Morgunblaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og
Jenni u
Ferdinand
Smáfólk
I can'tplaytopay.manaöer.. I COULPN'T FINP MY 6L0VE i ! 1 UIOULPNTITBE FUNNYIFIT TURNEP OUT THAT YOUR 6L0VE UJA5 ON YOUR MEAPANP YOUR CAPONTOP OFYOURGLOVE?
l i u. I
8 1
© 3-16 Ir-tfaÁ1 -Y / \
Ég get ekki leikið í dag, stjóri, Væri það ekki kyndugt ef það
ég fann ekki hanskann minn. kæmi nú i ljós að hanskinn þinn
væri á höfðinu á þér og húfan
þín ofan á hanskanum?
ILL 60 MOME ANP L00K
AROUNP AGAIN..IF I CAN’T FINP
IT JU5T5TART UJITHOUT ME..
Ég ætla heim og litast betur um,
ef ég finn hann ekki, byrjaðu þá
bara án mín.
JHtnrgtmMð&ife
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
„Fólk í fyrirrúmi“
eðahvað?
Frá Hrafnhildi Guðmundsdóttur:
LAND fáránleikans birtist við lest-
ur greinar Auðar Guðjónsdóttur í
Morgunblaðinu 19. október síðast-
liðinn, „Til umhugsunar fyrir efna-
hags-og viðskiptanefnd", og vakti
sannarlega fólk til umhugsunar
um gjörðir ráðamanna til handa
þeim, sem hvað verst standa að
vígi.
Það sýnist vera svo að embætt-
ismenn séu alveg heillum horfnir
þegar þeir ráðst með slíkri óbil-
girni að lífskjörum öryrkja, að
venjulegum borgurum fallast
hendur. Ráðamenn þessarar þjóð-
ar fá glýju í augun þegar skaða-
bætur heilsuskertra einstaklinga
eru annars vegar og sjá smjör
drjúpa í ríkiskassann af vanheilsu-
tré þessa fólks, það er slík sið-
blinda og fáránleiki að vart verður
trúað.
Eins og fram kemur í greininni
eru skaðabætur vegna fjárhags-
tjóns og miska lífeyrir en ekki
happdrættisvinningur. í væntan-
legum ij ármagnstekjuskatti ríkis-
stjórnar er ekki stafkrók að finna
sem ver háar miskabætur stórlega
heilsuskertra einstaklinga gegn
þessum skatti, heldur bætt um
betur og talað niður til þeirra sem
ekki hafa „hirt um“ að greiða í
lífeyrissjóði og skulu þeir sannar-
lega aldrei fá fulla tekjutrygging-
ar. Hvað um börn og unglinga sem
eru svo óhamingjusöm að lenda í
slysum? Skilningsleýsi ráðamanna
á lífí og aðstæðum, sem upp geta
komið á lífsleið hvers manns, er
yfirþyrmandi.
Tryggingasérfræðingar virðst
ekki vera þar neinir eftirbátar,
þeim er auðvelt að reikna stórlega
niður slysabætur einstaklinga og
er þeim ekki af því neinn álitsauki.
I fullri vinsemd ráðamenn, sem
mælið af þunga, þegar upp kemst.
að þið eru aðeins í launasæti 129
á leynilista hálaunamanna og telj-
ið ykkur þar freklega misboðið,
forgangsraðið með velferð mann-
eskjunnar í huga, síðan geta rán-
dýrar skykkjur dómara og spansk-
grænuklætt hús hæstaréttar,
glæsibifreiðar ráðherra, skatt-
fijáls laun og harðviðarklæddir
vínkjallarar og aðrir þeir hlutir
sem ryð fær grandað, verið til
skoðunar, en velferð manneskj-
unnar á að vera í öndvegi, annað
er fáranleiki.
Að lokum í einlægni spurt, hvar
er siðferðið statt sem veiddi svo
vel út á slagorðið „Fólk í fyrir-
rúmi“?
HRAFNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Markarflöt 37, Garðabæ.
Fórnarlamba snjóflóðs-
ins á Flateyri minnst
í Kaupmannahöfn
Frá Steinunni Öglu Gunnarsdóttur:
UNDANFARNA daga hafa harma-
fregnir að heiman verið ofarlega í
huga Islendinga í Danmörku. Sem
dæmi má nefna að íslensku blöðin,
sem seld eru á aðaljámbrautarstöð-
inni í Kaupmannahöfn, hafa síðustu
daga selst upp á stundarfjórðungi.
Fólk hefur blátt áfram beðið þar eft-
ir komu þeirra.
Margir hafa hringt í „Jónshús",
aðrir komið til að lesa blöðin og fá
fréttir. Samúð og áhyggjur eru þær
tilfinningar, sem mest hafa leitað á
huga íslendinga fjarri heimahögum.
Þátttaka var mikil og almenn í
athöfnum, þar sem beðið var fyrir
látnum, aðstandendum þeirra og
heimabyggð. Athafnir fóru fram í
„Jónshúsi" 27. og 28. október og
voru leiddar af sendiráðsprestinum
og settur var upp söfnunarbaukur
til styrktar Flateyringum. Forseti
Alþingis, Ólafur G. Einarsson, minnt-
ist aburðanna á Flateyri á virðulegan
og samúðarfullan hátt, í móttöku,
er hann hélt í húsinu síðdegis 28.
október.
Sunnudaginn eftir var messa ís-
lenska safnaðarins í Sankt Pauls-
kirkju helguð atburðunum í Önund-
arfirði. Við athöfnina söng íslenski
kirkjukórinn undir stjórn Sigríðar
Eyþórsdóttur og Ingibjörg Guðjóns-
dóttir söngkona söng „Friðarins
Guð.“
Sr. Lárus Þ. Guðmundsson sendi-
ráðsprestur fór síðan laugardaginn
fyrir allra heiiagra messu, að beiðni
Islendinga í Arósum, vestur til þeirra
og hafði þar bænar- og minningar-
guðsþjónustu í Möllevangskirkjunni.
Þar sýndu danska safnaðamefndin
og starfsmenn kirkjunnar samúð sína
með því að blómumskreyta kirkjuna.
Þetta var falleg athöfn. Ritningar-
lestra og guðspjall las safnaðarfólk,
kór íslendinga í Árósum söng við
athöfnina og Anna Sigríður Heíga-
dóttir söng einsöng.
Kirkjugestir tendruðu sitt eigið
ljós við altarisljósin og minntust
þannig þeirra lífa sem slokknuðu í
snjóflóðunum og báðu fyrir þeim,
sem eftir lifa.
Samúð og hugsanir Islendinga í
Danmörku eru með öllum heima og
sérstaklega þeim, er syrgja og sakna.
Fyrir hönd íslenska safnaðarins í
Kaupmannahöfn.
STEINUNN AGLA
GUNNARSDÓTTIR.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lésbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.