Morgunblaðið - 11.10.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995 19
LISTIR
FRÁ undirbúningsfundi verkefnisins Ný öld - Norræn framtíðar-
sýn sem haldinn var í Hinu húsinu.
*
Alyktun
um tón-
listarhús
Á RÁÐSTEFNU norrænna
sinfóníuhljómsveita sem fram fór
dagana 5.-7. október 1995 kom
fram að á íslandi er háð barátta
fyrir nýju tónlistarhúsi. Sinfóníu-
hljómsveit íslands starfar í dag í
kvikmyndahúsi. Þessar aðstæður
hafa í för með sér að bæði hljóm-
burður og önnur vinnuaðstaða eru
ekki í samræmi við þarfir sinfóníu-
hljómsveitar sem stefnir hátt á al-
þjóðlegum vettvangi.
Það er skoðun ráðstefnugesta,
sem allir eru fulltrúar fyrir atvinnu-
hljómsveitir í Noregi, Svíþjóð, Finn-
landi, Danmörku og á Islandi, að
góð vinnuaðstaða og góður hljóm-
burður séu nauðsynleg forsenda
fyrir því að hljómsveitartónlist
haldi áfram að vaxa og eflast á
íslandi. Listrænar framfarir Sinfó-
níuhljómsveitar íslands eru alger-
lega háðar því að starfsaðstaða
hljómsveitarinnar sé bætt.
Samsvarandi þróun annars stað-
ar á Norðurlöndum hefur sannað
þetta, að því er segir í ályktuninni.
Leiðrétting
Rangt nafn
Í TÓNLISTARDÓMI sem birtist í
blaðinu í gær um kórverkið Carm-
ina Burana, sem sýnt er í íslensku
óperunni þessa dagana, var rang-
lega sagt að einn slagverksleikar-
anna sex héti Pétur Grétarsson.
Nöfn þeirra eru Einar V. Scheving,
Eggert Pálsson, Kjartan Guðnason,
Ludvig K. Forberg, Steef van Oost-
erhout og Oddur Björnsson.
Norræn
framtíð-
arsýn
NÝ ÖLD - Norræn framtíðarsýn
er heitið á samnorrænu verkefni
sem er nýhafið í fjórum skólum
hér í Reykjavík og einni borg í
hverju hinna Norðurlandanna.
Verkefnið, sem styrkt er af nor-
rænu ráðherranefndinni, fjallar
um sýn unglinga á framtíðina allt
fram á næstu öld. Ungmennunum,
alls um 100 að tölu hér á landi,
gefst kostur á að vinna með lista-
mönnum og fagfólki á sex mis-
munandi verkstæðum sem sett
hafa verið upp í skólunum. Þar
verður viðfangsefnið kannað og
leitað leiða til túlkunar í gegnum
dans, myndlist, tónlist, tölvur og
fleira. Verkefnið er notað sem
valgrein í skólunum og nær yfir
allt skólaárið. Það endar með sýn-
ingu á Listasafni íslands í mars á
næsta ári. Haustið 1996 hittast svo
hóparnir frá öllum löndunum í
Kaupmannahöfn og reisa þar
Borg unga fólksins, í beinu fram-
haldi af verkefninu.
Blaðamaður hitti þau Rakel
Pétursdóttur verkefnisstjóraog
Auði Eysteinsdóttur og Olaf Árna
Georgsson úr Menntaskólanum
við Sund en þau eru á meðal þátt-
takenda.
Stórt tækifæri
„Við erum í verkefni sem heitir
Manngert umhverfi og fjallar um
hvernig umhorfs verður á næstu
öld. “ sögðu þau Auður og Ólafur.
Þau sögðust vera komin vel af
stað með verkefnið. Þau vinna nú
undir leiðsögn Illuga Eysteinsson-
ar arkitekts og myndlistarmanns
en alls verða leiðbeinendur þeirra
fjórir fram að áramótum. „Þemað
þjá okkur er ást, rómantík og kyn-
líf í framtíðinni og þessa dagana
erum við að reyna að skilgreina
hvað rómantík er,“ sögðu þau.
