Morgunblaðið - 08.11.1995, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
Rcuter
SÚSANNA Agnelli og Halldór Ásgrímsson
fyrir fund sinn í Róm í gær.
Utanríkisráðherrafundur
Vilji er til auk-
ins samráðs
HALLDÓR Ásgnmsson utanríkis-
ráðhen-a átti í gær í Róm fund með
Súsönnu Agnelli, utanríkisráðherra
Ítalíu. Halldór segir að aðalerindi
fundarins hafi verið að undirbúa for-
mennsku íslendinga í EFTA á næsta
ári. íslendingar taka við formennsk-
unni af Norðmönnum 1. janúar en
þá taka ítalir einnig við formennsk-
unni 5 ráðherraráði Evrópusam-
bandsins.
„Það sem við leggjum m.a. mikla
áherslu á er að koma á fundi forsæt-
isráðherra EFTA-ríkjanna og forsæt-
isráðherra formennskulandsins hjá
ESB og forseta framkvæmdastjóm-
arinnar. Þá viljum við einnig koma
á ájiekkum fundi fyrir fjármálaráð-
herra. Það hefur verið ákveðið að
halda samráðsfund EFTA-hluta
EES-svæðisins í júní á næsta ári en
ekki hefur náðst nein niðurstaða um
forsætisráðherrafundinn. Agnelli
ætlar að vinna í því máli á næst-
unni. Það er gert ráð fyrir regluleg-
um slíkum fundum í samningnum
en þrátt fyrir tilraunir af hálfu Norð-
manna til að koma honum á hefur
ekki af honum orðið. Við leggjum
mikla áherslu á að af fundinum
verði,“ segir Halldór.
Samskipti við þríðju ríki
Hann sagði að einnig hafi verið
rætt um að efla samráð og samskipti
og um aðild að ýmsum nefndum.
Hafi þeirri málaleitan verið vel tekið.
Þá var rætt um samvinnu við þriðju
ríki s.s. Asíu- og Miðjarðarhafsríki
og mikilvægi þess að EFTA-ríkin
tækju þátt í slíku samstarfi. „Á næsta
ári er fyrirhugaður fundur Evrópu-
og Asíuríkja þar sem leiðtogar ríkj-
anna koma saman og er ekki gert ráð
fyrir þátttöku EFTA-ríkjanna. Við
lögðum áherslu á að ekki verði geng-
ið framhjá okkur í sambandi við slíka
fundi.“ Einnig var farið yfir Scheng-
en-samkomulagið, samskipti íslands
og Evrópusambandsins og sérstöðu
íslendinga varðandi sjávarútvegsmál.
„Við eyddum alllöngum tíma í þau
mál án þess svo sem að það hafi leitt
til neinnar ákveðinnar niðurstöðu. Við
teljum hins vegar að þessi skoðana-
skipti hafi verið mjög gagnleg. Við
skýrðum afstöðu okkar og hvers
vegna íslendingar hefðu ekki sótt um
aðild að Evrópusambandinu. Það er
okkar mat að fundurinn hafí verið
mjög gagnlegur og við teljum að við
eigum góðan samheija í þessum
ágæta utanríkisráðherra ítala. Það
kom í ljós að hún hafði komið til ís-
lands fyrir nokkrum árum sem al-
mennur ferðamaður, dvalið á íslandi
í viku og hrifist rpjög af landinu. Það
fer ekki á milli mála að hún vill okk-
ur mjög vel í samskiptum við Evrópu-
sambandið."
ESB og Bandaríkin
Stefnt að afnámi
viðskiptahindrana
Brussel. Agence Europe/Reuter.
SIR LEON Brittan, sem fer með
utanríkisviðskiptamál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins,
segist sannfærður um að á leiðtoga-
fundi ESB og Bandaríkjanna í
Madríd í næsta mánuði verði ákveð-
ið að stefna að afnámi viðskipta-
hindrana og aukinni fríverzlun yfir
Atlantshafið.
Brittan sagði á blaðamannafundi
að á fundi þeirra Bills Clinton, for-
seta Bandaríkjanna, Jacques Sant-
er, forseta framkvæmdastjórnar-
innar, og Javier Solana, forseta
ráðherraráðs ESB, í Madríd 3. des-
ember, yrði ekki einvörðungu sam-
þykkt pólitísk yfirlýsing, heldur
myndi raunveruleg framkvæmda-
áætlun um afnám viðskiptahindr-
ana verða lögð fram.
Sir Leon sagði að aðalatriðið
væri að í yfirlýsingu fundarins
myndi koma fram að stefnt væri
að „afnámi hindrana í formi tolla,“
þótt ekki yrði kveðið á um sameigin-
legt fríverzlunarsvæði með beinum
hætti.
Forstjórar leggja tillögur
fyrir Madrídfundinn
Ráðstefna nærri 150 forstjóra
fyrirtækja frá Evrópu og Ameríku
verður haldin í Sevilla á Spáni
næstkomandi föstudag og laugar-
dag. Ætlunin er að þeir skiptist þar
á skoðunum um nauðsynlegar að-
gerðir til að auka viðskipti á milli
álfanna. Ráðstefnan mun sam-
þykkja tillögur, sem hafðar verða
til hliðsjónar á Madrídfundinum.
Sir Leon Brittan sagði að tryggt
væri að niðurstöður ráðstefnunnar
fengju athygli „á hæstu stjómsýslu-
stigum".
___________________ERLENT____________________
Peres segir friðarstefnu ísraelssljórnar óbreytta
Segir frið mikilvæg-
ari en kosningasigur
Jerúsalem. Reuter.
SHIMON Peres, starfandi forsætis-
ráðherra ísraels, sagði í gær a.9
mestu máli skipti að halda áfram
að koma á friði en ekki hversu lengi
stjóm hans sæti við völd. „Það er
mikilvægara fyrir okkur að ná friði
en að vinna kosningar," sagði hann
á blaðamannafundi þegar hann var
spurður hvort hann myndi efna til
kosninga fljótlega eftir morðið á
Yitzhak Rabin á laugardag.
Peres sagði ótta Palestínumanna
um að morðið á Rabin myndi tefja
viðræður vera óþarfan. „Það sem
við samþykktum og það sem við
skuldbundum okkur til að gera
munum við framkvæma í einu og
öllu. Ég er sannfærður um að við
verðum að gera það og munum
gera það,“ sagði Peres.
Hann var utanríkisráðherra í
stjóm Rabins, er var skotinn af
ungum gyðingi í Tel Aviv á laugar-
dagskvöld. Tók Peres þegar í stað
við embætti forsætisráðherra og
vamarmálaráðherra, en Rabin
gegndi því einnig.
Eftir að hefðbundin sorgarvika
er liðin næstkomandi sunnudag mun
Ezer Weizman, forseti ísraels að
öllum líkindum afhenda Peres form-
legt umboð til stjórnannyndunar.
Samstaða virðist ríkja um það í ísra-
el að beinast liggi við að honum
verði falið umboð til að mynda nýja
stjórn. Peres mun hafa til þess þijár
vikur og nægi það ekki fær hann
þriggja vikna frest til viðbótar.
Ár eftir af kjörtímabilinu
Fari stjórnarmyndunarviðræð-
urnar út um þúfur verður öðmm
stjórnmálamanni falið stjórnar-
myndunammboðið. Mistakist hon-
um einnig verður boðað til kosn-
inga. Núverandi kjörtímabil rennur
út í lok október á næsta ári.
Sem utanríkisráðherra var Peres
einn helsti hugmyndasmiðurinn á
bak við friðarviðræðumar við Pal-
estínumenn og aðrar nágrannaþjóð-
ir ísraela. Hann annaðist einnig
yfirstjórn viðræðnanna við PLO um
brotthvarf ísraelskra hermanna frá
hernumdu svæðunum.
Yossi Beilin, efnahagsmálaráð-
herra og náinn pólitískur banda-
maður Peres, ítrekaði einnig í gær
að nýja stjórnin yrði. trú þeirri
stefnu er mótuð var af Rabin.
Beilin sagðist vona að Peres
myndi taka hófsama trúarlega
stjórnmálaflokka inn í ríkisstjórnina
til að breikka stuðning hennar í
Knesset, ísraelska þinginu. Friðar-
samningurinn við Palestínumenn
var einungis samþykktur með eins
atkvæðis meirihluta í Knesset og
telja fréttaskýrendur ólíklegt að
hægt verði að koma friðarsamningi
við Sýrlendinga í gegnum þingið
að öllu óbreyttu, ef í honum fælist
að ísraelar létu Gólan-hæðir af
hendi.
Beilin taldi þó ekki líkur á að
Peres myndi flýta kosningum til að
nýta sér þá samúð er Verkamanna-
flokkurinn öðlaðist við morðið á
Rabin.
„Af hveiju ættum við að flýta
kosningunum? Af hveiju ættum við
að verðlauna morðingjana, stöðva
allt vegna þess að þeir myrtu for-
sætisráðherrann?" sagði hann.
Þingmenn verða að gefa upp aukatekjur
Úrslitín áfall
fyrir Major
London. Reuter.
Viðbúnaður
á Okinawa
BANDARÍSKUR hermaður við-
urkenndi í gær að hafa í sumar
nauðgað 12 ára gamalli stúlku
á Okinawa í Japan en þetta
mál hefur valdið því, að fram-
tíð bandarískra herstöðva í
landinu er í meiri óvissu en
áður. Sakbomingarnir em þrír
hermenn en aðeins einn þeirra
játaði á sig allar sakir. Hinir
tveir gengust við því að hafa
ráðist á stúlkuna og rænt henni
en kváðust ekki hafa nauðgað
henni. Réttarhöldin hófust
tveimur mánuðum eftir að at-
burðurinn átti sér stað en hann
hefur kynt undir kröfum í Jap-
an um að bandarískum her-
stöðvum í landinu verði lokað.
Er óttast, að þetta mál muni
skyggja á fund þeirra Bills
Clintons, forseta Bandaríkj-
anna, og Tomiichi Murayama,
forsætisráðherra Japans, í
Tókýó 20. þessa mánaðar. Hér
er verið að leiða einn sakborn-
inganna í réttarsalinn og eins
og sjá má er lögreglan við öllu
búin.
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, beið ósigur á þingi í fyrradag
er samþykkt var, að þingmenn
skyldu skýra frá tekjum, sem þeir
hefðu fyrir ráðgjöf hjá fyrirtækjum.
Tillaga, sem öll stjórnarandstaðan
studdi, um að þingmenn skyldu segja
frá tekjum, sem þeir hefðu af ráð-
gjafarstörfum, var samþykkt með
51 atkvæðis meirihluta. Sögðu
bresku blöðin í gær, að úrslitin væru
niðurlægjandi fyrir Major og vektu
upp efasemdir um forystu hans. 23
þingmenn íhaldsflokksins greiddu
tillögunni atkvæði og sagði einn
þeirra, David Martin, að forsætisráð-
herrann hefði haft slæma ráðgjafa.
Talsmenn Verkamannaflokksins
eru að sjálfsögðu sigrihrósandi en
Major, sem var við útför Yitzhaks
Rabins í ísrael þegar atkvæðagreiðsl-
an fór fram, sagði í gær, að hann
teldi enn rétt, að þingmenn þyrftu
ekki að skýra frá þóknun fyrir ráð-
gjafarstörf svo fremi þeir gengju
ekki erinda fyrirtækjanna á þingi.
Valdið væri hins vegar þingsins og
hann lagði áherslu á, að þetta mál
skipti engum sköpum fyrir stjórnina.
Tillagan um að þingmenn skýri frá
tekjum fyrir ráðgjafarstörf kemur
frá nefnd, sem Major skipaði sjálfur
eftir að ýmis hneykslismál höfðu
komið upp, sem vörðuðu bæði þing-
menn og ráðherra.
Þingmenn hafa nú frest fram í
apríl til að skýra frá tekjum sínum
fyrir ráðgjafarstörf en sagt er, að
sumir hyggist hætta þingmennsku
verði þeim bannað að drýgja þing-
mannslaunin, sem eru tæplega 3,4
millj. ísl. kr. á ári.