Morgunblaðið - 08.11.1995, Síða 17

Morgunblaðið - 08.11.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 17 Roh borð- ar hvorki né sefur ROH Tae-woo, fyrrverandi forsætisráðherra Suður- Kóreu, á erfitt með svefn og mat og virðist hafa misst lífs- löngunina, að sögn líflæknis hans. Hefur hann ekki verið verr á sig kominn í 20 ár. Hann viðurkenndi nýlega að hafa safnað með ólöglegum aðferðum jafnvirði 654 millj- óna dollara einkasjóði í for- setatíð sinni. Eldur eyddi fornri höll FJÓRIR menn týndu lífi þegar þeir reyndu að bjarga verð- mætum úr fornri höll á Ma- dagaskar í gær en hún eyði- lagðist í eldi. Var hún á sínum tíma aðsetur síðustu drottn- ingarinnar á eyjunni. Leikur grunur á, að um íkveikju hafi verið að ræða en höllin var á skrá Sameinuðu þjóðanna yfir friðaðar fornminjar. Madag- askar var sameinuð í eitt ríki undir stjórn Imerina-konungs- ættarinnar á öndverðri 19. öld en 1896 réðust Frakkar inn í landið og lögðu það undir sig. Arftaki Pen- tium kynntur BANDARÍSKA fyrirtækið Int- el kynnti nýlega arftaka Pen- tium-örgjörvans og nefnist hann Pentium Pro. Intel er stærsti framleiðandi á örgjörv- um í heiminum og segja tals- menn þess að Pentium Pro ráði við allt að 200 milljónir skipana á sekúndu. Ódýrasta útfærslan, 150 megariða, mun í upphafi kostá sem svarar 60.000 krónum. Ritarinn erfir skjöl Wilsons LAFÐI Falkender, einkaritari Harolds Wilsons, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, hlýtur öll skjöl hans og bréf er varða stjórnmál, samkvæmt erfða- skrá hans. Wilson lést í maí, 79 ára gamall, ekkja hans erf- ir aðrar eigur hans allar. Spilling í ítal- íuher könnuð GEFIN var út handtökutilskip- un á hendur nítján yfirmönn- um í ítalska heraflanum í gær, þar af sex mjög háttsett- um, vegna meintrar umfangs- mikillar spillingar í tengslum við samninga um kaup á vör- um og þjónustu fyrir herinn. Rannsóknin nær til níu borga og beinist aðallega að land- hernum, en að nokkru leyti að flugher og flota einnig. 1,3 milljónir búa við eymd HAFIÐ var umfangsmikið hreinsunar- og björgunarstarf á Filippseyjum í gær þar sem 1,3 milljónir manna búa við eymd af völdum fellibylsins Angelu sem gekk yfir landið í lok síðustu viku og um helg- ina. Um 500 manns hafa dáið af völdum veðursins. ERLENT Þúsundir manna minntust byltingar bolsévikka í Rússlandi Kommúnistum spáð sigri í þingkosningum Reuter GENNADÍ Sjúganov, leiðtogi rússneskra kommúnista, veifar til stuðningsmanna sinna á útifundinum i Moskvu í gær er minnst var byltingar bolsévikka árið 1917. Moskvu, Kíev. The Daily Telegraph, Reuter. MÖRG þúsund rússneskir kommún- istar minntust 78 ára afmælis bylt- ingar bolsévikka í Moskvu, Péturs- borg og víðar í Rússlandi í gær, margir héldu á myndum af Lenín og Stalín. Dagurinn, 7. nóvember, er enn opinber frídagur í landinu, kommúnistar í Úkraínu og Hvíta- Rússlandi héldu hann einnig hátíð- legan með útifundum. Nýjar skoð- anakannanir í Rússlandi benda til þess að hinn endurreisti kommún- istaflokkur landsins og stuðnings- flokkar hans fái allt að 40% atkvæða í þingkosningum í desember. Kommúnistar njóta þess að þeir eru vel skipulagðir um allt landið og eldra fólk, er margt styður þá, er vant að mæta á kjörstað enda skylda á kommúnistaskeiðinu. Deilt er um það hvort kommún- istaflokkurinn standi undir nafni. Margir telja að liðsmennirnir séu nær því að vera vinstri-jafnaðar- menn þótt forystumennirnir hylli marxismann og Sovétríkin í ræðum sínum. í reynd sé útilokað að snúa hjólinu við og taka upp efnahags- stjóm