Morgunblaðið - 11.10.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995 35
FRETTIR
BRYNHILDUR G. Flóvenz, Iögfræðingur Jafnréttisráðs, Elsa
Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs, Þórunn Svein-
björnsdóttir, fulltrúi ASÍ og formaður Sóknar, Þórveig Þormóðs-
dóttir, fulltrúi BSRB. Á myndina vantar Arndísi Sigurgeirsdótt-
ur, fulltrúa VSÍ.
Bæklingrir um kyn-
ferðislega áreitni
Leiðrétting
Konur á
landsfundi
í GÆR, þriðjudag, birtist hér í
blaðinu á bls. 34 grein eftir Birnu
Friðriksdóttur, formann Landssam-
bands sjálfstæðis-
kvenna, sem fjall-
ar m.a. um þátt-
töku kvenna í
fyrirhuguðum
landsfundi Sjálf-
staeðisflokksins.
í kynningu með
greininni féllu
niður nokkur orð
og breytti það
efnisinnihaldi við-
komandi málsgreinar. Rétt er kynn-
I ingin þannig:
| Konur gera nú þær kröfur til
sjálfra sín og flokksins, seglr Birna
Friðriksdóttir, að breytingar á
stöðu þeirra sjái dagsins ljós.
Velvirðingar er beðist á þessum
mistökum.
-----♦ ♦ ♦...
Gengið upp
! með
Elliðaánum
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
gengur upp með Elliðaánum í mið-
vikudagskvöldgöngu sinni 11. októ-
ber. Mæting er í Hafnarhúsportinu
kl. 20.
Fyrst verður gengið vestur í
I Ánanaust og litið inn til Gunnars
j víkingaskips. Þaðan verður ekið
með rútu inn með Sundum að Ell-
iðaárósi og gengið upp með ánni
að Elliðavatni. Val er um að hefja
gönguna við neðri stífluna. Báðum
hópunum verður ekið til baka. Allir
eru velkomnir í ferðina.
JAFNRÉTTISRÁÐ hefur gefið út
bækling um kynferðislega áreitni á
vinnustað sem unnin var á Skrifstofu
jafnréttismála í samvinnu við ASÍ,
VSÍ og BSRB. Umræða um þetta
efni hefur ekki verið mikil hér á landi
enn sem komið er og er það von
Jafnréttisráðs að útgáfa þessa bækl-
ings megi verða til að fá þetta vel
geymda vandamál margra vinnu-
staða fram í dagsljósið þar sem hægt
er að taka á því með viðeigandi
hætti, eins og fram kom á blaða-
mannafundi sl. fimmtudag þegar
bæklingurinn var kynntur.
Hér á landi hafa ekki verið gerðar
neina nákvæmar kannanir á umfangi
vandans. Þó stóð Iðja, félag iðn-
verkafólks á Akureyri, fyrir könnun
árið 1987. Árið 1989 kom út skýrsla
á vegum jafnréttisnefndar Reykja-
víkurborgar um störf og aðbúnað
kvenna hjá borginni og fjallaði hluti
hennar um kynferðislega áreitni.
Hins vegar liggja fyrir margar er-
lendar kannanir. í könnun sænska
jafnréttisumboðsmannsins frá 1987
kom fram að 17% kvenna hafa orðið
fyrir kynferðislegri áreitni á vinnu-
stað og er það í samræmi við aðrar
svipaðar kannanir.
Samkvæmt þingsályktun um
framkvæmdaáætlun til fjögurra ára
um aðgerðir til að ná fram jafnrétti
kynjanna sem samþykkt var á Al-
þingi 7. maí 1993 skal gerð könnun
á kynferðislegri áreitni á vinnustöð-
um á Islandi og umfangi hennar. Á
grundvelli könnunarinnar og þeirrar
þekkingar sem liggur fyrir hjá öðrum
þjóðum verði unnið markvisst að því
að auka umræðu um og vinna gegn
kynferðislegri áreitni á vinnustöðum.
Þá verði sett ákvæði varðandi kyn-
ferðislega áreitni í viðeigandi löggjöf.
