Morgunblaðið - 14.11.1995, Side 22

Morgunblaðið - 14.11.1995, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT 50 manns far- ast í flugslysi Lagos. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 50 manns biðu bana og 44 slösuðust þegar eldur kom upp í farþegaþotu af gerðinni Boeing 737 í brotlendingu á flugvellinum í Kaduna í gær. „Að minnsta kosti 50 fórust og tala látinna hækkar,“ sagði emb- ættismaður í Lagos og bætti við að um 120 manns hefðu verið í þotunni. Blaðamenn í Kaduna sögðu lík- legt að fleiri hefðu farist. „Við höfum heyrt að ef til vill hafi allt að 60 manns beðið bana,“ sagði einn þeirra. Blaðamennimir sögðu að um 44 hefðu verið fluttir á sjúkrahús, nokkrir alvarlega slasaðir, þeirra á meðal Breti. „Við vitum að skyggnið var mjög slæmt og að þotan fór hærra eða lengra en ætlað var í lend- ingu,“ sagði hátt settur embættis- maður í Lagos. Hann sagði ekkert hafa komið fram sem benti til skemmdarverks. Þotan var á vegum flugfélags- ins Nigeria Airways og talsmaður þess sagði að hún hefði komið frá Jos, nálægt Kaduna. „Þetta er daglegt flug sem hefst í Yola [í norðurhluta Nígeríu]. Vélin tók farþega á leið til Lagos í Jos og hélt síðan til Kaduna til að taka fleiri," sagði talsmaðurinn. Vélum fækkar vegna skulda Flugvélafloti Nigeria Airways hefur minnkað verulega þar sem lagt hefur verið hald á þotur flugfélagsins erlendis vegna van- goldinna skulda. Allri stjórn Nig- eria Airways var vikið frá í ágúst og ný stjóm skipuð til að freista þess að bjarga flugfélaginu. Flutningavél flugfélagsins af gerðinni Boeing 737 hrapaði í norðurhluta landsins í janúar og þrír flugmenn fómst. Mánuði síðar kom upp eldur í DC-10 flugvél Nigeria Airways á leið til London 20 mínútum eftir flugtak en flug- mönnunum tókst að lenda henni á alþjóðaflugvellinum í Lagos. Reuter Forseti Kína í Suður-Kóreu JIANG Zemin, forseti Kína, kom til Suður-Kóreu í gær í fimm daga heimsókn. Þetta er fyrsta ferð kínversks þjóðhöfðingja til Suður-Kóreu og hún er til marks um batnandi samskipti Iandanna, en sam- skipti Kína og kommúnistaríkisins Norður-Kóreu fara hins vegar versnandi. Kínverjar og Suður- Kóreumenn tóku upp stjórnmálasamband árið 1992 og síðan hafa suður-kóresk fyrirtæki fjárfest gífur- lega í verksmiðjum og byggingum við strönd Kína. A myndinni er kínverski forsetinn (t.v.) ásamt Gong Ro-Myung, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, við móttökuathöfn á flugvellinum í Seoul. Refsiaðgerðir gegn Nígeríu? London. Reuter. BRESKA stjórnin hvatti í gær til skjótra ákvarðana um refsiaðgerðir gegn Nígeríustjórn eftir að hún lét taka af lífi níu baráttumenn fyrir réttindum minnihlutaættbálks. Æðstu embættismenn Evrópu- sambandsins (ESB) hafa verið boð- aðir til fundar í Brussel í dag til að ræða hugsanlegar aðgerðir. Breskir sendifulltrúar hafa átt frumkvæði að viðræðum innan ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um viðeigandi aðgerðir. = HÉÐINN = VERSLUN SEUAVEGI2 SÍMI 562 4260 Frakkar krefjast enn að arftaki Claes tali frönsku París, Madrid. Reuter. FRAKKAR sögðu í gær að þeir hefðu aldrei talið að Uffe Elle- mann-Jensen, fyrrverandi utanrík- isráðherra Danmerkur, kæmi til greina sem framkvæmdastjóri Atl- antshafsbandalagsins, NATO. Talsmaður utanríkisráðuneytisins í Parfs sagði frönsku stjórnina álíta að Ruud Lubbers, fyrrverandi for- sætisráðherra Hollands, væri mjög hæfur í starfið en halda yrði áfram að leita að frambjóðanda sem sátt næðist um. Bandaríkjamenn höfn- uðu Lubbers fyrir skömmu þótt leiðtogar öflugustu ríkja NATO í Evrópu hefðu lýst yfir stuðningi við hann. Bandaríkjamenn voru mjög óánægðir með að helstu Evrópuríki NATO skyldu ekki hafa samráð við sig um val á eftirmanni Belgans Willy Claes í embættið. Hefð er fyr- ir því að Evrópumaður gegni því en Bandaríkjamaður sé yfirmaður her- afla bandalagsins. Bandaríkin eru lang-öflugasta ríki NATO og greiða um helming alls kostnaðar við rekst- ur þess. Stjómvöld í Washington ræddu við Lubbers og Ellemann-Jensen fyrir skömmu og er fullyrt að ráða- menn vestanhafs hafi fundist Lubb- ers fáfróður um ýmis málefni, eink- um Bosníu. Hins vegar telji þeir Ellemann-Jensen mjög hæfan í embættið. Bandaríkjamenn gramir Frökkum Vitað er að Bandaríkjamönnum gremst einnig hve mikla áherslu Frakkar, sem ekki hafa tekið þátt í hernaðarsamstarfi NATO frá 1966, leggja á að koma sjónarmið- um sínum á framfæri. Frakkar kreíjast þess m.a. að næsti framkvæmdastjóri sé mæltur á frönsku en það er Ellemann-Jens- en ekki. Að sögn embættismanna í París setja Frakkar einnig þau skil- yrði að næsti framkvæmdastjóri sé hlynntur stækkun NATO til austurs og nánari samvinnu Evrópuríkja og fullnægir Daninn þessum skilyrðum báðum mætavel. Ellemann-Jensen ræddi við Herve de Charette, utanríkisráðherra Frakklands, í rúman hálftíma síð- degis í gær og var að sögn þungbú- inn að fundinum loknum. Talsmaður franska utanríkisráðuneytisins skýrði frá því fyrirfram að frétta- menn fengju ekki tækifæri til að hitta Ellemann-Jensen í ráðuneytinu af þessu tilefni. Mjög sjaldgæft er að slíkt sé ákveðið og þykir ljóst að ætlunin hafi verið að niðurlægja danska stjórnmálamanninn með þessu. Er utanríkisráðherra Japans hugðist koma á framfæri mótmæl- um vegna kjarnorkutilrauna Frakka á Kyrrahafi á fyrirhuguðum fundi sínum í París með de Charette I sumar, var gripið til sama ráðs. Japaninn hætti við fundinn. Margir aðrir hafa verið nefndir til sögunnar sem arftakar Claes, þ. á m. Hollendingurinn Hans van den Broek, sem á sæti í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins (ESB), en hollenska stjórnin hefur ákveðið að mæla hvorki með honum né Lubbers. Einnig hefur verið minnst á Douglas Hurd, fyrrverandi utan- ríkisráðherra Bretlands, Bretann sir Leon Brittan, sem á sæti í fram- kvæmdastjóm ESB, Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Nor- egs, og varnarmálaráðherra Dana, Hans Hækkerup. Mistök ollu deilum Varnarmála- og utanríkisráð- herrar Vestur-Evrópusambandsins, er öflugustu NATO-ríki Evrópu eiga aðild að, komu saman til tveggja daga fundar í Madrid f gær til að ræða framtíðarstefnu í vamar- og öryggismálum álfunnar. Ljóst er að valið á framkvæmdastjóra NATO verður rætt mjög á göngum og einkafundum ráðherranna. Munu flestir á því að deilurnar milli Banda- ríkjamanna og Evrópumanna um framkvæmdastjóraefni hafi byijað vegna slæmra mistaka. Svo getur þó farið að þær verði til að auka enn misklíð sem var fyrir hendi vegna ýmissa mála, ekki síst stefn- una i málefnum Bosníu. Þekklr þú merkid? • Á bifreiöaverkstæðum þar sem félagsmenn okkar starfa eru þeir klæddir sérstökum vinnufatnaöi meö merki Bíliönafélagsins. • Merkið tryggir þér traustan fagmann sem kann vel til verka og hefuraðgang að endurmenntun á sínu sérsviði. • Láttu ekki bílínn þinn í hendurnar á hverjum sem er. Það gaeti orðíð þér dýrt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.