Morgunblaðið - 15.11.1995, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Heilbrigðisráðherra um St. Jósefsspítala
Bráðaþj ónusta
verði lögð niður
Mengun og
raki í loftinu
ÁBERANDI gulur og rauður lit-
ur var ríkjandi í þokunni sem lá
yfír höfuðborgarsvæðinu meðan
sólar naut í gær og segir Eyjólf-
ur Þorbjörnsson veðurfræðingur
að skýringa á því sé að leita í
litrófí ljóssins.
Sólin skíni í gegnum mikinn
raka og jafnvel óhreinindi og
brotnar þá niður í liti. Því lægra
sem þokan liggur því rauðleitarí
verður blærínn.
Eyjólfur segir að þetta gerist
þó ekki alltaf þegar þoka er
heldur séu litbrigðin nokkuð háð
rakanum I loftinu og óhrein-
indunum. „Þegar sýndar eru
myndir frá Indlandi þar sem
sólin er eldrauð við sólarlag þá
er það af völdum raka og meng-
unar í loftinu. Á Reykjavíkur-
svæðinu er komin töluverð
mengun frá verksmiðjum og bfl-
um og litbrigði af þessu tagi eru
lfldega algengari hér en annars
staðar á landinu," sagði Eyjólf-
ur.
Meðfylgjandi mynd tók Ragn-
ar Axelsson á sama stað við Ólf-
arsfell og baksíðumy ndin með
sérkennflegu litunum var tekin
í gær. Þá var greinilega ekki
jafnmikill loftraki og í fyrradag,
enda engin þoka yfír borginni.
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur
mótmælt þeirri fyrirætlun heil-
brigðisráðherra að breyta megin-
starfsemi St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði. í erindi ráðherra til
stjómar spítalans er gert er ráð
fjúir að bráðaþjónustu á lyflækn-
ingadeild verði hætt og handlækn-
ingadeild verði breytt í fimm daga
deild.
Hafnarfjarðarbær eignaraðili
í bókun bæjarráðs Hafnarfjarð-
ar er einnig minnt á að Hafnar-
íjarðarbær er eignaraðili að spíta-
lanum og að allar tillögur um
breytingar á meginstarfsemi hans
hljóti að koma til umfjöllunar hjá
bæjaryfirvöldum. Á því hafi verið
nokkur misbrestur. Fram kemur
að bæjarráð mótmæli eindregið
þeim fyrirætlunum að breyta meg:
instarfsemi spítalans eða ... „í
Bæjarráð Hafnar-
fjarðar bókar
mótmæii
fyrsta lagi verði bráðaþjónustu á
lyflækningadeild hætt, í öðru lagi
verði handlækningadeild breytt í
fimm daga deild ...“ eins og seg-
ir í bréfi heilbrigðisráðherra til
stjómar spítalans.
Mikilvægir þættir leggjast af
Ámi Sverrisson, framkvæmda-
stjóri St. Jósefsspítala, segir að
óskað hafí verið eftir fundi með
heilbrigðisráðherra, þar sem
stjómin sé ekki sátt við tillögur
tilsjónarmannsins, sem ráðherra
skipaði um miðjan september, og
ráðherra hafí gert að sínum. „Við
viljum fá tækifæri til að ræða við
ráðherrann og gera okkar athuga-
semdir,“ sagði Ámi.
„Þetta þýðir að eiginleg sjúkra-
hússtarfsemi leggst niður eins og
hún hefur verið fram að þessu og
gerir það að verkum að mjög
veigamiklir þættir, sem Hafnfirð-
ingar og nágrannabyggðarlögin
hafa getað gengið að, leggjast af.“
Engar áætlanir
Ámi sagði að engar áætlanir
væm um hvaða þjónusta tæki við,
einungis sé tekið fram að hún eigi
að verða önnur án nokkurrar skil-
greiningar. „Við getum ekki séð
að sú þjónusta sem við höfum
veitt fram að þessu geti dottið
sjálfkrafa inn í þjónustu sjúkra-
húsanna í Reykjavík," sagði hann.
„Þau eiga við verulegan uppsafn-
aðan vanda að stríða og geta ekki
bætt á sig þjónustu."
Félög eldri borgara
Mótmæla
fyrirhugaðri
skerðingu
í ÁLYKTUNUM frá félögum eldri
borgara á Akranesi og í Borgamesi
og nágrenni eru samþykkt mótmæli
vegna fyrirhugaðrar skerðingar á
greiðslum til lífeyrisþega frá næstu
mánaðamótum, samkvæmt frum-
varpi til fjárlaga ríkisins, sem nú
liggur fyrir Alþingi.
I ályktun félaganna kemur fram
að lækka eigi lífeyrisgreiðslur um
6-7% á næsta ári. Þá er mótmælt
tillögu um skerðingu á bótum al-
mannatrygginga og aukinni greiðslu
lífeyrisþega fyrir heilbrigðisþjón-
ustu. Fyrirhuguðum fjármagns-
tekjuskatti, sem eingöngu á að
leggja á lífeyrisþega, er mótmælt
og bent á að fjármagnstekjuskatt
ætti að leggja á alla fjármagnseig-
endur en ekki eingöngu ellilífeyris-
þega.
Hlýtur umhverfisverðlaun Norðurlanda
Kortleggur tegimdir
í útrýmingarhættu
SVÍINN Torleif Ingelög hlaut í gær
umhverfisverðlaun Norðurlanda-
ráðs, en þau eru nú veitt í fyrsta
sinn. Geir H. Haarde, forseti ráðs-
ins, afhenti Ingelög verðlaunin við
athöfn í Kuopio í Finnlandi.
