Morgunblaðið - 10.11.1995, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hæfileikar tíkurinnar Pílu tii að finna fé í fönn eru ótvíræðir
Þefskynið
hefur
aldrei
brugðist
HÆFILEIKAR Pílu, rúmlega árs
gamallar tikur á Stórutjömum í
Ljósavatnsskarði við að finna fé í
fönn hafa verið að koma í ljós síð-
ustu daga, en hún fann í byijun
vikunnar tvær ær í eigu Baldvins
Kr. Baldvinssonar á Torfunesi i
Köldukinn sem legið höfðu í fönn
í ellefu daga. Árangurslaust hafði
verið leitað að þessum kindum
áður en Píla kom til sögunnar.
Foreldrarnir afbragðs hundar
Píla er Collie tík, eitthvað
blönduð að sögn eigenda, Ásvald-
ar Ævars Þormóðssonar og Lauf-
eyjar Skúladóttur sem búa á Stór-
uljörnum. Hana fengu þau frá
Brúnagerði i Fnjóskadal, en faðir-
inn er frá Tunguhálsi í Lýtings-
staðahreppi. Bæði móðir og faðir
Pílu þykja afbragðshundar. Móðir
hennar, Týra hefur verið vel lið-
tæk við smalamennsku en ekki
hefur reynt á hæfileika hennar
við leit að fé í fönn.
Faðirinn, Kátur á Tunguhálsi,
sem er rétt að verða 10 ára gam-
all þykir einnig afbragðs fjár-
hundur og þá hefur hann tvívegis
drepið tófur í göngum, í seinna
skiptið eftir mikinn bardaga, en
Morgunblaðið/Kristján
PILA bregður á leik með hús-
bónda sínum, Ásvaldi Ævari
Þormóðssyni.
arnir hafa verið að fela sig i heyi
í hlöðunni og Iátið hana leita að
sér og hún hefur gaman af því,“
sagði Laufey.
Morgunblaðið/Laufey Skúladóttir
Hæfileikar Pílu við Ieit að fé í fönn þykja ótviræðir. A myndinni
sem tekin var við leit nýlega hefur hún fundið tvær kindur á lífí
undir snjóskafli.
tófurnar hljóp hann uppi. Bróðir
Pílu, úr sama goti sem er á Vatns-
leysu í Fnjóskadal hefur einnig
verið að finna fé sem grófst i fönn.
Píla hefur fundið um 20 kindur
sem lentu í fönn eftir norðaná-
hlaupið á dögunum, þar af 15 lif-
andi. „Við tókum hana með okkur
þegar byijað var að leita að fé
eftir óveðrið, en þá aðstoðuðum
við nágranna okkar á Heiðarbraut
á Fljótsheiði við leitina. Við vorum
með kústsköft til að byrja með,
en fengum síðar snjófíóðaleitar-
stangir og fundum þá 10-12 kind-
ur, allar á lífi.
Píla fylgdist grannt með aðför-
um okkar og eftir einhveija stund
hljóp hún upp á túnið þar sem við
höfðum verið áður og byijaði að
krafsa í holu eftir kústskaftið. Það
kom svo í ljós að þar undir þriggja
metra skafli voru þijár kindur á
lífí,“ segir Ásvaldur um tildrög
þess að hæfileikar Pílu komu í ljós.
Píla hefur fram til þessa ekki
hlotið þjálfun, en þau Laufey og
Ásvaldur, sem er í björgunarsveit-
inni á staðnum hafa fullan hug á
að þjálfa hundinn í vetur. „Krakk-
Morgunblaðið/Kristján
ÞORSTEINN Arnþórsson starfsmaður Skógræktar ríkisins að
Vöglum var að höggva jólatré í Vaglaskógi í gær.
Jólatré úr Vaglaskógi
MUN minna verður höggvið af jóla-
tijám hjá Skógrækt ríkisins í Vagla-
skógi nú í ár en vant er en starfs-
menn þar byijuðu nú nýlega að
höggva jólatrén.