Rakel sagði að vinna nemend-
anna byggðist á þeirra eigin hug-
myndum og frumkvæði sem að
sögn unglinganna er bæði nýst-
árlegt og krefjandi því algengara
er að þau séu mötuð á upplýsing-
um án beinnar þátttöku í kennslu-
stundinni.
Rakel sagði verkefnið stórt
tækifæri fyrir ungt fólk til að
verða sýnilegt og ráðamenn væru
nú tilbúnir að hlusta á þeirra
hugmyndir og tillögur að mótun
framtíðarinnar.
Afmæli
Pavarottis
NÝI söngskólinn „Hjartansmál"
heldur sitt fyrsta óperu/vídeókvöld
fimmtudaginn 12. október kl. 20.
að Ægisgötu 7. Sýnd verður óp-
eran La Traviata eftir Verdi.
Í hlutverki Alfredo Germont er
Roberto Alagna en á hann er bent
sém arftaka Pavarottis. Violettu
syngur Tiziana Fabbrizini og Ge-
orgio Germont syngur Paolo Coni.
Stjórnandi er Riccardo Muti. Þetta
er upptaka frá Scala-óperunni í
Mílanó.
„Þess má geta,“ segir í kynn-
ingu „að 10., 11. og 12. október
eru merkisdagar fyrir söngáhuga-
fólk því þá eiga afmæli: Verdi, 10.
október, Sigurður Demetz, 11.
október og Pavarotti, 12. október.
Skólinn heldur upp á afmæli þess-
ara merkismanna með því að horfa
á La Traviata og skála fyrir þeim
á sextugsafmæli Pavarottis.“
Kynnir kvöldsins verður Ingveldur
Ólafsdóttir.
UMDEILT leikrit um samkyn-
hneigð í bandaríska hernum,
verður sýnt áfram í London en
hætt hafði verið við sýningar á
því sökum slakrar aðsóknar.
Leikritið, „Burning Blue“ eftir
David Greer, verður flutt úr
Theatre Royal Haymarket og í
Amassador’s Theatre, þar sem
fullyrt er að miklum sumarhit-
um megi kenna um hversu fáir
leikhúsgestir sáu leikritið í sum-
ar. Þá stendur til að taka „Burn-
ing Blue“ til sýninga í New York
og fleiri löndum, auk þess sem
Greer er að skrifa kvikmynda-
handrit byggt á leikritinu. Það
fjallar um nornaveiðar sem hefj-
ast í hernum eftir að sést til
tveggja flugmanna stíga dans á
bar fyrir samkynhneigða.
Nýjar bækur
Urval ljóða Jóns Oskars
ÚT ER komið úrval
ljóða Jóns Óskars: Ljóð.
Aðfaraorð eru eftir Jó-
hann árelíuz.
Frumsamdar
ljóðabækur Jóns Óskars
eru Skrifað í vindinn
(1953), Nóttin á herð-
um okkar (1958), Söng-
ur í næsta húsi (1966),
Þú sem hlustar (1973)
og Næturferð (1982).
Nokkur ljóðanna hafa
ekki áður birst í bók,
m.a. Ijóð um París.
„Jón er maður söngs
og seiðs, bjartrar vonar
en sjaldan leiðrar eða
Jón Óskar
lífsþreyttrar," skrifar
Jóhann árelíuz. Enn
fremur: „Það er ekki síst
birtan sem setur svip og
lit á ljóð Jóns Óskars og
til marks um styrk hans
og fjölbreytni sem
skálds má hafa það að
næsta auðvelt væri að
setja saman önnur úrvöl
í viðbót við það sem hér
er á ferðinni."
Ljóð eru 78 síður.
Útgefandi er Valdimar
Tómasson. Gylfi Gísla-
son teiknaði kápu.
Prentvinnslu sá Repró
um.