gamla tímans, hins vegar séu forystumennimir hlynntir mjög öflugu ríkisvaldi og minni stefna þeirra einna helst á stefnu peronista í Argentínu. Lýðræðisást þeirra sé varla mjög traust. Samstarf við þjóðernissinna? Stuðningsflokkar kommúnista em Bændaflokkurinn og tveir smáflokk- ar og fengu þessir flokkar nýlega 22 af 24 sætum í stjórn borgarinnar Volgograd. Flokkur kvenna er mjög öflugur, hann vill einnig afturhvarf til fyrri stjórnhátta í ýmsum efnum. Ásamt öfgafullum þjóðernissinnum á borð við liðsmenn Vladímírs Zhír- ínovskíjs, er beijast einnig gegn vestrænum umbótahugmyndum stjórnvalda, gætu því kommúnistar auðveldlega náð traustum meiri hluta í dúmunni. Flokkar róttækra umbótasinna og hófsamra miðju- manna fá vart meira en fjórðung þingsæta samanlagt ef marka má kannanir. Þátttakendur í fundi kómmúnista í Moskvu voru aðallega miðaldra og enn eldra fólk og fór allt skipulega fram. Þeir hylltu Gennadí Sjúganov, leiðtoga flokksins, og fordæmdu til- raunir stjórnvalda til að koma á markaðshagkerfí. „Þetta er ekki aðeins fortíðarþrá. Sovétríkin munu verða endurreist," sagði fullorðinn karlmaður. ' Leiðtogi kommúnista í Péturs- borg, Viktor Tjúlkín, sagði að því miður hefðu þeir enn ekki nægilegt afl til að geta „brotið hausa“ ráða- manna í Moskvu. Þess vegna yrði fyrst að ná völdum í dúmunni, neðri deild þingsins, sem kosið verður til í desember. Vilja nýjan Stalín . Einn þátttakenda í útifundinum í gær sagði að Rússland þyrfti „nýjan Stalín" til að losna við glæpagengin og er bent var á að Stalín hefði látið myrða milljónir saklausra borgara var svarað með spurningu. „Hvað dóu margir í borgarastyijöldinni [Þræla- stríðinu] í Bandaríkjunum?" Sérfræðingar telja að efnahagur Rússa sé nú loks að rétta úr kútnum eftir hrun Sovétríkjanna en stórir hópar fólks, einkum eftirlaunaþegar, njóta ekki batans og syrgja því sov- éttímann. Hvers kyns spilling, sem nú er öllum augljós vegna umfjöllun- ar frjálsra fjölmiðla, atvinnuleysi, munaður nýríkra og glæpafár á göt- um úti, eykur enn á reiði og örvænt- ingu fátækra. Forsetaembættið er mun valda- meira en þingið en fyrstu 12 mán- uðina eftir kosningar getur forseti þó ekki leyst þingið upp, eins og Borís Jeltsín forseti hótaði óspart til að knýja hrædda þingmenn til undir- gefni. Nýja þingið gæti á þessum tíma lamað stjórnina að verulegu leyti með mótþróa. Jeltsín er enn á sjúkrahúsi eftir annað hjartaáfallið sem hann hefur fengið á árinu og því nánast úr leik í stjórnmálabaráttunni sem stendur. Á einu spjaldi göngumanna í Moskvu stóð að afnema bæri forsetaembætt- ið - og Jeltsín. Valið á framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins Bandaríkj astj ó rn vill fleiri frambjóðendur Washington. Reuter. BÁNDARÍKJASTJÓRN er ekki til- búin á þessari stundu til að styðja Ruud Lubbers, fyrrverandi forsæt- isráðherra Hollands, sem næsta framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins, NATO, og vill, að leit- að verði fleiri frambjóðenda. Skýrði talsmaður bandaríska utanríkisráðu- neytisins frá því í fyrrakvöld. „Við vitum ekki almennilega í hvaða farvegi þetta mál er en við þurfum að ræða við bandamenn okkar og komast að samkomulagi. Að því er þó ekki komið enn,“ sagði Nicholas Burns, talsmaður utanrík- isráðuneytisins. Hann lagði áherslu á, að Bandaríkjastjórn hefði ekki augastað á neinum einum manni en vildi athuga fleiri en þá sem helst er rætt um. Bandaríkjastjórn mislíkaði og Spáni hafa lýst yfír stuðningi við hann og talið er, að ríkisstjórnin í Lúxemborg geri