá síðustu greiðslu
á henni nú í lok september.
Vélin mun sinna þessum tveimur
verkefnum áður en hún fer í skoðun
og síðan til Nígeríu til að sinna píla-
grímaflugi félagsins sem hefst í
desember.
♦ ♦ ♦---
A
Afram í
verðlauna-
sætum
ELÍSABET Haraldsdóttir og Sigur-
steinn Stefánsson urðu í 2. sæti og
Sesselía Sigurðardóttir og Brynjar
Öm Þorleifsson í þriðja sæti í flokki
12-15 ára í Ínternational dans-
keppninni sem fram fór í London í
gær. Keppt var í s-amerískum döns-
um.
Par frá Irlandi sigraði í keppn-
inni, en alls tóku 70 pör þátt í henni.
í flokki 11 ára og yngri komust tvö
íslensk pör í undanúrslit. Þetta er
fjórða keppnin sem íslensku þátt-
takendurnir í flokki 12-15 ára ná
að komast í efstu sæti og sú stærsta
til þessa.
I
í
1
i