Morgunblaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Heilbrigðisráðherra um St. Jósefsspítala Bráðaþj ónusta verði lögð niður Mengun og raki í loftinu ÁBERANDI gulur og rauður lit- ur var ríkjandi í þokunni sem lá yfír höfuðborgarsvæðinu meðan sólar naut í gær og segir Eyjólf- ur Þorbjörnsson veðurfræðingur að skýringa á því sé að leita í litrófí ljóssins. Sólin skíni í gegnum mikinn raka og jafnvel óhreinindi og brotnar þá niður í liti. Því lægra sem þokan liggur því rauðleitarí verður blærínn. Eyjólfur segir að þetta gerist þó ekki alltaf þegar þoka er heldur séu litbrigðin nokkuð háð rakanum I loftinu og óhrein- indunum. „Þegar sýndar eru myndir frá Indlandi þar sem sólin er eldrauð við sólarlag þá er það af völdum raka og meng- unar í loftinu. Á Reykjavíkur- svæðinu er komin töluverð mengun frá verksmiðjum og bfl- um og litbrigði af þessu tagi eru lfldega algengari hér en annars staðar á landinu," sagði Eyjólf- ur. Meðfylgjandi mynd tók Ragn- ar Axelsson á sama stað við Ólf- arsfell og baksíðumy ndin með sérkennflegu litunum var tekin í gær. Þá var greinilega ekki jafnmikill loftraki og í fyrradag, enda engin þoka yfír borginni. BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar hefur mótmælt þeirri fyrirætlun heil- brigðisráðherra að breyta megin- starfsemi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. í erindi ráðherra til stjómar spítalans er gert er ráð fjúir að bráðaþjónustu á lyflækn- ingadeild verði hætt og handlækn- ingadeild verði breytt í fimm daga deild. Hafnarfjarðarbær eignaraðili í bókun bæjarráðs Hafnarfjarð- ar er einnig minnt á að Hafnar- íjarðarbær er eignaraðili að spíta- lanum og að allar tillögur um breytingar á meginstarfsemi hans hljóti að koma til umfjöllunar hjá bæjaryfirvöldum. Á því hafi verið nokkur misbrestur. Fram kemur að bæjarráð mótmæli eindregið þeim fyrirætlunum að breyta meg: instarfsemi spítalans eða ... „í Bæjarráð Hafnar- fjarðar bókar mótmæii fyrsta lagi verði bráðaþjónustu á lyflækningadeild hætt, í öðru lagi verði handlækningadeild breytt í fimm daga deild ...“ eins og seg- ir í bréfi heilbrigðisráðherra til stjómar spítalans. Mikilvægir þættir leggjast af Ámi Sverrisson, framkvæmda- stjóri St. Jósefsspítala, segir að óskað hafí verið eftir fundi með heilbrigðisráðherra, þar sem stjómin sé ekki sátt við tillögur tilsjónarmannsins, sem ráðherra skipaði um miðjan september, og ráðherra hafí gert að sínum. „Við viljum fá tækifæri til að ræða við ráðherrann og gera okkar athuga- semdir,“ sagði Ámi. „Þetta þýðir að eiginleg sjúkra- hússtarfsemi leggst niður eins og hún hefur verið fram að þessu og gerir það að verkum að mjög veigamiklir þættir, sem Hafnfirð- ingar og nágrannabyggðarlögin hafa getað gengið að, leggjast af.“ Engar áætlanir Ámi sagði að engar áætlanir væm um hvaða þjónusta tæki við, einungis sé tekið fram að hún eigi að verða önnur án nokkurrar skil- greiningar. „Við getum ekki séð að sú þjónusta sem við höfum veitt fram að þessu geti dottið sjálfkrafa inn í þjónustu sjúkra- húsanna í Reykjavík," sagði hann. „Þau eiga við verulegan uppsafn- aðan vanda að stríða og geta ekki bætt á sig þjónustu." Félög eldri borgara Mótmæla fyrirhugaðri skerðingu í ÁLYKTUNUM frá félögum eldri borgara á Akranesi og í Borgamesi og nágrenni eru samþykkt mótmæli vegna fyrirhugaðrar skerðingar á greiðslum til lífeyrisþega frá næstu mánaðamótum, samkvæmt frum- varpi til fjárlaga ríkisins, sem nú liggur fyrir Alþingi. I ályktun félaganna kemur fram að lækka eigi lífeyrisgreiðslur um 6-7% á næsta ári. Þá er mótmælt tillögu um skerðingu á bótum al- mannatrygginga og aukinni greiðslu lífeyrisþega fyrir heilbrigðisþjón- ustu. Fyrirhuguðum fjármagns- tekjuskatti, sem eingöngu á að leggja á lífeyrisþega, er mótmælt og bent á að fjármagnstekjuskatt ætti að leggja á alla fjármagnseig- endur en ekki eingöngu ellilífeyris- þega. Hlýtur umhverfisverðlaun Norðurlanda Kortleggur tegimdir í útrýmingarhættu SVÍINN Torleif Ingelög hlaut í gær umhverfisverðlaun Norðurlanda- ráðs, en þau eru nú veitt í fyrsta sinn. Geir H. Haarde, forseti ráðs- ins, afhenti Ingelög verðlaunin við athöfn í Kuopio í Finnlandi. Torleif Ingelög er líffræðingur og hefur beitt sér