Morgunblaðið - 11.10.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995 11
Hverfafundur borgarstjóra
í Árbæjarhverfi
Málefniungs
fólks ofar-
legaábaugi
íþróttahús, virk]’unin við Elliðaárnar og
vistfræði ánna, lögreglustöð, bókasafn,
hundahald, Fylkisvegurinn, sinueldar, götu-
lýsing, Kattholt, umferð við skóla, gæsluvell-
ir og göngubrýr. Þessi atriði eru nokkur
þeirra sem bar á góma á fundi borgarstjóra
á hverfafundi í fýrrakvöld. Meðal 200 gesta
var Gunnar Hersveinn sem greinir frá því
helsta sem var til umræðu.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri hélt hverfafund í
félagsmiðstöðinni Árseli í Árbæ
síðastliðið mánudagskvöid. Fundur-
inn var vel sóttur og má áætla að
um 200 manns hafi setið hann, en
ýmis málefni ungs fólks voru ofar-
lega á baugi á fundinum.
Með borgarstjóra á fundinum voru
ýmsir af æðstú embættismönnum
borgarinnar. Fundurinn hófst á yfir-
liti Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
um framkvæmdir og nefndi hún sér-
staklega skólamál, nýtt leiðarkerfi
strætisvagna, vegaframkvæmdir og
nýbyggingu leikskóla.
Megintími fundarins var lagður
undir fyrirspurnir íbúa og svör borg-
arstjóra.
Hver borgar íþróttahúsið?
íþróttahús Fylkis var nokkuð til
umræðu og þótti mörgum ekki rétt
að Fylkir greiddi kostnað við flýti-
framkvæmdir á húsinu vegna þess
að það verður notað sem skólahús-
næði. Borgarstjóri benti á að fjár-
framlög hefðu komið frá borginni
vegna byggingarinnar og sagði að
beiðni hefði borist frá Fylki um styrk
vegna hússins. Svar við því kæmi
innan tíðar.
Lýsingu í hverfinu bar á góma
og sögðu íbúar að hún væri ófull-
nægjandi á nokkrum stöðum, meðal
annars við undirgöngin við Höfða-
bakka. Svarið var að ef til vill væri
svokölluð ratlýsing ófullnægjandi á
nokkrum stöðum.
Borgarstjóri var spurður hvort
það kæmi til greina að byggja bóka-
safn, því hverfisbúar þurfa að leita
upp í Breiðholt eða í Sólheimana til
að fá lánaðar bækur: Svar borg-
arstjóra var að vandi Aðalborgar-
bókasafnsins væri fyrstur á dagskrá
og vantaði nýtt húsnæði undir það.
Bókasafn í Árbæ yrði að vera lang-
tímaverkefni.
Kvartað var yfir að bann við
hundahaldi væri slælega haldið af
borgaryfirvöldum. Borgarstjóri
sagði að talsvert væri um að hundum
væri sleppt lausum við Elliðadal og
í athugun væri að gera breytingar
til að hundaeftirlitsmenn fylgdu
strangar eftir en áður banninu við
hundahaldi.
Er nauðsynlegt að virkja
Elliðaárnar?
Elliðaárvirkjun var talsvert til
umræðu á fundinum. Spurt var hvort
hún hefði ekki svo lítið
vægi að það mætti
ieggja hana niður.
Nefnt var að vatni væri
miðlað í mismunandi
farvegi eftir árstíðum
og hættur gætu skapast
fyrir börn af þeim sök-
um. Borgarstjóri svar-
aði að vel mætti kanna
hvort það ætti að leggja
hana niður en benti á
að virkjunin hefði sögu-
lega þýðingu. Þess má
geta að Kristján kon-
ungur X vígði stöðina
árið 1921. Það kom
fram hjá borgarstjóra
að hafin væri vistfræði-
leg úttekt á Elliðaánum.
Spurt var um
göngubrýr í Árbæ og
svaraði borgarstjóri að
tvær göngubrýr væru á dagskrá hjá
borginni, önnur við Kringlumýrar-
braut og hin við Rauðagerði.
Móðir lýsti áhyggjum_ sínum
vegna frákeyrslunnar við Árbæjar-
skóla og sagði hún að öryggi barna
væri ábótavant vegna umferðar þar.
Borgarstjóri svaraði því til að slæmt
væri ef foreldrar sem væru akandi
sköpuðu skólabörnum svona mikla
hættu og fannst miður hversu al-
gengt það væri að foreldrar keyrðu
börn sín úr og í skóla.
Fylkisvegurinn að íþróttahúsinu
var foreldrum í Árbæijarhverfi
áhyggjuefni. Bílstjórar ættu það til
að keyra hann of hratt og skapa
gangandi börnum eða hjólandi
hættu. Borgarstjóra fannst koma til
greina að setja hraðahindrun á veg-
inn og bjóst við að það væri auðsótt
mál.
Spurt var hvernig hefta mætti
útbreiðslu sinuelds næsta vor í Ell-
iðadal. Ingibjörg Sólrún sagði það
vera í undirbúningi og að túnið yrði
hólfað niður þannig að eldurinn
myndi ekki breiðast út nema yfir
afmörkuð svæði.
Morgunblaðið/Þorkell
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri á fundinum í Árbæjarhverfi.
