Morgunblaðið - 14.11.1995, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 47
\
GISTISTAÐURINN Puerto Plata Village.
Heimsklúbbur Ingolfs og
Príma með aðalumboð
fyrir Apa Air International
HEIMSKLUBBUR Ingólfs og
Ferðaskrifstsofan Prima hafa gert
umboðssamning við nýtt flugfélag
í Karíbahafi, Apa Air Intemational
um sölu á farseðlum flugfélagsins
til íslendinga. Farseðlarnir eru á
lækkuðu verði, en samningurinn
hefur verið í gildi frá 28. október sl.
Apa Air notar nýjar Airbus 300
þotur með breiðinnréttingum. í
tengslum við flug Flugleiða til Fort
Lauderdale og New York, þar sem
heimsklúbburinn nýtur einning sér-
samninga, er daglegt flug Apa Air
milli Miami og höfuðborgarinnar
Santo Domingo og einnig milli New
York-Santö Domingo og/eða Pu-
erto Plata sem er orðinn viður-
kenndur dvalarstaður íslendinga,
Útgáfutónleikar
Borgardæt-
ur í Borgar-
leíkhúsi
. BORGARDÆTUR kynna væntan-
lega hljómplötu sína á útgáfutón-
leikum í Borgarleikhúsinu í kvöld
klukkan 20.30. 13 manna hljóm-
sveit undir stjórn Eyþórs Gunnars-
sonar, leikur undir söng þeirra
Andreu Gylfadóttur, Berglindar
Bjarkar Jónasdóttur og Ellenar
Kristjánsdóttur, sem auk þess fá
til sín þijá leynigesti.
Tónleikarnir eru liður í þriðju-
dagstónleikaröð Borgarleikhússins.
Ný plata Borgardætra, Bitte nú,
kemur út í lok þessarar viku. Á
henni eru 11 gömul erlend lög, eft-
ir Cole Porter og fleiri, með íslensk-
um textum eftir Friðrik Erlingsson,
Ragnheiði Ástu Pétursdóttur og
Einar Thoroddsen.
Ekkert söluátak
einkum á gististaðnum Puerto Vill-
age, þar sem allt er innifaiið meðan
á dvöl stendur, auk gistingar bæði
matur og drykkur, íþróttaaðstaða
og skemmtanir, segir í tilkynningu
frá Heimsklúbbi Ingólfs.
Með tilkomu hinna nýju fargjalda
hefur Heimsklúbburinn/Príma
lækkað verðið til Dominikana og
selur nú ferðir þangað fyrir innan
við 100 þúsund krónur í 10 daga
með öllu inniföldu. Hin nýju far-
gjöld geta einnig komið til góða
þeim sem ætla í siglingu í Karíba-
hafi, enda er vinsælt að tengja sam-
an vikusiglingu á farþegaskipi og
dvöl í Dominikana. Heimsklúbbur-
inn/Príma hefur umboð á íslandi
fyrir Camival Cruise Lines.
Ráðstefna
um kirkjuleg
málefni
„AUÐLEGÐ, skortur og ábyrgð“ er
yfirskrift ráðstefnu sem haldin verð-
ur á vegum Biblíuskólans við Holta-
veg í húsakynnum KFUM og K,
Holtavegi 28, laugardaginn 28. nóv-
ember kl. 12-16.30.
Leitast verður við að svara spurn-
ingum eins og Hver er hugsjón kirkj-
unnar, hver er ábyrgð okkar? Dr.
Hjalti Hugason prófessor fjallar um
hugsjón kirkjunnar og hins kristna
í neyslusamfélaginu, Jónas Þórisson,
framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, fjallar um efnishyggjuna
og ábyrgð okkar gagnvart lítilmagn-
anum, sr. Kjartan Jónsson, kristni-
boði tekur fyrir spurninguna: Hver
er ábyrgð okkar á eignum okkar,
gagnvart Guði og náungangum?
Kristín Sverrisdóttir kennari mun
síðan fjalla um alsnægtir og skort á
ábyrgð.
Ráðstefnan er öllum opin og er
ráðstefnugjald 1.000 kr. Kaffi er
innifalið og lýkur innritun 17. nóv.
