Morgunblaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fj ölskyldan j arðsungin ÚTFÖR hjónanna Haraldar Eg- gertssonar og Svanhildar Hlöð- versdóttur og barna þeirra Har- aldar Jóns Haraldssonar, fjög- urra ára, Ástrósar Birnu Har- aldsdóttur, þriggja ára og Re- bekku Rutar Haraldsdóttur, eins árs, sem öll fórust í siyó- flóðinu á Fiateyri 26. október síðastliðinn, var gerð frá Hall- grímskirkju í gær. Mikið fjöl- menni var við útförina, þeirra á meðal forseti íslands, frú Vig- dís Finnbogadóttir. Prestar við útförina voru sr. Gunnar Björnsson og sr. Karl Sigur- lyörnsson. Organisti var Hörður Askelsson, Signý Sæmundsdótt- ir söng einsöng og Mótettukór- inn söng. Hin látnu voru jarð- sett í Gufuneskirkjugarði. RLR rannsakar heimildir að greinaflokki Héraðsdómur taki skýrslu af blaðamanni Morgunblað sins RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis- ins hefur óskað eftir því við Hér- aðsdóm Reykjavíkur, að hann taki skýrslu af Agnesi Bragadóttur blaðamanni vegna greinaflokks sem hún skrifaði í Morgunblaðið í mars á þessu ári og var söguleg úttekt á endalokum Sambandsins og samskiptum fyrirtækisins við Landsbanka íslands. Bankaeftirlit Seðlabanka ís- lands sendi ríkissaksóknara bréf í sumar þar sem vakin var athygli embættisins á því, að með þeim upplýsingum, sem greinaflokkur- inn byggðist á, kynnu að hafa ver- ið brotin lög um þagnarskyldu bankastarfsmanna. Að sögn Birgis ísleifs Gunnarssonar seðlabanka- stjóra var ekki um formlega kæru að ræða heldur ábendingu til ríkis- saksóknara. Hann sagði, að málið væri alfarið í höndum saksóknara og að bankaeftirlitið myndi ekki hafa frekara frumkvæði í því. Dómari mun úrskurða Saksóknari hefur ákveðið að láta fara fram rannsókn í málinu. í fyrradag var Agnes Bragadóttir, höfundur greinanna, kölluð til yfir- heyrslu hjá RLR sem vitni. Agnes Bragadóttir neitaði í samráði við Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmann, sem ritstjóm Morgunblaðsins hefur falið að gæta hagsmuna sinna í þessu máli, að svara spumingum sem vörðuðu þær heimildir sem hún byggði skrif sín á. í framhaldi af því ákvað rannsóknarlögreglustjóri í gær að óska eftir því, að skýrsla yrði tekin af henni fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur. Dómari kemur til með að úrskurða, hvort henni beri að svara þeim spurningum, sem hún hefur neitað að svara. Jón Steinar Gunnlaugsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að í lögum um meðferð opinberra mála væm ákvæði um undanþágu frá meginreglu laga um vitnaskyldu. „Við teljum að slíkar undanþágur gildi í tilviki sem þessu þar sem blaðamaður er spurður spurninga sem fela það í sér, að svari hann þeim ijúfi hann trúnað við heimild- armenn að frétt sem hann skrifar." Ákærður fyrir 16 milljóna svik 51 ÁRS gamall maður í Reykjavik hefur verið ákærður fyrir fjársvik með því að hafa fengið 13 einstak- linga, aðallega konur, til að taka á sig 16 milljóna króna skuldbinding- ar, með því að fá þá til að skrifa upp á samtals 29 skuldabréf og víxla. í ákæm segir að ein kvennanna hafí átt við alvarleg geðræn vanda- mál að stríða og önnur var vistuð á lokaðri geðdeild þegar hún veð- setti fasteign sína Landsbanka ís- lands til tryggingar 1,5 milljóna króna veðskuldabréfaláni sem mað- urinn fékk hjá bankanum. Mál ákæmvaldsins gegn mannin- um var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þegar dómari bað hann að tjá sig um ákæmna sagði maðurinn hana ranga, 10 þeirra skuldabréfa sem um væri að ræða í málinu væm að fullu greidd. Þá sagði maðurinn að forsvarsmenn þeirra bankastofnana sem hlut ættu að málinu hlytu að vera kvaddir fyrir dóminn. „Ég er ekki ákærður fyrir að blekkja þá,“ sagði hann. Málið verður tekið til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur 17. jan- úar næstkomandi. Kvaðst hafa góðar tekjur í ákæm segir að ákærða hafí tekist að telja fólkinu trú um að hann mundi greiða þessar skuld- bindingar og þeir þyrftu engar áhyggjur að hafa, þar sem hann hefði góðar tekjur og ætti von á vaxtabótum og tryggingabótum „þrátt fyrir að ákærða væri ljóst að fjárhag hans var þannig háttað að hann hafði enga möguleika til að standa við allar þessar skuldbind- ingar og sama