Morgunblaðið - 14.11.1995, Síða 6
MÖRGÚNBLAÐIÐ
6 ÞRIÐJUDAGUR 14.' NOVEMBER Í 995
FRETTIR
ísraeli krefst rannsóknar á hrakningaferð á Vatnajökli í ágúst sl.
Hyggst lögsækja skrifstof-
uraar sem seldu ferðina
EMANUEL Blass, fimmtugur verkfræðingur frá
ísrael sem var í hópi ferðamanna er lentu í hrakn-
ingum á Vatnajökli í ágúst sl., hefur sent Ferða-
málaráði bréf þar sem hann gerir kröfu um að
sett verði á stofn opinber rannsóknamefnd sem
kanni tildrög þeirra atburða sem þar urðu. Blass
lýsir ítarlega hrakningunum í bréfi sínu og kveðst
ætla að lögsækja þá sem seldu honum ferðina,
annars vegar ferðaskrifstofu í ísrael og hins
vegar Samvinnuferðum-Landsýn.
Magnús Oddsson ferðamálastjóri hefur sent
samgönguráðuneytinu bréfið til athugunar og
segir atburði sem þennan vekja upp hugleiðing-
ar um hvort setja eigi á stofn rannsóknarnefnd
slysa í íslenskri ferðaþjónustu.
Litið alvarlegum augum
Magnús kveðst ekki minnast þess að hafa
fengið bréf með jafn alvarlegri kröfu allan þann
tíma sem hann hefur starfað í ferðamálaráði.
„Á stundum berast bréf frá erlendum ferða-
mönnum þar sem þeir lýsa annaðhvort yfir
ánægju með ferðalag sitt um ísland eða kvarta
yfir einhveijum tilteknum þáttum, enda er eitt
verkefna ferðamálaráðs lögum samkvæmt að
kanna réttmæti kvartana í ferðaþjónustu. í þessu
tilviki er bréf Blass hins vegar annars eðlis en
svo að ég geti haft venjulegan hátt á afgreiðslu.
Þá fannst mér orðið vafamá! að erindi hans
væri innan lagaramma sem nær utan um starf-
semi ráðsins og taldi eðlilegt að hafa samráð
við samgönguráðuneytið um hvernig á að snúa
sér í þessu,“ segir Magnús. „Ég lít það alvarleg-
um augum ef erlendir ferðamenn telja sig hafa
fengið slæma þjónustu eða orðið fyrir slæmri
lífsreynslu hér á landi, og það verður að taka
til skoðunar hvort sem trú manna um slíkt sé
rökstudd eða ekki.“
Bréfið er í löngu máli og tvíþætt, þ.e. annars
vegar krafa um stofnun umræddrar nefndar sem
Blass segist vera reiðubúinn að vitna fyrir og
koma til íslands í þeim tilgangi, en auk þess
kveðst hann ætla að lögsækja seljendur ferðar-
innar, annars vegar í ísrael og hins vegar hér-
lendis. „Ætli maðurinn í málaferli er eðlilegt að
kannað verði gaumgæfilega hvort hugsanleg
rar.nsókn fari fram, því að niðurstaða slíkrar
rannsóknar gæti verið lögð fram í slíkum mála-
rekstri," segir Magnús.
Gagnrýnir aðbúnað harðlega
í bréfinu kveðst Blass enn vera óvinnufær
eftir atburðina á Vatnajökli, en eiginkona hans,
sem hann er einnig málsvari fyrir, hafi verið
heppnari. Hann gagnrýnir aðbúnaðinn í ferðinni
harðlega og kveðst ekki hafa fengið nægjanleg-
ar upplýsingar áður en lagt var upp. Magnús
segir að sér virðist bréfið afar ígrundað og yfir-
vegað og alls ekki skrifað í reiði eða bráðræði.
„Við höfum í landinu rannsóknarnefndir flug-
slysa og sjóslysa og höfum heyrt háværar kröf-
ur um rannsóknarnefnd umferðarslysa upp á
síðkastið. Það má því velta fyrir sér þeim mögu-
leika að huga að stofnun slíkrar rannsóknar-
nefndar í ferðaþjónustu sem fjalli um mál er
falla utan þessara þriggja áðurnefndra þátta,
burtséð frá þessu máli hópsins á Vatnajökli.