Yfírleitt hafa verið höggvin allt
að 1.500 jólatré en nú telja þeir skóg-
ræktarmenn sig heppna nái þeir 800-
1.000 tijám. „Það er líklega betra
fyrir fólk að vera í fyrra fallinu ætli
það sér að ná í íslensk tré fyrir
næstu jól,“ sagði Sigurður Skúlason
skógarvörður.
Jólatrén eru höggvin á nokkrum
stöðum, í Fellsskógi, Þórðarstaða-
skógi, Vaglaskógi, Sigríðarstaða-
skógi og á Reykjahóli í Skagafirði.
Heimamenn kaupa að sjálfsögðu
jólatré sín í Vaglaskógi, en 'meiri-
hluti trjánna er seldur til Akureyrar:
„Við eigum bara ekki nóg af ttjám
í heppilegri stærð,“ sagði Sigurður
um ástæður þess að svo lítið af trjám
fer á markaðinn í ár. „Trén eru að
vaxa frá okkur, eru orðin of stór og
þá hefur ekki verið gróðursett nægt
magn á sínum tíma til að uppfylla
þá eftirspurn sem nú er fyrir jólatré."
Bæjarstjóri um uppsveiflu í atvinnulífi
Ovissa um hvort
breyting til batn-
aðar er varanleg
JAKOB Bjömsson bæjarstjóri á Ak-
ureyri segist vera ánægður með já-
kvæðan tón forystumanna í verka-
lýðsfélögum í bænum, en hann átti
sig samt ekki á hversu raunhæfur
hann sé. „Maður hefur vissulega séð
atvinnuleysistölur lækka, en það er
efí í huga mínum um hvort þetta
breytist aftur þegar líður fram á
haustið," sagði Jakob.
Hann sagði byggingariðnað blóm-
legan um þessar mundir, töluvert
væri í gangi af stórum verkefnum
sem yrðu það áfram. Umsvif í málm-
iðnaði hefðu aukist, m.a. kringum
Slipptöðina-Odda, og ennfremur
hefði störfum í bænum fjölgað með
tilkomu starfsemi Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna.
„Eg hef á tilfinningunni að at-
vinnulífið sé á uppleið og lækkandi
atvinnuleysistölur tala sínu máli, en
vitanlega á maður eftir að sjá hversu
varanleg þessi breyting er, daufasti
tími ársins er framundan," sagði
bæjarstjóri og benti á að jákvæðari
tónn í atvinnulífi og hjá verkalýðsfé-
lögum væri fyrsta skrefíð.
160 ára afmælis
Matthíasar Jochums-
sonar minnst
AKUREYRINGAR minnast þess á
morgun, laugardaginn 11. nóvem-
ber, að 160 ár eru liðin frá fæðingu
sr. Matthíasar Jochumssonar skálds
og prests á Akureyri. Á 85 ára af-
mæli hans árið 1920 var hann gerð-
ur að heiðursborgara Akureyrar en
hann lést-víku síðar, 18. nóvember.
Af þessu tilefni verður efnt til
dagskrár í Sigurhæðum, húsi Matt-
híasar. Tekin verða í notkun hljóm-
flutningstæki sem frú Einhildur
Sveinsdóttir hefur gefið safninu í
Sigurhæðum í minningu eiginmanns
síns, Marteins Sigurðssonar, en hann
var einn af forsvarsmönnum Matthí-
asarfélagsins, sem stofnað var árið
1958 í því skyni að koma upp safn-
inu að Sigurhæðum.
Sr. Matthías lét reisa húsið árið
1903 og bjó þar ásamt fjölskyldu
sinni til dauðadags. Matthíasarfélag-
ið eignaðist neðri hæð þess árið
1958 og kom þar upp minningar-
safni um sr. Matthías. Leitast var
við að búa stofurnar í sama stíl og
þær höfðu verið þegar skáldið bjó
þar. Safnað var húsmunum frá af-
komendum hans og stuðst við frá-
sagnir þeirra varðandi uppröðun.
