Morgunblaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 9
FRÉTTIR
A
Þrír fyrstu vinningar í Víkingalottói til Islands
Ættu að hafa fengið 3,33
vinninga miðað við sölu
ÍSLENDINGAR ættu að hafa
fengið 3,33 sinnum fyrsta vinning
í Víkingalottói eða 1,58% af heild-
arfjölda vinninga miðað við sölu.
Þrír fyrstu vinningar hafa runnið
til íslenskra vinningshafa frá upp-
hafi Víkingalottósins.
Aðeins Danir koma út í hagn-
aði ef borið er saman framlag í
fyrsta vinning og vinningshlut-
fall. Danir hafa látið, 2,6 milljarða
í fyrsta vinning og fengið 3,1
milljarð til baka með fyrsta vinn-
ingi. Hagnaðurinn nemur því um
500 milljónum íslenskra króna.
Aðraj- þjóðir hafa gefið meira í
fyrsta vinning en þær hafa fengið
til baka. Finnar hafa tapað 197
milljónum, íslendingar 34,6 millj-
ónum, Norðmenn 115 milljónum
og Svíar 141 milljón.
Danir standa sig best
Danir hafa hlotið 87 vinninga
og er hlutfall yinninga af fram-
lagi 118,64%. Finnar hafa hlotið
28 vinninga og er hlutfall vinn-
inga 77,8%. íslendingar hafa, eins
og áður segir, hlotið þrjá vinninga
og er hlutfall vinninga af fram-
lagi 67,12%. Norðmenn hafa
fengið 66 vinninga og er hlutfall
vinninga af framlagi 94,76%.
Svíar hafa fengið 27 vinninga og
nemur hlutfall vinninga af fram-
lagi 84,15%.
Danir hafa fengið flesta vinn-
inga miðað við íbúatölu eða
0.000017 á íbúa en Svíar fæsta
eða 0.000003. Meðaltal vinnings-
hafa á Norðurlöndunum miðað við
íbúa er 0,000009.
Akstur skólabarna
Reykjavíkurborg greið-
ir 40 til 45 milljónir
REYKJAVÍKURBORG greiðir um
40 til 45 milljónir króna vegna akst-
urs skólabarna á þessu skólaári, að
sögn Sigrúnar Magnúsdóttur for-
manns skólamálaráðs. Undanfarin
ár hefur kostnaðurinn verið um 11
milljónir en árið 1994 var hann 20
milljónir.
Áberandi mikill akstur
„Það kemur manni á óvart hvað
skólaakstur er áberandi mikill í
Reykjavík," sagði Sigrún. Fyrir sér-
staka skólabíla og fargjöld með
SVR verða greiddar milli 40 og 45
milljónir króna á yfirstandandi
skólaári. Skólabílar sjá um að aka
yngri bömum í leikfimi og sund í
þeim skólum, sem ekki hafa leik-
fimiaðstöðu eða eru langt frá næstu
sundlaug en eldri börnin fá afhenta
miða í strætó.
Flutningur milli
skólahverfa
„Síðan er greinilega ansi mikill
flutningur barna á milli skóla-
hverfa,“ sagði Sigrún. „Og þá fá
börnin gefins strætisvagnamiða út
skólaárið í stað þess að flytja þau
milli skóla. Það virðist því vera
þannig að borgin kaupi sjálf alla
strætisvagnamiða fyrir grunnskóla-
börn.“
Póstverslun s. 566-7580 frá kl. 9-18
Losaðu þig við appelsínuhúðina og
fækkaðu sentimetrunum á einfaldan hátt!
Meðferðarhjólabuxur
frá Svensson
Heilsusamlegar, þola þvott og eru fyrir
bæði kynin. Fáanlegar svartar og Ijósar
Ci onrmn® [Hringdu og fáðu sendan
jVCl IjjUI I ókeypis vörulista |
Mjódd, sfmi 557-4602
Opið virka daga kl. 13-18» Laugardaga kl. 13-16.
r
Suzuki 4ra dyra Sidekick Sport
Bílar - innflutningur - nýir bílar
Grand Cherokee Ltd Orvis
Afgreiðslutími
aðeins 2-4
vikur ef bíllinn
er ekki til á
lager
Getum lánað
allt að 80% af
kaupverði
EV BILAUMBOÐ
Egill Vilhjálmsson hf., Smiðjuvegi 4 - Kópavogi - sími 55-77-200.
—
1
Árlegar verðtryggðar
greiðslur
Með nýju Árgreiðsluskírteinunum getur þú tryggt þér
greiðslur af sparifé þínu á hverju ári, næstu 10 árin.
• Greiðslurnar eru óháðar vaxtasveiflum á markaðnum.
• Greiðslurnar eru verðtryggðar.
• Ein greiðsla á ári, 2. maí ár hvert, í fyrsta sinn 1997.
• Árgreiðsluskírteinin eru markaðsverðbréf, skráð á Verðbréfaþingi
íslands, og eru því auðseljanleg hvenær sem er á lánstímanum.
• Árgreiðsluskírteinin eru án nafnvaxta en keypt með fotvöxtum.
Útboð fer fram í dag kl. 14:00. I
Hafðu samband við
Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa og fáðu
nánari upplýsingar.
Sími: 562 6040
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hvcrfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum