Morgunblaðið - 08.11.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 13
AKUREYRI
Hlutafjárútboð í Skinna-
iðnaði hf. hefst á morgun
Á MORGUN fimmtudag hefst sala
hlutabréfa í Skinnaiðnaði hf. Um
er ræða áður ákveðna hlutafjár-
aukningu í fyrirtækinu upp á 10
milljónir króna að nafnvirði og
hins vegar áframhaldandi sölu á
hlut Akureyrarbæjar í Skinnaiðn-
aði. Heildareign Akureyrarbæjar
var rúmar 23,7 milljónir króna en
eftir er að selja hlutabréf fyrir
rúma 21 milljón króna að nafn-
virði. Bréfin verða seld á genginu
3,0.
Núverandi hluthafar eiga for-
kaupsrétt í einn mánuð á þeim 10
milljónum sem til sölu eru vegna
hlutafjáraukningarinnar. Þau bréf
sem eftir verða eftir mánuðinn fara
síðan á almennan markað. Hins
vegar eiga allir rétt á að kaupa
hlutabréf bæjarins strax á fimmtu-
daginn og reyndar hafa þegar ver-
ið seld hlutabréf í eigu bæjarins
fyrir um 2,5 milljónir að nafnvirði,
á genginu 2,6-2,9.
Hægt að kaupa bréf með
afborgunum
Stefnt er að því að fjölga hluthöf-
um í Skinnaiðnaði og í því skyni
hyggst Kaupþing Norðurlands, sem
hefur umsjón með sölunni, bjóða
kaupendum upp á kaup á hlutabréf-
um með afborgunum. Kaupendur
þurfa að staðgreiða 25% af kaup-
verði bréfanna en eftirstöðvarnar
eru lánaðar með gjalddögum 15.
febrúar, 15. maí og 15. ágúst á
Iþróttahús Þórs rætt í bæjarsljórii
Engir peningar til
fyrr en árið 1999
„í MÍNUM huga eru þessi hús ekki
á dagskrá fyrr en eftir árið 1998,“
sagði Sigfríður Þorsteinsdóttir for-
seti bæjarstjórnar Akureyrar á
fundi bæjarstjórnar í gær, en mikl-
ar umræður urðu á fundinum um
bókun íþrótta- og tómstundaráðs,
þess efnis að gengið verði til við-
ræðna við íþróttafélagið Þór um
byggingu íþróttahúss á félagssvæði
þess.
Þórarinn E. Sveinsson, Fram-
sóknarflokki og formaður íþrótta-
og tómstundaráðs, sagði að pen-
ingagreiðslur úr bæjarsjóði til bygg-
ingar íþróttahús Þórs hæfust ekki
fyrr en lokið hefði verið við upp-
byggingu Sundlaugar Akureyrar.
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að skoða þyrfti
ýmsa þætti málsins áður en hægt
yrði að afgreiða þá. Engir peningar
væru til í bygginguna fýrr en í
fyrsta lagi 1999.
Ekki hægt að verða
við öllum óskum
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, tók í sama streng og
sagði að nýlega hefði verið gengið
frá áætlun um framkvæmdir á veg-
um bæjarins næstu þrjú ár og þar
væri ekki minnst á umrætt íþrótta-
hús. Allar nefndir hefðu beðið um
meira fé til að auka þjónustu en
því miður hefði ekki verið hægt að
verða við því.
Oddur H. Halldórsson, Fram-
sóknarflokki, sagði að með vaxandi
velsæld hefði þeim fjölgað sem
stunduðu íþróttir og væri jjað eitt
helsta áhugamál fólks. I sínum
huga væri því ekkert til fýrirstöðu
að byija strax á byggingu íþrótta-
hús við félagsheimili Þórs.
Þórarinn B. Jónsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagði bókun íþrótta- og tóm-
stundaráðs fýrsta skrefið í máliiiu
og fagnaði því. Samflokksmaður
hans, Björn Jósef Arnviðarson,
sagðist gjarnan vilja sjá íþróttahús
rísa á Þórssvæðinu ásamt fleiri
húsum sem til þyrfti til íþróttaiðk-
unar, en miðað við samþykkta
þriggja ára áætlun væru menn að
blekkja sjálfa sig héldu þeir að
húsið risi strax.
Fyrsti farmur-
inn 1 Krossanes
LOÐNUSKIPIÐ Guðmundur VE
var á leið til Akureyrar í gær með
um 800 tonn af loðnu og var von
á honum til löndunar um miðnætti.
Þetta er fýrsti farmurinn sem berst
í Krossanes í tæpa fjóra mánuði.
Þá er Sigurður VE á loðnumiðunum
og mun hann einnig landa í Krossa-
nesi.
Jóhann Pétur Andersen, fram-
kvæmdastjóri Krossaness, segir að
loðnan sé blönduð og er lýsisnýting-
Hjálpræðisherinn
Yfirmenn
í heimsókn
HJÓNIN Norunn og Roger Rasmuss-
en, sem er yfirmaður safnaðarstarfs
Hjálpræðishersins í Noregi, íslandi
og Færeyjum, verða gestir hjá Hjálp-
ræðishernum á Akureyri í vikunni.
Af því tilefni verður samkoma í
kvöld, miðvikudagskvöldið 8. nóv-
ember, að Hvannavölium 10 og
kvöldvaka annað kvöld, fimmtudags-
kvöldið 9. nóvember.