er að segja um vitn- eskju ákærða um fjárhag brota- þola,“ segir í ákæra. Þá segir að hann hafi haldið leyndu fyrir hveijum einstökum þeirra sem upp á bréfin skrifuðu hve mikilla skulda hann hefði stofn- að eða látið aðra stofna til í sína þágu. „Ákærði ætlaði aldrei að standa í skilum með þau skuldabréf og víxla sem hann var ekki skuld- ari eða ábyrgðarmaður á,“ segir í ákæmnni, en að maðurinn hafí séð um að útbúa lánsumsóknir, útbúa viðskiptabréfín, sjá um sölu þeirra til lánastofnana, taka við andvirði þeirra og sjá alfarið um svo til öll önnur samskipti við bankana vegna samskiptanna. Nokkur útibú Landsbanka og íslandsbanka keyptu skuldabréf þessi og víxla af manninum, ásamt Sparisjóðunum í Kópavogi og á Þingeyri, svo og kaupleigufyrir- tækinu Glitni. Regnbogi sést um miðja nótt Ólafsvík. Morgunblaðið. SNAGABAKKAR heita sjávar- bakkar þeir sem eru rétt innan við byggðina í Ólafsvík. Sam- kvæmt gömlum sögnum hefur þar ýmislegt fyrir augu borið sem ekki verður í fáum orðum skýrt. Vorið 1744 sáust t.d. af bökkum þessum hvítir hrað- syndir fiskar á borð við hákarla. Svo var það núna í haustrign- ingunni að þarna sást regnbogi um miðja nótt. Tungl var í fyll- ingu og lýsti vel og því var hann þarna regnboginn, stór og faliegur, þó að iitirnir væru með daufara móti. Var annar sporður hans uppi á bökkunum en hinn langt úti á vík. Virtist leikur einn að bregða sér undir hann á báti! Þarna voru án alls efa verkin þess meistara sem ávallt stað- festir sáttmála sinn jafnvel um óttubil í skammdeginu. Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflugvelli grípa til aðgerða Morgunblaðið/Björn Blöndal FJÖLMENNT var á fundi slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli þar sem samþykkt var að grípa til aðgerða vegna stöðunnar í kjaramálum. Ætla að viðhafa seina- gang við störf sín SLÖKKVILIÐSMENN á Keflavík- urflugvelli samþykktu á ijölmenn- um fundi með forystumönnum Landssambands slökkviliðsmanna í gærmorgun að grípa til seinagangs i. störfum í ótilgreindan tíma. Ástæðan er m.a. óánægja slökkvi- liðsmannanna með það að þeir skuli ekki hafa fengið þær kjarabætur sem þeim ber frá því kjarasamning- ar vora gerðir síðastliðið vor. Á fundinum í gær samþykktu slökkviliðsmennirnir ályktun þar sem harmað er að ekki skuli hafðr tekist að fá réttmætar kjarabætur þeirra greiddar frá kjarasamningi í vor líkt og aðrir landsmenn hefðu fengið. Hins vegar vísa þeir til máls sem lýtur að aukagreiðslum til slökkviliðsmanna, en þeir segja vanefndir hafa verið á þeim greiðsl- um til maí 1994. í ályktuninni segir að við svo búið verði ekki lengur unað og er forysta Landssambands slökkviliðs- manna hvött til þess að beita öllum tiltækum ráðum svo takast megi að ná fram rétti starfsmanna Slökkviliðs Keflavíkurflugvallar. Aðgerðir hófust í gærmorgun Að loknum formlegum fundi slökkviliðsmanna ræddu þeir hugs- anlegar aðgerðir og ákváðu að grípa til þess að heija seinagang í störfum og hófst aðgerðin í gærmorgun. Að sögn Guðmundar Vignis Ósk- arssonar, formanns Landssam- bands slökkviliðsmanna, þýðir þetta að slökkviliðsmennirnir sinna ekki ölfu almennu starfí, en öllum neyð- arútköllum verður sinnt og jafn- framt þeirri þjónustu sem vamarlið- ið sjálft þarf á að halda. „Þetta er ákvörðun starfsmann- anna, og að sjálfsögðu mun ég sem formaður félagsins og foiysta þess hafa forgöngu um það að þessi mál og önnur nái landi. Aðgerðimar standa ótímasett þar til einhveijar lausnir em í sjónmáli," sagði Guð- mundur Vignir. Húnaröst er hæst Hornafirdi. Morgunblaðið MJÖG vel hefur gengið á Homafirði það sem af er síld- arvertíð. Um 15 þús. tonn hafa borist á land en einungis þrjú skip hafa landað á þessu hausti, Húnaröst 9.400 tonnum, Jóna Eðválds 4.500 tonnum og Sig- urður Ólafsson 1.300 tonnum. Hjá Borgey hf. hefur verið saltað í 21.000 tunnur á móti 17.000 á sama tíma í fyrra og fryst 3.000 tonn á móti 2.000 í fyrra. Betri nýting til vinnslunn- ar hefur náðst nú en undanfarin ár eða 80-85%. Skinney hf. hef- ur unnið aflann af Jónu Eðvalds og að sögn forsvarsmanna þar eru allar forsendur fyrir vinnslu breyttar milli ára hjá þeim. - \ > I I I I I k I Í I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.