Abba-tvímennmgarmr með nýjan söngleik
Líkt við Schubert
Stokkhólmi. Reuter.
SONGLEIKUR sem félagarnir í
Abba sálugu, Benny Anderson og
Björn Ulvaeus sömdu og frumsýnd-
ur var um helgina í Malmö, hefur
hlotið góðar viðtökur gagnrýnenda.
Líkti einn þeirra tónlistarhæfileik-
um Andersons við Schubert.
Söngleikurinn nefnist „Kristina
frán Duvemala". Er hann byggður
á hinu sígilda verki Vilhelm Mo-
berg, „Vesturfaramir" og Ijallar
um þá milljón Svía sem flúðu fá-
tæktina í heimalandinu um alda-
mótin síðustu og settust að í Vestur-
heimi.
Segja gagnrýnendur að Anderson
og Ulvaeus hafi skapað „mikinn
sænskan söngleik" þar sem m.a.
sé tekið á þeim vandamálum sem
nútímamenn glími við, eins og sagði
í dómi í Dagens Nyheter. Auk þess
sem tónlist Anderson er líkt við
Schubert, segja gagnrýnendur að
textar Ulvaeus standi fyllilega fyrir
sínu, þrátt fyrir það hversu langur
söngleikurinn sé, svo langur raunar
að helst minni á Wagner-óperu.
Gífurleg fagnaðarlæti brutust út
í lok frumsýningar og stóðu áhorf-
endur upp og klöppuðu í tíu mínút-
ur fyrir höfundum og flytjendum.
„Hversu lengi höfðu þeir [áhorfend-
ur] ekki beðið eftir því, sem við
áttum ekki hingað til, góðum
sænskum söngleik," segir í Svenska
dagbladet. Þetta er þó ekki frum-
raun tvímenninganna á söngleikja-
sviðinu því þeir voru meðhöfundar
Tim Rice að söngleiknum „Chess“
sem frumsýndur var í London 1988.
Uthlutun úr menning-
arsjóði útvarpsstöðva
ÚTHLUTAÐ var styrkjum úr Menningarsjóði út-
varpsstöðva á fundi stjórnar sjóðsins 3. október sl.
í stjórn sjóðsins eiga sæti Ólafur Stephensen, Dögg
Pálsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson.
Auglýst var eftir styrkjum í júní 1994 og bárust
þá umsóknir um styrki til 192 verkefna. Ekki varð
af úthlutun í kjölfar þessarar auglýsingar vegna
fjárhagsstöðu sjóðsins. Aftur var auglýst eftir um-
sóknum um styrki í ágúst sl. Þá bárust umsóknir
um styrki til 96 verkefna, auk þess sem áréttaðar
voru umsóknir um styrki til 108 verkefna af þeim
sem umsóknir bárust um 1994. Styrkumsóknirnar
námu samtals tæpum 500 milljónum króna og
heildarkostnaðaráætlanir verkefnanna námu u.þ.b.
1.400 milljónum króna. Úthlutað var kr.
38.986.000, auk þess sem endurúthlutað var styrk
að fjárhæð kr. 6.500.000 frá úthlutun 1993, þar
sem hætt hafði verið við það verkefni sem þá var
út.hlutað til.
I. Eftirtaldir fengu styrk til undirbúnings og
framleiðslu efnis fyrir hljóðvarp:
Þórunn Sigurðardóttir, Feigðarfór 2.765.000 kr.
Aflvakinn hf., Ljóð og lag 720.000 kr.
Aflvakinn hf., íslenskt mál 1.200.000 kr.
Aflvakinn hf., Þjóðsögur 780.000 kr.
Aflvakinn hf., Piltur og stúlka . . 1.500.000 kr.
Jóhann Hauksson, Hugur ræður hálfri sjón 500.000 kr.
Útvarp FM hf„ Þjóðfélagsgagnrýnandinn 760.000 kr.
Útvarp FM hf., Bilið brúað 450.000 kr.