ALHUBATOLVUKERFi
BÓKHALDSKERFI
HAGKVÆM LAUSK FYRIR
WQRKGRQUPS NETKERFl
gn KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
næsta ári. Lánið er án vaxta og
verðbóta en hins vegar er ekki lán-
uð hærri upphæð en 101.250. kr.
sem er 75% af 135.000. kr. og
miðast við hámarksskattaafslátt
einstaklinga vegna hlutabréfa-
kaupa.
Til að hægt sé að skrá fyrirtæk-
ið á Verðbréfaþingi íslands þurfa
hluthafar að vera 200 eða fleiri og
það er m.a. ástæðan fyrir því að
boðið er upp á lánakjör vegna kaup-
anna.
Morgunblaðið/Kristján
UM 140-150 starfsmenn vinna hjá Skinnaiðnaði hf. Fjölmargir
þeirra vinna á tvískiptum yöktum en í einhveijum deildum er
unnið allan sólarhringinn. Á myndinni eru starfsstúlkur Skinna-
iðnaðar að spýta skinn.
in í kringum 13%. Hann segir að
baráttan á miðunum norður af
Straumnesi sé hörð og enn sé eng-
inn kraftur í veiðunum. Guðmundur
VE var búinn að vera um tvo sólar-
hringa á miðunum og vantar um
100 tonn upp á að skipið sé með
fullfermi.
Afkastageta loðnuverksmiðjunn-
ar í Krossanesi er um 450-500 tonn
á sólarhring og þar starfa 15-16
manns.
Rábstefna
Lagnafélags íslands og Samtaka ibnabarins
Samræmt byggingareftirlit allra hagur
Ráöstefnustjóri:
Fundarstjórar:
veröur haldin fimmtudaginn 9. nóvember n.k. ab
Gullhömrum, Hallveigarstíg 1, Reykjavík
Kristián Ottósson, vélstjóri, framkvæmdastjóri Lagnafélags ísl.
dr. Valdimar K. Jónsson, prófessor í vélaverkfræði, formaöur iðnaðar-
og vélaverkfræöiskorar verkfræðideildar Háskóla íslands og
Guðmundur Hjálmarsson, byggingatæknifræðingur,
deildarstjóri byggingadeildar Tækniskóla íslands.
Ritarar: Kolviður Helgason, blikksmíbameistari, formaöur Félags blikk-
smiðjueigenda og Ámundi Halldórsson, pípulagningamaður, fulltrúi
efnissala, deildarstjóri pípudeildar Húsasmibjunnar hf.
Kl. 08.30 Skráning þátttakenda.
Kl. 09.00 Setning rábstefnunnar:
Guðmundur Bjarnason, umhverfisráðherra.
Kl. 09.30 Úttekt Iðntæknistofnunar íslands um Ábata þjóöfélagsins af bættum
verklagsreglum lagnamanna.
Freygarður Þorsteinsson, verkfræðingur, deildarstjóri Ibntæknistofnun íslands.
Kl. 09.50 Ástand lagnamála í byggingum - Opinbert eftirlit í dag.
Erlendur Hjálmarsson, byggingafr., byggingarfulltrúi í Hafnarfirðh
Kl. 10.10 Brýnar úrlausnir í eftirliti og úttektarmálum.
Einar Þorsteinsson, byggingatæknifr., deildarstjóri Lagnadeildar Rb.
Kl. 10.25 KAFFIHLÉ
Kl. 10.45 Guðfinnur Ólafsson, pípulagningameistari, fulltrúi iðnmeistara á lagnasvibi,
formaður Félags pípulagningameistara, Sæbjörn Kristjánsson, byggingar-
tæknifræöingur, Forsjá hf. verkfræðistofa og Ólafur Guðmunsson, byggingar-
fulltrúi, Snæfellsness- og Borgarfjarðarumdæmis, formaður
Félags byggingarfulltrúa.
Kl. 11.30 Samræming gæðamála og eftirlit.
Guðmundur Guðmundsson, vélaverkfræðingur, Samtök iðnabarins.
Kl. 11.50 Áhrif úttekta á iðgjöld tryggingafélaga.
Daníel Hafsteinsson, rekstrartæknifr., Sambandi íslenskra tryggingafélaga.
ki. 12.oo HÁDEGISMATUR Á STAÐNUM
Kl. 13.30 Samræming eftirlitsaðila, úrbætur. dr. Hafsteinn Pálsson, byggingaverk-
fræðingur, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins.
Kl. 1 3.45 Starfsemi óháðra skoðunarstöbva.
Karl Ragnars, vélaverkfræðingur, stjórnarmaður í Skoðunarstofunni hf.
Kl. 14.00 Innleiðing gæðastjórnunar fámennra hönnunarstofa og iagnafyrirtækja
Danmörku. Sigurður Magnús Harðarson, véltæknifræðingur, úttektarmaður
gæðastjórnunarkerfa hjá dönsku staðlastofnuninni Dansk Standard.
Kl. 14.30 Innleiðing gæbastjórnunar hjá pípulagnafyrirtækjum í Noregi.
Ólafur Eggertsson, rekstrartæknifræöingur,
tæknilegur framkvæmdastjóri hjá Norske Rörleggerbedrifters Landsforening -
WS.
ki. 15.oo KAFFIHLÉ
Kl. 15.20 Ab loknum framsögum starfa umræðuhópar.
Kl. 17.30 Ráðstefnuslit.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Skráning þátttöku er hjá Lagnafélagi íslands, Samtökum ibnabarins,
Sambandi íslenskra sveitarfélaga og vib innganginn á rábstefnuna.
Rábstefnan er öllum opin.
Á rábstefnunni verba veitingar, hádegisverbur, kaffí og meblœti allan daginn
LAGNAFÉLAC
ÍSLANDS
<a)
SAMTOK
IÐNAÐARINS