Torleif Ingelög er líffræðingur og
hefur beitt sér mjög fyrir því að
tekið yrði tillit til umhverfissjónarm-
iða við þróun landbúnaðar og skóg-
arhöggs. Frá því í byrjun áttunda
áratugarins hefur hann bæði staðið
að rannsóknum og gefið út fræðirit
og beitt sér á opinberum vettvangi
fyrir umhverfisvemd.
Ingelög átti frumkvæði að því að
ArtData-banken var settur á lag-
gimar, en í bankanum er að finna
upplýsingar um dýra- og plöntuteg-
undir, sem eru í útrýmingarhættu,
sjaldgæfar eða viðkvæmar. Um
3.500 tegundir eru á svokölluðum
rauðum lista bankans og hafa verið
kortlagðir 85.000 staðir, þar sem
þær er að finna.
Geir H. Haarde sagði í ræðu sinni
við verðlaunaafhendinguna að það
væri sér sérstök ánægja að afhenda
fyrstu umhverfisverðlaunin manni,
sem hefði beitt sér fyrir að varðveita
fjölbreytileika lífríkisins og til að
endurskapa aðstæður, sem tryggðu
slíkan fjölbreytileika, jafnvel í gróða-
atyinnuveginum skógarhöggi.
í þakkarræðu sinni sagði Ingelög
meðal annars að þótt skógarhögg á
Norðurlöndum hefði tekið miklum
breytingum og tæki nú miklu meira
tillit til umhverfisins en áður, væri
enn verið að fella skóg, sem hýsti
tegundir í útrýmingarhættu. Slíkt
væri óverjandi.
Ingelög skoraði því á skógar-
höggsiðnaðinn á Norðurlöndum að
koma sér saman um fimm ára bann
yið skógarhöggi á landi, þar sem
þannig háttaði til. Jafnframt skoraði
hann á Norðurlandaráð og norrænu
ríkisstjómimar að grípa strax til
aðgerða til að varðveita fjölbreyti-
leika lífríkis skóganna. „Annars er
það of seint eftir fimm til tíu ár,“
sagði hann.
Morgunblaðið/RAX
Fundað með
ráðherra
HELGI Hjörvar framkvæmda-
stjóri Blindrafélagsins hefur átt
fund með Finni Ingólfssyni við-
skiptaráðherra, þar sem hann
gerði ráðherra grein fyrir
óánægju blindra með nýja 2.000
króna seðilinn. Sagði hann að
ráðherra hefði tekið vel málaleit-
an sinni. Ræddar voru leiðir til
úrbóta og sagðist Helgi vera
bjartsýnn, þar sem ráðherrann
hefði tekið málið að sér, og von-
aðist hann eftir að niðurstaða
fengist á næstunni.
Eldur í
hitaveitu-
stokki
ELDUR kom upp í hitaveitu-
stokki í Mosfellssveit í gær-
morgun. Kveikt hafði verið í
einangrun i stokknum og tók
töluverðan tíma að komast fyrir
alla glóð.
Samkvæmt upplýsingum
slökkviliðsins í Reykjavík er
talið líklegast að krakkar hafí
verið að fikta með eld við stokk-
inn, en göt eru á honum. Gömlu
stokkamir em þannig úr garði
gerðir að þeir eru einangraðir
með torfi, eða reiðingi, og lifir
glóðin vel og lengi í einangrun-
in'ni. Slökkviliðsmenn hreinsuðu
reiðinginn upp úr stokknum og
komust þannig fyrir eldinn.
Borgarráð
Höfnín fær
nýjan bát
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka rúmlega 72,2 milljón
króna tilboði Damen S.Y. í
byggingu dráttarbáts fyrir
Reykjavíkurhöfn.
Stjóm innkáupastofnunar
lagði til við borgarráð að geng-
ið yrði til samninga við Damen
S.Y. á grundvelli 72.201.740,00
króna tilboðs þeirra í lokuðu
útboði með fyrirvara um sam-
þykki hafnarstjómar.
Hafnarstjóm samþykkti á
fundi sínum 8. nóvember að
ganga að tilboðinu.
Nýr leikskóli
Borgin
kaupir hús
arkitekta
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að kaupa eigh Arkitektafélags
íslands og Lífeyrissjóðs arki-
tekta við Freyjugötu 41. Kaup-
verðið er 19,2 milljónir króna.
Fyrirhugað er að breyta hús-
næðinu og nýta það sem leik-
skóla.
Gert er ráð fyrir að eignin
verði afhent 1. janúar 1996.
Fram kemur að stjóm Arki-
tektafélags íslands og Lífeyr-
issjóðs arkitekta hafi samþykkt
kauptilboðið með fyrirvara um
samþykki aðalfundar.
Rændur af
félögunum
LÖGREGLAN hafði afskipti af
mjög ölvuðum manni á Lauga-
vegi kl. rúmlega 22 á mánu-
dagskvöld. Þegar maðurinn
mátti mæla skýrði hann frá því
að félagar hans hefðu rænt af
honum peningum og væri hann
að leita þeirra.
Lögreglan fann tvo félaga
mannsins á veitingastaðnum
Keisaranum og voru þeir einnig
vel við skál. Þeir viðurkenndu
að hafa fengið „lán“ hjá mann-
inum og höfðu seðlaveski hans
undir höndum.
Sagað
í rafleiðslu
ELDUR kom upp í rafmagns-
töflu gistihúss að Brautarholti
22 í gærmorgun. Hann var
fljótslökktur og urðu litlar
skemmdir.
Verið var að saga í steinvegg
þegar sögin lenti á rafmagns-
leiðslu og tók hana í sundur.
Þá gaus upp eldur í rafmagn-
stöflunni.