Framkvæmdaáætluninni hefur
verið fylgt þannig eftir að nú er að
fara í gang könnun á þessu sviði sem
er samvinnuverkefni Vinnueftirlits-
ins og Jafnréttisráðs. Þá er útgáfa
bæklingsins liður í því að upplýsa
og auka umræðu meðal almennings.
Starfsmenn á skrifstofu Jafnréttis-
mála eru reiðubúnir til að koma á
fundi á vinnustað eða hjá aðilum
vinnumarkaðarins til að kynna efnið
og ræða það og veita alla þá aðstoð
og upplýsingar sem þeir geta.
Ferð á
Hekluslóðir
FJALLIÐ, félag jarð- og landfræði-
nema, gengst fyrir ferð á Heklu-
slóðir laugardaginn 14. október.
Leiðsögumaður í ferðinni verður
jarðfræðingurinn Árni Hjartarson
en hann er ritstjóri nýjustu árbókar
Ferðafélags íslands sem fjallar um
Hekluslóðir og er ferðin farin í til-
efni af útkomu bókarinnar.
Ef veður leyfir verður gengið á
Heklu undir fararstjórn Árna en
verði tíðin tvísýn verður ekið um
fjallsrætur og gengið í stuttar skoð-
unarferðir frá bíl. Lagt verður af
stað frá Jarðfræðihúsi Háskóla ís-
lands kl. 9 og er öllum heimil þátt-
taka. Miðaverð er 1000 kr. og eru
menn hvattir til að taka með sér
nýjustu Árbók Ferðafélagsins, kort
af Heklusvæðinu, gott nesti og hlý
föt og góða gönguskó.
-----♦ ♦ ♦----
Myndakvöld
Ferðafélagsins
FYRSTA myndakvöld Ferðafélags
Islands í vetur er í kvöld, miðviku-
dagskvöldið 11. október, í nýjum
sal að Mörkinni 6 (gengið inn um
miðbyggingu) og hefst kl. 20.30.
Myndefni er úr vinsælum ferðum
frá í sumar o.fl. Fyrir hlé sýnir
Ólafur Sigurgeirsson myndir úr
ferðinni Vestfjarðastiklur, (Isa-
fjarðardjúp, Æðey, Kaldalón,
Grunnavík, Klofningsheiði, Dýra-
fjörður, Lokinhamrar og Svalvog-
ar.) Þá eru fallegar myndir úr ferð-
um í Landmannalaugar, að Álfta-
vatni og Sprengisandi. Eftir hlé
sýnir Höskuldur Jónsson úr ferðinni
„Vestfirsku alparnir“ (Haukadalur
í Dýrafirði, Lokinhamradalur, Sval-
vogar og Kaldbakur).
Kaffiveitingar verða í hléi og eru
allir velkomnir.
Nýr skó-
gámur við
Domus
Medica
NÝJUM gámi frá Samskipum
hefur verið komið fyrir við
skóverslun Steinars Waage við
Domus Medica. Fyrir nokkru
var kveikt í gámi á þessum
stað og skemmdust þrjú þús-
und pör af notuðum skóm, sem
safnað hafði verið.
Fyrir tveimur árum sendi
fyrirtækið 50 þúsund pör af
notuðum skóm til bágstaddra
í Afríku og fyrr á þessu ári
voru 30 þúsund pör send sömu
leið í samvinnu við þýskar
kirkjudeildir.
Auk gámsins við Domus
Medica er tekið á móti notuð-
um skóm til bágstaddra í versl-
un Steinars Waage í Kringl-
unni og í Toppskónum í Veltu-
sundi.
—leikur að lcera!
.................. ..... m
Vinningstölur 10. okt. 1995
9*10*12*16*17*19* 27
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
Blat) allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Birna
Friðriksdóttir
ATVINNVJ/A UGL YSINGA R
Ferðaskrifstofa
óskar eftir starfsfólki, vönu farseðlaútgáfu.
Um er að ræða heilsdags- og hálfsdagsstörf.
Upplýsingar um aldur menntun og fyrri störf
sendist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Ferðaskrifstofa - 8275“.
VINNU- OG DVALARHEIMILI
SJÁLFSBJARGAR
Hjúkrunarfræðingur
óskast í fullt starf við Vinnu- og dvalarheimili
Sjálfsbjargar. Um er að ræða dagvinnu og
helgarvakt um 4. hverja helgi.