það einnig. Þá eru Grikkir og Tyrkir sagðir munu styðja niðurstöðu meirihlutans. Danir, Norðmenn og íslendingar styðja Danann Uffe Ellemann-Jensen. Miklu og kannski mestu mun þó skipta afstaða Bandaríkjanna og Kanada. Mikil óvissa Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, neitaði í gær þeim fréttum danskra fjölmiðla, að Þjóð- veijar hefðu horfið frá stuðningi við Lubbers og styddu nú Ellemann- Jensen. Sagði hann, að engin breyt- ing hefði orðið á afstöðu stjórnar- innar. Málefni Atlantshafsbandalagsins og þá ekki síst framkvæmdastjóra- málið voru rædd á fundi Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra og Súsönnu Agnelli, utanríkisráðherra Ítalíu, í Róm í gær. „Það er ljóst að mun meiri óvissa ríkir um næsta framkvæmdastjóra en ýmsir héldu fyrir nokkrum dög- um. Við vorum sammála um að það yrði að hást breið samstaða um málið og utanríkisráðherra Ítalíu hafði ekki lokað á neitt í þessu máli. Það er ljóst að Frakklandsfor- seti og forsætisráðherra Bretlands hafa komið sér saman um að styðja Ruud Lubbers en mér sýnist að það hafi ekki átt sér stað nægilega mik- ið samráð milli NATO-ríkjanna í málinu. Það er því greinilega nokk- uð í land með að niðurstaða náist," segir Halldór Ásgrímsson. Framboð Kwasniewskis Biðlað til smábænda Varsjá. Reuter, The Daily Telegraph. SMÁBÆNDAFLOKKURINN í Pól- landi, sem á aðild að ríkisstjóm ásamt flokki fyrrverandi kommúnista undir forystu Aleksanders Kwasniewskis, hefur ekki gert upp við sig hvort flokkurinn styðji Kwasniewski eða Lech Walesa forseta í seinni umferð forsetakjörsins 19. nóvember. Margir kjósendur Smábænda- flokksins eru sanntrúaðir kaþólikkar og því hallari undir Walesa. Smá- bændaflokkurinn studdi kommún- ista einnig áður en raunverulegt lýð- ræði komst á í landinu við hrun kommúnismans. Stærsti flokkur stjórnarandstöð- unnar, Miðflokkurinn, lýsti í gær yfir stuðningi við Walesa forseta í seinni umferðinni. Lokatölur úr fýrri umferð forsetakosninganna voru birtar í gær og sýna þær að Kwasni- ewski hlaut 35,1% atkvæða en Wa- lesa 33,1%. Ekki er hvort Bandaríkjamenn hafa eitthvað á móti Lubbers og hvað það þá er en haft er eftir heim- ildum, að þeim hafi mislíkað að Frakkar og aðrar Evrópuþjóðir skuli hafa tekið af skarið með hann eins og í ögrunarskyni við forystu Banda- ríkjanna í NATO. Bandarískur embættismaður sagði í gær, að nauðsynlegt væri, að menn ræddu saman áður en ákvörðun væri tekin og hann viður- kenndi, að Bandaríkjastjórn vildi hægja á ferlinu. Sagði hann, að í Washington fyndist mönnum sem Evrópuríkin eða Evrópusambandið teldi sig geta ráðið skipan næsta framkvæmdastjóra án samráðs við Bandaríkin. Staðan könnuð Sendiherrar NATO-ríkjanna 16 ætluðu að hittast í Brussel í gær til að ræða málin og kanna hve mikill stuðningurinn við Lubbers væri. Stjórnvöld í Frakklandi, Þýskalandi, Bretlandi, Ítalíu, Portúgal, Belgíu McNamara aftur til Víetnams ROBERT McNamara, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, kom aftur til Víetnams í gær, tveimur áratugum eftir lok striðsins sem hann átti svo mikinn þátt í. McNamara, sem er 79 ára, viðurkennir nú að stríðið hafi ver- ið „hræðileg rnistök" og kveðst vilja lækna gömul sár. „Eg kom hingað til að athuga hvort Víet- namar og Bandaríkjamenn geta dregið lærdóm af þvi sem reyndist harmleikur fyrir báðar þjóðimar," sagði hann við komuna til Hanoi. Á myndinni tekur Dao Huy, aðstoð- arutanríkisráðherra Víetnams, á móti ráðherranum fyirverandi. Reuter

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.