Bifreið skemmd
í gangi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Foreldra-
samtökum um vímulausa æsku:
„Vegna fjölda ábendinga um að
nú standi yfir söluátak til styrktar
Vímulausri æsku vilja samtökin
taka fram að ekkert slíkt átak
stendur yfir af hálfu foreldrasam-
takanna. Svo virðist sem einhverjir
notfæri sér nafn samtakanna í fjár-
öflunarskyni.
Vímulaus æska hefur einkarétt
á notkun heitis samtakanna og bið-
ur því fólk sem beðið er um að
styrkja Vímulausa æsku með vöru-
kaupum að kynna sér hveijir standa
að því og láta samtökin vita. Sími
Vímulausrar æsku er 581 1817.“
- kjarni málsins!
í Laugardal
SKEMMDIR voru unnar á hvítri
bifreið af gerðinni Honda CRX á
bílastæði Laugardalslaugarinnar
milli klukkan 13 og 14 síðastliðinn
laugardag. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um málið eru beðnir
að snúa sér til rannsóknadeildar
Lögreglunnar í Reykjavík.
Vinningstölur 11. nóv. 1995
4.7*9.13«14.16*22
Vinningstölur 13. nóv. 1995
1.4.5.8.12.19*24
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
FRÉTTIR
Ur dagbók lögreglunnar
••
I DAGBOKINA um helgina eru
skráð 34 afskipti af ölvuðu fólki
á almannafæri. í flestum tilvikum
var um að ræða fullorðið fólk sem
ekki kunni fótum sínum forráð.
Vista þurfti 30 einstaklinga í
fangageymslunum.
I fyrra rituðu lögreglumenn
1.684 skýrslur á afskipti sín af
ölvuðu fólki á almannafæri, Af
þeim voru 103 undir 18 ára aldri
og 51 átján ára. Það ár voru
3.616 vistanir skráðar í fanga-
geymsluna (3.315 karlar karlar
og 301 kona). Af þeim voru 257
yngri en 18 ára, 129 átján ára
og 121 nítján ára. Það ár voru
505 einstaklingar kærðir vegna
líkamsmeiðinga. í flestum tilvik-
um hafði áfengi verið haft um
hönd þegar afbrotið var framið.
Af þeim voru 64 yngri en 18 ára
og 44 átján ára.
Tíu ökumenn, sem lögreglu-
menn þurftu að hafa skipti af,
eru grunaðir um að hafa verið
undir áhrifum áfengis. Þrír þeirra
höfu lent í umferðaróhöppum
áður en til þeirra náðist.
í 32 tilvikum var tilkynnt um
hávaða og ónæði utan dyra og
innan að kvöldi og næturlagi.
Oftast var um að ræða ölvað fólk
sem ekki fannst ástæða til að
taka tillit til annarra.
Á mánudagsmorgun hafði ver-
ið tilkynnt um 14 innbrot til lög-
reglunnar á starfssvæðinu. M.a.
var tilkynnt um innbrot í fyrir-
tæki við Síðumúla, Langholtsveg,
Skipholt, og Skeifuna, vinnuskúr,
verslun við Arnarbakka, hús við
Brekkubæ, bifreiðir við Sæbraut,
Fossháls, Háteigsveg og Stuðla-
sel. Á sunnudagskvöld handtóku
lögreglumenn mann sem var að
bijótast inn í bifreið nálægt fyrir-
tæki við Fossháls. Þá voru þrír
menn handteknir við Bústaðaveg
eftir innbrot í bensínstöð aðfara-
nótt mánudags. Mennirnir voru
Olvaðir
kunnu ekki
fótum sín-
um forráð
10.-13. nóvember
vistaðir í fangageymslunum.
Skömmu eftir miðnætti á föstu-
dag var maður handtekinn í íbúð
nálægt Snorrabraut eftir að sést
hafði til hans reyna að bijótast
þar inn.
Tilkynnt var um 20 umferðar-
óhöpp. Af þeim urðu slys á fólki
í fimm tilvikum. Um miðjan dag
á föstudag var ökumanni ekið á
slysadeild eftir árekstur þriggja
bifreiða á gatnamótum Lang-
holtsvegar og Skeiðarvogar. Að-
faranótt laugardags varð gang-
andi vegfarandi fyrir bifreið á
Hverfisgötu gegnt Smiðjustíg.
