Morgunblaðið - 14.11.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 14.11.1995, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ I FRETTIR 85.000 tonn af síld borist áland SÍLDARAFLI landsmanna er kominn upp í 'liðlega 85.300 tonn samkvæmt tölum sem gefnar voru upp í gærmorgun. Af þessum afla hafa 20.303 tonn farið í frystingu, 14.469 tonn í söltun og 50.534 tonn í bræðslu. Eftir að frysta 4.7001 í heildina er talin þörf á 25 þúsund tonnum af síld I fryst- ingu og eru þvl eftir af því 4.697 tonn. Þörf er talin á 20 þúsund tonnum af síld í söltun í heild og eru eftir af því 5.531 tonn. Eftir er að veiða liðlega 44 þúsund tonn af úthlutuðum aflaheimildum í síld. Kenneth Peterson, aðaleigandi Columbia Aluminium Corporation Valið stendur nú á milli íslands og Venesúela KENNETH Peterson, aðaleigandi bandaríska álfyrirtækisins Columbia Aluminium Corporati- on, segir að fyrirtækið sé enn að viða að sér upplýsingum og vinna úr gögnum áður en endan- leg ákvörðun verður tekin um staðsetningu nýrr- ar álbræðslu. Stjórnendur fyrirtækisins skoðuðu aðstæður í Venesúela í seinustu viku. Peterson sagði í gær að valið stæði nú á milli íslands og Venesúela. Þegar stjómendur Col- umbia komu til íslands í seinasta mánuði kom fram að fjórir staðir kæmu til greina fyrir stað- setningu álversins; Kanada, Miðausturlönd, Ven- esúela og ísland. Peterson sagði að allar upplýsingar yrðu lagð- ar fyrir stjórnarfund sem haldinn yrði innan skamms en sérfræðingar væru enn að vinna að Stækkun ISAL hefur ekki áhrif á ákvörðun Columbia greiningu á þeim gögnum sem aflað hefur ver- ið. „Við ætlum að taka ákvörðun fyrir árslok," sagði hann. Peterson sagði að ákvörðun Alusuisse-Lonza í seinustu viku um stækkun álversins í Straums- vík kæmi ekki á óvart. „Við höfðum gert ráð fyrir að þetta yrði niðurstaðan. Hún hefur út af fyrir sig engin sérstök áhrif á ákvörðun okk- ar. Við erum að setja niður fyrir okkur hver yrði raunverulegur raforkukostnaður, launa- kostnaður, byggingarkostnaður og svo framveg- is, og ákvörðun A-L skiptir í rauninni ekki máli, vegna þess að við höfðum reiknað með þessari niðurstöðu," sagði hann. Aðspurður hvort Columbia myndi hugsanlega gera kröfu um sambærilegan orkusölusamning og gerður var milli ISAL og Landsvirkjunar sagði Peterson: „Við getum aðeins byggt áætlanir okkar á þeim upplýsingum sem við höfum fengið hjá Landsvirkjun og tilboð þeirra er hluti af útreikningum okkar. Hvort það er betra eða verra en samiö var um við Alusuisse skiptir ekki öllu máli. Ef Landsvirkjun vill taka ákveðna afstöðu hefur hún allan rétt til þess,“ sagði hann. Guðjón Peter- sen bæjarstjóri GUÐJÓN Petersen, framkvæmdastjóri Al- mannavama ríkisins, hefur verið ráðinn bæj- arstjóri Snæfellsbæjar. Stóðu allir bæjarfull- trúar að ráðningu hans og segist Páll Ingólfs- son, forseti bæjar- stjórnar, vera stoltur af að geta sagt frá samstöðu um ráðningu bæjarstjóra. „Ég sótti um af áhuga fýrir þessu starfí. Tel rétt að breyta til,“ segir Guð- jón Petersen um vista- skipti sín. Hann er að land allt og segist þekkja nokkuð til starfa þeirra. „Ég er mjög ánægður og hlakka til að fá að starfa fyrir og með þessum mönnum,“ segir hann. Nítján umsóknir Guðjón Petersen verða 57 ára gamall og hefur starf- að hjá Almannavörnum ríkisins í 24 ár, fyrst sem fulltrúi og síðan framkvæmdastjóri frá 1979. Hann tekur það fram að ákvörðun sín tengist ekki á neinn hátt þeim hörmungum sem dunið hafa yfir á þessu ári og bendir á að hann hafi sótt um bæjarstjórastarfíð áður en snjóflóðið féll á Flateyri. Hann hafi einfaldlega staðið frammi fyrir þeirri spumingu hvort ekki væri ástæða til að