Safnið verður opið almenningi frá
kl. 14.00 til 18.00 á afmælisdegi
Matthíasar og verður flutt þar dag-
skrá af snældu með verkum hans
sem til eru í vörslu Ríkisútvarpsins.
Dagskráin verður flutt kl. 14.15,
15.15, 16.15, og 17.15. Aðgangur
er ókeypis.
Vilja upp-
græðslu í
Glerárdal
UMHVERFISNEFND hefur lagt til
við bæjarstjóm Akuréyrar að við
gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta
ár verði varið þremur milljónum
króna af liðnum „átaksverkefni" til
að heíja landgræðslu í malamámum
norðan Glerár. Áætlun um verkið
liggur fyrir og mótframlag frá Land-
vemd liggur fyrir. Áætlað er að verk-
efnið geti skapað vinnu fyrir 15 til
20 manns.
Árni Steinar Jóhannsson, um-
hverfísstjóri Akureyrarbæjar, sagði
að í neðanverðum Glerárdal væri um
250 hektara landsvæði sem bærinn
hefði yfír að ráða, en á því væru
m.a. sorphaugar bæjarins og þá
væri ráðgert að Sorpsamlag Eyja-
fjarðar fengi tæpa 10 hektara til
umráða fyrir sína starfsemi. Svæðin
sunnan árinnar hefðu nokkuð jöfnum
höndum verið ræktuð upp, en norðan
megin væri annað uppi á teningnum.
Þar hefðu malamámur Akureyringa
verið til tuga ára og í vestanátt stæði
moldrokið yfír byggðina í Glerár-
hverfí til mikils ama fyrir íbúana.
Árni Steinar vonaðist til að tillaga
umhverfísnefndar yrði samþykkt en
áætlað er að það tæki um 5 ár að
sinna þessu verkefni.
-----♦ ♦ ♦
Hönnun Dalbraut-
ar meðfram Glerá
Hugað verði
að umhverfi
árinnar
UMHVERFISNEFND hefur beint
þeim tilmælum til bæjarstjórnar Ak-
ureyrar að samhliða því sem unnið
er að hönnun Dalbrautar, meðfram
Glerá, verði hannaður framtíðarfar-
vegur fyrir ána og umhverfí hennar.
Að mati nefndarinnar er hægt að
spara stórar fjárhæðir með því að
vinna að veglagningu og umhverfi
árinnar samhliða.
Árni Steinar Jóhannsson, um-
hverfísstjóri Akureyrarbæjar, sagði
að stöðugt hefði verið þrengt að Gler-
ánni á liðnum árum með vegafram-
kvæmdum og byggingum. Gleráin
væri perla í bæjarlandinu og þvi
væri sjálfsagt að sýna henni þá virð-
ingu sem henni bæri. „Það hefur
ævinlega verið hugsað meira um
byggingar og vegi en minna hugað
að umhverfi árinnar. Nefndinni hrýs
hugur við því ef nú á að hefja fram-
kvæmdir við nýjan veg upp með
ánni án þess að skoða framtíðarlegu
hennar um leið,“ sagði Ámi Steinar.
-----♦ ♦ ♦---
Verslunin
Jókó stækkar
VERKFÆRABÚÐIN við Furuvelli
13 hefur verið stækkuð um helming
og nafni hennar verið breytt í Jókó.
Verslunin tók til starfa fyrir um
ári og hefur vöruúrvalið aukist jafnt
og þétt, en þar eru á boðstólum
verkfæri af ýmsu tagi, málningar-
vörur og bílamálning svo fátt eitt
sé nefnt. Þá hefur verslunin umboð
fyrir Hotpoint heimilistæki. Eigend-
ur Jókó hafa samstarf við Heklu
um sölu á heimilistækjalínu sem
fyrirtækið hefur umboð fyrir.
---------♦ ♦ ♦----
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL: Sval-
barðskirkja: fermingarfræðsla kl.
11.00 á Kristniboðsdaginn, sunnu-
daginn 12. nóvember. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Aðalsafnaðarfundur
eftir messu. Grenivíkurkirkja:
Kyrrðar- og bænastund á sunnu-
dagskvöld kl. 21.00.