BORGIN
Morgunblaðið/Þorkell
FJÖLMENNT var á hverfisfundinum í Árseli,
Morgunblaðið/Kristinn
ELLIÐAÁRVIRKJUN var til umræðu á fund-
inum og spurt hvort hún væri ennþá nauðsynleg.
Morgunblaðið/Kristinn
RÆTT var um íþróttahús Fylkis og greiðslu
kostnaðar við flýtiframkvæmdir hússins.
Þarf lögreglustöð í Árbæ?
Kvartað var yfir að ekki væri lög-
reglustöð í Árbæ. Borgarstjóri svar-
aði því til að það strandaði á fjár-
munum og húsnæði en að Reykjavík-
urborg þrýsti mjög á ríkið að veita
meira fé til löggæslu í borginni. Ingi-
björg sagði að borgaryfirvöld hefði
áhuga á grenndarlögreglu í Árbæ
eins og er í Breiðholti og Grafarvogi.
Nokkuð var spurt um umferðar-
mál og sagði borgarstjóri að fáar
nefndir fengju eins mörg mál til at-
hugunar og hún. íbúar væru oft
hissa að erindi sem nefndin hefði
samþykkt væru ekki framkvæmd og
sagði borgarstjóri að ástæðan væri
skortur á fé. Ef til vill væri betra
að nefndin samþykkti ekki erindin
fyrr en fé væri tryggt til að fram-
kvæma hvert mál fyrir sig.
Bygging nefnd Kattholt var nefnd
oftar en einu sinni á fundinum og
t'elst hún ekki til mikillar prýði, að
mati fundarmanna. Kom fram hjá
borgarstjóra að beiðni um að ganga
frá húsinu að utan hefði borist en
gallinn væri að þeir sem rækju þar
starfsemi gætu ekki lagt fram fé á
móti.'
Ekki fleiri gæsluvelli
Spurt var um fjölgun gæsluvalla.
Borgarstjóri sagði að rekstur gæslu-
valla í borginni væri dýr og þar sem
fá börn sæktu þá væri varla hægt
að fjölgá þeim.
Nokkrir íbúar á fundinum höfðu
áhuga á að Ártúnsskóli yrði heil-
stæður skóli sem felst í því að nem-
endur í 1. til 10. bekk geti stundað
hann. Borgarstjóri sagði að það
væri ekki á áætlun. Hins vegar ætti
hann að verða einsetinn fyrir 1. til
7. bekk og að unglingarnir yrðu
áfram í Árbæjarskóla. 12 milljónir
verða lagðar í viðbyggingu Ártúns-
skóla.
Annars kom fram hjá Borgar-
stjóra að 2,200 milljónir króna væru
ætlaðar tii grunnskólans í borginni
vegna yfirtöku á rekstri hans og
einsetningu til ársins 2001.
Hótel Island laugardagskvöld
Föstudags- og laugardagskvöld
ÞÓ LÍÐIÁR OG ÖLD LADDI
þar sem BJÖRGVIN HALLDÓRSSON rifjar upp öll bestu lögin
frá 25 áraglæstum söngferli ásamt fjölmörgum
frábærum listamönnum ^
í glæsilegri sýningu.
tiestasöngvai'i:
SIGRÍÐUR BÉINTEINSDÓTTIR
Hljómsveilarstjóri:
GUNNAR ÞÓRÐARSON
ásamt 10 manna hljómsveit
Kynnir: ,
JÓN AXEl. ÓLAFSSON /
Dansaltöfundur: i
HELENA JÓNSDÓTTIR J
Dansarar úr BATTU flokknum
Handrit og leikstjórn: Æ
BJÖRN G. BJÖRNSSON fl
Hljómsveitin Karma í Aðalsal
Ásbyrgi: Magnús ogjóhann og Pétur
Hjaltested leika fyrir dansi.
Norðursalur: Diskótek DJ Gunimi þevtir
skífum í Norðursal.
I Ath. Enginn aðgangseyrir á dansleik. I
Nœstu
sýningar:\
14,21.
og28.okt. \
Matseðill
Forréttur:
Freyðivínstónuð lavasúpa m/rjómatopp.
Aðalréttur:
Glóðarsteiktur lambavöðvi dijon
m/púrtvínssósu, kryddsteiktum jarðeplum,
gljiðu grænmeti og fersku salati.
F.ftirrétttir:
Heslihneluís m/súkkulaðisósu og ávöxmm.
Verð kr. 4.600 Sýnlngarverð. kr. 2.000
flOTF.Ii TAJAND
Borðapantanir í stma 5681111.
Sértilboð á gistingu, sími 568 8999■
vinsælasti
skemmtikraftur landsins í
Asbyrgi
austursal Hótel Islands
1 vetur vcrður sýning I.adda
föstudags- og laugardagskvöld.
LADDI kemur enn og aftur á
óvart með sínum margbreyti-
legu persónuleikum.
Stórkostleg skemmtun sem
enginn ætti að missa af.
Undirleikari Hjörtur Howser
■ Austu
Matseðill
Austurlensk rækjusúpa með anansbitum og kókos
Lambapiparsteik t sesainhjup
með rifsberjasósu, smjörsteiktum
jarðeplum og grænmeti.
Sukkulaðirjomarönd Cointreau með appelsinukremi