breyta til. í starfí sínu hefur Guðjón unnið með sveitarstjórnarmönnum um Stefán Garðarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Snæfellsbæjar, hóf störf sem fram- kvæmdastjóri útgerð- arfélagsins Snæfell- ings hf. í Ólafsvík í lok ágúst og var formlega veitt lausn frá embætti bæjarstjóra mánuði síðar. Nítján sóttu um bæjarstjórastarfíð. Gengið var frá ráðningu Guðjóns Petersens á aukafundi bæjarstjórnar í gær. Guðjón segist þegar hafa sent dómsmálaráðherra ósk um lausn frá störfum. Starfslok hans væru sam- komulagsatriði en hann kvaðst von- ast til að geta tekið við starfínu í Ólafsvík fljótlega eftir áramót. Eiginkona Guðjóns er Lilja Bene- diktsdóttir verslunarmaður og eiga þau tvö uppkomin böm og fjögur bamaböm. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Tillaga um viða- miklar breytingar „ÞAÐ er verið'að rústa skólanum," sagði Kristín Amalds skólastjóri Fjölbrautaskólans í Breiðholti um tillögu menntamálaráðherra um Eldur í strætis- vagnaskýli ELDUR kviknaði í strætisvagnaskýli á Miklubraut í gærkvöldi, en lög- regla náði að slökkva hann áður en slökkvilið kom á vettvang. Strætisvagnaskýlið er á milli Rétt- arholtsvegar og Grensásvegar og hafði verið kveikt í því. Að sögn lög- reglumanns í Reykjavík var bruninn minniháttar. breytingar á skólanum. I tillögunni felst að tæknisvið og matvælasvið skóians verði lögð niður. Kristín lét þessi orð falla á hverfafundi borgarstjóra í efra Breiðholti I gærkvöldi. í skýrslu sem menntamálaráðherra hefur sent frá sér er lagt til að málmiðnaðardeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti til- heyri Borgarholtsskóla og tréiðnað- ardeildin Iðnskólanum í Reykjavík. Einnig að rafíðnaðardeild og mat- væladeild hætti. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að hún hefði lesið skýrsluna í gær og að í henni kæmu fram miklar breytingar á Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti en litlar sem eng- ar á menntaskólunum í borginni. „Mér líst ekki alltof vel á þessar breytingar," sagði hún. Neyddust til að lenda á túni undir Esjuhlíðum YFIR Grafningi í samflugi á heimleið úr góðviðrisflugtúr austur í sveitir. „Hræddumst helst hrossataðshraukana“ FLUGMENN þriggja einka- flugvéla af Jodel-gerð úr Mos- fellssveit áttu ekki annarra kosta völ í fyrradag en lenda á túni undir Esjuhlíðum við Hrafnhóla er þeir sneru úr góðviðrisflugtúr austur I sveit- ir. Þoka grúfði þá yfir flugvell- inum í Mosfellsbæ og Reykja- vík einnig. „Það var stillilogn, einstak- lega fallegt veður og ótak- markað skyggni í ferðinni en er við nálguðumst heimaslóðir aftur voru þokubönd við jörðu sem þéttust eftir því sem nær dró,“ sagði Jón Karl Snorrason flugstjóri, sem var farþegi í einni flugvélinni. „í Mosfellsbæ stóðu fellin upp úr, þokan náði í 150 metra hæð. Við reyndum að kíkja niður en fengum upplýsingar um talstöð að ekki sæist út á brautarenda úr vallarhúsunum og turninn í Reykjavík sagði að þar væri ekki lendandi. Við hörfuðum til baka og fundum lítið og fallegt tún við Hrafnhóla, skelltum okkur þar niður og lentum heilu og Morgunblaðið/Jón Karl Snorrason FRÖNSKU Jodel-flugvélarnar á túninu við Hrafnhóla. Flug- maður TF-RJR var Hjörtur Ingólfsson, TF-ULF flaug Örn Johnson og Magnús Víkingur TF-REF. höldnu. Það eina sem við óttuð- umst voru hrossataðshraukar á túninu, þeir hræddu okkur helst, en voru sem betur fer mjúkir. f gærmorgun, þegar við náðum í flugvélarnar, voru þeir hins vegar gaddfreðnir og vélarnar hrímaðar. Að hreinsun lokinni gekk heim- flugið þó vel,“ sagði Jón Karl. I > I I i I ;■ I i i I ; i t i i j i l i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.