Með slíkum rannsóknum eru menn að sjálfsögðu
að draga lærdóm af reynslunni og komast að
því hvað fór úrskeiðis í hveiju tilviki, en einnig
að afla gagna fyrir hugsanleg tryggingamál síð-
ari tíma, málarekstur o.s.frv.,“ segir Magnús.
íraelska fyrirtækið ábyrgt
Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri Sam-
vinnuferða;Landsýnar kveðst telja ferðaskrif-
stofuna í ísrael bera ábyrgðina, hafi Blass og
ferðafélagar hans ekki fengið fullnægjandi upp-
lýsingar um eðli ferðarinnar og nauðsynlegan
búnað til hennar. SL hafi hins vegar sent ísra-
elska fyrirtækinu allar slíkar upplýsingar, mjög
ítarlegar.
„Maðurinn á samúð mína, því að hann hefur
greinilega ekki gert sér grein fyrir hvað íslensk
náttúra getur verið óblíð, og skiljanlega vill hann
finna einhvern sökudólg í þessu máli. SL seldi
honum ekki ferðina, heldur ísraelskri ferðaskrif-
stofu sem fékk send öll gögn um hvernig standa
ætti að ferðinni og hvernig menn ættu að vera
útbúnir. Hafi þessar upplýsingar ekki skilað sér
til ferðamannanna, er það mál sem þeir verða
að eiga við sína ferðaskrifstofu.
SL hefur hins vegar tryggingu á öllum sínum
ferðum og fari málið þá leið sem þessi ferðamað-
ur ræðir um, hvílir það í höndum tryggingafé-
lags okkar og lögmanna þess. Við höfum hins
vegar ekkert heyrt í manninum enn sem komið
er og aðhöfumst lítið fyrr en svo verður,“ segir
Helgi.
Fimm hús
til Flateyrar
KOMIÐ verður með fimm heils-
árshús sem keypt hafa verið til
Flateyrar á morgun. Kristján
Jóhannesson sveitarstjóri segir
að húsin verði orðin íbúðarhæf
um næstu helgi. Verða þau sett
niður á Oddatúni við Túngötu.
Keypt voru þijú hús frá Sel-
fossi og tvö frá Hafnarfirði.
Kristján kvaðst gera ráð fyrir
að strax yrði flutt inn í húsin eða
um eða upp úr næstu helgi.
„Svo er í fullum gangi undir-
búningur fyrir flutning á vinnu-
búðum sem Huttar verða hingað
frá Blöndu. Eg á von á að þær
verði komnar hingað fljótlega,"
sagði Kristján.
Að sögn Björgvins Björgvins-
sonar, framkvæmdastjóra
Hamraverks hf. í Hafnarfirði,
sem smíðaði tvö húsanna, er ann-
að þeirra 60 fermetrar en hitt
52 fermetrar, með þremur svefn-
herbergjum og svefnplássi fyrir
sjö til átta manns.
Morgunblaðið/Kristinn
TVÖ heilsárshús úr timbri voru í nótt flutt úr Hafnarfirði í Sundahöfn þaðan sem þau verða flutt
sjóleiðina til Flateyrar og sett niður við Túngötu.
Stöð 3 hefur útsendingar á dagskrá sinni þann 24. nóvember næstkomandi
Ódýrari áskrift en
hjá Stöð 2 og RÚV
ÁSKRIFT að Stöð 3 kemur til með
að verða ódýrari en áskrift beggja
þeirra sjónvarpsstöðva sem fyrir
eru á markaðinum, ef greitt er
með boðgreiðslum. Ef greitt er
með þeim hætti mun áskriftin
kosta 1.995 krónur, en 2.145
krónur ella. Þá er það einnig orðið
ljóst að útsendingar Stöðvar 3
hefjast þann 24. nóvember og
verður útsendingin opin fyrst um
sinn í kynningarskyni, að sögn
Úlfars Steindórssonar, fram-
kvæmdastjóra Stöðvar 3.
Úlfar segir verðmuninn í raun
meiri, ef miðað er við fjölda sjón-
varpsstöða sem i boði eru hjá Stöð
3. „Það sem við erum að bjóða eru
fjórar gervihnattarásir með
áskriftarstöðinni okkar og ef menn
ætla að bera saman áskriftarverð
Stöðvar 3 og Stöðvar 2, þá þarf
auðvitað að bæta við 900 kr. vegna
áskriftar að Fjölvarpinu," segir
Úlfar. „Við erum því að tala um
tæplega 2.000 króna verðmun."
Hann segir það vera stefnu
Stöðvar 3 að reyna að halda verði
áskriftar eins lágu og hugsast
getur í framhaldinu. Úlfar sagðist
gera ráð fyrir því að enn meira
yrði að gera í afgreiðslu Stöðvar
3, nú þegar að upplýst hafi verið
um verð áskriftar.
Neytendasamtökin höfð
með í ráðum
Úlfar segir að Neytendasamtök-
in hafí fengið áskriftarskilmála
Stöðvar 3 til umsagnar áður en
að endanlega var gengið frá þeim.
„Við ákváðum að fara þessa leið
til þess að fyrirbyggja að einhver
deilumál komi upp síðar meir,“
segir Úlfar. „Við töldum því heppi-
legt að hafa Neytendasamtökin
með í ráðum strax í upphafi í stað
þess að þau þyrftu hugsanlega að
koma að málinu síðar meir og þá
vegna kvartana viðskiptavina okk-
ar.“
Að sögn Sigríðar Arnardóttur,
lögfræðings Neytendasamtak-
anna, er þetta í fyrsta sinn sem
þetta er gert með þessum hætti.
„Við erum mjög ánægð með þetta
fyrírkomulag. Skilmálarnir voru
sendir okkur til umsagnar og farið
var eftir flestum þeim athuga-
semdum sem við höfðum fram að
færa. Svona fyrirkomulag getur
auðveldað öllum framhaldið. Minni
hætta er á því að einhverjar kvart-
anir komi upp eftir á og breyta
þurfi gildandi samningsákvæð-
um.“
Mjólkur-
fram-
leiðsla í
jafnvægi
MJÓLKURFRAMLEIÐSLA
hefur verið í mjög góðu jafn-
vægi í haust og bendir flest til
að ekki komi til mjólkurskorts
í vetur. Óskar Gunnarsson,
forstjóri Osta- og smjörsölunn-
ar, segir að meginástæðan fyr-
ir þessu sé sú að hey hjá bænd-
um á Suður- og Vesturlandi,
þar sem stærstur hluti mjólk-
urframleiðslunnar fer fram,
séu góð.
„Birgðir og framleiðsla eru
eins og best er á kosið á þess-
um árstíma. Við eigum því von
á að það verði gott jafnvægi
milli framleiðslu og neyslu í
vetur og öllu betra en í fyrra,“
sagði Oskar.
Heildarframleiðsla á mjólk
undanfarin ár hefur verið um
100 milljónir lítra. Nú eru
birgðir mjólkurafurða u.þ.b. 16
milljónir lítra.
Bændur fá greitt 13-14
krónum meira fyrir hvern
mjólkurlítra á haustin en á
öðrum árstímum. Þetta er gert
til að örva framleiðslu á mjólk
yfir haustmánuðina.
Fíkniefni
ekki bundin
höfuðborgar-
svæðinu
SALA og dreifing fíkniefna er
ekki lengur bundin við höfuð-
borgarsvæðið segir í ályktun
stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Eru sveitar-
stjórnir hvattar til að taka til
sérstakrar umfjöllunar fíkni-
efnanotkun unglinga.
Jafnframt segir að dæmum
um skipulagða sölu og notkun
fíkniefna í sveitarfélögum
fjölgi um allt land. Hvetur
stjórnin sveitarfélögin til að
vinna skipulega og markvisst
að fræðslu og forvörnum í sam-
vinnu við lögregluyfirvöld og
félagasamtök sem láta sig
þessi mál varða á hvezjum stað.
Skorar stjórnin á Alþingi að
herða viðurlög við smygli og
sölu á fíkniefnum og efla jafn-
framt þann þátt löggæslunnar
sem sinnir þeim málum.
Logandi feiti
í Listasafni
ELDUR kom upp í Listasafni
íslands á laugardagsmorgun,
en listmunir í safninu skemmd-
ust ekki.
Eldur kviknaði í potti með
feiti í eldhúsi safnsins. Starfs-
fólkið tók pottinn af eldavélinni
og náði að slökkva eldinn, en
við slökkvistarfið brenndist
einn starfsmanna á hendi.
Bílvelta í
hálku
Vogum, Morgunblaðið.
BÍLL valt á níunda tímanum í
gærmorgun á Vatnsleysu-
strandarvegi.
Ökumaður sem var einn í
bilnum slasaðist og var fluttur
á sjúkrahúsið í Keflavík. Bíll-
inn er mikið skemmdur. Veg-
urinn var glerháll þegar slysið
varð.