Sígilt FM 94,3, Hæfileikafólk-Tónlist 450.000 kr.
Pétur Pétursson, Viðtalsþættir 300.000 kr.
Ríkisútvarpið - IsaQörður, Þar vex gras undir vængjum fugla 275.000 kr.
Ríkisútvarpið - Rás 2, íslensk sakamál 330.000 kr.
Ríkisútvarpið - Rás 1, Trillukarlar nú og áður fyrr 540.000 kr.
Ríkisútvarpið - Rás 1, Ég bið að heilsa 260.000 kr.
Ríkisútvarpið - Rás 1, Heimur leikjanna 300.000 kr.
Ríkisútvarpið - Rás 1, Ljóðár 1.500.000 kr.
Ríkisútvarpið - Leiklistardeild, íslenskir gamanleikir 800.000 kr.
Ríkisútvarpið - Austurlandi, Vestur-íslenskir Austfirðingar 200.000 kr.
Samtals 13.630.000 kr.
II. Einn fékk styrk til undirbúnings og
framleiðslu efnis fyrir textavarp:
Jón Kalman Stefánsson, Ljóð vikunnar í textavarpi 256.000 kr.
II. Eftirtaldir fengu styrk til undirbúnings og
framleiðslu efnis fyrir sjónvarp
Framleiðslustyrkir:
Kelvin myndirehf. Uxi ’95 1.000.000 kr.
Kvikmyndagerð Alvis, Fjölmiðlabyltingin l.'500.000 kr.
Hafnfirsk ^ölmiðlun hf., heimildarmynd um Rafha 400.000 kr.
Anna Th. Rögnvaldsdóttir, Kalt borð 1.000.000 kr.
Kristín Bergþóra Pálsdóttir, Þá riðu hetjur um héruð 2.000.000 kr.
Kjól & Anderson, Nautn nr. 1 1.000.000 kr.
Kjól & Anderson, Grúví sé lof og dýrð 1.000.000 kr.
Baldurkvikmyndagerð.Ráðagóðastelpan 1.000.000 kr.
Ríkisútvarpið - Sjónvarp, Hreinn Sveinn 4.000.000 kr.
Kvikmyndafélag íslands hf., Sjálfvirkinn _ 1.500.000 kr.
EinarM.Magnúss.,Heimildarm.umfíkniefnaheiminnáíslandi 1.000.000 kr.
Klassíski listdansskólinn hf., Lata stelpan 1.500.000 kr.
Saga fílm hf., Aldarteikn 800.000 kr.
F.I.L.M., Þegar það gerist 1.500.000 kr.
Ingólfur Margeirsson, Sögur úr Hrisey 1.500.000 kr.
Hans Kristján Ámason, Tónlist fyrir alla 1.000.000 kr.
Handritsstyrkir.
Idéfilm.HeimildarmyndumEinarBenediktsson 500.000 kr.
JónOrmarOrmsson.JónMagnússonÓsmann 500.000 kr.
Oddný Sen, Kínverskir skuggar 1.500.000 kr.
Saga film hf. o.fl., Fornbókabúðin 900.000 kr.
Samtals 25.100.000 kr,
IV. Endurúthlutun styrks:
í mars 1993 voru Ríkisútvarpinu - Sjónvarpi úthlut-
aðar kr. 6.500.000 til framleiðslu verkefnis sem bar
nafnið: Hún vidi fá að vera í friði /Og á þessum aldri.
Af framleiðslu verkefnisins hefur ekki orðið og hún
ekki fyrirhuguð skv. upplýsingum sjóðsins. Stjórn sjóðs-
ins hefur því ákveðið að fella styrkveitinguna niður
og endurúthluta þessari fjárhæð þannig:
Ríkisútvarpið - Sjónvarp, Björgunin 2.500.000 kr.
Rikisútvarpið - Sjónvarp, Rondó 2.000.000 kr.
Ríkisútvarpið - Sjónvarp, Hreinn Sveinn 2.000.000 kr.