Vinsamlega hafið samband við hjúkrunarfor-
stjóra, Guðrúnu Erlu Gunnarsdóttur, milli
kl. 11 og 12 virka daga í síma 552 9133.
Dvalarheimilið í Sjálfsbjargarhúsinu er ætlað hreyfihömluðu fólki er
þarfnast aðstoðar og umönnunar allan sólarhringinn.
íbúar eru 45 og starfsmenn um 50.
Læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, sjúkraliðar og
aörir starfsmenn vinna við heimilið.
Við vinnum nú sérstaklega að því að auka lífsgæði íbúa heimili§ins.
Boðið er gott starfsumhverfi á vinnustað í hjarta borgarinnar.
- kjarni málsins!
VÁTRYGGINGAFÉIAG
ÍSLANDS HF
Þar sem tryggingar
snúast um fólk
Vátryggingafélag íslands hf. óskar eftir
tryggingasölumönnum til starfa fyrir félagið.
Um er að ræða krefjandi verktakastörf á
sviði tryggingasölu, þar sem tekjumöguleikar
eru góðir fyrir duglegt fólk.
Boðið er upp á aðstöðu í húsakynnum VÍS.
Starfið felst í sölu á tryggingum, tilboðsgerð
og mati á tryggingaþörf viðskiptavina sjálf-
stætt eða í samstarfi við starfsfólk fyrirtækis-
ins.
Við leitum að áhugasömu og þjónustulipru
fólki. Ef þú vilt taka þátt í spennandi verk-
efni á sviði trygginga, hikaðu þá ekki við að
sækja um.
Einkunnarorð félagsins eru: „Þar sem trygg-
ingar snúast um fólk.“ Þú þarft ekki að kunna
allt á því sviði; aðalatriðið er að vilja læra
um tryggingar og fólk. Við aðstoðum við það
og bjóðum upp á skemmtilegt einnar viku
aðlögunarnám og stuðning í sölustarfi, m.a.
með reglubundinni ráðgjöf.
Umsóknir sendist fyrir 16. október nk. til
Vátryggingafélags íslands hf., Ármúla 3, 108
Reykjavík, merktar: „Þar sem tryggingar
snúast um fólk.“
Öllum umsóknum verður svarað og farið
verður með þær sem trúnaðarmál.
EFTA-dómstóllinn
Starf við fjármál
og stjórnun
EFTA-dómstóllinn starfar eftir ákvæðum í
Samningnum um evrópska efnahagssvæðið,
sem gildir milli Evrópusambandisins annars
vegar og íslands, Liechtenstein og Noregs
hins vegar. Dómstóllinn starfar í Genf, en
verður fluttur til Luxemborgar, sennilega
fyrir mitt næsta ár.
Hjá dómstólnum er laust starf við fjármál
og stjórnun. Starfsmaðurinn skal bera
ábyrgð á daglegri stjórnun á skrifstofu dóm-
stólsins, öllu bókhaldi og reikningsskilum,.
undirbúningi fjárhagsáætlana, starfsmanna-
haldi, skjalasafni o.fl.
Umsækjendur, sem til greina koma, þurfa
að hafa nokkurra ára reynslu á sviði fjár-
mála, við áætlanagerð, bókhald og reiknings-
skil, svo og af starfsmannamálum og eigna-
umsýslu. Þá er krafist góðrar enskukunnáttu.
Einnig er æskilegt að umsækjandi hafi vald
á frönsku, hafi starfað hjá alþjóðastofnun
og hafi þekkingu á tölvuvinnslu.
Ráðning er til tveggja eða þriggja ára og
framlenging getur komið til greina. Starfs-
staður er Luxemborg, en æskilegt er að
starfsmaðurinn geti byrjað starfið í Genf.
Umsóknarfrestur er til 3. nóvember nk.
Upplýsingar um starfið eru veittar hjá:
EFTA-Court,
Avenue des Morgines 4,
CH-1213 Petit-Lancy (Geneva),
Switzerland
Fax41 22 709 09 98.
Sími 41 22 709 09 11.