Meiðsli hans voru minni háttar.
Á laugardag meiddist ökumaður
lítils háttar í árekstri tveggja bif-
reiða á gatnamótum Frostafoldar
og Fjalikonuvegar. Um svipað
leyti hlaut ökumaður minni hátt-
ar meiðsli í árekstri tveggja bif-
reiða á gatnamótum Hringbraut-
ar og Njarðargötu. Á sunnudags-
morgun voru ökumenn ásamt
barni fluttir á slysadeild eftir
árekstur á Hringbraut gegnt
Langspítalanum.
Á laugardagsmorgun var til-
kynnt að maður lægi slasaður á
gangstéttinni við Listabraut. Sést
hafði til mannsins steypast niður
grasbrekku þar skammt frá
skömmu áður og lenda með afli
á höfuðið á gangstéttina. Maður-
inn virtist talsvert slasaður og
voru því starfsmenn RLR kvaddir
á vettvang ef ske kynni að
maðurinn hefði hlotið áverka
áður en óhappið varð.
í miðborginni voru um 2.000
manns þegar mest var aðfaranótt
laugardags. Síðla nætur voru
flestir þar á aldrinum 16-20 ára.
Handtaka þurfti 5 manns sökum
ölvunar eða af öðrum ástæðum.
Vista þurfti 4 þeirra í fanga-
geymslunum.
Aðfaranótt sunnudags var
svipaður fjöldi í miðborginni þeg-
ar mest var. Lögreglumenn
þurftu að handtaka 9 manns, en
af þeim voru 4 vistaðir í fanga-
geymslunum. Lögreglumenn
helltu niður talsverðu af áfengi
þeirra, sem voru enn of ungir til
að mega hafa það undir höndum.
Maður var sleginn niður og
sparkað í hann í Hafnarstræti.
Hann var fluttur á slysadeild, en
árásarmennirnir náðust.
Aðfaranótt laugardags var til-
kynnt um eld í húsi við Kvist-
haga. Þar hafði kviknað í sjón-
varpstæki af völdum kertis. Tjón
varð óverulegt. Á laugardag var
kveikt í biðskýli við Hverfisgötu.
Skömmu eftir miðnætti á
föstudag þurftu lögreglumenn að
hafa afskipti af manni, sem hafði
ætlað að sparka í dyravörð vín-
veitingastaðar, en misst marks
og því sparkað í rúðu, sem brotn-
aði við höggið. Aðfaranótt sunnu-
dags kom upp svipað atvik þegar
kona reyndi að sparka í og bíta
dyravörð á veitingastað í mið-
borginni.
Samstarfshópur lögreglunnar
á Suðvesturlandi í umferðarmál-
um ákvað sl. þriðjudag að á næst-
unni muni lögreglumenn á svæð-
inu beina athygli sinni sérstak-
lega að gangandi vegfarendum.
Vakin verður athygli á umferðar-
reglum fyrir þann hóp vegfar-
enda og þeir hvattir til að virða
reglurnar.
■ REYKA VÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst miðvikudag-
inn 15. nóvember. Kennt verður frá
kl. 19-23 og eru kennsludagar
15., 16. og 20. nóvember. Nám-
skeiðið telst verða 16 kennslustund-
ir og verður haldið í Fákafeni 11,
2. hæð. Meðal þess sem kennt verð-
ur á námskeiðinu er blástursmeð-
ferðin, endurlífgun með hjarta-
hnoði, hjálp við bruna og blæðing-
um úr sárums. Einnig verður ijallað
um helstu heimaslys, þ.m.t. slys á
börnum og forvarnir almennt. Að
námskeiðinu loknu fá nemendur
skírteini sem hægt er að fá metið
í ýmsum skólum. Önnur námskeið
sem eru haldin hjá Reykjavíkur-
deildinni eru um áfallahjálp, hvern-
ig á að taka á móti þyrlu á slysstað
og slys á börnum.
VINNINGSTOLUR
LAUGARDAGINN
11.11.1995
3 )(16)(18
23X32]
VINNINGAR
FJÖLDl
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
1.5 al 5
2.003.450
24 af 5 (
• Plús
80.580
67
8.290
2.213
580
Helldarvlnningsupphæ&:
4.164.740
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR