Morgunblaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 41
NILS
HAUGEN
+ Nils Haugen var
fæddur í Hall-
ingdal í Noregi 25.
febrúar 1914. Hann
lést á Borgarspítal-
anum 7. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Wigger
Haugen, f. 1875, og
Aagot Haugen, f.
1882. Systkini Nils
eru Syver, f. 1911,
d. 1987, Birgit, f.
1912, og Ola, f.
1915. Þau eru búsett
í Noregi. Nils
kvæntist árið 1949 Herborgu
Ólafsdóttur, f. 10.1. 1919, og
eiga þau eina dóttur, Anni, f.
1950. Nils kom fyrst til íslands
ÞEGAR Herborg systir hringdi til
mín og sagði mér lát manns síns
kom sú fregn ekki á óvart. Hann
hafði mátt þola þunga legu um all-
langt skeið.
Eg kann ekki að rekja ævi og
störf Nils Haugen, mágs míns, aði
neinu leyti. Ég veit það eitt, að
hann komst fyrst til landsins seint
á fjórða tug þessarar aldar þeirra
erinda að kenna Húnvetningum
refarækt og var eitt eða tvö ár hjá
Bimi á Löngumýri og lét jafnan vel
af dvölinni þar. Björn á Löngumýri
og Sigurður Pálmason, kaupmaður
á Hvammstanga, voru alla tíð síðan
hans menn, enda höfðu þeir báðir
dvalið í Noregi við nám og störf og
töluðu norsku. Kannski hefur það
átt sinn þátt í því að Nils lærðl aldr-
kringum 1937 og
vann þá við refa-
rækt í Húnavatns-
sýslu. Hann gekk
síðan í norska her-
inn hér á íslandi og
fór með honum til
Bretlands árið
1942. Eftir stríðið
vann hann við spor-
vagnana í Ósló, en
fluttist með fjöl-
skyldu sinni til ís-
lands árið 1956.
Frá árinu 1957 til
1982 vann hann hjá
norska sendiráðinu
á íslandi.
Útför hans fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag og hefst at-
höfnin kiukkan 13.30.
ei almennilega íslenskt talmál, en
hann kunni íslensku mjög vel. Það
er haft fyrir satt að fyrstu íslensku
bækurnar, sem hann keypti, voru
íslendingasögurnar og Ias hann þær
af gaumgæfni og gat vitnað í þær
vítt og breitt bæði varðandi efni og
staðfræði. Oft leitaði ég til hans
með skýringar á norskum orðum
og orðtökum og hann átti auðvelt
með að yfirfæra þau á góða ís-
lensku. Þessi kunnátta hans á ís-
lensku máli mun hafa komið honum
að góðum notum, er hann var starfs-
maður hjá norska sendiráðinu um
árabil og þýddi forustugreinar dag-
blaðanna og hverskonar lesefni ann-
að fyrir sendiherrana. Hjá sendiráð-
inu vann hann hin ólíklegustu störf.
Hann var dyravörður, símavörður,
GUÐMUNDUR
ERLENDUR
GUÐMUNDSSON
+ Guðmundur Er-
lendur Guð-
mundsson fæddist í
Reykjavík 23. maí
1968. Hann lést 24.
október síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Nína Mathie-
sen og Guðmundur
Erlendur Her-
mannsson. Guð-
mundur ólst upp á
Langeyrarvegi 5 í
Hafnarfirði, stund-
aði nám í Víðistaða-
skóla í Hafnarfirði
og seinna í Iðnskól-
anum, þar sem hann lauk námi
í rafeindavirkj un. Útför Guð-
mundar fór fram í kyrrþey.
MEÐ ÞESSUM fáu orðum langar
okkur að minnast bekkjarfélaga
okkar, Guðmundar Erlends Guð-
mundssonar, sem ávallt var kallaður
Mummi innan bekkjarins.
Við eigum margar skemmtilegar
minningar um Mumma. Hann var í
minningunni léttlyndur strákur, sem
oftar en ekki sá spaugilegu hliðarn-
ar á tilverunni. Hann gat einnig
verið hlédrægur og feiminn, en oft-
ast var hann hrókur alls fagnaðar.
Hann var vinsæll meðal bekkjarfé-
laga og þegar kjósa átti í skemmti-
nefndir eða ráð var Mummi þar
ávallt efstur á lista. Sem námsmað-
ur var hann samviskusamur og dug-
legur og ætíð reiðubúinn að rétta
öðrum bekkjarfélögum sínum hjálp-
arhönd.
Þegar við lítum til baka voru
þessi skólaár þroskandi og skemmti-
legur tími og Mummi meðal eftir-
I Krossar
“TT áleiði
I viðarlit og móloSjr.
Mismunandi mynslur, vönduS vinna. j
Siml SBS S989 og B83 BV’38 1
minnilegustu skólafé-
laganna. Enda þótt
leiðir hafi skilið eftir
skólann og stundimar
sem við áttum saman
síðustu ár hafí ekki
verið margar er
Mumma sárt saknað.