mjög fyrir því að tekið yrði tillit til umhverfissjónarm- iða við þróun landbúnaðar og skóg- arhöggs. Frá því í byrjun áttunda áratugarins hefur hann bæði staðið að rannsóknum og gefið út fræðirit og beitt sér á opinberum vettvangi fyrir umhverfisvemd. Ingelög átti frumkvæði að því að ArtData-banken var settur á lag- gimar, en í bankanum er að finna upplýsingar um dýra- og plöntuteg- undir, sem eru í útrýmingarhættu, sjaldgæfar eða viðkvæmar. Um 3.500 tegundir eru á svokölluðum rauðum lista bankans og hafa verið kortlagðir 85.000 staðir, þar sem þær er að finna. Geir H. Haarde sagði í ræðu sinni við verðlaunaafhendinguna að það væri sér sérstök ánægja að afhenda fyrstu umhverfisverðlaunin manni, sem hefði beitt sér fyrir að varðveita fjölbreytileika lífríkisins og til að endurskapa aðstæður, sem tryggðu slíkan fjölbreytileika, jafnvel í gróða- atyinnuveginum skógarhöggi. í þakkarræðu sinni sagði Ingelög meðal annars að þótt skógarhögg á Norðurlöndum hefði tekið miklum breytingum og tæki nú miklu meira tillit til umhverfisins en áður, væri enn verið að fella skóg, sem hýsti tegundir í útrýmingarhættu. Slíkt væri óverjandi. Ingelög skoraði því á skógar- höggsiðnaðinn á Norðurlöndum að koma sér saman um fimm ára bann yið skógarhöggi á landi, þar sem þannig háttaði til. Jafnframt skoraði hann á Norðurlandaráð og norrænu ríkisstjómimar að grípa strax til aðgerða til að varðveita fjölbreyti- leika lífríkis skóganna. „Annars er það of seint eftir fimm til tíu ár,“ sagði hann. Morgunblaðið/RAX Fundað með ráðherra HELGI Hjörvar framkvæmda- stjóri Blindrafélagsins hefur átt fund með Finni Ingólfssyni við- skiptaráðherra, þar sem hann gerði ráðherra grein fyrir óánægju blindra með nýja 2.000 króna seðilinn. Sagði hann að ráðherra hefði tekið vel málaleit- an sinni. Ræddar voru leiðir til úrbóta og sagðist Helgi vera bjartsýnn, þar sem ráðherrann hefði tekið málið að sér, og von- aðist hann eftir að niðurstaða fengist á næstunni. Eldur í hitaveitu- stokki ELDUR kom upp í hitaveitu- stokki í Mosfellssveit í gær- morgun. Kveikt hafði verið í einangrun i stokknum og tók töluverðan tíma að komast fyrir alla glóð. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins í Reykjavík er talið líklegast að krakkar hafí verið að fikta með eld við stokk- inn, en göt eru á honum. Gömlu stokkamir em þannig úr garði gerðir að þeir eru einangraðir með torfi, eða reiðingi, og lifir glóðin vel og lengi í einangrun- in'ni. Slökkviliðsmenn hreinsuðu reiðinginn upp úr stokknum og komust þannig fyrir eldinn. Borgarráð Höfnín fær nýjan bát BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka rúmlega 72,2 milljón króna tilboði Damen S.Y. í byggingu dráttarbáts fyrir Reykjavíkurhöfn. Stjóm innkáupastofnunar lagði til við borgarráð að geng- ið yrði til samninga við Damen S.Y. á grundvelli 72.201.740,00 króna tilboðs þeirra í lokuðu útboði með fyrirvara um sam- þykki hafnarstjómar. Hafnarstjóm samþykkti á fundi sínum 8. nóvember að ganga að tilboðinu. Nýr leikskóli Borgin kaupir hús arkitekta BORGARRÁÐ hefur samþykkt að kaupa eigh Arkitektafélags íslands og Lífeyrissjóðs arki- tekta við Freyjugötu 41. Kaup- verðið er 19,2 milljónir króna. Fyrirhugað er að breyta hús- næðinu og nýta það sem leik- skóla. Gert er ráð fyrir að eignin verði afhent 1. janúar 1996. Fram kemur að stjóm Arki- tektafélags íslands og Lífeyr- issjóðs arkitekta hafi samþykkt kauptilboðið með fyrirvara um samþykki aðalfundar. Rændur af félögunum LÖGREGLAN hafði afskipti af mjög ölvuðum manni á Lauga- vegi kl. rúmlega 22 á mánu- dagskvöld. Þegar maðurinn mátti mæla skýrði hann frá því að félagar hans hefðu rænt af honum peningum og væri hann að leita þeirra. Lögreglan fann tvo félaga mannsins á veitingastaðnum Keisaranum og voru þeir einnig vel við skál. Þeir viðurkenndu að hafa fengið „lán“ hjá mann- inum og höfðu seðlaveski hans undir höndum. Sagað í rafleiðslu ELDUR kom upp í rafmagns- töflu gistihúss að Brautarholti 22 í gærmorgun. Hann var fljótslökktur og urðu litlar skemmdir. Verið var að saga í steinvegg þegar sögin lenti á rafmagns- leiðslu og tók hana í sundur. Þá gaus upp eldur í rafmagn- stöflunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.