Við viljum votta að-
standendum, ættingj-
um og vinum okkar
dýpstu samúð í þessari
miklu sorg.
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af al-
hug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fenp að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Minningin um góðan dreng lifir.
Kveðja,
Gamlir bekkjarfélagar
úr Víðistaðaskóla.
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingai*
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUQLEIÐIR
UÍTEL UIFTLEIIIIR
bílstjóri, þjónn þegar á þurfti að
halda og síðast en ekki síst garð-
yrkjumaður og bar garðurinn við
sendiráðsbústaðinn í Fjólugötunni
þess fagurt vitni. Ég sagði honum
oft að hann ynni þriggja manna
verk, enda var vinnudagurinn oft
langur. Ég held að hann hafi sinnt
kalli hvenær sólarhringsins sem
var, en hvort hann hlaut laun fyrir
sem vert var dreg ég í efa.
Þrátt fyrir að hafa unnið meiri
hluta sinnar starfsævi á íslandi varð
hann aldrei íslendingur, hann var
norskur ættjarðarvinur fram í fíng-
urgóma. Hann gerðist liðsmaður í
norska hernum, fyrst hér á landi
en síðar í Bretlandi, en aldrei var
hann margorður um þann tíma.
Nils var mikill náttúruunnandi og
útivistarmaður og stunduðu þau
hjónin tíðum gönguferðir um ná-
grenni Reykjavíkur, en eftir að þau
eignuðust bíl tóku þau upp tjaldúti-
legur og stundum var veiðistöngin
með í ferð.
Annars var Nils í rauninni einfari
og einrænn og hafði fastmótaðar
skoðanir um menn og málefni. Kom
fyrir að hitnaði okkar á milli, en
allt var það í fullri vinsemd en eins
og geta má nærri tókst hvorugum
að sannfæra hinn. Það þarf varla
að taka það fram að Nils var harð-
ur talsmaður Norðmanna í hafrétt-
armálum og taldi íslendinga ekkert
eiga í norsku síldinni eða þorskinum
í Smugunni.
En það var eigi að síður oft gam-
an að spjalla við Nils og marga
skemmtilega kvöldstund áttum við
Ingibjörg hjá þeim hjónum eftir að
við fluttumst til borgarinnar og
meðan við bjuggum úti á landi nut-
um við gestrisni þeirra í ríkum mæli.
Við kveðjum Nils með miklu
þakklæti í huga.
Ingibjörg og Gunnar.
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
Erfidryfofijur
frd kr. 590 pr. ntann
Sfmar-
551 1247
551 1440
MsfMs^klkjjw
Safnaðarheimili
Háteigskirkju
Sími:
551 1399
t
Bróðir okkar,
GUNNAR ERLENDSSON,
Kálfatjörn,
varð bráðkvaddur laugardaginn 11. nóvember sl.
Systkini
og fóstursystkini.
t
EDDA GUÐNADÓTTIR,
Ljósheimum 10,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 12. nóvember.
Gunnar Sæmundsson,
Oddur Ólason, Erla Sigríður Guðjónsdóttir,
Guðni Gunnarson,
Edda Sif Oddsdóttir,
Anton Oddsson.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og
amma,
ELÍN BRYNJÓLFSDÓTTIR,
vistheimilinu Seljahlið,
áður Látraseli 7,
lést í Borgarspítalanum 11. nóvember.
Anna Lfna Karlsdóttir, Jónas Hermannsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR ALBERT LÚÐVÍKSSON,
andaðist aðfaranótt 14. nóvember.
Oddný Vilhjálmsdóttir,
Gissur Vilhjálmsson, Bryndis Sigurðardóttir,
Lúðvik Vilhjálmsson, Ingveldur Fjeldsted,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ERLINGUR BRYNJÚLFSSON
fyrrv. fulltrúi hjá
Eimskipafélagi (slands,
Eskihlíð 11,
Reykjvík,
andaðist í Borgarspítalanum 4. nóvember sl.
Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki deildar A-7 á Borgarspítala.
Unnur Samúelsdóttir,
Sigríður Erlingsdóttir Wilson, Harold J. Wilson,
Samúel Örn Erlingsson, Ragna Ragnarsdóttir,
Brynjúlfur Erlingsson, Margrét Björnsdóttir
og barnabörn.
t
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR KRISTINN
SIGURÐSSON,
Dalbraut 27,
áður Hátúni 8,
lést þann 5. nóvember.
Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Halldóra Guðmundsdóttir,
Gylfi Guðmundsson,
Bragi Guðmundsson.
t
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
HARALDUR ÁGÚSTSSON
stórkaupmaður,
Blómvallagötu 2,
lést föstudaginn 10. nóvember.
Ágúst Haraldsson, Erla Þorsteinsdóttir,
Steinunn Haraldsdóttir,
Elínborg Haraldsdóttir,
Kristín Haraldsdóttir
og fjölskyldur.